Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.06.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hagsmunafélag lögreglukvenna Lyftistöng fyrir lögreglukonur Hagsmunafélag lög-reglukvennastendur fyrir kynningarfundi næstkom- andi föstudag. Meðal ann- ars verður kynnt samstarf við lögreglukvennafélög hjá nágrannaþjóðum bæði á Norðurlöndum og við Eystrasalt. Berglind Eyj- ólfsdóttir er fulltrúi Ís- lands í félagi lögreglu- kvenna á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum og hún svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðs- ins. Segðu okkur aðeins frá Hagsmunafélagi lög- reglukvenna og þessu samkrulli við erlend lög- reglukvennafélög. „Hagsmunafélag lög- reglukvenna var stofnað 23. mars 1994 og tilgangur þess er að vinna að því að bæta stöðu lögreglukvenna á Íslandi. Hagsmunafélag okkar er aðili að Evrópusambandi lögreglukvenna, ENP, og félagi lögreglukvenna á Norðurlöndum og í Eystrasalts- ríkjum, NBNP. Stjórnarfundir eru reglulega haldnir en auk þess reynum við, íslenskar lögreglu- konur, að hittast að minnsta kosti einu sinni á ári.“ Hver er tilurð og tilgangur fundarins ... og hvar og hvenær fer hann fram? „Félag lögreglukvenna á Norð- urlöndum og í Eystrasaltsríkjum, Nordic Baltic Network of Police- women, NBNP, var formlega stofnað í apríl 2001 í Riga í Lett- landi. Þetta er okkar annar fund- ur eftir stofnun félagsins en í október í fyrra héldum við stjórn- arfund í Tallinn í Eistlandi. Hátíð- arfundur, þar sem dómsmálaráð- herra, borgarstjóra svo og yfirstjórn lögreglu er boðið, verð- ur haldinn í Rúgbrauðsgerðinni 7. júní nk. Stjórnarfundur NBNP verður svo haldinn daginn eftir, 8. júní, á sama staða. Við vonumst til þess að sem flestar lögreglukonur á Íslandi sjái sér fært að mæta á fundinn.“ Hver verða helstu umræðuefn- in og áherslurnar á fundinum ykkar? „Fyrst og fremst erum við að kynna Evrópusamband lögreglu- kvenna og Félag lögreglukvenna á Norðurlöndum og í Eystrasalts- ríkjum fyrir yfirstjórn lögreglu. Eitt af markmiðum félags NBNP er að gera lögreglukonum kleift að starfa tímabundið og/eða kynna sér störf kollega okkar á hinum Norðurlöndunum og íEystrasaltsríkjum, nokkurs kon- ar „skiptiprógram“. Miðla reynslu og aðstoða þær þjóðir sem ekki hafa þegar félag lög- reglukvenna til að stofna slíkt fé- lag, auk þess sem við ætlum að vinna undirbúningsvinnu vegna stórrar ráðstefnu sem haldin verður á næsta ári í Noregi með yfirskriftinni „jafnrétti innan lög- reglu“.“ Hverjir halda fyrir- lestra á fundinum? „Anna Lena Barth, forseti Evrópusam- bands lögreglukvenna, ENP, og Maria Appelblom, for- maður félags lögreglukvenna á Norðurlöndum og í Eystrasalts- ríkjum. NBNP kynna félögin auk þess sem lögreglukonur frá Norð- urlöndum og Eystrasaltsríkjum kynna stöðu lögreglukvenna í sínu heimalandi. Við eigum von á 17 erlendum lögreglukonum frá sjö löndum auk Íslands á fund- inn.“ Hver er staða lögreglukvenna á Íslandi ... hvers vegna er þörf á hagsmunafélagi? „Lögreglukonur á Íslandi eru fáar, aðeins 7% af starfandi lög- reglumönnum. Okkur fer þó fjölg- andi og í dag eru tólf konur í lög- regluskólanum, sem er styrkur fyrir okkur. Fáar konur eru í yf- irmannastöðum, en okkar fram- tíðarsýn er að hlutfall lögreglu- kvenna í yfirmannastétt endur- spegli fjölda starfandi lögreglu- kvenna. Í Reykjavík, þar sem flestar lögreglukonur á Íslandi starfa, er engin kona í yfirmanna- stöðu. Lögreglukonur vinna nánast um land allt þannig að við erum dreifðar og hagsmunafélagið er kjörið tækifæri til þess að hittast og kynnast, miðla reynslu og þekkingu og vera til stuðnings hver fyrir aðra. Það sem hefur áunnist er að í dag eiga lögreglu- konur og -menn kost á hlutastörf- um og sveigjanlegum vinnutíma og við það hefur brottfall kvenna úr lögreglu lækkað svo um mun- ar.“ Er fundurinn eingöngu ætlaður lögreglukonum, sem, vel á minnst, eru hvað margar? „Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður lögreglukonum og boðs- gestum. Í dag eru starfandi 43 lögreglukonur á landinu auk þess sem 12 lögreglukonur eru í starfsnámi. Okkur fjölgar þó um nokkrar yfir sumartímann vegna afleysinga. Við teljum þennan fund vera mikla lyftistöng fyrir ís- lenskar lögreglukonur og komi til með að tengja okkur enn frekar við nágrannaþjóðir okkar. Dómsmálaráðherra, borgar- stjórinn í Reykjavík, ríkislög- reglustjóri, lögreglustjórinn í Reykjavík og Landssamband lög- reglumanna hafa stutt okkur og gert okkur fært að halda þennan fund.“ Berglind Eyjólfsdóttir  Berglind Eyjólfsdóttir rann- sóknarlögreglukona í Reykjavík er fulltrúi Íslands í félagi lög- reglukvenna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. Hún er fædd 26. desember 1957 í Reykjavík. Berglind lauk prófi frá Lög- regluskóla ríkisins árið 1980 og hefur starfað hjá Lögreglunni í Reykjavík frá árinu 1978. Berg- lind starfar núna við rannsóknir ofbeldisbrota. Berglind er gift Jóni Otta Gíslasyni lögregluvarð- stjóra og eiga þau saman tvö börn, Katrínu Dagmar, fædd 1983, og Eyjólf, sem fæddist árið 1989. 7% af starf- andi lögreglu- mönnum Látið þið mig um þá, piltar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.