Morgunblaðið - 04.06.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 25
ÞAÐ er ekki oft sem einkasöfn
koma á sölumarkað opinberlega, en
gerist að einstaklingar stokki upp á
veggjunum heima hjá sér. Feli ein-
hverju sölulisthúsi borgarinnar að
koma hluta þess í verð, jafnvel heila
klabbinu, og liggja til þess ýmsar
óskilgreindar ástæður.
Ekki veit ég þannig fullkomlega
hvað unga manninum gengur til sem
lagt hefur listhús Ófeigs undir safn
sitt og býður verkin til kaups, en
grunar að létt sé í pyngjunni hjá hon-
um sem fleirum um þessar mundir.
Líka getur samtíningurinn verið arf-
ur sem sem skarar ekki áhugasvið
viðkomandi, en svo sýnist ekki vera í
þessu tilviki. Fólk með hjarta fyrir
myndlist, eins og hann auðsjáanlega
hefur, lætur ekki slíka hluti frá sér
fara bara si sona og ekki virðist hann
hafa safnað verkum með veraldlega
hagnaðinn einn í huga. Þvert á móti
er sem hann hafi verið á góðri leið
með að móta sér fullgilda tilfinningu
fyrir samtímalist í orðsins fyllstu
merkingu. Þannig eru á veggjunum
verk eftir sígilda málara eins og
Louisu Matthíasdóttur og Kristján
Davíðsson, millikynslóð líkt og Hauk
Dór og Sigurð Þóri, yngri menn eins
og Georg Guðna og Húbert Nóa, og
loks hina yngstu eins og Gabríelu
Friðriksdóttur, einnig einn skúlptúr
eftir Guðjón Bjarnason. Að auk eru
þarna verk eftir Sigurbjörn Jónsson,
Kristján Jónsson og Pétur Gaut.
Ekki fylgja sýningunni nógu ítar-
legar upplýsingar úr hlaði til að rýna í
samsafnið og koma af stað orðræðu
um það, en rétt að vekja athygli hér á.
MYNDLIST
Listhús Ófeigs
Opið alla rúmhelga daga á tíma listmuna-
verkstæðisins. Til 5. júní. Aðgangur
ókeypis.
SÖLUSÝNING
MYNDVERK
Úr
einkasafni
Málverk eftir Louisu Matthíasdóttur.
Bragi Ásgeirsson
ÞÓ SÝNING Markúsar Þórs
Andréssonar í rýminu undir stigan-
um í Galleríi i8 sé varla meira en ör-
sýning að stærð segja fermetrarnir
ekki allt um umfang inntaksins.
„Lögmálin sjö um velgengni“ er heiti
verksins og gefur nefnilega fastlega
til kynna að um nokkuð alvöru-
þrungna aukamerkingu sé að ræða
þótt öllu sé slegið upp í hálfkæring
með sjö opnum áfengisflöskum sem
fylla kompuna áleitinni angan.
Inn af flöskunum er stórt ofur-
raunsætt málverk af Playmobil-karli
framan við gullin sviðstjöld. Hann er
greinilega málaður í framan eins og
trúður. Í annarri hendi heldur hann
á landslagsmynd af Herðubreið en í
hinni á skammbyssu. Titill málverks-
ins er „Are you talking to me?“ Það
er ekki auðvelt að geta sér til um
merkingu þessarar sérstæðu sam-
setningar málverks og áfengis-
flaskna né hvernig beri að túlka leik-
fangakarlinn með landslagsverkið og
skammbyssuna. Í sporum mynd-
greinis – íkonológs – af germanska
skólanum væri ef til vill hægt að
lenda í rimmu út af röngum lestri á
byssunni, því hægt er að flaska á
henni og borvél. Þá væri komið upp
náskylt dæmi frægrar deilu um
verkfæri Jósefs í Mérode-töflu
Meistarans af Flémalle, í Metro-
politan-safninu í New York. Það sem
einn fræðimaðurinn sá sem tréhefil
smiðsins túlkaði annar sem músa-
gildru.
Sannast þar eitt, að hvort sem um
byssu eða borvél er að ræða verða
myndir seint svo augljósar að hægt
verði að njörva niður merkingu
þeirra í eitt skipti fyrir öll. Trúður-
inn með Herðubreiðarmyndina og
flöskurnar sjö heldur því dulúð sinni,
hvort sem hann er á leiðinni að drepa
sig, mig, eða festa einfaldlega upp
landslagsmynd. Það breytir því þó
ekki að Markús Þór sver sig í ætt við
fjölmarga kollega sína, sem um þess-
ar mundir deila hart og óvægið á
hefðbundna ímynd listamannsins,
líkt og hún birtist í huga almennings.
MYNDLIST
Gallerí i8
Sýningu lokið.
BLÖNDUÐ TÆKNI
MARKÚS ÞÓR ANDRÉSSON
Varstu að tala við mig?
Halldór Björn Runólfsson
Málverkið „Are you talking to
me?“ er hluti af samsetningu
Markúsar Þórs Andréssonar í
rýminu undir stiganum í Galleríi
i8 við Klapparstíg.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Samtaka um tónlistarhús: „Samtök
um tónlistarhús ítreka stuðning
við ríkisstjórn og borgarstjórn í
málefnum tónlistarhúss um leið og
þau fagna undirritun samkomulags
milli Reykjavíkurborgar og ís-
lenska ríkisins um byggingu tón-
listarhúss og ráðstefnumiðstöðvar
í Reykjavík.
Samtökin hvetja til þess að
verkefnisstjórn verði skipuð og
hefji störf sem fyrst. Mikilvægt er
að samtökin taki virkan þátt í
þeirri vinnu sem framundan er,
sem einn af samráðsaðilum verk-
efnisstjórnarinnar. Samtök um
tónlistarhús verði, eins og áður í
þessu ferli, vettvangur þar sem fá
má fram sjónarmið væntanlegra
notenda tónlistarhússins varðandi
hönnun þess og rekstur.
Samtökin fagna því að af hálfu
ríkisins hefur verið lýst yfir vilja
til þess að hafa hljómsveitargryfju
og ljósabúnað í tónleikasalnum.
Með hljómsveitargryfju og vönd-
uðum ljósabúnaði verður unnt að
sviðsetja og sýna bæði söngleiki og
óperur en þó með einföldum leik-
tjöldum, þar sem ekki er gert ráð
fyrir hliðarsviði eða rými ofan við
svið.“
Ályktun
um tón-
listarhús
Barnabolir
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
með myndum kr. 590
Mikið úrval
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a
K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0
440 4400
N‡tt símanúmer Glitnis
Stanislas Bohic
garðhönnuður
Sími 525 3000 • www.husa.is
verður til skrafs og ráðagerða í
timburverslun Súðarvogi sem hér segir:
Fimmtudaginn 6. júní 13 - 18
Fimmtudaginn 13. júní 13 - 18
Miðvikudaginn 19. júní 13 - 18
Vinsamlegast pantið tíma í
síma 525 3000.