Vísir - 07.07.1980, Qupperneq 19
WÍSm Mánudagur 7. júli 1980. .19
iþróttii iiiiiiilll iiiiiiiiiiPiiiiiiiiiiiii ffm
Meistaramót tslands I frlálsíóróttum:
FJÖRIR GULLPENINGAR OG
ÍSLANDSMET HJÁ HELGU
Hin stórefnilega frjálsiþrótta-
stúlka úr KR, Helga Halldórs-
dóttir, varö um helgina fjórfaldur
tslandsmeistari i frjálsiþróttum
er Meistaramót islands var hald-
iö á Laugardalsvelli. Helga sigr-
aöií fjórum keppnisgreinum, og i
einni þeirra setti hún nýtt ts-
landsmet.
Þaö var I 200 metra hlaupi er
hún hljóp á 24,96 sek. Eldra metið
var 25,22 sek. en það áttu þær Ing-
unn Einarsdóttir og Sigriður
Kjartansdóttir úr KA.
Helga sigraði einnig 1100 metra
grindarhlaupi á 14,56 sek. i lang-
stökki er hún stökk 5,57 metra og i
100 metra hlaupi kom hún fyrst i
mark á 12,34 sek.
Jón Oddsson knattspyrnumað-
ur úr KR kom talsvert á óvart er
hann sigraði i langstökki. Hann
var þó öruggur sigurvegari þar,
stökk lengst 7,14 metra og átti
þrjú stökk yfir 7 metra. Næsti
maður var Friðrik Þór Óskarsson
úr IR sem stökk 6,92 metra.
OIA átti tvo bestu menn i há-
stökkinu. I fyrsta sæti varö hinn
ungi Unnar Vilhjálmsson sem
stökk 2,01 metra, og Stefán Frið-
leifsson stökk 1,98.
Spretthlaupararnir Oddur Sig-
urösson og Sigurður Sigurðsson
börðust mikilli baráttu i sprett-
hlaupunum. I 100 metra hlaup
inu varð Oddur að láta 1 minni
pokann en þar hljóp Sigurður á
10,72 sek. en Oddur á 10,82 sek.
Oddur kom hinsvegar fram
hefndum I 200 metra hlaupinu,
hljóp þar á 21,44 sek. en Sigurður
á 21,68 sek.
Guðmundur Sigurðsson úr
UMSE vakti mikla athygli i þessu
móti, en hann er að keppa á sinu
fyrsta ári I stórmótum i frjálsum.
Hann sigraði i 1500 metra hlaup-
inu á 4,04,9 min. en varð að láta
sér nægja annað sætið i 800 metra
hlaupinu á eftir IR-ingunum
Agústi Asgeirssyni sem hljóp á
l, 56,2 min.
Hörð barátta
Þá var hörkukeppni i spjótkast-
inu. Þar sigraði Sigurður Einars-
son Armanni með 74 metra kasti
sem hann náði i siðustu umferð-
inni og komst þannig framyfir
Einar Vilhjálmsson sem hafði
kastað 73,18 metra.
Þá var munurinn ekki mikill i
kúluvarpinu en þar sigraði
Hreinn Halldórsson með 19,63 m,
annar Oskar Jakobsson með 19,56
m. Óskar varð einnig að láta sér
nægja silfurverðlaunin i kringlu-
kastinu þar sem hann kastaöi
56,76 metra, sigurvegari varð Er-
lendur Valdimarsson með 57,32
metra.
Aðalsteinn Bernharðsson KA
varð tvöfaldur sigurvegari, sigr-
aði i 400 metra hlaupinu á 49,03
sek. og i 400 metra grindarhlaupi
kom hann fyrstur i mark á 59,39
sek.
Sigurður T. Sigmundsson FH
varö einnig tvöfaldur sigurveg-
ari, hljóp 5 km á 10,01,3 min. og 3
km hindrunarhlaup á 10,01,3 min.
Söguleg „keppni”
Keppnin i stangarstökkinu var
allsöguleg. Þar voru fjórir kepp-
endur skráðir til leiks, en aðeins
einn þeirra hóf keppni við fjóra
metra. Það var Kristján Gissur-
arson Armanni, en hinir voru allir
aö keppa i 110 metra grindar-
hlaupi sem lauk með sigri Eliasar
Sveinssonar á 14,93 sek. Þegar
þeir komu til leiks i stangarstökk-
inu hafði Kristján stokkið fjóra
metra og látið siðan hækka i 4,20!
— Enginnfór þá hæð, og Kristján
var þvi hinn öruggi sigurvegari.
Sigurvegarar i öðrum greinum
urðu þessir: 1 þristökki Friðrik
Þór Óskarsson IR með 14,40
metra, i 800 metra hlaupi kvenna
Sigurbjörg Karlsdóttir UMSE
sem hljóp á 2,24,3 min, og hún
sigraði einnig i 1500 metra hlaup-
inu á 5,02,64 min. 1 kúluvarpi
kvenna Guðrún Ingólfsdóttir Ar-
manni með 13,10 metra og hún
kastaði einnig lengst i kringlu-
kasti 46,54 metra. Hrönn Guð-
mundsdóttir UBK sigraði i 400
metra hlaupi á 59,85 sek. og
Maria Guðjónsdóttir HSH stökk
hæst allra i hástökki kvenna 1,74
metra. 1 karlahlaupunum sigraði
KA i 4x100 á 43,12 sek. en IR i
4x400 metra hlaupinu á 3,46,14
min. I kvennaboðhlaupunum varð
tvöfaldur sigur hjá ÍR sem fékk
timann 50,32 i styttra hlaupinu og
4,02,25 mín. i þvi lengra. Telpna
sveit Armanns varð i 2. sæti i
4x100 metra hlaupinu á 50,92 sek.
sem er telpna-og meyjamet. Og
þá er einungis ógetið um keppn-
ina i fimmtarþraut en þar sigraði
Ellas Sveinsson með 3358 stig.
Hin stórefnilega Helga Halldórsdóttlr úr KR varö fjórfaldur tslands-
meistari um helgina.
Visismynd Friðþjófur
Auói
Verkstæði okkar verður lokað vegna
sumarleyfa frá 14. júlí til 11. ágúst.
Þeir sem þurfa 1000 km uppherslu og skoðun á nýjum bílum hafi sam-
band við afgreiðslu verkstæðisins. Einnig verður leitast við að sinna
minni háttar og nauðsynlegustu viðgerðum.
Við viljum einnig vekja athygli viðskiptavina okkar á því að eftirtalin
umboðsverkstæði verða opin á þessum tíma:
BÍLAVERKSTÆÐI JÚNASAR. Skemmuvegi 24, sími 71430.
VÉLAVAGN, bílaverkstæði, Borgarholtsbraut 69, Kópavogi, sími
42285.
BÍLAVERKSTÆÐI BJÖRN 0G RAGNAR. Vagnhöfóa 18, sími 83650.
BÍLTÆKNI H.F.. Smiðjuvegi 22, Kópavogi, sími 76080.
BIRFREIÐAVERKSTÆÐI HARÐAR 0G NÍELSAR. Vesturvör 24, Kópa-
vogi, sími 44922.
VÉLAÞJÓNUSTAN S.F.. Smiðjuvegi E 38, sími 74488.
Smurstöð okkar verður opin
eins og venjulega.
IhIHEKIAHF
I Laugavegi 170-172 Sími 21240