Morgunblaðið - 21.05.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 21.05.2002, Síða 36
FRÉTTIR 36 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Íbúð óskast 3ja—4ra herbergja íbúð óskast til leigu í lengri tíma fyrir miðaldra reglusöm hjón. Helst í Linda- eða Salahverfi í Kópavogi. Upplýsingar í síma 892 0020. Til leigu Byggingafélag Gylfa og Gunnars er með eftirtalið húsnæði til leigu: Hlíðasmári: Í nýju og fallegu húsnæði, hentar vel fyrir skrifstofu, verslun eða þjónustu. Stærðir frá 150—600 fm. Síðumúli: Í nýju og glæsilegu húsnæði, stærð ca 300 + fm. Grandavegur: Í húsnæði fyrir eldri borgara. Hentar vel fyrir nudd eða heilsugæslu, stærð 103 fm. Vegmúli: 141 fm mjög vel innréttað húsnæði sem hentar t.d. fyrir kírópraktora eða nuddara. Uppl. gefur Gunnar í síma 693 7310. HÚSNÆÐI ÓSKAST HÚSNÆÐI Í BOÐI Íbúð í Barcelóna Til leigu íbúð í Barcelona, laus: 28. maí—1. júní 15. júní—22. júní 20. júlí—27. júlí 29. júlí—3. ágúst 17. ágúst - 22. ágúst 28. sept. og út árið Uppl. gefur Helen í síma 899 5863. TILKYNNINGAR                    !"   # ! $%     %   &% Upplýsingar í síma 551 3836 frá kl. 16 til 17 sama dag. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Skeifan, til leigu verslunar- húsnæði Til leigu glæsilegt 820 m² verslunarhúsnæði í Skeifunni 8. Næg bílastæði. Áberandi staðsetning í ný endurbættu húsi. Húsnæðið losnar 1. júní. Upplýsingar í símum 588 2220 og 894 7997. upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR EÐVALD Valgarðsson, fram- leiðslustjóri hjá Íslandsfugli á Dal- vík, vill árétta í framhaldi af um- fjöllun um kjúklingaþurrð í Morgunblaðinu á laugardag, að kamfýlóbakter-sýking sem upp kom hjá fyrirtækinu hafi fundist í varphænum en ekki kjúklingum. „Ef upp kemur kamfýlóbakter- sýking þarf að frysta viðkomandi sláturhópa. Við höfum verið að selja ferskan kjúkling að undan- förnu og fengum fyrirspurnir frá okkar viðskiptavinum vegna frétta af kamfýlóbakter-sýkingum í Morgunblaðinu. Ástæðan er sem sagt þessi, sýkingin greindist í varphænum hjá okkur, ekki í eld- is- eða sláturhópum,“ segir hann. Segir Eðvald ennfremur að búið sé að slátra fyrrgreindum varp- hænum, ekki vegna sýkingarinnar, heldur þess að líffræðilegu hlut- verki þeirra hafi verið lokið. Kamfýlóbakter í varphænum ÞRIÐJUDAGINN 21. maí næst- komandi munu fulltrúar Reykjarvík- urlista, Sjálfstæðisflokks og Frjáls- lynda flokks kynna stefnuskrár flokka sinna í Alþjóðahúsinu, Hverf- isgötu 18. Kynningarnar verða á ís- lensku og ensku og að kynningum loknum verða umræður. Kynningarfundurinn hefst kl. 19. 30 í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18, gegnt Þjóðleikhúsinu. Kynna stefnu sína í Alþjóðahúsinu MÁLSTOFA á vegum alþjóðanefnd- ar Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands verður haldin fimmtudaginn 23. maí, kl: 13.30 – 15.30 í stofu 6, Eirbergi. Erindi halda: Jean King og Sigríð- ur Halldórsdóttir prófessor við Há- skólann á Akureyri. Kynning verður á störfum hjúkrunarfræðinga innan kristilegs starfs á Íslandi í umsjá hjúkrunarfræðinga og djákna. Málstofan fer fram á ensku. Málstofa hjúkrunar- fræðideildar D-LISTI sjálfstæðismanna boðar til hverfafundar í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, þriðjudaginn 21. maí kl. 20.30. Allir eru velkomnir. Frambjóðendur kynna stefnu- skrá flokksins og svara fyrirspurn- um fundarmanna. Hverfafundur í Reykjanesbæ SUMARHÁTÍÐ Samfylkingar, X-S, í Hafnarfirði verður miðviku- daginn 22. maí kl. 17.30 á Thors- plani. Grín og glens, pylsur á grillinu, tónlist, skemmtiatriði og leiktæki, segir í fréttatilkynningu. Sumarhátíð í Hafnarfirði BÖRNIN í leikskólanum Tjarn- arborg trítluðu niður í Ráðhús Reykjavíkur á fimmtudag og færðu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra listaverk að gjöf, inn- rammaðar myndir, sem þau höfðu teiknað af Tjörninni í Reykjavík í verkefninu Vesturbærinn okkar. Þemaverkefnið Vesturbærinn okkar var í gangi hjá leikskólum í Vesturbænum í vetur með því markmiði að kynna skapandi starf í leikskólum, að sögn Huldu Ásgeirs- dóttur, leikskólastjóra í Tjarn- arborg. Hluti verkefnisins var að heimsækja stofnanir í nágrenni við- komandi leikskóla og var Ráðhús Reykjavíkur vettvangur barnanna í Tjarnarborg, en Tjörnin var þema þeirra undir leiðsögn verkefn- isstjóranna Svanhildar Vilbergs- dóttur og Charlottu Ragn- arsdóttur. 47 börn á aldrinum tveggja til sex ára eru í leikskól- anum og teiknuðu allir krakkarnir myndir en fjórar voru síðan valdar úr til að færa Reykjavíkurborg að gjöf. Morgunblaðið/Golli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, þakkar börnum úr leikskólanum Tjarnarborg fyrir glæsilegt listaverk. Börnin færðu borg- arstjóra listaverk MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Sambandi ungra framsóknarmanna: „Framkvæmdastjórn Sambands ungra framsóknarmanna lýsir yfir mikilli furðu á viðbrögðum Geirs H. Haarde fjármálaráðherra við yfirlýs- ingu heilbrigðisráðherra og Reykja- víkurborgar um uppbyggingu á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Með viljayfirlýsingunni er stefnt að því að bæta úr brýnni þörf á auknu hjúkrunarrými í Reykjavík og er því í fullu samræmi við heilbrigð- isáætlun sem samþykkt var á Alþingi vorið 2001. Það er í hæsta máta óeðli- legt af fjármálaráðherra að gagn- rýna samráðherra sinn fyrir að vinna samkvæmt stefnumörkun sem sam- þykkt hefur verið á Alþingi og í raun ódrengilegt í garð heilbrigðisráð- herra.“ Samband ungra framsóknarmanna Ódrengileg gagn- rýni á heilbrigðis- ráðherra SÍLDARVINNSLAN hf. í Nes- kaupstað hlýtur hvatningarverð- laun Þróunarfélags Austurlands í ár. Verðlaunin voru veitt á aðal- fundi Þróunarfélagsins sem hald- inn var á Hótel Framtíð á Djúpa- vogi nýlega. Þremur öðrum fyrirtækjum voru veittar viður- kenningar fyrir athyglisverða ný- sköpun, uppbyggingu framleiðslu- iðnaðar og fjölbreytt starf á sviði menntunar. Síldarvinnslunni hf. í Neskaup- stað voru veitt hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands 2002 fyrir forystuhlutverk sitt í íslensk- um sjávarútvegi og stórhuga verk- efni á sviði fiskeldis. Þróunarfélag Austurlands veitti einnig þrjár viðurkenningar fyrir athyglisverða og metnaðarfulla starfsemi. Fræðsluneti Austur- lands var veitt viðurkenning fyrir kraftmikið og fjölbreytt starf á sviði miðlunar háskólanáms og sí- menntunar og nýjungar í eflingu menntunar fyrir atvinnulífið, Mið- ás hf. á Egilsstöðum hlaut við- urkenningu fyrir einstaklega góð- an árangur í uppbyggingu framleiðsluiðnaðar á Austurlandi og Norðurís hf. á Hornafirði var veitt viðurkenning fyrir metnaðar- fulla atvinnuuppbyggingu á Aust- urlandi og athyglisverða nýsköpun á sviði efna- og matvælafram- leiðslu, segir í fréttatilkynningu. Hvatningarverð- laun Þróunar- félags Austurlands EKKI verður af útgáfu Meirablaðs- ins, vestfirsks fréttablaðs, sem koma átti út fyrst fimmtudaginn 23. maí næstkomandi eins og greint hafði verið frá í Morgunblaðinu. Í frétt frá útgefendum segir að þar sem kjölfestufjárfestir hafi dregið sig út úr útgáfunni á síðustu stundu og að viðtökur auglýsenda og styrkt- arfyrirtækja hafi ekki verið nægi- lega góðar að mati útgefenda sé hætt við útgáfuna. Óska þeir eftir að koma á framfæri þökkum til þeirra sem höfðu hug á að styrkja útgáfuna. Hætt við útgáfu Meirablaðsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.