Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 56

Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 370. Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd sumarsins er komin til Íslands.  kvikmyndir.isMBL Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 367  kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375. „Splunkunýtt framhald af ævintýri Péturs Pan!“ Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 16. Vit 377. Frumsýning Frumsýning Með hasargellunum Milla Jovovich The Fifth Element og Michelle Rodriguez The Fast and the Furious. Frá leikstjóra Event Horizon. Hasartryllir ársins. Sýnd í lúxus kl. 6 og 10. B. i. 16. Vit nr. 380. Sýnd kl. 5.45 og 8.30. Vit 380. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Frá framleiðendum Austin Powers 2 kemur þessi sprenghlægilega gamanmynd um mann sem leggur allt í sölurnar til að fara á vit ævintýranna. Annað eins ferðalag hefur ekki sést! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 379. Jim Carrey í hreint magnaðri mynd sem kemur verulega á óvart Sýnd kl. 7 og 10. B. i. 16. HK DV HJ Mbl Frá framleiðendum The Mummy Returns. kvikmyndir.is SG DV ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5.45 og 8. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i.12 Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd sumarsins er komin til Íslands. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5. B. i. 16. Sýnd kl. 10.15. B.i. 12.  ÓHT Rás 2 1/2HK DV Sannkölluð verðlaunamynd. Laura Linney var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlutverki. Auk þess var handrit myndarinnar tilnefnt sem besta handrit ársins. Hlý og mannbætandi kvikmynd sem kemur öllum í gott skap. Kvikmyndir.com Tilboð mánaðarins 20% afsláttur af öllum snyrtibuddum Komdu og fáðu ráðgjöf föstudaginn 10. maí Lyf & heilsa Fjarðarkaupum 13-17 Debenhams 14-18 Lyf & heilsa Kringlunni 14-18 Níundi viðtalstíminn (Session 9) Hrollvekja Bandaríkin 2001. Skífan VHS. (100 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn og handrit Brad Anderson. Aðahlutverk Pet- ter Mullan, David Caruso. HÓPUR óheflaðra og geðvondra byggingaverkamanna fær það vandasama verk að hreinsa ban- eitrað asbest úr risastóru fyrrver- andi geðveikrahæli sem til stendur að breyta í safn. Þetta er meira en lítið drungaleg stofnun og ekki bætir úr skák að umdeild og all- vafasöm meðferð á vistmönnum olli því að starfsemin var lögð niður á sínum tíma. Og svo fara ískyggi- legir hlutir að gerast. Eru þeir tengdir hælinu? Eða er óeiningin meðal vinnufélag- anna valdurinn? Hér er á ferð allvelheppnaður og óvenju ógnvekjandi spennu- tryllir þar sem hæst ber góðan leik og hugvitssamlega tækni- vinnu, sér í lagi kvikmyndatöku, hljóð og lýsingu sem öll miðar að því að skapa drungalega stemn- ingu, óöryggi í brjósti áhorfandans og tortryggni í garð allra persóna. Því er verr og miður að handritið er ekki í sama gæðaflokki, því nið- urstöður eru heldur í ódýrari kant- inum miðað við það sem lagt hafði verið inn. En framan af og þegar „best“ lætur nær hrollurinn fá- gætri ónotakennd, sem ég man vart eftir að hafa fundið síðan ég sá Seven. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Skemmdir á hæli Mulholland Dr. Þessi draumlógíska og seiðandi noir-saga skipast tvímælalaust í flokk bestu mynda David Lynch. Óræð en býr yfir leyndu merk- ingarsamhengi. (H.J.) Háskólabíó Monster’s Ball Einkar vel gerð kvikmynd um einstaklinga og lífsviðhorf í Suðurríkjum Bandaríkjanna. (H.J.) Regnboginn The Royal Tennenbaums Ljóðræn, vel gerð gamanmynd um fjölskyldu í súrrealískri tilvistarkreppu. (H.L.) Sambíóin Blade II Vampírubaninn Blade snýr hér aftur fílefldur og betri en í fyrri myndinni. Farið er skemmti- legar nýjar leiðir í úrvinnslu á vampírumýt- unni og ekkert til sparað í tæknivinnslu. (H.J.)  Laugarásbíó Frailty Óvæntasta skemmtun ársins. Leikstjórinn Bill Paxton leikur mann sem fær vitrun að of- an um að hefja útrýmingarherferð gegn djöfl- um í mannsmynd. Spennandi, hrollvekjandi og átakanleg. (S.V.)  Smárabíó Jimmy Neutron Virkilega vel til fundin og flott teiknimynd. Þar segir frá snillingnum Jimmy og félögum hans sem leggja í spennandi leiðangur til annarrar plánetu til að bjarga foreldrum sín- um. Skemmtun fyrir alla í fjölskyldunni. (H.L.)  Sambíóin, Laugarásbíó Kate and Leopold Tímagatsmynd um breskan aðalsmann sem dettur inn í nútímann í miðri New York og verður ástfanginn. Bráðskemmtileg láttu-þér- líða-vel-mynd, vel leikin og skrifuð. (S.V.)  Smárabíó A Beautiful Mind Hugvekjandi kvikmynd, þar sem margar áhugaverðar spurningar um eðli mannshug- ans eru dregnar fram. (H.J.)  Sambíóin, Háskólabíó. Skrímsli HF Létt og skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. (S.V.)  Sambíóin Spider-Man Ný og flott mynd um Kóngulóarmanninn í gamaldags hasarblaðastíl, í bland við straumlínulagað tölvugrafíkútlit. Myndin er frábær framan af en slappast þegar á reynir. (H.J.)  Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó Ísöld Teiknimynd. Ágætis skemmtun, sérstaklega fyrir börn, þótt sagan sé frekar einföld og ekki sérlega fersk. (H.L.)  Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó Rollerball Þessi villimannslega hasarfantasía hefur ým- islegt til síns brúks. A.m.k. kann leikstjórinn John McTiernan að halda uppi tempóinu á atburðarásinni. (H.J.) Regnboginn Iris Frábær leikur í fremur slappri mynd, sem er alls ekki nógu skemmtileg og sýnir engan veginn hvernig manneskja og heimspekingur Iris Murdock var. (H.L.) Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó. Crossroads Frumraun poppstjörnunnar Britney Spears á hvíta tjaldinu er ekki alvond. Leikur með ímynd Britney í myndinni er athyglisverður en handrit klisjuofið. (H.J.) Sambíóin Aftur til hvergilands – Peter Pan II Pétur Pan berst enn við Kaftein Krók og nú með hjálp Jónu dóttur hennar Vöndu. Ósköp sæt mynd en heldur tíðindalítil og ófrumleg. (H.L.) Sambíóin Birthday Girl Stórstjarnan Nicole Kidman leikur rússneska póstbrúður sem kemur til Englands. Sagan er býsna smellin og leikararnir ekki af verri endanum. Einhver pirrandi óstöðugleiki hrjáir þó leikstjórnina, og myndin fer í allar áttir en samt enga. (H.L.) Regnboginn John Q Denzel Washington leikur föður sem bregst hinn versti við þegar tryggingarnar neita að borga hjartaígræðslu fyrir soninn. Umfjöllun- arefnið er þarft, handritið hefði mátt vera frumlegra og endirinn er í mótsögn við til- gang sögunnar. (H.L.) Háskólabíó. The Scorpion King Fyrsti sumarsmellurinn er samsuða úr Múmíumyndunum og Conan villimanni. Seiðskrattar og sverðaglamur „fyrir tíma píra- mídanna“. Meðalbrellur, vondur leikur, heila- laust grín. (S.V.) Laugarásbíó, Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík og Keflavík Mean Machine Bresk útgáfa harðsoðinnar, bandarískrar myndar um átök fanga og gæslumanna þeirra í fótboltaleik. Vinnie Jones daufur, út- koman hvorki fugl né fiskur. (S.V.) Háskólabíó Showtime Ólíkar löggur í Los Angeles verða sjónvarps- stjörnur og samherjar. Hefði getað orðið smellin satíra. (S.V.) Sambíóin The Time Machine Leikurinn slæmur en stundum tekst að ná upp spennu. (H.L.) Sambíóin Bubble Boy Óvenjuleg aulabrandaramynd þar sem sögu- hetjan er ástfanginn ungur maður með ónýtt ónæmiskerfi og býr í plastkúlu. Heldur út á þjóðveginn í leit að ástinni sinni. Á sína góðu og slæmu kafla, rétt einsog vegurinn. (S.V.) Sambíóin BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.