Morgunblaðið - 21.05.2002, Qupperneq 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggi-
legan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Einkatímar í sjálfstyrkingu
Námskeið í Reykjavík
22.-24. maí 1. stig. Kvöldnámskeið
29.-31. maí 2. stig Kvöldnámskeið
01.-02. júní 2. stig Helgarnámskeið
...fegurð og ferskleiki
Loksins kom krem þar
sem virknin finnst þegar
það er borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur
munur! Ég mæli eindregið
með Silhouette fyrir
konur á öllum aldri og
eftir barnsburð er það
alveg nauðsynlegt.
Nýja Body scrubið er
kærkomin viðbót og
tvöfaldar virkni Silhouette
kremsins á húðina.“
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur árangur!“
Dísa í World Class
- Náðu toppformi fyrir sumarið
20% afsláttur af allri
Karin Herzog línunni
Kynningar og ráðgjöf
kl. 12-17:
þriðjudag 21. maí
Lyfja Garðartorgi
Miðvikudag 22. maí
Lyfja Setbergi
Fimmtudag 23. maí
Lyfja Smáratorgi
Föstudag 24. maí
Lyfja Lágmúla
GORDON Brown, fjármálaráðherra
í Bretlandi, bar í gær til baka fregnir
þess efnis að hann og Tony Blair for-
sætisráðherra væru staðráðnir í að
efna á næsta ári til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild að evrunni, sam-
eiginlegum gjaldmiðli tólf Evrópu-
sambandsríkja. Bresk blöð hafa
undanfarna daga haldið því fram að
Brown væri í reynd sammála skoð-
unum Blairs í þessu efni, en Brown
hefur fram að þessu talinn meðal efa-
semdarmanna um evruaðild.
Áður höfðu ýmis ummæli Blairs
gefið mönnum tilefni til að ætla að
forsætisráðherrann væri búinn að
gera upp hug sinn. Sagði hann m.a.
að hagsmunum landsmanna væri
langbest borgið með aðild.
The Daily Telegraph sagði að
Blair hefði ekki áður lýst jafn af-
dráttarlausum stuðningi við evruað-
ild en Blair hefur um margra mánaða
skeið verið sakaður um að þverskall-
ast við að lýsa afstöðu sinni til hugs-
anlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hafði blaðið eftir háttsettum stjórn-
arerindrekum að unnið væri að því
að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu,
líklega um mitt næsta ár.
Ummæli Blairs féllu í sjónvarps-
viðtali á BBC. Var dagblaðið The
Times sammála því mati að Blair
hefði vísvitandi bryddað upp á mál-
inu nú, en evruaðild hefur verið mik-
ið pólitískt deilumál í Bretlandi.
Sagði blaðið að Blair teldi að rétt
væri að ræða málið nú, áður en millj-
ónir breskra ríkisborgara streymdu
yfir á meginland Evrópu í sumarfrí,
þar sem þeir munu þurfa að nota evr-
una í fyrsta skipti.
Vonast hann til að sú reynsla fólks
muni verða þess valdandi, að veru-
lega dragi úr andstöðu í Bretlandi
við aðild að evrunni.
Evruaðild
enn bitbein
í Bretlandi
London. AFP.
XANANA Gusmao, forseti Austur-
Tímor (til hægri), tekur í hönd for-
sætisráðherra landsins, Mari Alk-
atiri, þegar fyrsta ríkisstjórn
landsins tók við völdum við form-
lega athöfn í höfuðborginni Dili í
gær. Á milli þeirra stendur Frans-
isco Guterres, forseti þingsins, og
til vinstri er Jose Ramos-Horta ut-
anríkisráðherra. Austur-Tímor
varð sjálfstætt ríki í gær (á sunnu-
dag að íslenskum tíma), eftir 24 ára
blóðugt borgarastríð gegn indónes-
ískum yfirráðum, og Gusmao tók
formlega við forsetaembættinu.
Þingið samþykkti m.a. í gær að
sækja um aðild að Sameinuðu þjóð-
unum og einnig undirritaði Alk-
atiri samkomulag við áströlsk
stjórnvöld sem tryggja Austur-
Tímor tekjur upp á fimm milljarða
dollara á næstu sautján árum
vegna olíu- og gasborana í Tímor-
hafi.
Peningarnir koma sér vel enda
býr meirihluti Austur-Tímorbúa
við mikla fátækt.
AP
Ríkisstjórn A-Tímor tekin við
HUGSANLEGT er að lestarslysið í
Potters Bar í útjaðri London fyrir
rúmri viku, sem kostaði sjö manns
lífið, hafi orðið af manna völdum.
Kevin Hyde, yfirmaður hjá verk-
takafyrirtæki, sem sér um viðhald á
járnbrautunum, segir að ýmislegt
benti til að um skemmdarverk hefði
verið að ræða.
Hyde sagði að svo virtist sem átt
hefði verið við rær í brautartein-
unum – sem olli því að þeir fóru í
sundur með þeim afleiðingum að
lestin lenti út af spori – á sólar-
hringnum fyrir slysið. Þar hefðu
óþekktir einstaklingar verið að
verki, en ekki eftirlitsaðilar járn-
brautanna. „Skoðun okkar er því sú
að ekki eigi að útiloka þann mögu-
leika að um skemmdarverk hafi ver-
ið að ræða,“ sagði hann.
Sérfræðingar á sviði samgöngu-
mála sögðu kenninguna hins vegar
afar hæpna. Hér væri um að ræða
örvæntingarfulla tilraun verktaka-
fyrirtækisins til að beina athyglinni
frá eigin vanrækslu því allt benti til
að orsök slyssins hefði verið slælegt
viðhald og eftirlit með brautartein-
unum.
Skemmdar-
verk orsök
lestarslyssins?
London. AP.
HÓPUR stjarnfræðinga hefur
fundið ellefu ný tungl við Júp-
íter og vitað er nú um alls 39
tungl við reikistjörnuna. Júp-
íter hefur fleiri þekkt tungl en
nokkur önnur reikistjarna. Vit-
að er um 30 tungl við Satúrnus
og 20 við Úranus. Alþjóða-
stjarnfræðisambandið (IAU)
staðfesti í fyrradag að ellefu ný
tungl hefðu fundist við Júpíter.
Stjarnfræðingar við Hawaii-há-
skóla og Cambridge-háskóla
fundu tunglin í desember með
stórum stjörnusjónauka sem er
búinn einni af stærstu stafrænu
myndavélum heims.
Telja að tugir nýrra
tungla finnist
Tunglin eru aðeins um 1,5 til
3 km í þvermál og mjög lítil
miðað við fjögur stærstu tungl-
in við Júpíter sem Galíleó Galí-
lei fann árið 1610 – Íó, Evrópa,
Ganymedes og Kallistó. Nýju
tunglin líkjast smástirnum eða
reikisteinum, sem talið er að
hafi orðið til mjög snemma í
þróun sólkerfisins og m.a. orðið
vísar að reikistjörnum.
„Við teljum að miklu fleiri
tungl finnist með nýrri tölvu-
tækni, ef til vill hundrað,“ sagði
einn stjarnfræðinganna, David
Jewitt, við Hawaii-háskóla.
Júpíter
Ellefu
ný tungl
finnast
Los Angeles Times.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti ítrekaði í gær stuðning sinn við
viðskiptabann Bandaríkjanna gegn
Kúbu en Jimmy Carter, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, hafði í
síðustu viku hvatt Bush til að af-
létta banninu, sem gilt hefur í
fjörutíu ár. Sagði Bush að Kúbu-
stjórn yrði fyrst að halda frjálsar
kosningar í landinu. „Þá fyrst mun
ég vinna að því með Bandaríkja-
þingi að létta banni af viðskiptum
og ferðalögum milli landanna
tveggja,“ sagði Bush í ræðu, sem
hann hélt í Washington.
„Ef ekki eru stigin skref í átt að
auknu frjálsræði í kúbverskum
stjórnmálum og umbætur fyrirskip-
aðar í efnahagsmálum munu við-
skipti við Kúbu ekki gagnast íbúum
landsins; þau munu einungis gera
[Fidel] Castro og handbendi hans
ríka menn, og styrkja tak þeirra á
valdataumunum,“ sagði Bush í gær
en síðar um daginn var hann við-
staddur hátíðahöld í Miami í tilefni
þjóðhátíðardags Kúbu, en fjöldi út-
lægra Kúbumanna býr í Flórída.
Forsetinn sagði hins vegar að
Bandaríkjastjórn hygðist gera
nokkrar breytingar, sem líklegar
væru til að bæta hag Kúbubúa. Er
ætlunin að gera bandarískum hjálp-
arstofnunum auðveldara fyrir að
stunda góðgerðastarfsemi á Kúbu;
þá verður skattfé beint til hjálp-
arstofnana, sem aðstoða vilja fólkið
á Kúbu; stofnað verður styrkjakerfi
fyrir kúbversk ungmenni sem vilja
stunda nám í Bandaríkjunum og
loks munu póstsamgöngur milli
landanna verða teknar upp að nýju.
Bush ítrekar
viðskiptabann
Washington. AFP, AP.
Nýjar
línur
á
nýjum stað
undirfataverslun
Síðumúla 3-5