Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 39

Morgunblaðið - 04.06.2002, Page 39
síldarsöltun á Hjalteyri, Siglufirði og í Njarðvík. Á árunum frá 1961 til 1968, þegar hefðbundnum síldveið- um lauk, má segja að þeir feðgar hafi verið hvað stórtækastir hér á landi í síldarsöltun og mörg árin hæstir í söltun. Í lok tímabilsins, þegar síld- veiðar voru stundaðar langt norður í höfum, var skip tekið á leigu og það útbúið sem síldarsöltunarstöð. Hreiðar var þar leiðangursstjóri og voru 30 manns í áhöfn. Árið 1966 hófu þeir byggingu frystihúss á Seyðisfirði sem ætlað var að frysta síld til útflutnings, en þegar síldin hvarf varð að finna því annað verk- efni og var því breytt til frystingar á bolfiski. Valtýr lést 1970 og tók þá Hreiðar formlega við framkvæmda- stjórninni, en í reyndinni hafði hann mun fyrr tekið við stjórnun fyrir- tækisins vegna veikinda föður síns. Segja má að árin eftir síldina hafi verið fyrirtækinu erfið, en áfram- haldandi rekstur byggðist á upp- byggingu á frystihúsi Norðursíldar á Seyðisfirði auk útgerðar skipa til veiða á bolfiski og síðar rækju, síld og loðnu. Síldarsöltun hófst síðan aftur hjá fyrirtækinu 1975. Hreiðar rak Norðursíld á Seyðisfirði til árs- ins 1988 þegar Fiskvinnslan hf. keypti fyrirtækið. Frá þeim tíma annaðist Hreiðar útgerð Valtýs Þor- steinssonar ehf., en það félag var stofnað árið 1981 um útgerðarrekst- ur fjölskyldunnar, lengst af rekstur mb. Þórðar Jónassonar. Á árinu 1998 keypti SR-mjöl hf. 40% hlut í félaginu og afganginn á árinu 2001 og lauk þar með beinum útgerðar- rekstri hjá Hreiðari. Með aðild að Garðari Guðmundssyni hf. í Ólafs- firði hélt Hreiðar áfram þátttöku í útgerð, en hann sat m.a. í stjórn þess félags til dauðadags. Hreiðar var alla tíð mjög duglegur og ósérhlífinn, gerði kröfur til sinna starfsmanna á sama hátt en naut á sama tíma virðingar þeirra, enda var hann ákaflega sanngjarn og tillits- samur í hvívetna. Hreiðar ávann sér traust starfsmanna, viðskiptamanna og annarra samstarfsmanna með framgöngu sinni í tengslum við reksturinn, enda lagði hann ávallt áherslu á áreiðanleika, sanngirni og traust í viðskiptum. Ég hef alla mína tíð verið í miklu og góðu sambandi við Hreiðar og Elsu og hefur það verið mér mjög mikils virði, ekki síst á uppvaxtarár- unum eftir lát móður minnar, systur Hreiðars, og alla tíð eftir það. Ég fékk mjög fljótt tækifæri til að taka þátt í umstanginu í kringum rekst- urinn, fyrst á Hjalteyri 1963, en síð- ar á Raufarhöfn og Seyðisfirði, en ég vann við ýmis störf í landi hjá fyr- irtækinu flest sumur með skóla til 20 ára ára aldurs er ég flutti til Reykja- víkur og fór að huga að öðrum störf- um. Þessi tími er mér ákaflega minn- isstæður, en ég naut þess að eiga þau að, Hreiðar og Elsu, sem pössuðu upp á drenginn. Eftir að ég hóf störf í Reykjavík unnum við Hreiðar saman að ýmsum málum, m.a. í stjórn Norðursíldar hf. og Valtýs Þorsteinssonar ehf., sem nú er í eigu SR-mjöls hf., en með sölu félagsins á síðastliðnu ári lét Hreiðar af störfum sem framkvæmdastjóri þess, en tók að sér stjórnarstörf í tengdum félögum og hélt þannig sambandi við atvinnureksturinn, enda dró ekki úr áhuganum þó svo að árunum fjölgaði. Við Hreiðar áttum alla tíð fram- úrskarandi gott samstarf og bar þar engan skugga á. Það var mikil gæfa fyrir mig að kynnast Hreiðari og þeirri manngerð sem hann hafði að geyma, enda fór þar sérstaklega samstarfsgóður, glöggur og áreiðan- legur maður. Því er söknuðurinn mikill þegar áfallið kemur svo skyndilega, en minningin lifir. Við Hrönn færum Elsu, Valtý Þór, Valgerði Petru og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Heimir Haraldsson. Að kvöldi sólríks vordags hér sunnan heiða hringdi Valtýr og til- kynnti okkur þau dapurlegu tíðindi að faðir hans hefði orðið bráðkvadd- ur fyrr um daginn. Mig setti hljóðan. Ég átti mjög erfitt með að trúa því að traustur vinur og fyrrverandi út- gerðarmaður væri allur. Minning- arnar runnu í gegnum hugann. Hreiðar var einn þeirra manna sem hvað lengst höfðu starfað við útgerð og fiskvinnslu. Fyrst um sinn með föður sínum, Valtý Þorsteinssyni, en eftir að hann féll frá, árið 1970, sá Hreiðar alfarið um reksturinn. Um- svif þeirra feðga voru mikil að vöxt- um; sex skip og báta gerðu þeir út þegar mest var, ásamt síldarsöltun á tveimur og þremur stöðum. Frysti- hús byggðu þeir á Seyðisfirði og starfræktu um árabil. Kynni okkar Hreiðars hófust á vordögum 1960 er ég réðst sem skip- stjóri á Ólaf Magnússon, nýtt skip sem Norðmenn voru að ljúka við smíði á fyrir þá feðga og bar nafn móðurafa Hreiðars. Árin sem fóru í hönd, oft nefnd síldarárin, voru við- burðarík og hreint ævintýri á marg- an hátt í útgerðarsögunni. Er leið á sjöunda áratuginn fjarlægðist síldin landið, hélt sig norðar og norðar í hafinu og nánast útilokað að koma henni óskemmdri til söltunar í landi. Tóku þeir feðgar sig þá til og leigðu 800 tonna skip frá Færeyjum, út- bjuggu sem söltunarstöð sem elti flotann norður í höf og söltuðu þar ferska síld. Hreiðar var sjálfur um borð og minntist oft á hve þetta hefði verið skemmtilegt verkefni. Þetta sýnir hvernig þeir brugðust ætíð við breyttum aðstæðum. Áfram liðu árin og Hreiðar seldi báta og minnkaði umsvifin smátt og smátt. Hætti frystihúsarekstri árið 1988. Síðustu 18 árin gerði hann eingöngu út Þórð Jónasson. Við því skipi tók ég árið 1968 og starfaði þar um borð þar til ég lauk sjómannsferli mínum um mitt árið 2000. Þar með endaði langt og farsælt samstarf okkar Hreiðars. Hann hætti allri útgerð á síðasta ári, en fylgdist áfram með af miklum áhuga. Áfram var samband okkar mikið og vart leið sá dagur að við töl- uðumst ekki við. Hreiðar var höfð- ingi heim að sækja og áttum við Guðný margar ánægjulegar stundir með þeim hjónum í gegnum árin, hvort sem það var á Bjarmastígnum, sumarbústaðnum eða á erlendri grund. Kæra Elsa, Valtýr, Pebba og fjöl- skyldur, megi algóður Guð styrkja ykkur í sorginni. Við Guðný sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Mig skortir orð yfir þakklæti til þessa heiðursmanns sem Hreiðar var, fyrir umburðarlyndi hans gagn- vart mér alla tíð. Einnig þökkum við hjónin þessum öðlingi fyrir tryggð og vináttu í gegnum tíðina. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hörður Björnsson. Hreiðar Valtýsson er genginn. Kallið kom fyrirvaralaust og kom á óvart, þótt Hreiðar væri kominn vel á áttræðisaldur. Hann var ern og heilsuhraustur, annað varð ekki séð. En enginn veit sinn tíma. Tvennt er víst í okkar lífi; upphaf og endir. Hvort tveggja er ákveðið á æðri stöðum, án þess að við ráðum þar nokkru um, enda eigum við nægilega erfitt með að prjóna þarna í milli, þannig að ekki falli niður lykkja. Stundum gerist það. Þá reynir mað- ur að bjarga því sem bjargað verður. Á slíkum stundum getur verið gott að leita til vina. Þar var Hreiðar Val- týsson mér haukur í horni. Hann var traustur vinur, sem allt- af var gott að leita til. Hann fór ekki mikinn, hann barði sér ekki á brjóst eða hreykti sér af verkum sínum. Hann hafði góða nærveru; rólegur og íhugull, flanaði ekki að verkum eða góðum ráðum. Þess vegna var á það hlustað, sem hann hafði til mál- anna að leggja. Sígandi lukka er best, var hans „mottó“. Þegar ég man fyrst eftir Hreiðari vann hann við útgerð föður síns, Val- týs Þorsteinssonar frá Rauðuvík. Það var því líkt á komið með okkur, þótt Hreiðar væri nokkru eldri en ég. Sú staðreynd varð til þess, að ég leitaði oft til hans um góð ráð til úr- lausnar verkefna, sem ég vildi ekki láta karl föður minn hafa pata af að ég væri ekki maður til að leysa einn á báti. Þar reyndist Hreiðar mér vel. Slíkt gerði hann án fyrirgangs, rétt eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég fór alltaf betri maður af hans fundi. Þeir feðgar, Valtýr og Hreiðar, ráku í áratugi umsvifamikla útgerð; voru um miðja síðustu öld með um- svifameistu útvegsmönnum á Norð- urlandi. Þeir gerðu út Þórð Jónas- son, Ólaf Magnússon að ógleymdri Akraborginni, auk þess að reka sölt- unarstöðvar og landvinnslu á Akur- eyri, Hjalteyri, Raufarhöfn og Seyð- isfirði. Eftir að síldarævintrýrinu lauk var kjölfesta starfseminnar lengi á Seyðisfirði og var Hreiðar þar oft langdvölum. Þá gat ég oft rétt hon- um hjálparhönd, þegar eitthvað þurfti að útrétta fyrir skipin hér á Akureyri. Það var sjálfsagt frá minni hendi og sjálfsagðara eftir því sem Hreiðar „kvabbaði“ oftar, því hann hafði einstakt lag á því að láta mann finna, að verkið hafi verið sér kært og mikilvægt, hvursu léttvægt sem það var. Það var sagt um Valtý, föður Hreiðars, að hann hefði fagnað sín- um skipum, hvort heldur þau komu að landi með slatta eða fullfermi. Þennan eiginleika erfði Hreiðar frá föður sínum, enda hélst honum vel á mönnum; hann var með sama mann- skapinn vertíð eftir vertíð, á hverju sem gekk. Þetta sannast best á Herði Bjarnasyni, sem var skipstjóri hjá Hreiðari í áratugi, síðast á Þórði Jónassyni, mikil aflakló. Hann kom í land um aldamótin, kominn á átt- ræðisaldur. Slíkir „kallar“ eru ekki á hverju strái. Hreiðar tók við útgerðinni af föður sínum og rak hana í félagi við syst- urson sinn til skamms tíma, en systir Hreiðars féll frá á besta aldri. Síðustu árin snerist starfsemin eingöngu um útgerð á Þórði Jónas- syni, en fljótlega eftir að Hörður var farinn í land ákvað Hreiðar að axla sín skinn og seldi útgerðina. Hann ætlaði sér að njóta lífsins í ranni fjöl- skyldunnar á meðan guð leyfði. En leyfið varð styttra en vonir stóðu til. Það hefur einhvers staðar verið þörf á ráðagóðum útgerðarmanni. Þeir verða ekki sviknir af Hreiðari, dreng góðum, sem kunni lag á að koma mönnum glöðum til verka – og leyfði þeim líka að njóta verka sinna, þótt hluturinn væri oft ekki til skiptanna. Það skipti ekki öllu máli fyrir Hreið- ar; aðalatriðið var að heimta mann- skapinn heilan í höfn. Það var mann- bætandi að fá að kynnast slíkum manni. Guð gefi honum góðan byr, hvert sem ferðinni er heitið. Missir Elsu og barnanna er mikill. Ég sendi þeim innilegar samúðar- kveðjur frá mér og mínum. Sverrir Leósson. Okkur var brugðið 25. maí síðast- liðinn þegar við fengum þær fréttir að Hreiðar Valtýsson hefði látist fyrr um daginn. Við áttum ekki von á því að þurfa að kveðja hann svona fljótt því hann var fullur af krafti og lífs- gleði. Við kynntumst Hreiðari við út- gerð hans á Þórði Jónassyni EA og störfuðum fyrir hann í mörg ár bæði til sjós og lands. Það var gott að vinna hjá Hreiðari, hann hafði þann kost umfram marga aðra að láta sér sérlega annt um hag starfsmanna sinna. Hann treysti sínu fólki og lét óspart í ljós ánægju sína þegar vel var að verki unnið fyrir hann. Með Hreiðari áttum við fjölmarg- ar góðar stundir þar sem rætt var um ýmsa þætti sem tengdust útgerð- inni sem var hans hjartans mál. Með Hreiðari er genginn einstak- ur maður, það að fá að kynnast hon- um og starfa með honum var okkur mikill heiður og mun verða okkur minnisstætt um alla ævi. Elsku Hreiðar, hafðu þökk fyrir allt og allt. Við sendum Elsu og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Guð blessi og varðveiti minningu Hreiðars Valtýssonar. Pétur Halldórsson, Óli Þór Pétursson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 39                                       ! ! "                !  !#$!%%!   !"##$ % &'(#")) !"* ##$   #"))  " ##$ + #")) ' ##$ ,(  #")) - .#/   $ 0  0  01*                2' % 3 45 -   !!67  &8 (  &     '%!       (   )      *!  !#'!'%!  5  "##$ " - .#")) 9)  .#)#")) 9) - .##$ 8 .#)##$  ." -: #")) 5  -$) # ) ; "##$ -$) # '(5 ;.#")) 0  01$ 0  0  01* +               <=> ?@>' >  ;  ;   ,    -.     '#! ! /        -.     0!  !#1!%%! "      ()     2       #%!  !#$!'%! ' % ##$    #)#"))  &% #"))  ;- .##$ #)( % #")) <%*%$ ##$ .% #"))   #$ ( % #"))  !" #$ " % #")) 2  ##$  % #")) !"%$""##$  0$ % #")) %$0  % ##$ 01$ ;81#&"* +       ,' *A2'  &   3 4    ! !  ( #"))$0 )#*            .     52'   $) 0 )B 21"# &, 4     56     (  '%!  ! 7   6        !     !#$!%%! 8       4 5/ 44  & 9(, ! %$ ;<  ;##$ 081 %$ ;#") 0 ) %$ ;##$ 0 )) ;##$ 5 "(#281#")) 2810 )##$  0  C#"))   0 )##$ " 0 )#")) 081 %$ ;#"))   " 8##$  ;*2 "##$ .<#"))*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.