Morgunblaðið - 04.06.2002, Side 14

Morgunblaðið - 04.06.2002, Side 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Bóknámsbrautir til stúdentsprófs • FÉLAGSFRÆÐABRAUT • MÁLABRAUT • NÁTTÚRUFRÆÐIBRAUT Listnámsbraut • HÖNNUNAR- OG TEXTÍLKJÖRSVIÐ • MYNDLISTARKJÖRSVIÐ • TÓNLISTARKJÖRSVIÐ Starfsnámsbrautir • FYRRIHLUTI NÁMS Í MÁLMIÐNUM OG BIFVÉLAVIRKJUN • GRUNNNÁM MATARTÆKNA • GRUNNDEILD RAFIÐNA • GRUNNDEILD TRÉIÐNA • ÍÞRÓTTABRAUT • SJÚKRALIÐABRAUT • TÖLVUFRÆÐIBRAUT • UPPELDISBRAUT • VÉLSTJÓRNARBRAUT • VIÐSKIPTABRAUT Almenn námsbraut Í VMA getur þú: • Stundað nám í stærsta framhaldsskóla utan höfuðborgarsvæðisins, • lagt stund á fjölbreytt nám, bæði á bók- og verknámsbrautum, • farið á þínum hraða í gegnum námið, t.d. lokið stúdentsprófi á þremur árum, • lokið stúdentsprófi í framhaldi af námi á starfsnámsbraut. Í VMA leggjum við áherslu á: • Metnaðarfullt skólastarf, • öfluga umsjón með nýnemum, • góða þjónustu allra starfsmanna. Innritun í dagskóla er hafin og stendur til 12. júní Nýnemar geta sótt um eftirtaldar námsbrautir: Leitaðu nánari upplýsinga á netinu Netfang skólans er http://vma.is Síminn á skrifstofu skólans er 464 0300 Innritun í kvöldskóla, meistaraskóla og fjarnám auglýst síðar. Barmmerki við öll tækifæri Fyrir fundi , ráðstefnur og ættarmót Hægt er að velja á milli þess að hafa hangandi klemmu eða klemmu og nælu á baki bammerkis. Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið. Prentum á barmmerkin, ef okkur eru send nöfnin í Excel skjali . Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir. YFIR 100 manns sátu ráðstefnu sem bar yfirskriftina Löðun fjarlægðar- innar og haldin var í Verkmennta- skólanum á Akureyri, en á henni var fjallað um fjarkennslu. Var ráðstefn- an haldin í tilefni þess að Haukur Ágústsson kennslustjóri og frum- kvöðull fjarkennslu hér á landi lætur senn af störfum. Starfsfólk VMA færði honum að gjöf fyrsta mótald sem notað var í fjarkennslu við skól- ann og var búið að gylla það og koma fyrir á stalli með viðeigandi áletrun. Á ráðstefnunni voru flutt 6 erindi um fjarkennslu og fjarnám en meðal fyrirlesara var Morten Flate Paul- sen frá Noregi, einn fremsti sérfræð- ingur í fjarkennslumálum nú um stundir. Hann hefur stundað rann- sóknir á kennslufræði fjarkennslu og skrifað um þær bækur. Fjallað hann um reynslu sína af þessum málum sem og væntingar í náinni framtíð. Aðrir sem fluttu erindi voru Anna Ólafsdóttir, verkefnastjóri fjar- kennslu við Háskólann á Akureyri, Sólveig Jakobsdóttir, dósent við Kennaraháskóla Íslands, Guðlaug Erlendsdóttir, fjarnemandi og einn af fyrstu stúdentunum sem braut- skráðust frá VMA, Hrefna G. Torfa- dóttir, fjarkennari og Haukur Ágústsson, sem fjallað um fjar- kennslu frá upphafi póstsamgangna til nútímans. Fjarkennsla hófst við VMA árið 1994 sem lítið tilrauna- verkefni og hefur það vaxið ört, tæp- lega 700 manns stunduðu fjarnám á síðustu vorönn við skólann. Um 90 kennarar sjá um fjarkennsluna og er vinna þeirra metin til 25 ársverka. Heildarkostnaður nam um 80 millj- ónum króna á liðnu ári og þá má geta þess að varlega áætlað er notkun kennara og nemenda á símalínum vegna tölvusamskipta um 50 þúsund klukkustundir á ári. Ráðstefna um fjarkennslumál haldin í VMA Fjarkennsla, fjarnám og fræði til umfjöllunar Morgunblaðið/Kristján Páll Hlöðversson, Haukur Ágústsson og Borghildur Blöndal hlýða á fyr- irlestur á ráðstefnu um fjarkennslu sem haldin var í VMA í tilefni þess að Haukur Ágústsson, kennslustjóri VMA og frumkvöðull í fjarkennslu, er að láta af störfum. BÖRN úr öllum deildum, frá 3. til 6. bekk í Brekkuskóla, hafa sung- ið eigin lög og texta inn á geisla- disk, en hann heitir Sullum bull. Börnin unnu að þessu verkefni í tónmenntakennslunni síðari hluta vetrar en lögin og ljóðin sömdu þau með aðstoð Arnórs Vilbergs- sonar tónmenntakennara. Hér er um að ræða verkefni þar sem sköpunargleði og kraftur barnanna fær að njóta sín til fulls. Tildrögin að þessu verkefni var umræða um skapandi starf með börnum og með hvaða hætti væri auðveldast að virkja þá orku sem býr í börnum á þessum aldri. Einnig hvernig mætti samþætta ýmsar námsgreinar eins og t.d. tónlist og íslensku með textagerð- inni og tónlist og myndlist með því að efna til samkeppni um bestu myndina á umslagið með diskinum. Þá varð einnig samstarf við hóp foreldra varðandi útgáfuna, en feður nokkurra barna, sem öll eru í hópi flytjenda, mynda ásamt Arnóri hljómsveitina sem spilar undir. Allt þetta starf tókst með mikl- um ágætum og hefur þegar vakið athygli fyrir frumleika og sköpunargleði barnanna. Geisladiskurinn verður til sölu hjá riturum skólans í þessari viku og eins verður hann seldur við skólaslit Brekkuskóla á föstudag, 7. júní. Verð disksins er 1.000 kr. og er upplag takmarkað við 500 eintök. Börn úr Brekkuskóla gefa út geisladisk Syngja eigin lög og texta á Sullum bulli Berglind Hannesdóttir í 3. bekk í Brekkuskóla málaði forsíðu- myndina á Sullum bulli. Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Símanum: Að gefnu tilefni skal það áréttað að þeir umræddu og ágætu starfsmenn sem var sagt upp störfum hjá Síman- um á Akureyri í apríl sl. brutu ekki af sér í starfi. Uppsagn- irnar voru til komnar vegna hagræðingaraðgerðar hjá fyr- irtækinu, ákvörðunin var tekin eftir endurskoðun á starfsem- inni á Akureyri og verkefni munu að hluta til verða færð til verktaka á svæðinu og mun að því leytinu til styrkja at- vinnulífið á Akureyri. Um- ræddir starfsmenn munu ef þeir þess óska hafa forgang til starfa hjá fyrirtækinu á Ak- ureyri á þeim starfsvettvangi sem hverjum og einum hentar. F.h. Landssíma Íslands hf., Heiðrún Jónsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Símans. Uppsagnir hjá Símanum Engin brot í starfi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.