Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 51 Lira 20x20cm, glans Ver› á›ur: 2.790 kr. Dublin 20x25cm, mött Ver› á›ur: 2.290 kr. Veggflís Sherwood 10x10cm, glans Ver› á›ur: 4.690 kr. Gólfflís Nogal 20x20cm, mött Ver› á›ur: 2.890 kr. 1.645 kr. 1.495 kr. á gólf- og veggflísum Tilboð Veggflís 1.895 kr. Veggflís 1.645 kr. ÉG ER komin að þeirri niðurstöðu að það sé fyrst og fremst öfund sem hrjáir Sjálf- stæðisflokkinn í Reykjavík. Það er búið að vefjast fyrir mér lengi hver sé orsökin að þessum ótrúlega málflutningi þeirra um fjármál borgarinnar. Þegar við öll sem sitj- um í borgarstjórn Reykjavíkur erum með á okkar borðum úttekt eftirlitsnefndar með fjármálum sveit- arfélaga, sem gefur þeim öllum einkunnir eins og á vorprófi hjá nemendum okkar. Hvaða einkunn fær Reykja- vík? Hún fær einkunnina átta sem er hæsta einkunn sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu. Sum sveitarfélög hér á svæðinu ná ekki einkunninni einum. Þessi einkunnargjöf þýðir á mannamáli að Reykjavíkurborg sé best rekna sveitarfélagið á höfuð- borgarsvæðinu, hvorki meira né minna. Öfund er slæmur fylgikvilli Öfund hefur leitt margan mann- inn út í ógöngur, lygi og falsanir. Á síðustu valdaárum sjálfstæðis- manna í borgarstjórn fór ískyggilega að halla undan fæti í fjár- málum borgarinnar og þeir reyndu að finna leiðir til úrbóta. Ráðn- ir voru sérfræðingar sem var falið að koma með tillögur um betri og breytta stjórnar- hætti. Skýrsla eins sérfræðingsins var þó svo mikið feimismál að hún var rækilega falin. Hún fjallaði aðallega um einkavæðingu fyr- irtækja og stofnana borgarinnar, m.a. Hitaveitu og Rafmagnsveitu. Sjálfstæðismönnum sárnar svo um munar núna að þeir skyldu ekki þá koma auga á t.d. stofnun Fé- lagsbústaða. Þeir hafa gagnrýnt stofnun þess fyrirtækis en hvað? Sveitarfélög vítt og breitt um landið eru hvött til þess að stofna hliðstæð fyrirtæki um rekstur húseigna sinna og hefur Samband ísl. sveitar- félaga haft m.a. um það forgöngu. Í fyrirsvari fyrir sambandið er þó einn af borgarfulltrúum sjálfstæð- ismanna. Er málflutningur svona fólks trú- verðugur? Ársreikningur borgarsjóðs Reykjavíkurlistinn hefur tekið fjármál borgarinnar föstum tökum og komið m.a. á rammafjárveiting- um til stofnana. Við höfum reynt að halda rekstri borgarinnar innan viðunandi viðmiðana eða um 80% af tekjum. Það tókst okkur varðandi rekstur málaflokka á árinu 2001. Fræðslumálin taka um þriðjung af tekjum borgarsjóðs og það hefur því mikið að segja hvernig þeim er stjórnað. Við höfum gert grunn- skólana fjárhagslega sjálfstæða að mestöllu leyti, þeir fá rammafjár- veitingu byggða á nemendafjölda og aðstæðum í hverjum skóla. Námskeið hafa verið haldin um fjármál skóla og einnig höfum við bætt við stjórnanda í hverjum skóla, þ.e.a.s. skólarnir hafa fengið stjórnunarkvóta úthlutað sem þeir ráðstafa sjálfir. Sumir skólar ráða annan aðstoðarskólastjóra, aðrir ráða fjármálastjóra o.s.frv. Þessir aðgerðir og fjármunir eru svo sann- arlega að skila árangri eða eins og borgarendurskoðandi segir í endur- skoðunarskýrslunni fyrir árið 2001: „benda má á betri kostnaðarvitund hjá skólastjórnendum, sem hefur skilað sér í betri fjármálastjórn.“ Frumkvöðlavit- und í fjármálum Sigrún Magnúsdóttir Reykjavík Reykjavíkurlistinn, segir Sigrún Magnús- dóttir, hefur tekið fjármál borgarinnar föstum tökum. Höfundur er borgarfulltrúi Reykja- víkurlistans. FYRIR átta árum átti ég því láni að fagna að ná kjöri inn í bæjarstjórn Mosfells- bæjar, ég var í öðru sæti á lista framsókn- armanna hér í bæ og Þröstur Karlsson var oddviti listans. Ekkert þekkti ég til Þrastar á þeim tíma, hafði þó unnið að stefnu- skránni með honum ásamt öðrum í félag- inu í nokkrar vikur en vissi eiginlega ekkert um þennan mann sem ég átti eftir að starfa svo náið með. Reyndin varð sú, að ég hefði ekki getað hugsað mér betri og traustari samstarfsmann. Þröstur var nefni- lega ótrúlega fljótur að komast inn í og átta sig á bæjarmálunum og hvernig best væri að afgreiða þau. Hann hefur alltaf lagt sig allan fram um að leysa sitt starf sem best af hendi. Hvorugt okkar hafði komið ná- lægt stjórnun á bæjarmálum og var því mikil vinna hjá okkur fyrstu ár- in. Við gerðum sam- komulag við meiri- hlutasamstarf við 2 bæjarfulltrúa G-list- ans og í átta ár höfum við starfað mjög vel saman og fyrst og fremst með hag íbú- anna að leiðarljósi. Við ráðningu á bæj- arstjóra varð Jóhann Sigurjónsson, þá fjár- málastjóri hjá Pharmaco, fyrir valinu hjá okkur og hefur hann notið mikilla vin- sælda hjá bæjarbúum fyrir góða og heiðar- lega vinnu og vinsam- lega framkomu. Þess vegna kemur það mér mjög á óvart þegar ég heyri á tali oddvita sjálfstæðismanna hér í bæ, að ef þau kæmust í meirihluta eftir næstu kosningar verði þeirra fyrsta verk að losa sig við hinn farsæla bæjarstjóra okkar og ráða pólitísk- an bæjarstjóra í staðinn og þá væntanlega oddvita D-listans, Ragnheiði Ríkarðsdóttur. Ekki efast ég um að Ragnheiður ynni vel að bæjarmálum fyrir íbúana, en ég get ekki með nokkru móti fundið eina ástæðu til þess að skipta um bæjarstjóra. Mosfellingar, hugsið ykkur vel um áður en til atkvæðagreiðslu kemur á kjördag, við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum! Áframhaldandi trausta samvinnu í Mosfellsbæ Helga Thoroddsen Höfundur er bæjarfulltrúi B-listans í Mosfellsbæ. Mosfellsbær Við vitum hvað við höfum, segir Helga Thoroddsen, en ekki hvað við fáum. Á KJÖRDAG getur þú kjósandi góður tjáð hug þinn. Var síðasta kjörtímabil eins og þú vildir að það væri? Vann sveitarstjórn vel? Það er gríðarlega mikilvægt að allir nýti sér kosningarétt sinn til að hafa áhrif á það samfélag sem við bú- um í. Í Húnaþingi vestra bjóða fram fjórir list- ar. Fyrir fjórum árum buðu fram fimm listar en nú eru einungis tveir af þeim eftir; D- listi, sem var í minnihluta í síðustu sveitarstjórn, og B-listinn, sem var í meirihluta. Aðrir listar eru horfn- ir og verða því ekki gerðir ábyrgir fyrir því hvernig þeir stóðu sig. Mikilvægi stöðugleika framboða og þeirra er að þeim standa er öllum augljóst. Helsta verk komandi sveitar- stjórnar Húnaþings vestra er að klára sameiningu sýslunnar í eitt sveitarfélag, að koma á sátt í sam- félaginu. Það er gott að búa í Húnaþingi vestra. Þar er veitt góð þjónusta, mannlífið er gott og landgæði mikil. Stað- setning sveitarfé- lagsins í miðju nýju kjördæmi gefur einnig mikla möguleika. Við hjá D-listanum viljum undirstrika með afgerandi hætti kosti þess að búa í Húnaþingi vestra. Við erum ekki með langa loforðalista í stefnu- skrá okkar en við lof- um því sem skiptir máli. D-listinn lofar ráðdeild, öguðum og vönduðum vinnubrögðum. D-list- inn lofar að vinna í sátt við sam- félagið. Framtíðarsýn D-listans er skýr. Við sjáum Húnaþing vestra sem öflugt svæði á sviði landbúnaðar sökum einstakra náttúrugæða, með góðan þéttbýliskjarna þar sem eft- irsótt er að búa. Deilir þú kjósandi góður þessari sýn með okkur á D-listanum? Ef svo er þá er bara einn möguleiki og það er X við D á kjördag. Þú skiptir máli Björn Elíson Höfundur skipar 1. sæti á D-lista í Húnaþingi vestra. Húnaþing vestra D-listinn lofar ráðdeild, segir Björn Elíson, öguðum og vönduðum vinnubrögðum. Teppi á stigaganga Ármúla 23, sími 533 5060
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.