Morgunblaðið - 21.05.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 21.05.2002, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 23 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S S PA 1 77 29 05 /2 00 2 Lífeyrissparna›ur er fjölskyldumál www.spar.is *m.v. 4% lífeyrissparna›, mána›artekjur 175.000 kr. og 6% ávöxtun. 21.365.990 kr. Ef flú ert í lífeyrissparna›i Sparisjó›sins og byrjar a› spara 25 ára átt flú 21.365.990 kr. vi› 65 ára aldur.* Far›u á www.spar.is og reikna›u út lífeyrinn flinn í reiknivél Sparisjó›sins. Trygg›u flér og flínum fjárhagslegt öryggi í framtí›inni. Haf›u samband vi› fljónustufulltrúa í Sparisjó›num flínum. með bílgeymslum og helst nálægt miðbænum. Þar látum við hendur standa fram úr ermum með skipu- lagi á Rafha-reitnum þar sem nú þegar eru risin slík hús og fleiri eru á teikniborðinu á fallegasta stað í Hafnarfirði, niðri við Lækinn. Svo verður norðurbakkinn sannkölluð paradís og þar verða eflaust reistar byggingar sem henta eldri borgur- um afar vel. Við ætlum einnig að standa ásamt ríkisvaldinu að bygg- ingu hjúkrunardeilda við Sólvang og heilsugæslustöðvar í miðbæ. 7) Á sviði menningarmála höfum við einbeitt okkur að því að tryggja starfsfólki og gestum menningar- stofnana almennilegt þak yfir höf- uðið. Mannvirki höfðu drabbast nið- ur eða voru löngu búin að sprengja utan af sér húsin með ötulli starf- semi: Þakið á Hafnarborg var end- urnýjað, þar lekur ekki lengur niður á sýningargesti og listaverk, þak Sívertsenshússins, elsta hússins okkar, var endurnýjað, Byggðasafn- ið fékk aukið húsnæði og rúsínan í pylsuendanum er vort glæsilega bókasafn í hjarta bæjarins. Mest um vert er að styrkja mannlíf og gera bæinn aðlaðandi fyrir listsýningar og annað menningarstarf af öllu tagi. Við eigum perlur eins og þær sem hér hafa verið nefndar og síðan Kvikmyndasafn og Hafnarfjarðar- leikhúsið sem notið hafa stuðnings Hafnarfjarðarbæjar. 8) Miðbærinn er að glæðast af kröftugu mannlífi Hafnfirðinga með því að fleira er þangað að sækja. Við höfum stuðlað að uppbyggingu á grundvelli framsækins skipulags fyrir svæðið. Fyrirtæki sjá sér hag í að hefja þar starfsemi og nýja bóka- safnið hefur hleypt miklu lífi í miðbæinn. Ný byggð á norðurbakka mun síðan verða eins og vítamín- sprauta fyrir miðbæ Hafnarfjarðar. 9) Í fjármálum höfum við sjálf- stæðismenn sýnt að okkur er treyst- andi til þess að standa fyrir kröft- ugri uppbyggingu en halda um leið þannig á fjármálum bæjarsjóðs að markviss áætlanagerð endurspeglar í réttu ljósi þær skuldbindingar og kostnað sem falla mun á bæjarsjóð næstu áratugi. Að því leyti hefur mönnum á fyrri tíð gjarnan orðið fótaskortur, framkvæmt kröftuglega en látið ófyrirsjáanlegar afleiðingar bitna á stjórnendum á síðari tímum. Með þeim aðferðum sem við beitum nú er skotið loku fyrir að þetta geti gerst. Áætlanir eru gerðar um fjár- málin til framtíðar og þær hafa stað- ist í öllum meginatriðum. Nærtæk- asta sönnun þess að fjármálastjórn er traust í Hafnarfirði eru þau góðu lánskjör sem bæjarsjóður nýtur hjá erlendum lánastofnunum. Hér er aðeins fátt eitt talið og ekki stórmál, eins og það að við endur- heimtum auðlindasvæði í Krýsuvík á síðastliðnu ári og stöndum ásamt fleirum að hugsanlegri jarðhitavirkj- un í Trölladyngju. Og raforkuverð lækkaði um nær 15% við samruna Rafveitu Hafnarfjarðar og Hitaveitu Suðurnesja. Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar- firði leggur verk sín óhikað í dóm kjósenda í komandi kosningum. Við erum stolt af verkum okkar og hinni bættu ímynd sem Hafnarfjörður hefur öðlast á kjörtímabilinu. Hér hefur ríkt stöðugleiki í stað sund- urlyndis fyrri meirihluta. Hafnar- fjörður á bjarta framtíð ef Sjálfstæð- isflokkurinn fær umboð til áframhaldandi áhrifa fyrir fólkið í fjölskylduvænum og fallegum bæ með bjarta framtíð. Höfundur er bæjarstjóri í Hafnarfirði. alltaf á þriðjudögum HEIMILI/FASTEIGNIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.