Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 35
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 35 EKKI dugar að bregðastþegjandi og hljóðalaustvið öllum hugmyndumum skólamál sem kvikna í Reykjavík. Á vegum Háskólans á Akureyri og Skólaskrifstofu Skaga- fjarðar var því nýlega haldin ráð- stefna í Miðgarði í Skagafirði um þær hugmyndir sem fram hafa kom- ið um það, að vinna þyrfti að því að stytta námstíma íslenskra ung- menna til stúdentsprófs. Markmiðið var að láta rödd þeirra sem byggju utan Reykjavíkur heyrast í þessu máli. Áður en ákvarðanir yrðu tekn- ar. Kveikjan að þessari umræðu er skýrsla sú sem unnin var nýverið af Hagfræðistofnun Háskólans fyrir Verslunarmannafélag Reykjavíkur, varðandi þann fjárhagslega ávinning sem fylgdi því að stytta námstíma til stúdentsprófs um eitt ár. Ráðstefnu- stjórar voru þeir Páll Dagbjartsson, skólastjóri Varmahlíð, og Trausti Þorsteinsson frá Kennaradeild Há- skólans á Akureyri. Frummælendur voru Eiríkur Hermannsson, fræðslustjóri í Reykjanesbæ, Jó- hanna Jónasdóttir, leikskólastjóri á Blönduósi, Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari á Ísafirði, Ásgeir Magnússon frá Skrifstofu atvinnu- lífsins á Norðurlandi, Rögnvaldur Ólafsson bóndi, Flugumýrar- hvammi, Jóhann Albertsson, skóla- stjóri Laugabakka, Jón Þórðarson, deildarforseti, Háskólanum Akur- eyri, Kristján Þ. Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, og Hörður Lárus- son frá menntamálaráðuneytinu. Hvað kostar nemandi? Björn Björnsson, skólastjóri í Grunnskólanum á Hofsósi, sat ráð- stefnuna og segir hann að sú spurn- ing hafi komið fram í máli nokkurra ræðumanna; til hvers, og fyrir hverja þyrfti að gera slíkar breyt- ingar? Einnig var spurt um hver þrýsti svo mjög á um þær. Nokkrir bentu á að sá sveigjanleiki væri nú þegar innbyggður í skólakerfið að þeir sem það gætu og vildu ættu þess mjög greiða leið að ljúka námi til stúdentsprófs á styttri tíma en al- mennt tíðkast, t.d. í áfangaskólum. Möguleikarnir lægju í raun bæði fyr- ir í grunn- og framhaldsskólakerf- inu. Þá voru rædd, að sögn Björns, tengsl skólastiganna, bæði milli leik- skóla og grunnskóla. Þar sem fram kom að hugsanlegt væri að færa eitt- hvað af námi fyrstu grunnskólaár- anna inn í síðustu ár leikskólans. Einnig var skörun grunn- og fram- haldsskólans rædd, og var meðal annars spurt hvort stefna ætti að góðu almennu námi, fremur en sér- hæfðu, og jafnvel styttra námi og með markvissum undirbúningi náms í háskóla. Jón Þórðarson frá Háskólanum á Akureyri sagði að reiknað hefði verið út að hver nemandi kostaði ríkið 500 þúsund á ári og með tveggja ára styttingu náms til stúdentsprófs sparaðist þannig um ein milljón á hvern nemanda. Jón taldi að vel mætti hugsa sér hvetjandi kerfi í þá veru að nemandi sem þannig sparaði ríkinu heila milljón fengi hlutdeild í ágóðanum, til dæmis helming sem komið gæti til sem greiðsla eða nið- urfelling á gjöldum eða á einhvern þann hátt að hvetjandi væri fyrir nemandann að vinna að þessu. Einnig var bent á að vel mætti nýta tíma grunnskólanemenda betur en nú væri gert. Þá var rætt um þann ójöfnuð sem fælist í því óhag- ræði sem íbúar strjálbýlisins byggju við; að geta ekki sótt framhaldsskóla í heimangöngu, svo ekki sé nefndur kostnaðaraukinn. Bóknám og verknám Allmikil umræða varð um hversu bóknámsmiðuð öll skólaganga væri, en lítt sinnt um verknám þrátt fyrir að í orði kveðnu vildu allir auka veg þess þáttar í skólastarfi. Hugur virt- ist ekki fylgja máli þegar kæmi að því að viðurkenna að verknám væri dýrara en bóklærdómurinn. Bent var á leið til þess að styrkja verknám á landsbyggðinni eða að iðnmeistarar fengju greitt frá skóla- kerfinu fyrir menntun iðnaðar- manna og þannig mætti taka aftur upp hið gamla meistarakerfi þó í breyttri mynd. Vantar mörg sjónarhorn Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, taldi að allar kerf- isbreytingar viðlíka og þessar sem nú væri rætt um, þyrftu mjög vand- lega skoðun og yfirvegun, ekki síst vegna kostnaðarskiptingar ríkis og sveitarfélaganna, og mætti því ekk- ert gera að óyfirveguðu ráði. Þá bentu nokkrir ræðumenn á það að umrædd skýrsla væri eingöngu hagfræðilegs eðlis, þar sem allar nið- urstöður væru fengnar til þess að benda í eina átt, en mjög afgerandi þáttum sleppt, sem alls ekki yrði vik- ist hjá að taka inn í myndina. Síðastur frummælenda var Hörð- ur Lárusson, fulltrúi í ráðuneytinu, og þakkaði hann fyrir þessa ráð- stefnu sem hann taldi mjög gagnlega og nauðsynlegt að fá inn í umræðuna þau sjónarmið sem hér hefðu komið fram. Taldi Hörður að líklega væru námsskrár grunnskólans ofhlaðnar og þyrfti þar að koma til nokkur end- urskoðun, en einnig taldi hann að of mikill tími færi í próftökur og kann- anir, þá kæmi og í ljós að þeir nem- endur sem færu til háskólanáms er- lendis hefðu lengra og meira nám að baki en nemendur gistilandanna og því ekki óeðlilegt að þessi málaflokk- ur væri í sífelldri endurskoðun. Stúdentspróf/ Ráðstefna um styttingu námstíma til stúdentsprófs var haldin nýlega í Skagafirði. Skýrsla Hag- fræðistofnunar HÍ var þar til umræðu. Markmiðið var meðal annars að láta rödd landsbyggðarinnar heyrast. Skólamál eru stórt mál á landsbyggðinni og því mikilvægt að umræðan sé lifandi. Frá pallborðsumræðum. Tími nem- enda er dýrmætur  Tími og peningar eru mikils virði fyrir nemendur og samfélagið.  Ætti að hvetja nemendur til að flýta sér með stúdentsprófið? TENGLAR .............................................. www.unak.is NEMENDUR í 9. bekk í Hólabrekkuskóla í Reykjavík og Benløse Skole, Ringsted í Dan- mörku hafa þrisvar skipst á heimsóknum, árin 1997 og 2000. Heimsóknirnar hafa staðið yfir í sjö til tíu daga í senn, og hafa nemendur búið hver hjá öðrum og kynnst þannig vel lífi og háttum þjóðanna. Einnig hafa þeir fengið inn- sýn inn í sögu, náttúru, menningu og atvinnu- hætti í löndunum tveimur. Sigurður Lyngdal, kennari í Hólabrekku- skóla, hefur verið nemendum innan handar. Hann segir að í Danmörku hafi menningar- staðir verið heimsóttir til fræðslu. „En auðvit- að er einnig margt sér til gamans gert, eins og til dæmis að fara eina kvöldstund í Tívolí,“ seg- ir Sigurður. Þessi samvinna hefur þróast áfram þannig að starfsmenn Hólabrekkuskóla fóru vorið 2001 til Benløse Skole að kynna sér starfið þar. Nemendur skólanna að munu halda áfram að skiptast á heimsóknum á þessu ári. 29. apríl sl. komu hingað 37 nemendur og 4 kennarar frá Ringsted í Breiðholtið og voru til 7. maí. Næst mun um það bil jafnstór hópur frá Hóla- brekkuskóla fara til Danmerkur í lok ágúst og vera fram í september. Þessar ferðir eru farnar með styrk frá Nor- rænu ráðherranefndinni og Comenius- aráætlun Evrópubandalagsins. Þannig að enn meiri krafa er um vinnu að sameiginlegu verk- efni. Munu nemendur vinna að verkefninu Turism for unge, þar sem lögð er áhersla á það hvernig ungt fólk vill kynna sitt eigið land. Í báðum fyrri heimsóknum fengu bæði Dan- ir og Íslendingar að koma að Bessastöðum og þótti það hápunktur beggja ferðanna. Millilandavinátta nemendahópa Morgunblaðið/Kristinn Heimsókn nemenda á Bessastaði heppnaðist sérlega vel. STARFSMENN Samskipa eru fyrsti hóp- urinn til að ljúka þátttöku í nýju fjarnámi sem nefnt er ÖrNet. Námið var haldið á vegum SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu en Við- skiptaháskólinn á Bifröst sá um kennsluna. ÖrNet miðast að því, að sögn Emils B. Karlssonar hjá SVÞ (Samtök verslunar og þjónustu), að minnka rýrnun og auka öryggi við flutning og geymslu á vörum. „Almennt er gert ráð fyrir að rýrnun við flutninga og lag- erhald nemi um 1–2% af veltu fyrirtækisins, þannig að um verulegar upphæðir er að ræða,“ segir hann. Unnið hefur verið að und- irbúningi námsins í heilt ár í samstarfi við Samskip og fleiri aðila. Ætlunin er að bjóða fleiri fyrirtækjum námskeiðið á næstu mán- uðum. Eyþór Víðisson, öryggisstjóri Samskipa, MSc í öryggisstjórnun, tók saman fræðslu- efnið í samráði við verkefnahóp undir stjórn SVÞ. Undirbúningur námsins hefur staðið í eitt ár og var styrkt af starfsmenntaráði fé- lagsmálaráðuneytisins. Námið er ætlað starfsmönnum flutninga- fyrirtækja, birgðageymslna og annarra sem hafa með höndum geymslu og flutning á vörum. Áður en hafist var handa var gerð þarfa- greining meðal fyrirtækja sem þurfa á slíkri fræðslu að halda og námsefnið miðað við óskir þeirra. Hvert námskeið tekur sjö vikur. Þá fá þátttakendur vottorð um að þeir hafi nauð- synlega þekkingu til að bera ábyrgð á öryggi í flutningum og geymslu á vörum. Sérhæfing á þessu sviði hefur hingað til verið mjög ábóta- vant hér á landi. Nám til að minnka vörurýrnun Starfsmenn hjá Samskipum voru fyrsti hópurinn sem lauk fjarnámi SVÞ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.