Vísir - 19.07.1980, Síða 21

Vísir - 19.07.1980, Síða 21
VÍSIR P"" sandkassinn Gisli Sigur- geirsson, blaðama&ur, skrifar. • Halló/ þá er ég kominn í Sandkassann aftur. Sæmi er nefnilega fréttastjóri um stund, á meðan Elias er í sumarfríi, og frétta- stjórar hafa engan tíma til að standa í Sandkassa- leik. • Ég hafði hugsað mér að skreppa í útilegu út í guðsgræna náttúruna um síðustu helgi. Góðvinur minn réði mér frá því, benti mér réttilega á að síminn gæti hringt á meðan. Síðan hef ég ekki þoraðútfyrir dyr! Það er gott að eiga góða vini. • Nú eru Þingeyingar búnir að útbúa „túristagos". Hraunið rennur nokkur hundruð metra, en hverf- ur síðan ofan í gjá. Mér þykir sýnt, að neðan- jarðar fari hraunið til baka aftur og aftur, það sé því alltaf sama hraun- iðsem rennur, ekki ósvip- að og vatn í gosbrunni. Ég sannreyndi þetta þegar ég heimsótti gosstöðvarn- ar á dögunum, henti lambsskrokk á hraunið og viti menn, hann kom gril laður stund! eftir stutta • Ég vil þó ekki ráðleggja neinum að prófa þetta, því það þarf ótrúlegt snarræði til að ná skrokknum af hrauninu um leið og hann fer hjá. Náist hann ekki fer hann annan hring, niður í jörð ina og upp um gýginn. Þá er hætt við að hann of- grillist! •„Reykvíkingar peninga- lausir", segir Tíminn í fyrirsögn. Nú er heima, nær helm- ingur þjóðarinnar blank- ur. Ætli hinn helmingur- inn, „sem vinnur hörðum höndum, myrkranna á milli við verðmætasköp- un", eins og einhver orð- aði það, einhversstaðar, ekki alls fyrir löngu, geti ekki lánað þeim fyrir sár- ustu nauðsynjum. Jú, það er dýrt fyrir Reykvíkinga að búa úti á landi. • „Megi Akureyri aftur verða fegursti bær lands- ins", segir í fundargerð náttúruverndarnefndar Akureyrar. Með leyfi að spyrja, hvenær hætti hann að vera það og hvenær varð hann það? Þetta er svona álíka og þegar spurt var á fulln- aðarprófi fyrir langa löngu' „Hvað heitir fall- egasti fugl á íslandi?" Ailt annað en stokkandar- steggur var vitlaust. •„Ekki nóg fyrir fjár- má laráðher rann að dreyma bréf", „Hann verður lika að skrifa þau", segir Eiður Guðnason I Dagblaðinu. ER nokkur furða þó f jár- málaráðherra landsins vilji sofa og láta sig dreyma? • „Hvers vegna þyngjumst við?" spyr neytenda síða Dag blaðsins. Ég hef grun um svarið, en vil ekki vita það. • „Konur eiga að þegja og sætta sig við allt", segir Dagblaðið. Ég hef ekki trú á að þessi skipun hafi nokkur áhrif. Hver ætti þá að sjá um nýárs- ávarpið til þjóðarinnar? • „Peningar, peningar, og aftur peningar, það snýst allt um það í lífinu", sagði einn vinur minn armæðulegur þegar ég hitti hann í vikunni. Ég benti honum á að þetta væri vitleysa, hjá mér snérist lífið um enga pen- inga. •„Reykjavík fer fram, a.m.k. djammlega séð", segir Vísir á listasíðu. Þar fékkst skýringin á því hvers vegna Reykvik- ingar eru svona blankir. >\V 5?i Strákar, i ’ almáttugs bænum hjálpið mér niður úr þessu tr'é!!!! . •„Tugir milljóna í anddyri hjá Eimskip", segir Vísir. Þá held ég að blankheitin ættu að vera úr sögunni og helginni reddað hjá Reykvíking- um. Bara að fara í and- dyrið hjá Eimskip. Það væri ágætt ef einhver vildi senda mér slatta í pósti. • Þið vitið náttúrulega öll, að allir hlutir þenjast út við hita, en dragast að sama skapi saman við kulda. Þess vegna eru dagarnir lengri á sumrin. Jæja, veriði al-sæl og brosandi í umferðinni um helgina. Hittumst næsta laugardag. BORGAR TREVOR RRITT lURGEN HOWARD EKLAND GOSLAR Mynd sem er í anda hinna geysi vinsœlu sjónvarps- þátta SYND A BREIDTJALD með nýjum sýningarvélum

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.