Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞORSTEINN Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja hf.,
vísar því alfarið á bug að fyrirtækið
hafi beitt sjómannadagsráð á Ak-
ureyri þrýstingi til að skipta um
ræðumann á sunnudaginn. „Það er
verið að reyna að blása þetta mál
upp og gera það pólitískt. Enginn
var beittur hótunum eða þrýstingi í
þessu máli,“ segir hann.
Þorsteinn vísar því á bug að um
skoðanakúgun hafi verið að ræða.
„Sjómenn hafa sínar skoðanir og
þora að standa á þeim. Ég tjáði ein-
ungis þá skoðun mína að mér fynd-
ist val á ræðumanni skrítið. Þetta
væri hátíðisdagur. Önnur áhrif vildi
ég ekki hafa. Mér skilst að menn
hafi verið algjörlega sammála þessu
við nánari skoðun. Reyndar skilst
mér að sjómannadagsráð hafi verið
búið að ræða þessa hugmynd áður,“
segir hann.
„Menn ættu að vanda orðaval sitt
betur þegar þeir tala um skoðana-
kúgun og allt slíkt tal er hlægilegt.
Vinstri grænir hafa ótakmarkaðan
aðgang að ríkisfjölmiðlunum, auk
þess sem þeir geta tjáð sig í þing-
sölum. Þeir hafa nú aldeilis tæki-
færi til að koma á framfæri skoð-
unum sínum,“ segir hann.
Stefnan skaðleg sjómönnum
Þorsteinn segir að stefna Vinstri
grænna í sjávarútvegsmálum sé al-
gjörlega skýr. „Hún skaðar þann
sjávarútveg sem rekinn er á Ak-
ureyri. Hún skaðar sjómenn. Það
liggur ljóst fyrir,“ segir hann.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, segist
telja að átök í kringum sjómanna-
daginn séu óeðlileg. „Við forystu-
menn sjómanna höfum lagt okkur í
líma við að gera sjómannadaginn að
hátíðisdegi, frekar en að hann eigi
að einkennast af átökum eða hags-
munabaráttu,“ segir hann.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu á sunnudaginn sagði Árni
Steinar Jóhannsson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, að sjómannadagsráð
hefði fengið hann til að flytja hátíð-
arræðu á Akureyri sl. sunnudag.
Útgerðarfélögin Samherji og ÚA
hefðu hins vegar hótað að styrkja
ekki framkvæmd hátíðahaldanna ef
Árni yrði ræðumaður og þannig
fengið því framgengt að Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, yrði fengin í staðinn.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, vísaði þessu á
bug. Hann sagði að hann hefði ein-
ungis sagt að Árni Steinar væri
óheppilegur ræðumaður, með tilliti
til skoðana hans á sjávarútvegsmál-
um.
Útgerðir á Akureyri eiga ekki
fulltrúa í sjómannadagsráði og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekki föst venja að þær
styrki ráðið. Sjómannadagsráð á
Akureyri er skipað einum fulltrúa
af hverju skipi, til eins árs í senn,
auk þess sem sjómannafélögin
skipa hvert sinn mann til þriggja
ára.
Fáheyrt að blanda
pólitík við ræðuhöld
Stjórn kjördæmisráðs Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
sendi í gær frá sér yfirlýsingu um
málið. Þar var lýst yfir mikilli undr-
un og hneykslun á afskiptum for-
svarsmanna útgerðarfyrirtækja af
hátíðahöldunum. „Stjórnin hafnar
með öllu órökstuddum fullyrðing-
um um að sjávarútvegsstefna
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs sé andstæð hagsmunum
sjómanna eða fyrirtækja hvort
heldur sem er við Eyjafjörð eða
annars staðar á landinu,“ segir í yf-
irlýsingunni. Fáheyrt sé að blanda
pólitískum ágreiningi inn í hverjum
sé falið að flytja ræðu á hátíðisdegi
sjómanna.
Konráð Alfreðsson, formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar, vildi
ekki tjá sig um málið er Morgun-
blaðið náði tali af honum í gær.
Ekki náðist í Ásgrím Sigurðsson,
formann sjómannadagsráðs á Ak-
ureyri og sjómann á skipi Sam-
herja, Baldvini Þorsteinssyni. Þá
náðist ekki í Valgerði Sverrisdótt-
ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samherja
Ekki um skoðana-
kúgun að ræða
ÞAÐ er engu líkara en hundurinn
Salka, sem hér syndir af miklum
krafti í Draugatjörn við Heng-
ilinn, sé að hefja sig til flugs úr
spegilsléttum vatnsfletinum.
Vatnið þeytist til beggja hliða og
er eins og hundurinn hafi fengið
vængi.
Salka er ljósgulur labrador
retriever og mun um miðjan mán-
uðinn gangast undir veiðipróf á
vegum Hundaræktarfélagsins.
Eigandi hundsins, Höskuldur
Ólafsson, þjálfar hann nú á hverj-
um degi fyrir prófið.
Annan hvern dag er hann í
þrekþjálfun og fer þá út að
hlaupa eða ganga með eiganda
sínum en hina dagana er hann
þjálfaður í að sækja bráð og stað-
setja hana og í öðrum kúnstum
sem veiðihundar verða að hafa á
valdi sínu. Mikið er á hund og
mann lagt, en að sögn er ánægj-
an af erfiðinu einnig ómæld.
Morgunblaðið/Ingólfur
Veiði-
hundur
hefur sig
til flugsFIMM daga opinber heimsóknHalldórs Blöndal, forseta Alþingis,
til Kanada hófst í Ottawa í gær.
Heimsóknin er í boði kanadíska
þingsins og með Halldóri í för eru
eiginkona hans, Kristrún Ey-
mundsdóttir, Einar K. Guðfinnsson
alþingismaður, Belinda Theriault,
forstöðumaður alþjóðasviðs Al-
þingis, og Hjálmar W. Hannesson,
sendiherra Íslands í Kanada.
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fyrsti dagur heimsókn-
arinnar hefði verið ánægjulegur og
fróðlegur. Fregnir af afsögn Pauls
Martins, fjármálaráðherra Kan-
ada, úr ríkisstjórn Jean Chretien á
sunnudagskvöld væru þó fyrirferð-
armiklar í fjölmiðlum og í um-
ræðum stjórnmálamanna á milli.
„Við áttum mjög góðan fund með
forseta neðri deildar kanadíska
þingsins, Peter Milliken, sem er
væntanlegur til Íslands í ágúst-
mánuði. Einnig fengum við tæki-
færi til að tala við leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar í neðri deildinni,
Stephen Harper, sem er nýtekinn
við þeirri stöðu. Hann er af-
skaplega elskulegur maður og lof-
aði að kynna sér þau mál sem við
tókum upp við hann, sem var eink-
um loftferðasamningur milli Ís-
lands og Kanada,“ sagði Halldór en
hann snæddi kvöldverð í gærkvöldi
í boði Millikens. Halldór hitti einn-
ig í gær Don Boudria, þingflokks-
formann stjórnarflokksins, og
snæddi hádegisverð með nokkrum
kanadískum alþingismönnum.
Hann sagði að fiskveiðistjórnun
hefði einkum borið á góma í við-
ræðum við þingmennina.
„Við Einar K. Guðfinnsson al-
þingismaður og Hjálmar W. Hann-
esson sendiherra höfum í við-
ræðum okkar lagt áherslu á þau
mál er varða samskipti þjóðanna á
breiðum grunni. Meðal annars höf-
um við tekið upp nauðsyn þess að
loftferðasamningur verði gerður á
milli þjóðanna. Eftirtektarvert hef-
ur verið að allir þeir þingmenn sem
við höfum hitt vita mjög mikið um
Ísland og eru ekki í vandræðum
með að ræða málefni Íslend-
ingabyggðanna hér. Enginn vafi
leikur á því að við eigum hér vinum
að mæta í Kanada,“ sagði Halldór
Blöndal.
Hittir sjávarútvegs-
ráðherra Kanada í dag
Í dag mun forseti Alþingis og
fylgarlið eiga fundi með Robert
Thibault, sjávarútvegsráðherra
Kanada, og Dan Hays, forseta öld-
ungadeildar þingsins, og fylgjast
með fyrirspurnartíma öldunga-
deildarinnar. Á morgun mun sendi-
nefndin halda til Calgary þar sem
forseti Alþingis mun hitta fulltrúa
samtaka Vestur-Íslendinga í
Calgary og Markerville og í Mark-
erville mun sendinefndin skoða
sögustaði Stephans G. Stephans-
sonar. Frá Calgary mun sendi-
nefndin halda til Banff.
Opinber heimsókn forseta Alþingis til Kanada hófst í gær
Þingmenn vel að
sér um Ísland
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, ásamt Peter Milliken, forseta neðri
deildar kanadíska þingsins, sem hann hitti að máli í gær.
UNGI maðurinn sem
ráðist var á í Hafnar-
stræti 25. maí sl. lést af
áverkum sínum á gjör-
gæsludeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss á
sunnudagsmorgun.
Hinn látni hét Magn-
ús Freyr Sveinbjörns-
son, til heimilis í Sund-
stræti 34 á Ísafirði.
Hann var 22 ára, fædd-
ur 2. mars 1980. Tveir
menn, 20 og 23 ára
gamlir, hafa játað að
hafa ráðist á Magnús í
Hafnarstræti að morgni
laugardagsins 25. maí. Annar þeirra
mun hafa sparkað í hann með þeim af-
leiðingum að hann féll og höfuð hans
skall í götuna. Upptökur úr eftirlits-
myndavél sýna mennina tvo sparka í
efri hluta líkama hans.
Þegar lögregla kom á
vettvang var hann með-
vitundarlaus og við
skoðun á spítala kom í
ljós að hann var höfuð-
kúpubrotinn og með
áverka á heila. Hann
komst aldrei til meðvit-
undar eftir árásina.
Gæsluvarðhald yfir
árásarmönnunum
rennur út eftir hádegi í
dag. Verði mennirnir
kærðir fyrir að verða
manni að bana með
stórfelldri líkamsárás
eiga þeir yfir höfði sér allt að 16 ára
fangelsi. Skv. heimildum Morgun-
blaðsins hafa mennirnir áður komið
við sögu lögreglu en þeir eiga þó ekki
langan feril að baki.
Lést af völdum
líkamsárásar
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isAllt um heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu / B6, B7, B8, B9
Sex marka jafntefli Fylkis
og Fram í Árbænum / B2
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM