Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Stórsigur KR-stúlkna í fyrstu
umferð kvennaboltans/B3
Jóhannes Karl Guðjónsson
gerði glæsimark í Bodø/B2
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Á FIMMTUDÖGUM
Morg-
unblaðinu í
dag fylgir
auglýs-
ingablað „Í
fullu fjöri“
frá Lands-
sambandi
eldri borg-
ara. Blaðinu
verður
dreift um
allt land.
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Kosningahandbók
fylgir Morg-
unblaðinu í dag. Í
henni er að finna
upplýsingar um
framboðslista í öll-
um stærstu sveit-
arfélögum landsins
sem bjóða fram í
kosningunum nk.
laugardag. Þar koma
einnig fram upplýs-
ingar um úrslit sveit-
arstjórnarkosning-
anna 1998.
!
"#$
%&&'!(%)*
$
!
"
""
!
"
#
"
++!
%,*
$'!
-
%
..'
!
"
#
"
KLAMY4DÍA er sá kynsjúkdóm-
ur sem hefur færst hvað mest í
vöxt hér á landi og náði hámarki
sínu á síðasta ári þegar ríflega
2.100 tilfelli voru skráð, sam-
kvæmt nýlegri ársskýrslu land-
læknisembættisins. Er það mesta
tíðni þessa kynsjúkdóms á Norð-
urlöndum, aukning um 16% milli
ára og 37% meiri tíðni en árið
1998. Fyrstu þrjá mánuði þessa
árs voru ríflega 500 tilfelli skráð,
sem er fækkun um 6% miðað við
sama tíma í fyrra.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
sagði í samtali við Morgunblaðið
að klamydía væri greinilega orðin
útbreiddasti og alvarlegasti kyn-
sjúkdómurinn hér á landi, tíðni
hennar væri orðin alltof mikil og
væri mikið áhyggjuefni. Heilbrigð-
isyfirvöld á heimsvísu stæðu ráð-
þrota frammi fyrir þessari þróun,
það hefði m.a. komið fram á
læknaráðstefnu í Englandi sem
hann sat nýlega. Haraldur sagði að
forvarnarátak fyrir tveimur árum
meðal ungs fólks hefði t.d. ekki
skilað þeim árangri sem til var
ætlast.
Hæsta tíðni sjúkdómsins
á Norðurlöndum
Hann sagði að samanburð við
tíðni sjúkdómsins á öðrum Norð-
urlöndum bæri að túlka með var-
úð, líklegt væri að íslensk yfirvöld
væru duglegri við skráninguna en
nágrannar okkar á Norðurlöndum.
Þar væri þó þróunin í sömu átt,
þ.e. að tíðni klamydíu væri að
aukast en minna bæri á sjúkdómi
eins og lekanda.
Aðspurður um skýringar á þess-
ari aukningu sagðist sóttvarna-
læknir ekki hafa þær á reiðum
höndum. Sérstaka athygli vekti að
tíðni lekanda væri minni en áður
og erfitt væri að meta hvort kyn-
hegðan landans væri að breytast.
„Þessar sýkingar hegða sér svo-
lítið eins og síldin, sem kemur og
fer. Faraldurinn hefur þannig eig-
ið líf. Ef við hefðum ekki klamydíu
og horfðum aðeins á þróun lek-
anda þá gætum við sagt að allt
væri í góðum málum hér, sem við
getum því miður ekki,“ sagði Har-
aldur.
Afleiðingar þess að greinast með
sjúkdóminn geta verið alvarlegar,
að sögn Haraldar, einkum fyrir
konur. Um 60% skráðra tilfella hér
eru hjá konum en sóttvarnalæknir
taldi að hlutur karlmanna væri
vanskráður. Hann sagði rannsókn-
ir benda til að 10% kvenna sem
greindust mættu búast við viðvar-
andi bólgum í grindarholi, sem
gætu t.d. leitt til ófrjósemi og ut-
anlegsfósturs.
Sem leið í baráttunni við klam-
ydíu nefndi Haraldur þann mögu-
leika að bjóða fólki að koma í
rannsókn og láta fara fram nokk-
urs konar kembileit. Sjúkdómur-
inn væri mjög smitandi og mik-
ilvægast væri að ná til
smitberanna. Margir væru ein-
kennalausir eða -litlir og leituðu
því ekki læknis.
Klamydíutilfellum fer stöðugt fjölgandi á Norðurlöndunum
Tíðni sjúkdóms-
ins mest á Íslandi
FYRSTU andarungarnir hafa lit-
ið dagsins ljós á Tjörninni í
Reykjavík og má þá með sanni
segja að sumarið sé komið. Þessi
andafjölskylda synti um í róleg-
heitum í gær en eitthvað hefur
steggnum þótt skorta á athygl-
ina, þar sem hann gerði sér lítið
fyrir og réðst að kollunni. Tókust
þau á um stund en hvorugu varð
þó meint af. Hins vegar hefur
Morgunblaðið engar fregnir haft
af því hvort steggurinn hafi verið
gerður brottrækur úr fjölskyld-
unni eða tekinn í sátt. Vænt-
anlega mun hið fyrra þó vera lík-
legra því stuttu síðar sást til
steggsins spóka sig um með ann-
arri kollu, á meðan hin nýbakaða
andamóðir sinnti ungunum sín-
um. Uppeldi unganna virðist því
lenda alfarið á kollunni.
Hjónaerjur
á Tjörninni
Morgunblaðiðið /RAX
Vann 14,2
millj. í Vík-
ingalottói
BÓNUSVINNINGUR í Víkinga-
lottóinu gekk út í gærkvöldi en
vinningsupphæðin var tæpar 14,2
milljónir kr.
Vinningsmiðinn var seldur í
Snælandsvídeói í Núpalind í Kópa-
vogi og var að upphæð 14,2 millj-
ónir kr. eins og fyrr sagði. Fyrsti
vinningur gekk ekki út að þessu
sinni en hann var að upphæð 44
milljónir kr.
Viðbygging
áformuð
við Austur-
stræti 17
FJALLAÐ var um leyfi til að
byggja viðbyggingu við sjöundu
hæð húss sem stendur við Austur-
stræti 17 á fundi skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur-
borgar í gær.
Lagt var fram bréf Guðna Páls-
sonar arkitekts fyrir hönd eigenda
hússins varðandi leyfi til að byggja
létta viðbyggingu við 7. hæð húss-
ins, en þar er nú rekin líkamsrækt-
arstöð World Class. Var samþykkt
á fundinum að kynna erindið fyrir
hagsmunaaðilum á svæðinu.
SAMRÁÐSNEFND ríkisins og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
hyggst taka fyrir hvort borga skuli
húsaleigubætur þegar um leigu á
herbergjum er að ræða en slíku er
ekki til að dreifa í dag. Þetta kom
fram á fundi Geðhjálpar með fulltrú-
um þriggja stærstu framboðslist-
anna í borginni fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar næstkomandi
laugardag.
Í fyrirspurnum á fundinum var
m.a. spurt hvort nokkur rök lytu að
því að ekki væru borgaðar húsaleigu-
bætur fyrir herbergi á sama hátt og
fyrir annað húsnæði. Það voru Björk
Vilhelmsdóttir, frambjóðandi R-
lista, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
frambjóðandi D-lista og Ólafur F.
Magnússon, frambjóðandi F-lista,
sem sátu fyrir svörum og í máli allra
þeirra kom fram að þau teldu að
greiða ætti húsaleigubætur fyrir
stök herbergi. Sagði Björk augljóst
að þarfir fólks fyrir húsnæði væru
mismunandi og þeir sem hefðu þörf
fyrir herbergi ættu að sjálfsögðu að
fá húsaleigubætur. Ekki nægði að
fjölga félagslegum leiguíbúðum
heldur þyrfti einnig að auka sveigj-
anleikann í húsaleiguúrræðum.
Vilhjálmur benti á að húsaleigu-
bætur væru samstarfsverkefni ríkis
og sveitarfélaga þar sem ríkið borg-
aði 55% og sveitarfélögin 45% bót-
anna. Hann sagði samráðsnefnd rík-
isins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga, sem fjallar um þessi
mál, nýlega hafa víkkað út reglurnar
varðandi bæturnar á þann veg að nú
væri heimilt að borga húsaleigubæt-
ur þegar um sambýli væri að ræða
og sömuleiðis til stúdenta, sem ekki
var áður hægt. „Þetta mál með her-
bergin verður tekið upp í þessari
samráðsnefnd og mér finnst nauð-
synlegt að þetta verði skoðað mjög
rækilega. Þar geta sveitarfélögin
komið að þessu og ef ríkið er tilbúið
að bæta herbergjunum við þá sé ég
ekkert því til fyrirstöðu að það verði
gert.“
Rætt um að
rýmka rétt til
húsaleigubóta
Leiga á herbergjum
♦ ♦ ♦