Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 19
R
Dell PowerEdge 1500SC netfljónn
Intel Pentium III 1.13GHz/512k
256MB (2x128MB) 133MHz RAM
18GB 10.000 snúninga SCSI diskur
Intel Pro/1000 XT netkort á mó›urbor›i
3ja ára ábyrg› á vinnu og varahlutum
f
a
s
t
la
n
d
-
8
1
3
1
-
0
3
0
6
0
2
S É R S N I ‹ N A R L A U S N I R O G F Y R I R T Æ K J A R Á ‹ G J Ö F + I S O 9 0 0 1 V O T T A ‹ G Æ ‹ A K E R F I + H A F ‹ U S A M B A N D Í S Í M A 5 6 3 3 0 0 0 + W W W . E J S . I S
Dell PowerEdge 1500SC er úr vanda›ri línu netfljóna á gó›u ver›i.
Hann getur tekist á vi› krefjandi verkefni og er au›veldur í uppsetningu.
fiessi truflar ekki vinnandi fólk - og allra síst fjármálastjórann.
Tilbo›sver›: 219.990 m/vsk
Fjármálastjórinn fær frí
EJS b‡›ur nokkrar tegundir fljónustusamninga me›
netfljónum; Bronsfljónustu í eitt ár, Bronsfljónustu
í flrjú ár, Silfurfljónustu í flrjú ár og Gullfljónustu í flrjú ár.
Ver› frá 7.800 m/vsk út samningstímann.
Allar nánari uppl‡singar á www.ejs.is
HAGNAÐUR samstæðu Íslenskra
aðalverktaka, ÍAV, fyrstu þrjá mán-
uði þessa árs nam 110,7 milljónum
króna. Hagnaður fyrir fjármagns-
liði, skatta og afskriftir, EBITDA,
var 91 milljón króna.
Rekstrartekjur ÍAV námu tæp-
um 1,3 milljörðum króna á tíma-
bilinu en rekstrargjöld tæpum 1,2
milljörðum. Fjármagnsliðir voru já-
kvæðir um 61 milljón samanborið
við neikvæða stöðu upp á 629 millj-
ón krónur allt árið 2001. „Skýrist
þessi breyting af styrkingu íslensku
krónunnar, en verulegur hluti
skulda félagsins er bundinn erlend-
um myntum. Auk þess er fjármála-
starfsemi tengd íbúðarbyggingum
og alverktöku vaxandi hluti af starf-
semi félagsins og skilar sá rekstr-
arliður félaginu viðunandi árangri á
fyrsta fjórðungi ársins 2002,“ segir í
tilkynningu ÍAV.
Eignir félagsins námu rúmum 7,8
milljörðum króna í lok mars en voru
tæplega 8,3 milljarðar í árslok 2001.
Eigið fé var rúmir 3,1 milljarður í
marslok og eiginfjárhlutfall var
40%. Innra virði hlutafjár reyndist
2,4. Veltufé samstæðu Íslenskra að-
alverktaka hf. frá rekstri á tíma-
bilinu var 116 milljónir króna, en
var 666 milljónir króna allt árið
2001.
Í tilkynningunni segir að á fyrsta
fjórðungi ársins 2002 hafi verið lok-
ið við tvö af stærstu verkefnum sem
félagið vann að á síðasta ári, hjúkr-
unarheimili við Sóltún og fram-
kvæmdir við Vatnsfellsvirkjun.
Vöruhótel fyrir Eimskip og nýbygg-
ing Orkuveitu Reykjavíkur eru
verkefni sem ÍAV mun vinna á
þessu ári og munu þau skapa félag-
inu tekjur vel á þriðja milljarð
króna á árinu 2002.
Hagnaður ÍAV
111 milljónir
SAMSTÆÐA Stáltaks hf. var rekin
með 34 milljóna króna tapi á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs.
Rekstrartekjur á tímabilinu námu
206 milljónum króna og tap fyrir af-
skriftir nam 18 milljónum króna.
Afskriftir námu 10 millljónum
króna og fjármagnsgjöld 5 millj-
ónum króna. Veltufé til rekstrar
nam 28 milljónum króna.
Heildareignir minnkuðu um rúm-
ar fimmtíu milljónir króna frá ára-
mótum og námu 721 milljón króna í
lok mars. Eigið fé nam 57 millj-
ónum króna og eiginfjárhlutfall
lækkaði úr 12% um áramót í 8% í
lok mars. Veltufjárhlutfall hélst
óbreytt, eða 0,9.
Í fréttatilkynningu frá Stáltaki
segir að afkoma félagsins beri
merki árstíðabundinnar lægðar í
verkefnastöðu á fyrstu mánuðum
ársins. Verkefnastaðan hafi síðan
batnað og útlitið fram á sumar sé
ágætt.
Í tilkynningunni segir einnig að
héraðsdómur Reykjavíkur hafi
staðfest nauðasamning félagsins við
kröfuhafa hinn 17. apríl síðastliðinn.
Samkvæmt honum verði kröfur að
fjárhæð 92 milljónir króna felldar
niður ásamt því að 84 milljóna
króna eftirstöðvum krafna verði
breytt í hlutafé.
Loks segir í tilkynningunni að
rekstur félagsins hafi verið nokkuð
undir áætlunum á fyrsta ársfjórð-
ungi en vormánuðirnir líti betur út
og gert sé ráð fyrir hagnaði í árs-
uppgjöri.
34 milljóna króna
tap hjá Stáltaki
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service hefur
staðfest einkunnina A2 fyrir skuld-
bindingar Íslandsbanka hf. til langs
tíma og P-1 fyrir skuldbindingar til
skamms tíma. Einkunn fyrir fjár-
hagslegan styrkleika er C+. Í til-
kynningu frá Íslandsbanka kemur
fram að lánshæfiseinkunnir Íslands-
banka eru þær hæstu sem fyrirtækið
gefur banka hér á landi. Horfur láns-
hæfismatsins eru jákvæðar, að mati
Moody’s.
„Í nýrri skýrslu Moody’s um Ís-
landsbanka kemur fram að lánshæf-
ismatið sé byggt á leiðandi markaðs-
stöðu bankans. Vel hafi tekist til við
hagræðingu í kjölfar samruna Ís-
landsbanka og FBA árið 2000 og
stærðarhagkvæmni sé meiri en hjá
innlendum keppinautum. Moody’s
vekur athygli á því að þrátt fyrir að
bankinn standi frammi fyrir vaxandi
samkeppni innlána við önnur sparn-
aðarform, hafi hann yfir að ráða fjöl-
breyttum fjármögnunarleiðum inn-
anlands og utan. Moody’s bendir á að
vegna takmarkaðra vaxtamöguleika
innanlands hafi bankinn aukið al-
þjóðleg umsvif sín, einkum með hag-
nýtingu á sérfræðiþekkingu í þjón-
ustu við sjávarútveg,“ að því er
kemur fram í tilkynningu frá Ís-
landsbanka.
Óbreytt mat á
Íslandsbanka