Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 26
TILLÖGUR Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels um aðhalds-
ráðstafanir í efnahagsmálum voru
samþykktar í Knesset, þingi lands-
ins, í gær með 65 atkvæðum gegn
26. Við fyrri atkvæðagreiðslu á
mánudag voru tillögurnar felldar
með 47 atkvæðum gegn 44. Þykir
Sharon hafa styrkt verulega stöðu
sína að undanförnu en 62% að-
spurðra í skoðnakönnun segjast
sammála stefnu hans í efnahagsmál-
um.
Miklir efnahagsörðugleikar eru í
Ísrael vegna uppreisnar Palestínu-
manna sem staðið hefur í hálft ann-
að ár. Markmiðið með tillögunum er
meðal annars að draga úr fjárlaga-
halla. Sharon rak eftir atkvæða-
greiðsluna á mánudag nokkra ráð-
herra úr röðum bókstafstrúarflokka
úr ríkisstjórninni og Shas-flokkur-
inn styður ekki lengur stjórnina sem
hefur því aðeins tryggan stuðning
60 þingmanna af 120. Var talið að
stjórn Sharons gæti ef til vill fallið
en í henni sitja auk hægrimanna
Sharons nokkrir ráðherrar úr
Verkamannaflokknum. Stjórnmála-
skýrendur telja að Sharon muni nú
leita til Shinui-flokksins sem er mið-
flokkur og reyna þannig að fá aftur
þingmeirihluta.
Forsætisráðherrann neitaði að
verða við kröfum Shas um breyt-
ingar á tillögunum, þrátt fyrir hætt-
una á stjórnarslitum og nýju kosn-
ingum. Ljóst er að hann stendur nú
sterkar en oft áður og í könnuninni
naut hann stuðnings 50% þátttak-
enda er spurt var hver ætti að veita
ríkisstjórn forstöðu.
Efnahagstillögur Shar-
ons samþykktar á þingi
Jerúsalem. AFP.
Þykir hafa styrkt stöðu sína en óvíst
hvort stjórn hans hefur meirihluta
AP
Sharon forsætisráðherra og
Shimon Peres utanríkisráðherra
við atkvæðagreiðsluna í gær.
MIKIL öryggisgæsla var á flug-
vellinum í Larnaca á Kýpur þegar
tólf Palestínumenn, sem hafst hafa
við á Kýpur síðan fimm vikna
löngu umsátri Ísraelshers við
Fæðingarkirkjuna í Betlehem
lauk, héldu þaðan á brott í gær.
Mönnunum tólf hefur verið veitt
heimild til að dvelja „tímabundið“ í
nokkrum aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins (ESB) en einn verður
áfram á Kýpur.
Samkomulag um lyktir umsát-
ursins í Betlehem, sem náðist fyrir
milligöngu Bandaríkjanna og ESB,
gerði ráð fyrir að Palestínumenn-
irnir þrettán, sem Ísraelar segja
að séu hryðjuverkamenn, færu í
útlegð til einhverra ESB-ríkjanna.
Komust ESB-ríkin eftir nokkurt
stapp loks að niðurstöðu um það á
þriðjudag hvert senda skyldi
mennina og héldu tólf þeirra á
brott frá Kýpur í gær. Þrír þeirra
voru fluttir til Ítalíu en spænsk
herflutningavél flutti hina níu til
Grikklands, þaðan sem sjö þeirra
munu halda áfram til annarra Evr-
ópusambandslanda.
Stjórnvöld á Ítalíu og á Spáni
hafa samþykkt að skjóta skjólshúsi
yfir þrjá Palestínumenn hvort
land, gríska stjórin og sú írska
munu taka við tveimur mannanna
og Portúgal og Belgía ætla að taka
við einum hvort. Einn verður
áfram á Kýpur, a.m.k. fyrst um
sinn.
Palestínu-
mennirnir farn-
ir frá Kýpur
Reuters
ekki beinlínis tekist að vinna hug og hjarta
norsks almennings. Eftir að tilkynnt var
um samband hans og Mörtu Lovísu til-
kynnti konungshöllin tafarlaust að Behn,
sem ólst upp í Moss, suður af Ósló, myndi
ekki fá neinn titil eða verða fulltrúi kon-
ungshallarinnar á nokkurn hátt.
„Hann er nú alls ekki svona slæmur,“
sagði Marta Lovísa í viðtali við NRK,
norska ríkissjónvarpið, í síðustu viku.
Behn vinnur m.a. við framleiðslu heim-
ildakvikmynda fyrir sjónvarp, en olli upp-
námi í fyrra þegar sýndar voru myndir af
honum í selskap vændiskvenna í Las Vegas
sem voru að neyta kókaíns. Behn sagðist
hafa verið að búa til fréttir um, en ekki
lýsa stuðningi við, vændiskonurnar.
Spjátrungur
með húðflúr
Dagblaðið Aftenposten hefur lýst Behn
sem spjátrungi og sagði að „venjulegir
ungir Norðmenn nota ekki brilljantín [í
hárið]“. Þegar ein bóka
hans, 90 síðna verk, fékk
hæstu einkunn hjá gagn-
rýnanda dagblaðs lét Behn
tattóvera einkunnina –
mynd af teningshlið – á
öxlina á sér, og gerði ekk-
ert með aðra, öllu slakari dóma.
Í Þrándheimi hefur undirbúningur fyrir
brúðkaupið staðið í marga mánuði, og er
borgin blómum skrýdd. Mikið verður um
veislur, m.a. einkasamkvæmi fyrir vini
brúðhjónanna, en meðal boðsgesta er ungt,
evrópsk konungfólk, Játvarður prins í
Bretlandi, Viktoría krónprinsessa í Svíþjóð
og Felipe, krónprins á Spáni. Brúðkaups-
ferðina á svo að fara til Flórens.
Á MORGUN verða Norðmenn vitni að kon-
unglegu brúðkaupi sem virðist vera eins
og ævintýri með öfugum formerkjum. Í
stað hinnar hefðbundnu sögu um almúga-
manninn sem vinnur hjarta prinsessunnar
og eignast hálft konungsríkið er það Marta
Lovísa prinsessa sem ætlar að gefa upp á
bátinn konungleg forréttindi sín til þess að
geta búið – að mestu eins og venjulegt fólk
– með manninum sem hún elskar.
Vildi ekki titilinn
Marta Lovísa er þrítug, dóttir Haralds 5.
Noregskonungs og Sonju drottningar.
Mannsefni hennar er Ari Behn, umdeildur
rithöfundur sem nýtur ekki mikilla vin-
sælda meðal almennings. Athöfnin fer
fram í dómkirkjunni í Þrándheimi á morg-
un. Marta Lovísa mun koma til kirkjunnar
í fylgd föður síns á hestvagni. Fjölmiðlar,
og ef til vill þúsundir Norðmanna, munu
fylgjast vandlega með í Þrándheimi og
hundruð þúsunda munu horfa á beina sjón-
varpssendingu frá athöfn-
inni.
Þetta verður í eitt af
fáum skiptum sem Marta
Lovísa hefur komið fram
opinberlega síðan hún af-
salaði sér sjálfviljug titl-
inum „konungleg hátign“ fyrr á þessu ári.
Prinsessan bað um að losna við titilinn –
og verða þar með af laununum sem fylgdu
– til þess að gera lifað eðlilegu lífi og rek-
ið fjölmiðlafyrirtæki sitt.
Námsmaður og fleira
Behn er danskur að uppruna, 29 ára
fyrrverandi námsmaður, barþjónn, vöru-
hússtarfsmaður og barnfóstra, og hefur
Reuters
Marta Lovísa og Ari Behn í Þrándheimi í gær.
Ævintýri með öf-
ugum formerkjum
Ósló. AP.
’ Venjulegir ungirNorðmenn nota
ekki brilljantín ‘
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÍTIL stjarna í grennd við jörðina
kann að verða að sprengistjörnu
eftir milljónir ára og hugsanlegt er
að hún eyði þá öllu lífi á jörðinni,
að því er fram kemur í grein í
næsta hefti vísindatímaritsins New
Scientist sem kemur út á laugar-
dag.
Í greininni segir að stjarnan
HR8210, sem er 150 ljósár frá jörð-
inni og mjög nálægt henni í stjarn-
fræðilegum skilningi, geti orðið að
sprengistjörnu, þ.e. stjörnu sem
stóreykur birtu sína skyndilega
vegna þyngdarhruns. Geislunin frá
sprengistjörnu getur eytt öllu lífi í
allt að 200 ljósára radíus.
HR8210 er svokallaður „hvítur
dvergur í tvístirni“ sem mun draga
til sín efni frá hinni stjörnunni,
hrynja saman og verða að sprengi-
stjörnu þegar massinn nær tilteknu
marki. Stjörnufræðingar fundu tví-
stirnið árið 1993 en hættan sem
jörðinni kann að stafa af því kom
ekki í ljós fyrr en stjörnufræðinemi
við Harvard-háskóla, Karin Sand-
strom, skrifaði ritgerð um það.
Fyrstu útreikningar benda þó til
þess að liðið geti „hundruð milljóna
ára“ áður en stjarnan verður nógu
massamikil til að verða að sprengi-
stjörnu. Á þeim tíma kann stjarnan
að hafa fjarlægst jörðina nógu mik-
ið til að ekki stafi hætta af henni,
að sögn New Scientist.
Mun jörðinni stafa hætta
af sprengistjörnu?
París. AFP.