Morgunblaðið - 04.06.2002, Síða 36

Morgunblaðið - 04.06.2002, Síða 36
UMRÆÐAN 36 ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið birt- ir grein eftir Eið Guðnason sendiherra hinn 11. apríl sl. Þar hnýtir Eiður í nýjan Hvalavef Ríkisút- varpsins undir yfir- skriftinni: „Það á að segja börnum satt.“ Eitt af því sem Eiði finnst slæmt er að á Hvalavefnum segir hann að sé „farið rangt með staðreyndir“. Þar sé fullyrt að „aldrei sé vitað til að þeir (há- hyrningar) hafi ráð- ist á menn“ og vitnar því til stað- festingar í bókina ORCA The Whale Called Killer, eftir Erich Hoyt, á bls. 259 í Appendix 8. Þetta atvik er betur útskýrt á bls. 87. Þar segir frá því að í september 1972 hafi hinn 18 ára gamli Hans legið á brimbrettinu sínu rétt und- an ströndum Kaliforníu, klæddur blautbúningi, þegar hann fann eitt- hvað ýta við sér. Hann leit við sá svart og glansandi flykki. „Í því beit skepnan mig,“ sagði pilturinn „en þá kýldi ég hana í hausinn með hnefanum.“ Síðan komst pilturinn til strandar á brimbrettinu. Lýsing sjónarvotta á svartri skepnu, með hvítan kvið og risastóran bakugga og djúp tannaför í læri piltsins sýndu að hér var háhyrningur á ferð. Fyrst skepnan sleppti eftir að hafa verið barin í hausinn gat ekki verið um hákarl að ræða – sem sleppir aldrei bráð sinni en rífur stórt stykki úr holdi hennar. Há- hyrningar éta seli. Margir selir voru svæðinu á þessum tíma og spurning hvort háhyrningurinn hafi gert mistök og haldið að pilt- urinn í svörtum blautbúningnum væri selur en áttað sig og sleppt? Þetta er eina atvikið sem vitað er til að frjáls háhyrningur hafi ráðist á mann. Undir þetta taka bæði Mark Carwardine í bókinni: On The Trail of The Whale og sir Pet- er Scott í formála sínum að bók Erich Hoyt. Í bókinni ORCA The Whale Called Killer segir höfundurinn frá því að þegar hann hóf rannsóknir sínar á háhyrningum reyndi hann að verða sér úti um allar upplýs- ingar sem hægt var að komast yfir en þær reyndust af skornum skammti. Rannsóknir sem farið höfðu fram beindust aðallega að innihaldi maga dýrsins og upptaln- ingu á sögusögnum um grimmd þess. Eiður virðist hafa fest sig í sögusögnunum og lítur á þær sem staðfestar rannsóknarniðurstöður. Eiður segir orðrétt: „Háhyrning- ar eru grimmustu rándýr heims- hafanna og ekki að ástæðulausu að þeir eru á ensku kallaðir „Killer Whales“.“ Ástæðan fyrir því að há- hyrningurinn fékk nafnið Orca eða Killer Whale var ekki sú að há- hyrningar væru mannætur. Nafnið má rekja aftur til Forn-Grikkja sem héldu mikið upp á höfrunga sem þeir fullyrtu að björguðu mönnum úr sjávarháska. Þeir voru aftur á móti ekki hrifn- ir af þegar rándýrin háhyrningar réðust á höfrungana og gáfu þeim þess vegna nafnið Orca eða Killer Whale. Eiður leggur einnig áherslu á „að börnum sé ekki bara sögð og sýnd ein hlið málsins. Þau eigi rétt á að heyra og sjá aðrar hliðar og fá heildarmynd af því sem verið er að fjalla um.“ Þar saknar Eiður þess að á vefnum sé ekki fjallað um: Hvalveiðar við Ísland; sögu hval- veiða í heiminum; hve mikið fæðu- magn hvalir á hafsvæðum við Ís- land taka til sín; hvernig hvalir sem rak á land fyrr á öldum urðu til þess að bjarga fólki frá hung- urdauða; öran vöxt hvalastofnanna við Ísland. Þótt Hvalavefurinn fjallaði um allt þetta myndi engu að síður skorta ýmislegt á þannig að úr yrði „heildarmynd“ af öllu því sem við- kemur hvölum og hvernig menn hafa farið með þá. Inn í myndina vantar þá til dæmis lýsingu á því hvernig veiðar á hvölum fara fram en þær eru mjög ómannúðlegar. Einnig að skýra frá að megnið af þeim hvölum sem veiddir hafa ver- ið í heiminum hafa orðið að gælu- dýrafóðri, skóáburði og efni í ilm- vötn; að steypireiðinni hefur nánast verið útrýmt; að hvalveiðar voru ótrúlega lítið brot af þjóð- artekjum okkar Íslendinga jafnvel þegar þær voru í hámarki; að mikil óvissa er enn um fjölda hvala í höf- unum. Það á að segja börnum satt, seg- ir Eiður Guðnason. Það er ekki verið að segja börnum ósatt um hvali á nýjum Hvalavef Ríkisút- varpsins. Sannleikurinn er ekki bundinn við skoðanir Eiðs Guðna- sonar. Við ljúkum þessum skrifum með því að óska Ríkisútvarpinu innilega til hamingju með þennan frábæra Hvalavef sem inniheldur bæði mikla fræðslu og góða dægrastytt- ingu fyrir unga jafnt sem aldna. Sendiherrann og sannleikur Jórunn Sörensen Hvalir Við óskum Ríkisútvarp- inu, segja Edda Bjarnadóttir og Jórunn Sörensen, innilega til hamingju með þennan frábæra Hvalavef. Jórunn er kennari og Edda hóps- stjóri Skuldar, vinnuhóps til verndar villtum dýrum. Edda Bjarnadóttir Álftaneshreyfingin er komin til að vera. Þrátt fyrir ötula bar- áttu fjölmargra stuðn- ingsmanna tókst Álftaneshreyfingunni ekki að hrinda meiri- hluta D-listans í Bessastaðahreppi. Þetta er áhyggjuefni allra þeirra sem óttast að einstök og óspillt náttúra á Álftanesi muni á næstu árum láta undan þeim öflum sem vanmeta gildi hennar. Í upphafi kosningabaráttunnar sagði ég að Álftanes- hreyfingin hefði unnið sigur og vís- aði til þess að allir andstæðingar D-listans í Bessastaðahreppi stæðu nú saman í einni hreyfingu. Þrátt fyrir tap í kosningunum stendur þessi sigur eftir. Hann er ómet- anlegur og mun síðar færa okkur aðra og stærri sigra. Álftanes- hreyfingin er komin til að vera. Hún er öflug og sterk og mun veita meirihluta D- listans harða and- stöðu. Að baki Álftaneshreyfing- unni stendur tæpur helmingur íbú- anna með einbeittan vilja sem erfitt mun að sniðganga. Það er ómetanlegt fyrir andstæðinga Sjálfstæðisflokksins að eiga sam- einaða hreyfingu og tala einum rómi. Það er verkefni okkar sem nú höfum valist til forustu fyrir hina nýju hreyfingu að vinna málstað bætts mannlífs og umhverfis fylgi í samvinnu við þann fjölmenna hóp sem leggur traust sitt á Álftaneshreyf- inguna. Innan Álfta- neshreyfingarinnar er enginn ágreiningur um stefnumál og hún hefur á að skipa fjöl- mennum hópi hæfi- leikafólks sem áfram mun tala fyrir þessum stefnumiðum. Varð- veislu óspilltrar nátt- úru, umhverfisstefnu, bættu stjórnkerfi og öflugra innra starfi í skólum og félagslífi. Hún mun fylgjast vel með hvernig hinn nýi meirihluti stendur við loforð sín og reyna að koma í veg fyrir það sem er illa ígrundað eða beinlínis nei- kvætt. Einnig sjá til þess að D-list- inn geti ekki vikist undan loforð- unum án þess að þurfa að gera kjósendum sínum og öðrum hreppsbúum grein fyrir því að ef til vill stóð aldrei til að halda þau. Þessir aðilar höfðu sigur í kosning- unum og tókst með yfirboðum um áframhaldandi uppbyggingu skóla- mannvirkja, íþróttamannvirkja og smáíbúða fyrir unga og aldna – og rangfærslum um trausta fjármála- stöðu hreppsins að blekkja íbúa Bessastaðahrepps. Álftaneshreyf- ingin telur loforðalista D-listans innistæðulausan og varar við áframhaldandi skuldsetningu sveitarfélagsins. Ég vil þakka öllu því fólki sem kom að starfi Álfta- neshreyfingarinnar ötult starf. Málefnaleg barátta okkar og gagn- rýni knúði hinn nýja meirihluta til að gefa út ýmsar yfirlýsingar, t.d. um sjálfstæði Bessastaðahrepps, sem þeir verða látnir standa við. Síðar munu gefast ný tækifæri til að fylgja hugmyndum okkar um betra samfélag í Bessastaðahreppi eftir. Álftaneshreyfingarinnar og okkar sem styðjum hana bíður mikið starf. Það er engin leið til baka, aðeins fram til stærri sigra. Tæpur helmingur að baki Álftaneshreyfingunni Sigurður Magnússon Álftanes Álftaneshreyfingin er komin til að vera, segir Sigurður Magnússon. Hún er öflug og sterk og mun veita meirihluta D- listans harða andstöðu. Höfundur skipaði 1. sæti á lista Álftaneshreyfingarinnar í Bessa- staðahreppi. Í SKJÓLI kvótakerfis í sjávar- útvegi hefur safnast mikill auður á hendur fárra aðila. Þessum auði fylgir vald. Og valdinu fylgir ábyrgð. Á sjómannadaginn reis út- gerðarauðvaldið á Akureyri ekki undir þessari ábyrgð. Forstjórar stórfyrirtækja í sjáv- arútvegi hótuðu sam- tökum sjómanna fjár- svelti við hátíðar- höldin ef þau aftur- kölluðu ekki boð sitt til Árna Steinars Jó- hannssonar alþingis- manns, talsmanns Vinstri hreyfingarinn- ar – græns framboðs í sjávarútvegsmálum á þingi, um að ávarpa sjómenn á hátíðar- dagskrá í tilefni dags- ins. Sjómannadagsráð á Akureyri varð við þessari kröfu og bauð Valgerði Sverrisdótt- ur viðskiptaráðherra í ræðustól. Þar hvatti hún til þess að menn hættu að karpa um kvóta- kerfið einsog hún mun hafa komist að orði að sögn fjölmiðla. Á undanförnum dögum hefur þjóðin fylgst með forstjórum Sam- herja og ÚA lýsa því yfir að boð- skapur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sé þeim ekki þóknanlegur og stríði gegn hags- munum sjómanna. Sú staðhæfing stenst að sjálfsögðu ekki. Hitt er deginum ljósara að sú stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að nema kvóta- gerfið úr gildi í áföngum er stærstu kvótahöfunum ekki að skapi. Enda þótt þeir hljóti að við- urkenna að sú aðferð sem VG leggur til er í senn raunsæ og sanngjörn, þ.e.a.s. að fyrna kerfið á tuttugu árum, þar sem þriðj- ungur fyrndra aflaheimilda færi á landsmarkað, þriðjungur til byggð- arlaga og þriðjungur væri boðinn þeim handhöfum veiðiréttar sem fyrnt er frá til endurleigu. Þetta er að sjálfsögðu eitur í beinum stór- útgerðarinnar sem lítur á það sem beina ógnun við hagsmuni sína að hróflað verði við kvótakerfinu. Ekki síður eru þeir ósáttir við að rök okkar fyrir breytingum á kvótakerfinu nái eyrum almenn- ings. Í greinargerð sem VG hefur sent frá sér er sérstaklega vikið að fjórum brotalömum núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis: 1) Í mörgum tilvikum er ástand fiskistofna nú svipað eða jafnvel verra en fyrir daga kvótakerfisins. Auk þess hamlar kvótakerfið mjög allri nýliðun og kynslóðaskiptum í atvinnugreininni. 2) Rétturinn til viðskipta með kvóta, bæði möguleikinn til að leigja öðrum veiðiheimildir í stað þess að hafa þær til eigin nota og varanleg sala þeirra, hefur haft í för með sér að ákveðnir aðilar hafa átt þess kost að hagnast gríðar- lega. Slíkur gróði, ekki síst þegar hinir sömu hverfa út úr sjávar- útveginum með milljónatugi, hundruð milljóna eða milljarða, sem rekja má til andvirðis veiði- heimilda, samrýmist vægast sagt illa ákvæðum fiskveiðistjórnunar- laganna um sameign þjóðarinnar. 3) Framsal veiðiheimilda og sú staðreynd að byggðarlögunum er í núverandi kerfi ekki tryggður neinn réttur hefur sums staðar leitt til þess að kvóti hefur horfið á brott og miklir staðbundnir erf- iðleikar skapast í atvinnumálum. Hröð samþjöppun veiðiheimilda, sameining fyrirtækja og stækkun hefur víða haft í för með sér sárs- aukafullar breytingar af þessum toga. Eink- um eru það hinar minni sjávarbyggðir sem hafa byggt mikið á bátaútgerð og ekki njóta þess að hafa höf- uðstöðvar einhvers af stóru fyrirtækjunum í byggðarlaginu, sem eiga undir högg að sækja við núverandi fyrirkomulag. Fisk- vinnslufyrirtæki sem engan aðgang hafa að veiðiheimildum, fisk- verkafólk og sjómenn og aðrir íbúar sjávar- byggðanna eru þol- endur þessa ástands og þess öryggisleysis sem það hef- ur skapað. Framsal veiðiheimilda og leigubrask hefur leitt til stór- felldra árekstra í samskiptum sjó- manna og útvegsmanna, kostað verkföll og átök sem ítrekað hafa leitt til lagasetningar er svipt hef- ur sjómenn samningsrétti. 4) Mikil umræða hefur verið um brottkast afla og það eðli kvóta- kerfisins umfram aðrar fiskveiði- stjórnunaraðferðir að ýta undir að fiski sé hent. Það er meðal annars á þessum atriðum sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð byggir þá stefnu sína að taka beri upp annað skipu- lag við stjórnun fiskveiða. Við stefnumótun höfum við haft eft- irfarandi forsendur til hliðsjónar:  Auðlindir sjávar verði raun- veruleg sameign þjóðarinnar og einstökum byggðarlögum tryggður réttlátur skerfur veiði- heimilda og viðunandi öryggi.  Sjávarútvegurinn aðlagi sig markmiðum sjálfbærrar þróunar og vinni markvisst að því að bæta umgengni við náttúruna og lífríkið.  Sjávarútvegsstefnan treysti byggð og efli atvinnu í landinu öllu ásamt því að stuðla að auk- inni fullvinnslu framleiðslunnar og þar með aukinni verðmæta- sköpun og hámarksafrakstri auðlindanna innanlands.  Sjávarútvegsstefnan stuðli að réttlátri og jafnri skiptingu gæðanna ásamt jöfnum og góð- um lífskjörum þeirra sem við greinina starfa og veita henni þjónustu.  Sjávarútvegurinn, ekki síst fiskvinnslan, þróist og verði fær um að bjóða vel launuð og eftir- sóknarverð störf og standa sig í samkeppni við aðrar atvinnu- greinar hvað launakjör, starfs- aðstæður, vinnuumhverfi og aðra slíka þætti snertir. Til þess að ná þessum mark- miðum höfum við sett fram ítarleg- ar og vel útfærðar tillögur sem við höfum gert grein fyrir í ræðu og riti. Dæmi nú hver fyrir sig. Stríð- ir þessi málflutningur gegn hags- munum sjómanna og fiskvinnslu- fólks? Svo sannarlega ekki. Stefna VG tryggir hagsmuni sjómanna og fiskvinnslufólks. Það eru hins veg- ar braskararnir og þeir sem eru að sölsa undir sig sameign þjóðarinn- ar sem kveinka sér og leggjast nú svo lágt að notfæra sér völd sín – auðvaldið – til að reyna að þagga niður í gagnrýnisröddum. Það mun hins vegar aldrei verða. Dæmi hver fyrir sig Ögmundur Jónasson Höfundur er formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Sjómannadagur Stefna VG, segir Ögmundur Jónasson, tryggir hagsmuni sjómanna og fisk- vinnslufólks.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.