Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 23 CALVIN Jerold Burdine, sem dæmdur hefur verið til dauða í Texas í Bandaríkjunum, verður annaðhvort látinn laus eða réttað verður í máli hans á ný, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna í gær. Opinber verjandi Burdines sofnaði oftar en einu sinni við réttarhöldin yfir honum 1984, og komst alríkis- dómstóll að því, að þar með hefði Burdine ekki notið stjórnarskrár- bundins réttar síns á gagnlegri vörn. Saksóknari í Texas áfrýjaði úrskurði alríkisdómstólsins til Hæstaréttar, sem í gær vísaði áfrýjun saksóknar- ans frá. Dómsmálayfirvöld í Texas héldu því fram, að þótt verjandi Burdines hefði ítrekað dottað við réttarhöldin væri ekki þar með sagt að Burdine hefði ekki notið gagnlegrar varnar. Því hafnaði Hæstiréttur. Niðurstaða hans þýðir að nú verða dómsmála- yfirvöld í Texas að ákveða hvort Burdine verður látinn laus eða rétt- að verður aftur í máli hans. Burdine var fundinn sekur um að hafa stungið ástmann sinn til bana í hjólhýsi sem þeir bjuggu í í Houston 1983. Burdine játaði við yfirheyrslu hjá lögreglu, en nú neitar hann því að hafa banað manninum. Svaf í tíu mínútur í senn Kviðdómendur og dómritarar báru síðar, að Joe Cannon, opinber verjandi sem skipaður var til að verja Burdine, hefði sofið í allt að tíu mínútur í senn við réttarhöldin og við dómsuppkvaðninguna í kjölfarið, er Burdine var dæmdur til dauða. Cannon, sem nú er látinn, neitaði að hafa sofnað. Litlu munaði að dauða- dómnum yfir Burdine yrði fullnægt 1987, en samkvæmt dómsúrskurði var aftökunni frestað. Burdine tapaði nokkrum áfrýjun- armálum áður en alríkisdómstóll komst loksins að þeirri niðurstöðu að brotinn hefði verið á honum stjórn- arskrárbundinn réttur. Alríkisáfrýj- unarráð vísaði síðan þeirri niður- stöðu frá fyrir tveimur árum, en 5. umdæmisáfrýjunarréttur Banda- ríkjanna samþykkti svo upphaflega niðurstöðu alríkisdómstólsins. Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmir í máli dauðamanns er hafði sofandi verjanda Fær frelsi eða ný réttarhöld Washington. AP. GEORGE Pell, erki- biskupinn í Sydney og æðsti maður kaþólsku kirkjunnar í Ástralíu, neitaði í gær að segja af sér vegna ásakana um að hann hefði boðið tveimur áströlskum fjölskyld- um greiðslur fyrir að segja ekki frá því að prestar hefðu misnot- að börn þeirra kynferðislega. „Ásakanirnar um að ég hefði reynt að þagga niður í einhverj- um eru algjörlega tilhæfulaus- ar og ósannar,“ sagði erkibisk- upinn. Pell viðurkenndi þó í sjónvarpsviðtali á sunnudags- kvöld að hann hefði boðið fjöl- skyldu tveggja barna andvirði 2,6 milljóna króna fyrir að segja ekki frá því að prestur hefði misnotað þau kynferðis- lega. Hann sagði hins vegar í gær að hann hefði aðeins beðið fjölskylduna um að halda til- boði um bætur leyndu ef hún hafnaði því og höfðaði mál gegn kirkjunni. Fjölbýlishús hrynur EINN maður beið bana og sjö slösuðust þegar fimm hæða fjölbýlishúss hrundi í L’Hospit- alet de Llobregat nálægt Barcelona á Spáni í gær. Einn þeirra sem slösuðust var í lífs- hættu. Ekki var ljóst hvers vegna húsið hrundi en talið var að byggingarframkvæmdir á nálægu bílastæði kynnu að hafa haft áhrif. Einnig var leitt get- um að því að burðarþol bygg- ingarinnar hefði ekki verið nægilega mikið en ál var notað í burðarvirki hússins þegar það var reist árið 1967. Húshrun í Rússlandi NÍU hæða fjölbýlishús í Sankti Pétursborg hrundi í gær vegna gassprengingar sem kostaði einn lífið. Lögregla sagði 40 manns hafa verið flutta úr byggingunni eftir spreng- inguna, sem olli því, að þrjár efstu hæðir hússins hrundu. Hinar hæðirnar hrundu skömmu síðar. Um 230 manns misstu heimili sín í slysinu. Lögreglu- menn ákærðir SAKSÓKNARI í Svíþjóð hefur ákært fjóra lögreglumenn í Stokkhólmi fyrir að hafa gengið of hart fram gegn nokkrum andstæðingum alþjóðavæðing- ar, sem mótmæltu í borginni í tengslum við fund Evrópusam- bandsins í júní í fyrra. Lögregl- an mun hafa gert áhlaup á gagnfræðaskóla, þar sem mót- mælendur höfðu aðsetur, að næturlagi, en borgaryfirvöld höfðu leyft mörgum mótmæl- endum að gista í skólanum þeg- ar fundurinn var haldinn. Um 80 manns voru í skólanum þeg- ar lögreglan réðst til inngöngu, en hún er sögð hafa beitt óþarfa ofbeldi í aðgerðum sínum. Með- al annars þurfti fólkið að liggja á maganum fyrir utan skólann, sumt klæðlítið, í klukkustund meðan lögreglan athafnaði sig á skólalóðinni. STUTT Erkibisk- up tvísaga George Pell
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.