Vísir - 19.07.1980, Blaðsíða 20

Vísir - 19.07.1980, Blaðsíða 20
VÍSIR Laugardagur 19. júll 1980 M hœ kiakkar! Umsjón: Anna Brynjúlfsdóttir Tvcir á sílaveiðum Sveinn Þór Hrafnsson og óskar Gunnarsson. (Mynd: Anna). Jói/ Kalli og Friðrik eiga skál, sem í eru 300 kúlur, hvitar, rauðar og svartar. Getið þið fundið, hversu margar kúlur eru af hverj- um lit. Það eru helmingi fleiri hvítar kúlur en rauðar og svörtu kúlurnar eru 100 færri en þær hvítu. Á móti hverjum 3 svörtum kúlum eru 4 rauðar. (Svar á bls. 22 — No. 1) Sveinn Þór Hrafnsson er 11 ára strákur, sem á heima í Vaðlaseli 2 í Breiðholti í Reykjavik. Ég hitti hann og vin hans, óskar Gunnarsson, 11 ára, Strandaseli 4, þegar þeir voru að veiða síli á óbyggðu svæði ekki langt frá hinu margumtalaða Fífuhvammslandi. — „Viðförum stundum að veiða síli hérna", sögðu strákarnir, „sílin eru yfirleitt lítil, og við sleppum þeim aftur. Annars reyndum við um daginn að hafa þau í krukku heima og gefa þeim, en þau drápust flest", sagði Oskar. — Ekki öll, sagði Sveinn. „Það eru nokkur lifandi hjá mér. Ég er nú með þau í stóru fati og gef þeim mold að borða. Bráðum fæ ég fiskabúr og ætla þá að setja þau í búrið. Eitt sílið er eins stórt og þumalputtinn á mér. En það stingur, það er nefnilega með horn á bakinu. Ég hef stungið mig á stóru síli. Fyrst vöruðum við okkur ekki á hornunum á sílunum, en nú tökum við þau alltaf upp á sporðunum". — „Ég fór að veiða í Elliðavatni um daginn, segir Óskar", en ég veiddi bara ekki neitt, ég ætlaði auðvitað að veiða silung". — „Ég hef átt alls kon- ar dýr", segir Sveinn", ég hef átt hund og kött, dúf- ur og mýs og nú á ég hest. Ég var einu sinni með dúfur í kjailaranum á húsinu okkar og gaf þeim bygg ,að borða. Svo einu sinni sáum við, að það voru komnar mýs í bygg- pokann. Þetta voru haga- mýs, litlar og brúnar. Ég gaf músunum að borða, en pabbi og mamma voru nú ekki hrifin af því. Svo voru settar músagildrur. En við vorum alveg hissa, þegar uppsláttartimbrið var hreinsað út úr bíl- skúrnum, þá voru svona um 30 mýs á bak við það. Það voru allt hagamýs. Þaðer víst mikið um þær hérna í kring. Hesturinn minn heitir Léttfeti og ég fékk hann fyrir mánuði síðan. Ég er svo heppinn, að ég get alltaf farið á hestbak, þegar ég vil, því að hann er á beit hérna rétt hjá húsinu okkar, á Alaska- túninu. I vetur vorum við með taminn hrafn. Pabbi fékk hann hjá einhverjum manni. Hann var sniðug- ur hrafninn, hann gat flautaðog sagði hálfpart- inn já. Hann flautaði samt aldrei, ef einhver horfði á hann. En svo hvarf hann einn góðan veðurdag, og hefur aldrei komiðaftur. Ég hef samt frétt af honum, ég frétti að hann hefði sést við strætóþvottastöðina og lika við síldarverksmiðj- una Klett. Við fundum líka einu sinni svartbaksunga úti í Viðey og tókum hann með heim. Við pabbi ætluðum aðtemja hann, en það var ekki hægt. Hann f laug svo sjálfur burt". Að lokum sögðu svo strákarnir þetta um frí- stundavinnu sína og skól- ann: Óskar: „Mér finnst ekki gaman í skólanum. Ég safna frímerkjum, bara íslenskum. Ég á frí- merkjabók, töng og stækkunargler, en það er það helst, sem maður þarf að eiga i frímerkja- söfnun. Ég lesekki mikið, þó helst á veturna, þegar skólinn er". Sveinn: „Núna fara flestar mínar frístundir í hestinn minn, hann Létt- feta. Ég les ekki mikið, bara teiknimyndasögur. Ég hef ekki enn lagt í öðru vísi bækur. Maður fær líka mest af teikni- myndasögum gefins, það er þá helst, ef maður á pening sjálfur, að maður kaupi hinsegin bækur". Á myndinni eru tveir veiðimenn. Annar veiðimaður- inn segir: Ef þú gefur mér tvo þinna fiska, þá er ég með helmingi fleiri fiska en þú. En hinn veiðimaðurinn segir: Gef þú mér heldur tvo þinna fiska, því að þá eigum við jafn marga fiska. Hve marga fiska á hvor veiðimaður? (Lausn á bls. 22 — No. 2) María og óli hafa teiknað 9 hús, sem líkjast hvert öðru, en aðeins tvö hús eru nákvæmlega eins. Getið þiö séð, hvaða hús það eru? Takið vel eftir gluggum, dyr- um, strompum, göf lum og þaki. (Svar á bls. 22 — No. 3)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.