Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 24
LISTIR 24 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KRISTIAN Jørgensen er yngsti djassfiðlumeistari Dana. Hann er trúlega þekktastur fyrir leik sinn í Tangoorkestret, en svíngkvartett hans með Jakobi Fischer hefur einn- ig verið vinsæll í Danmörku og gaf nýlega út disk með píanistanum jamaíska Monty Alexander. Þótt Jørgensen sé góður er hann ekki í sama flokki og Svend Asmussen og Finn Ziegler. Hann býr ekki yfir sama sveiflugaldri og þeir, þessum óútskýranlegu töfrum sem fá tónlist- ina til að krauma þartil allt flýtur í sveiflu sem hrífur menn í hæstu hæðir. Það var vel til fundið hjá Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni að bjóða Jørgensen hingað á Listahátíð. Í fyrra var franski fiðlarinn Dieter Lockwood gestur þeirra og Gunnars Þórðarsonar, sem nú var fjarri góðu gamni. Jørgensen er ekki sami flug- eldasýningarmaðurinn og Lock- wood. Stíll hans er afslappaðri og nær hinni hreinu sveiflu. Á efnis- skránni voru klassískir söngdansar einsog Softly As In A Morning Sunr- ise, Lady be Good, All Of Me og I’ll Remember April; djassklassík sem Asmussen hefur jafnan haft á efnis- skrá sinni: In A Sentimental Mood eftir Duke Ellington, Donna Lee Parkers og Pent Up House Rollins. Svo var fín samba eftir Jørgensen: Astor Samba. Jón Rafnsson var leikandi léttur á bassann og hélt sveiflunni gangandi, en Björn kompaði líka með ágætum og jafnvel Jørgensen, sem sló fiðlu- strengina á stundum. Eitt bar þó af öðru á þessum tónleikum. Sólóar Björns Thoroddsens. Ég hef sjaldan heyrt hann betri og sterk sveifla og hugmyndaauðgi lyftu mörgum spunaköflum hans í hæðir. Það væri gaman að þessir piltar hittust oftar og þróuðu samleik sinn. Upphafið lofaði svo sannarlega góðu. ÞAÐ var þrælsamspiluð tríótón- list sem Ásgeir Ásgeirsson bauð uppá á Múlatónleikum sínum. Þetta tríó lék einnig á Múlanum í Húsi málarans í desember sl. Þeir tón- leikar lofuðu góðu um framhaldi og rættist það á fimmtudagskvöldið. Greinilegt er að samvinna þeirra í vetur hefur skilað árangri. Á tónleik- unum í desember sveif andi Wes Montgomerys yfir vötnum, en nú skipuðu frumsamdir ópusar Ásgeirs heiðurssessinn. Tveir gamlir og góð- ir eftir Agnar voru einnig á dagskrá: Distant Bisquits og Open Door, en þá má finna á hinum stórgóða diski Agnars sem út kom í fyrra: 01. Svo var einn Pat Metheney ópus á efnis- skránni og tveir söngdansar klass- ískir: Alone Together og Have You Met Miss Jones? Þeir voru skemmti- lega endurunnir og sóló Ásgeirs í ungfrú Jones fantagóður, kraftmikil hraðahlaup og léttfönkað undirspilið hittu í mark. Ballöður Ásgeirs voru einkar áheyrilegar og burstavinna Eriks fyrsta flokks. Ekki var hann síðri í Open Door Agnars þarsem höfundurinn lék vel byggðan orgel- sóló með rifnum tóni. Hljómasóló Ásgeirs í frumsömdum blúsi, Feses- blús, var vel heppnaður og gaman var að Donnu Lee Parkers þarsem Indiana skein vel í gegn. Þetta er ekki klassískur orgel- djass, til þess er Agnar Már of im- pressjónískur í tónhugsun sinni og Ásgeir mjúkhljóma. En þetta var fínn tríódjass og megi þeir félagar halda áfram sköpun sinni sem lengst tónlistarunnendum til yndisauka. TÓNLIST Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi Kristian Jørgensen, fiðlu, Björn Thorodd- sen, gítar, og Jón Rafnsson, bassa. Laug- ardagskvöldið 25.5. 2002. SVEIFLA MEÐ JØRGENSEN Strengja- sveifla Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Agnar Már Magnússon, orgel, og Erik Qvick, trommur. Fimmtudagskvöldið 23.5. 2002. TRÍÓ ÁSGEIRS ÁSGEIRSSONAR Vernharður Linnet Múlinn í Kaffileikhúsinu MINNINGARSJÓÐUR um hjónin Sverri Magnússon og Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, frumkvöðla að stofnun Hafnarborgar, veitti Björg- vini Halldórssyni tónlistarmanni viðurkenningu sína árið 2002. Af því tilefni var efnt til móttöku í Hafnarborg um helgina þar sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Magnús Gunnarsson, afhenti Björgvini við- urkenninguna, málverk eftir Eirík Smith. Morgunblaðið/Þorkell Björgvin Halldórsson hlýtur viðurkenningu BORGARLEIKHÚSIÐ og Kvik- myndaskóli Íslands standa fyrir tveggja vikna námskeið fyrir krakka sem vilja læra að leika og kynnast ævintýraheimi leikhússins og kvik- myndanna af eigin raun. Þetta er annað árið sem boðið er upp á þessi námskeið og í fyrra voru þátttakend- ur á fjórða hundraðið. Á námskeið- unum er kennd tjáning, framsögn og undirstöðuatriði leiklistar, bæði á leiksviði og í kvikmyndum. Farið verður yfir grundvallaratriði í kvik- myndagerð bæði hvað varðar tækni og beitingu myndmáls. Þátttakend- ur vinna bæði einstaklings- og hóp- verkefni og fá auk þess tækifæri til að leika í atriði með atvinnuleikur- um. Kennt verður hvernig undirbún- ingur fyrir kvikmyndatöku fer fram, hvernig atriðum er raðað í tökulista og þau síðan klippt saman að end- ingu. Kennsla fer fram í Borgarleikhús- inu og hefjast fyrstu námskeiðin 10. júní. Kennt er í tveimur aldurshóp- um, 10–12 ára og 13–15 ára. Heimasíða kvikmyndaskólans er www: kvikmyndaskoli.is/leiklist.- htm. Leiklist fyrir börn SÖGUÞINGI lauk í húsakynnum Háskóla Íslands í Odda á laugardag með málstofum þar sem meðal ann- ars var fjallað um sögusýningar, minni og vald, sjálfsmynd andspænis framandleika, þorskastríð og kalt stríð. Um 250 manns tóku þátt í þinginu þar af nokkrir erlendir fræðimenn en fyrsta Söguþingið hérlendis var haldið 1997. Er fund- um var lokið á laugardag ávarpaði menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, þátttakendur og um kvöldið var síðan efnt til þingveislu á Grand hóteli. Framsögumenn í málstofunni um minni og vald voru þeir Guðmundur Hálfdánarson, Helgi Þorláksson og Valur Ingimundarson. Guðmundur rifjaði upp að við lýðveldisstofnunina árið 1944 hefði aðaláherslan verið lögð á að þjóðin væri ekki að stofna lýðveldi heldur „endurreisa“ það og þá átt við þjóðveldið fyrir Gamla sáttmála. Tengslin við meinta gullöld á miðöldum hefðu verið lifandi og skipt sköpum í sameiginlegu minni þjóðarinnar, verið grundvöllur end- urreisnarinnar. Og tungan hefði líka verið þráðurinn í viðleitninni til að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að Íslendingar væru sérstakir og ættu því skilið að vera sjálfstæð þjóð. Sagnfræðingar orðnir gagnrýnni Guðmundur sagði að sagnfræði legði áherslu á breytingar, rof í tíma. Einnig legðu sagnfræðingar áherslu á að allar þjóðir tengdust, áhrif kæmu ekki síður utan frá en innan. „En sagnfræðin lék stórt hlutverk í því á 19. öld að búa til og festa í sessi minningar, einnig hér á Íslandi,“ sagði hann. Aðstæður hefðu breyst í þessu tilliti hér á landi síðustu árin og sagnfræðingar farið að verða gagnrýnni. Æ meiri áhersla væri lögð á að saga Íslendinga tengdist sögu annarra þjóða. Guðmundur benti á að minningar þjóðar væru ekki sjálfsprottnar heldur væru þær búnar til af ríkis- valdinu, sagnfræðingum og fjölmiðl- um. „En þessar minningar eru á vissan hátt að leysast upp. Þjóðsögur nútímans verða ekki til í sveitum landsins heldur í Hollywood þar sem hið góða berst við hið illa úti í geimn- um eða í ímynduðum veröldum ein- hvers staðar handan veruleikans. Fyrir okkur er ögrunin að skapa starfandi samfélag fólks sem á sér ólíkar minningar, ólíka sögu og for- tíð. Við þurfum að endurvekja sam- eiginlegar minningar sem virðast vera að líða úr minni, leita leiða til að skapa samkennd. Með því er alls ekki verið að segja að skapa verði heim þar sem við erum öll eins held- ur þvert á móti skilyrði þess að við getum starfað saman þótt við séum ólík,“ sagði Guðmundur. Helgi Þorláksson velti því fyrir sér hvort rétt væri að treysta Sturlu Þórðarsyni betur en pólitískum höf- undum á 20. öld. Hann benti á að Sturla hefði verið þátttakandi í flest- um mikilvægustu atburðum Sturl- ungaaldar og freistandi væri að íhuga hvort hann hefði notað sér að- stöðuna sem fræðimaður, verið hlut- drægur. En Helgi taldi Sturlu hafa með Íslendinga sögu viljað sýna norska kónginum að hann sæi vel að Sturlungar hefðu gert ýmislegt af sér og að hann sjálfur iðraðist eigin framkomu í átökunum. „Kannski var hann líka að hjálpa frændum sínum að sjá atburði fortíðarinnar í réttu ljósi.“ Valur Ingimundarson rifjaði m.a. upp reglurnar sem takmörkuðu ferðafrelsi bandarískra hermanna utan Keflavíkurstöðvarinnar. Þegar samið var um að Bandaríkjamenn tækju að sér varnir landsins 1941 var það krafa íslenskra ráðamanna að ekki yrðu svartir menn í liðinu þótt óskin væri hvergi skjalfest, henni var haldið til streitu er herinn kom aftur 1951. Síðar var um árabil farin sú millileið að allt að fjórir menn í lið- inu voru blökkumenn, að sögn Vals var knúið á um breytt viðhorf Íslend- inga upp úr 1960 en þá varð blökku- mannabannið fjölmiðlamál vestan- hafs. Valur lýsti því hvernig þetta feimnismál var nánast þagað í hel áratugum saman á Íslandi, hann vildi ekki nota orðið samsæri en ein- ing virtist hafa ríkt um málið milli stjórnmálaflokkanna. Sagðist hann ekki hafa fundið neinar ritaðar heim- ildir um bannið við blökkumönnum hér, það hefði hann gert í Bandaríkj- unum. „Minningin um ástandið var ráða- mönnum í fersku minni þegar varn- arsamningurinn var gerður 1951 og þetta voru sameiginlegar minningar. En vitaskuld verður að gera þann fyrirvara að þetta átti ekki við um alla þjóðina og það er ákveðið vanda- mál við hugtakið minni. Þetta er bundið við túlkun karla. Hér var um að ræða tilraun til að stjórna með pólitísku valdi samskipt- um íslenskra kvenna og bandarískra hermanna. Frá árinu 1954 til loka kalda stríðsins voru í gildi strangar reglur um útivist hermanna. Ein ástæðan var að stjórnvöld vildu forð- ast að kynda undir ólgu, herinn var mjög viðkvæmt og umdeilt mál, hin ástæðan var að vernda átti íslenskar konur fyrir hermönnunum,“ sagði Valur. „Hernámsandstæðingar á sjötta áratugnum vildu venjulega, af pólitískum ástæðum, að hermönnum yrði ekki hleypt frá herstöðinni en það mátti líka greina í máli þeirra ákveðnar hugmyndir um að halda þjóðerninu hreinu.“ Sjálfsmynd og hyrndir hjálmar Skilgreining sjálfsmyndar Íslend- inga var efni sem greinilega vakti forvitni og salurinn troðfullur. Sverrir Jakobsson fjallaði um sjálfs- myndina eins og hún virðist hafa ver- ið á miðöldum er skilin milli Íslend- inga og Norðmanna voru enn óglögg. Notaði Sverrir sem útgangspunkt Hauk Erlendsson lögmann sem Hauksbók er kennd við og lifði fram á 14. öld. Menn hefðu reynt að skilja sérstöðu sína með því að lýsa um- heiminum og kannað hvað væri öðruvísi erlendis. Bragi Guðmunds- son velti fyrir sér þætti héraðsvit- undar í almennri vitund fólks um stöðu sína í samfélaginu og vísaði m.a. til rita Húnvetningsins Jakobs Frímannssonar. Bragi lýsti með töl- um byggðaþróun á 20. öld, hvernig Reykjavíkursvæðið hefði á skömm- um tíma sogað til sín æ stærri hluta þjóðarinnar og taldi sjálfsvitund landsbyggðarbúa oft hafa skerst í þeim atgangi. Loks rakti Þorgerður Þorvaldsdóttir skoðanir sínar á því hvernig áherslur á hreinleika Ís- lands í markaðssetningu ferðaþjón- ustumanna gætu haft áhrif á sjálfs- mynd þjóðarinnar. Hún sagði að goðsagnir um að Íslendingar væru af víkingakyni, hrein og óspillt en um leið tæknivædd náttúrubörn, hefðu í vaxandi mæli ratað úr auglýsingum inn í þjóðarsálina. Við værum sjálf farin að upphefja hreinleika landsins og erfðafræðilegan hreinleika þjóð- arinnar sem gæti valdið auknum for- dómum í garð fólks af erlendum upp- runa sem settist að hér. Gunnar Karlsson sagðist velta því fyrir sé hvort það væri endilega óæskilegt að við tækjum að ein- hverju leyti upp sjálfsmynd ferða- þjónustunnar. „Ég viðurkenni að ég held að hyrndur hjálmur sé mjög óþægilegt höfuðfat en ef hreinleika- ímyndin gæti til dæmis fengið okkur til að ganga snyrtilegar um landið þá sé ég ekki annað en að það sé gott.“ Þorskastríðin ónauðsynleg? Á málstofu um þorskastríð og kalt stríð gerði Guðni Th. Jóhannesson að umtalsefni þær ýmsu spurningar, sem spyrja þyrfti í umfjöllun um þorskastríðin. Guðni kvaðst m.a. telja óheppilega þá nauðhyggju, sem fælist í því að líta svo á að þorskastríðin hefðu ver- ið nauðsynleg. Það gilti nefnilega, þegar grannt væri skoðað, að ís- lenskir ráðamenn hefðu getað reynt að afstýra illdeilum við Breta meir en þeir gerðu. Ætti þetta t.d. við um deilur sem spunnust af útfærslu fisk- veiðilögsögunnar 1952 og 1958. Guðni velti einnig upp spurning- unni hvort rétturinn hefði ávallt ver- ið Íslands megin. Sagði hann m.a. að ekki væri augljóst að Íslendingar hefðu haft rétt til útfærslu árið 1958. Þá sagði Guðni nauðsynlegt að höggva í þá goðsögn sem enn lifði góðu lífi á Íslandi að þjóðareining hefði verið í þorskastríðunum. Sagði hann að þó að þjóðin hefði verið sam- einuð í andúð á andstæðingnum um leið og herskipin bresku komu á vettvang þá hefði einingin verið ýkt og ágreiningur vanmetinn. Klykkti Guðni út með því að segja að saga þorskastríðanna þyrfti á svipaðri endurskoðun að halda og saga sjálf- stæðisbaráttunnar. Þorskastríðun- um væri nefnilega lokið. Óli Kári Ólason gerði að umtals- efni bollaleggingar Íslendinga um aðildarumsókn að Fríverslunar- bandalagi Evrópu (EFTA) eftir þorskastríðið sem fylgdi útfærslu landhelginnar í tólf mílur árið 1958. Kom m.a. fram í máli hans að Bretar hefðu upphaflega séð aðild Íslands sem hugsanlegan lið í samningum. Niðurstaða viðræðna 1960 hefði hins vegar valdið því að þeir urðu málinu afhuga og raunar urðu Bretar mót- fallnir því, að Ísland færi inn í EFTA. Reyndu þeir að beita sér gegn aðild Íslands það sem eftir lifði sjöunda áratugarins þó að það hefði verið „pólitískt útilokað“ fyrir þá að beita neitunarvaldi. Þjóðsögurnar verða núna til í Hollywood Morgunblaðið/Þorkell Helgi Þorláksson prófessor á Söguþingi í Odda á laugardag. Einnig sést í Guðmund Hálfdán- arson prófessor. Söguþingi lauk í Reykjavík á laugardag með umræðum þar sem m.a. var fjallað um minni og vald og þorskastríðin. Einnig var rætt hvort hreinleikaáróðurinn í auglýsingum ferðaþjónustunnar gæti valdið fordómum í garð nýbúa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.