Morgunblaðið - 04.06.2002, Side 12

Morgunblaðið - 04.06.2002, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HVERFISMIÐJU vantar í Vesturbæ Reykjavíkur að mati þátttakenda á hverfa- þingi sem haldið var í Haga- skóla í byrjun maí en niður- stöður þess voru kynntar á fimmtudagskvöld í Melaskóla. Unglingar í hverfinu óska eftir hjólabretta- og línuskauta- svæði en leikskólabörn telja að engir bófar, nema kannski einn, sé á ferli í hverfinu. Markmið þingsins var að fá fram hugmyndir íbúa og hags- munaaðila í hverfinu um það hvernig þeir vilja sjá hverfið sitt. Rúmlega sextíu manns mættu til þingsins en að auki var unnið með börnum og ung- lingum í þremur skólum í Vesturbæ skömmu fyrir þing- ið. Þessir skólar voru leikskól- inn Hagaborg, Vesturbæjar- skóli, þar sem unnið var með níu ára börnum og loks Haga- skóli, þar sem áttundu bekk- ingar sögðu sitt álit. Það var Reykjavíkurborg sem stóð fyrir þinginu en umsjón og úr- vinnsla var í höndum ráðgjaf- arfyrirtækisins Alta sem áður hefur leitt vinnu á íbúaþingum á höfuðborgarsvæðinu með að- ferð sem nefnist samráðs- skipulag. Íþrótta- og tómstunda- iðkun í forgang Á þinginu var unnið í þrem- ur hópum sem hver um sig tók fyrir sig ákveðinn málaflokk og mögulegar aðgerðir. Var fjallað um útivist og tómstund- ir, mannlíf-, fræðslu og menn- ingarmál og umhverfis- og skipulagsmál. Að því er fram kemur í upp- lýsingum frá Alta kom fram sú skoðun meðal íbúanna að bæta þyrfti aðstöðu og framboð í íþrótta- og tómstundaúrræð- um, t.d. með því að fjölga gras- völlum og róluvöllum. Töldu íbúarnir að setja þyrfti að- stöðu til íþrótta- og tóm- stundaiðkunar framar á for- gangslistann við úthlutun á fjármagni. Íbúarnir vildu einnig að Vesturbæjarlaugin yrði stækkuð og aðstaða til sund- æfinga og leikja yrði bætt. Lögðu þeir til að heit laug og köld laug yrðu aðskildar í laug- inni og vatnsrennibraut byggð auk þess sem þeir bentu á að hægt væri að kanna möguleika á einkarekstri laugarinnar. Þá kom m.a. fram að íbúar töldu að göngu- og hjólreiða- stígar væru ekki nægilega vel merktir og að tengingum á milli þeirra væri ábótavant. Óskuðu þeir eftir því að settar yrðu upp merkingar um forn- minjar, sögustaði, nöfn trjáa og blómategunda og gömul nöfn og staðarheiti svo eitt- hvað sé nefnt. Álitamál hvort safnskóli sé heppilegur Í málaflokknum mannlíf, fræðsla og menningarmál var rætt um að engin miðja eða hjarta væri í Vesturbænum og töldu íbúarnir þörf á að setja á fót menningar- og hverfismið- stöð, kaffihús og bókasafn. Þá var rætt um að öryggi væri ábótavant og var umferð og ótti við ofbeldi sérstaklega nefnt í því sambandi. Var það mál manna að bæta þyrfti ör- yggi með samstarfi lögreglu og íbúa og lækkun hámarks- hraða. Kom fram í þessari vinnu að íbúar töldu tengsl milli skóla- stiga ekki nægilega góð og að álitamál væri hvort safnskóli, eins og Hagaskóli, sem allir unglingar hverfisins sækja, væri heppilegt fyrirkomulag. Töldu menn nauðsynlegt að auka samvinnu milli skóla- stjórnenda og að halda ætti málþing um safnskólafyrir- komulagið. Þá var að því fund- ið að skóladagur og tóm- stundastarf barna væri ósamfellt og óskuðu íbúar eftir því að tengsl skóla- og tóm- stundastarfs yrðu bætt með því að færa tómstundastarf í auknum mæli inn í skólana. Íbúar töldu þörf á að efla íbúasamtök Vesturbæjar og fundu að því að farveg vantaði fyrir samskipti við borgaryfir- völd. Var lagt til að komið yrði á laggirnar hverfastjórn eða hverfaráði sem hefði bæði völd og fjármagn. Loks taldi hóp- urinn skort á upplýsingaflæði í hverfinu og lagði til að komið yrði á fót upplýsingasíðunni vesturbaer.is. Umferðarmál voru ofarlega á blaði í hópnum sem fjallaði um umhverfis- og skipulags- mál. Kom fram hjá íbúum að mikil umferð væri til vand- ræða með hávaða, mengun, slysahættu og umferðarteppu á annatímum. Þá klyfu Hring- braut og Suðurgata byggðina eins og stórfljót. Var lagt til að umferðarskipulag í Vestur- bænum yrði skoðað heildstætt og að Hringbraut og Suður- gata yrðu settar í stokk. Fundið var að slæmri um- hirðu á opnum svæðum og stígum og sömuleiðis væri lítið um gróður en mikið um veggjakrot. Var lagt til að illa nýtt og vanhirt svæði yrðu endurskipulögð og gerð að „lif- andi rými“, meðal annars í tengslum við tómstundastarf. Sömuleiðis yrði veggur tekinn frá fyrir veggjakrot. Þá kom fram að fólk vill gjarnan að Háskólahverfið tengist Vesturbænum betur og telur að það gefi hverfinu ýmis sóknarfæri. Slæm aðstaða til flokkunar sorps var gagnrýnd og þá töldu íbúar að miðsvæði í göngufæri, þar sem væru litlar verslanir og veitingastaðir, vantaði í hverfið. Var lagt til að skipulagt yrði „Háskólatorg“ með slíkri starfsemi. Eins var óskað eftir því að fundin yrðu ný rými fyrir íbúðabyggð í hverfinu. Gróið og fjölbreyti- legt hverfi Þingið bar yfirskriftina „Lífsgæði í Vesturbæ“ og henni samkvæmt var einnig rætt um hvaða kosti hverfið hefði til að bera. Kom í ljós að þeir voru ófáir og má í því sam- bandi nefna nálægðina við miðbæinn, sjóinn, fjöruna og göngustígakerfið. Sömuleiðis var nefnt að hverfið væri gróið og fjölbreytilegt, þar væru gömul og ný hús í bland, fal- legar byggingar og vinaleg gömul hús með sál. Í því væru rótgrónar fjölskyldur og mörg kunnugleg andlit. Þar væri ákveðin þorpstilfinning og samkennd þótt margir teldu að vissulega mætti gera betur í að rækta þessa sérstöðu. Loks var samþykkt á þinginu ályktun þar sem til- lögu að nýrri hverfaskiptingu borgarinnar var mótmælt vegna áforma um að hluti gamla Vesturbæjarins yrði settur undir miðbæ. Taldi fundurinn eðlilegt að mörk miðbæjar og Vesturbæjar lægju í Kvosinni. Litskrúðugri skóli og sjóræningjaróló Eins og fyrr segir var leitað álits leikskólabarna, níu ára barna og unglinga í aðdrag- anda þingsins. Kom þar fram að leikskólabörnunum þættu sjórinn, sundlaugin, KR og „heima“ best í Vesturbænum. Krílin höfðu tröllatrú á íbúum hverfisins og enginn hafði séð bófa, nema einn drengur sem taldi sig hafa séð bófa um nótt. Þau voru í það minnsta með á hreinu að fleira gott fólk en bófar væru í hverfinu. Annað sem er gott og skemmtilegt var til dæmis að labba, apa- rólóinn, strætó og að prófa hjólabrettin hjá unglingunum. Ef krakkarnir fengju að ráða vildu þau að rólóinn væri bleikur og blár á litinn og væri með sjó og báta og sjóræn- ingjafána. Og aðspurð um hvaða dýr væru í Vesturbæn- um sögðu þau að þar væru hundar, kettir og fuglar. Níu ára krakkarnir voru ekki síður með skoðanir á hverfinu sínu og skólanum þar sem þeir sögðu að vantaði betri tölvur með hátölurum. Eins sögðu þeir að gaman væri að fá lítil gæludýr í skólastof- urnar, að lengja þyrfti frímín- útur og íþróttatímana, matur þyrfti að vera alla daga og stækka þyrfti skólann. Þá var á það bent að oft væru rúður brotnar í skólanum og að sum- ir krakkar væru leiðinlegir við aðra krakka. Hvað varðar útivist, tóm- stundir og umhverfi þá lýstu krakkarnir eftir stórri renni- braut í Vesturbæjarlaugina, fleiri leiktækjum á leikvellina og að lengri tími ætti að vera til að leika úti á kvöldin. Þá sögðu þeir að það þyrfti að „gróðursetja hóla út um allt til að renna sér á“, nýtt strætó- skýli vantaði og að húsin í Vesturbæ ættu að vera lit- skrúðugri, þar á meðal skól- inn. Verðlag í sjoppum og í bíó of hátt Unglingar í hverfinu óskuðu eftir æfingasvæði fyrir línu- skauta og hljólabretti og lögðu til að slíkum garði yrði komið upp hjá Neskirkju eða við róluvöllinn við Fornhaga og Tómasarhaga. Sömuleiðis sögðu þeir góðar brekkur vanta í hverfið, t.d fyrir snjó- bretti. Fleira vantar í hverfið að þeirra mati, s.s. skemmtigarða á borð við tívolí og billj- ardstofu sem krakkar mættu fara í, meiri gróður, fleiri búð- ir, t.d. fatabúðir og gos- og nammisjálfsala. Þá töldu ung- lingarnir að verðlag í sjoppum og í bíó væri of hátt og að strætisvagnar gengju ekki nægilega ört. Loks sögðu þeir vanta griðastað fyrir úti- göngumenn og samfélagsað- stoð fyrir fátæka. Hvað varðar aðgerðir má nefna að unglingarnir vildu fá styrk hjá Reykjavíkurborg til að byggja yfir malarvöll KR og láta á hann gervigras þannig að KR-ingar yrðu bestir í fót- bolta. Og síðast en ekki síst vildu þeir að fullorðnir hlustuðu á tillögur barna til til- breytingar. Lýst eftir hverfismiðju í niðurstöðum íbúaþings sem kynntar voru á fimmtudag Vesturbær Þorpstilfinning og sam- kennd einkenna hverfið Morgunblaðið/Þorkell Sigurborg Kr. Hannesdóttir, verkefnisstjóri hjá Alta, kynnti niðurstöður íbúaþingsins í Melaskóla síðastliðinn fimmtudag en Alta hafði umsjón með þinginu og úrvinnslu þess. FORELDRARÁÐ Hafn- arfjarðar veitti Áslandsskóla viðurkenningu síðastliðinn fimmtudag fyrir góð störf að tómstundamálum barnanna í skólanum. Viðurkenningin er veitt árlega en með henni vill Foreldraráðið hampa því sem vel er gert í skólamálum barna í Hafnarfirði. Að sögn Helenu Mjallar Jóhannsdóttur, formanns Foreldraráðsins, hlýtur Ás- landsskóli viðurkenninguna að þessu sinni fyrir það hversu vel er staðið að tóm- stundamálum barnanna í skólanum en þar hefur í vet- ur verið boðið upp á tóm- stundastarf innan skólans í beinu framhaldi af skóladeg- inum. Segir Helena Mjöll lofsvert hversu fjölbreytt þetta tómstundastarf hefur verið auk þess sem lítið sem ekkert gjald hafi verið tekið fyrir það. Hún segir viðurkenn- inguna ekki endilega eyrna- merkta skólum og sem dæmi um það má nefna að áður hefur eigandi söluturns, kennari og félagsmiðstöð fengið viðurkenninguna. Að þessu sinni var við- urkenningin listaverkið Sköpun eftir hafnfirsku grafíklistakonuna Margréti Guðmundsdóttur og það var Áslaug Brynjólfsdóttir, frá- farandi skólastjóri Áslands- skóla, sem veitti því viðtöku úr höndum Hrannar Håkons- on, sem situr sem annar fulltrúi foreldra í Áslands- skóla í Foreldraráði Hafn- arfjarðar. Gott tómstundastarf í Áslandsskóla verðlaunað Hafnarfjörður Morgunblaðið/Kristinn ÞEIR sem hafa ekið um Hamrahlíðina síðustu daga hafa kannski orðið fyrir því að skilti eitt við götuna geri at- hugasemdir við aksturshraða viðkomandi. Skiltið atarna er nýkomið upp og að sögn Stef- áns Finnssonar, verkfræðings hjá umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkurborgar, er um nokkurs konar forvörn að ræða. „Þetta er innan 30 kíló- metra svæðis og það hefur sýnt sig að menn aka þarna aðeins hraðar en það. Þannig að þetta er eins konar mót- vægisaðgerð til að minna fólk á hraðatakmarkanir.“ Skiltið sýnir ökumönnum á hvaða hraða ekið er en auk þess sendir það frá sér blikk- andi ljós eftir að ákveðnum hraða er náð. Stefán segir annað slíkt skilti vera komið upp við Háaleitisbrautina en reynslan af þessum tveimur skiltum verði svo höfð til hlið- sjónar varðandi það hvort fleiri slík verði sett upp í borg- inni. Þetta eru fyrstu föstu skiltin sem sýna hraða öku- tækja en áður hafa færanleg skilti með sömu virkni verið sett upp eftir þörfum. Morgunblaðið/Sverrir Minnt á hraðatakmarkanir Hlíðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.