Morgunblaðið - 04.06.2002, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2002 53
DAGBÓK
Árnað heilla
LJÓÐABROT
SLÉTTUBÖND
Drengir slyngir aka ár,
auðnir, dyngjur, hjalla.
Strengir syngja, bylgju-blár
blikar hringur fjalla.
Bungur greiðar, urðir og
eyði-leiðir breiðar,
tungur, heiðar, velli, vog
vökur reiðin skeiðar.
Gleymi drunga, hylur haf
himinn bungu fagur.
Streymi tungu ykkar af
orða slunginn bragur.
Hallgrímur Jónasson
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. maí sl. í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu af
Verði Leví Traustasyni þau
Tinna Arnórsdóttir og Sig-
varður Halldóruson. Heim-
ili þeirra er á Silfurgötu 11,
Ísafirði.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, miðviku-
daginn 5. júní, verður sex-
tugur Sigurður Björnsson,
læknir. Sigurður og Rakel
Valdimarsdóttir taka á móti
gestum á afmælisdaginn
milli kl. 17–20 á Kjarvals-
stöðum.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5
7. Rb3 Be6 8. Dd2 Rbd7 9. f4
b5 10. f5 Bc4 11. O-O-O Be7
12. Kb1 O-O 13. h3 a5 14. g4
Bxf1 15. Hhxf1 b4 16. Rd5
Rxd5 17. Dxd5 Dc7 18. g5 a4
19. Rd2 Hfc8 20. Dd3 Bf8 21.
Hc1 Hab8 22. Hfd1 Dc6 23.
h4 Hb5 24. Rf1 Db7 25. Ka1
Ha5 26. c4 bxc3 27. Hxc3
Hxc3 28. Dxc3 Hb5 29. Dc2
a3 30. bxa3 d5 31. a4 Ha5 32.
exd5 Hxd5 33. Rd2 Da6 34.
Rb3 Hxd1+ 35. Dxd1 Dxa4
36. Dd5 g6 37.
fxg6 hxg6
Staðan kom
upp í elítuflokki á
minningarmótinu
um Capablanca
sem lauk fyrir
skömmu. Lazaro
Bruzon (2569)
hafði hvítt gegn
Reynaldo Vera
(2537). 38. h5!
gxh5 39. g6 Bg7
40. Dxf7+ Kh8
41. De8+ Bf8 42.
Bh6 og svartur
gafst upp. Skák
þessi var úrslita-
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
skák mótsins og með sigrin-
um tryggði Bruzon sér
óskipt efsta sæti mótsins.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Lazaro Bruzon
(2569) 6 vinninga af 9 mögu-
legum. 2. Lenier Dominguez
(2601) 5½ v. 3.-4. Jesus
Nogueiras (2534) og Rey-
naldo Vera (2537) 5 v. 5.
Walther Arencibia (2542)
4½ v. 6.-8. Hannes Hlífar
Stefánsson (2598), Alonso
Zapata (2541) og Igor-Alex-
andre Nataf (2567) 4 v. 9.-10.
Ivan Morovic (2556) og Art-
ur Kogan (2540) 3½ v. 2. um-
ferð Stigamóts Taflfélags-
ins Hellis fer fram í kvöld, 4.
júní, kl. 19.30 í félagsheimili
þess að Álfabakka 14a.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
ÍSLENSKU landsliðin æfðu
af kappi alla helgina fyrir
komandi átök á Ítalíu, þar
sem Evrópumótið hefst inn-
an tveggja vikna. Eitt af fjöl-
mörgum verkefnum helgar-
innar var að spila fjóra spaða
á þessar hendur:
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ 108
♥ G852
♦ K32
♣ÁD52
Suður
♠ ÁKG974
♥ K6
♦ ÁG106
♣3
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 spaði
Pass 1 grand* Pass 2 tíglar
Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Útspil í þremur litum
hjálpa sagnhafa, en vestur
er í banastuði og kemur út
með laufgosann. Hvernig
myndi lesandinn spila?
Steinar Jónsson var í sæti
sagnhafa gegn Jóni Baldurs-
syni í vestur og Þorláki
Jónssyni í austur. Steinar
tók á laufás og svínaði spaða-
tíu. Svíningin misheppnaðist
og Jón spilaði spaða um hæl.
Steinar átti slaginn á áttu
blinds og notaði innkomuna
til að svína tígulgosa, en var
aftur óheppinn:
Norður
♠ 108
♥ G852
♦ K32
♣ÁD52
Vestur Austur
♠ D6 ♠ 532
♥ Á109 ♥ D743
♦ D94 ♦ 875
♣KG1096 ♣874
Suður
♠ ÁKG974
♥ K6
♦ ÁG106
♣3
Jón fékk á drottninguna
og spilaði tígli hlutlaust til
baka. Steinar tók síðasta
tromp varnarinnar, fór svo
inn í borð á tígulkóng og
reyndi síðasta möguleikann
– spilaði hjarta á kónginn.
En Jón átti líka ásinn þar og
Steinar fór einn niður.
Leið Steinars er sennilega
sú besta, þótt ekki bæri hún
árangur. Hann stendur við
samninginn ef eitt lykilspil
af þremur liggur rétt, og
ræður auðveldlega við
drottningu fjórðu í austur
bæði í trompi og tígli. En
annar möguleiki væri þó að
toppa spaðann með þeirri
áætlun að spila vörninni inn
á drottninguna þriðju og fá
hjálp í staðinn í öðrum lit.
Mörg afbrigði gætu komið
upp eftir þá byrjun, sem oft
leiða til þess að sagnhafi
verði að finna tíguldrottn-
inguna í endastöðunni.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fljót(ur) að hugsa og
hefur afburða tungu-
málahæfileika. Þú getur
heillað aðra með orðum.
Einhverra hluta vegna
vekur þú iðulega athygli.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Spenna og ringulreið heima
fyrir knýr þig til að ræða op-
inskátt við ættingja og vini.
Mundu að sumir kunna ekki
að meta hispursleysi þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú nýtur þess að eyða pen-
ingum núna. Sem betur fer
eru allar viðskiptagjörðir af
hinu góða í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú býrð yfir mikilli orku og
metnaði í dag. Þig langar að
tala við aðra og láta þá vita
um skoðun þína á einhverju,
kannski framtíðarkaupum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vegna afstöðu stjarnanna
ættir þú að vera ákaflega
orkumikil(l) í dag. Þú ættir að
skreppa í líkamsræktina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leyfðu félagsþörfinni að fá
útrás núna. Þetta er ekki tími
sem er best varið til einveru,
þvert á móti, þú hefur þörf
fyrir félagsskap annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er sama hvað þú tekur
þér fyrir hendur nú, háttsettu
fólki finnst mikið til þín koma.
Nýttu tækifærið og komdu
þínum málum að.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Afstaða stjarnanna færir þér
heppni og ákjósanlegar
kringumstæður. Sigrar eru á
næsta leiti svo þú skalt ekki
gefa þig í afstöðu þinni til ým-
issa málefna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er kominn tími til að þú
setjist niður með tiltekinni
manneskju og þið ræðið hver
er ábyrgur fyrir hverju. Þú
ert með á hreinu hvert hlut-
verk þitt á að vera og þú ert
ófeimin(n) við að segja frá því.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ekki ólíklegt að vanda-
mál komi upp í nánum sam-
böndum þínum við aðra.
Reyndu að hemja skap þitt og
forðast rifrildi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð hugmyndir um
hvernig þú getur bætt stöðu
þína í vinnunni. Þó svo að þú
trúir því ekki er einhver tilbú-
in(n) að hlusta á það sem þú
hefur fram að færa – svo út
með það!
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sjálfstraust þitt er mikið
þessa dagana þar sem þér
gengur vel í vinnunni og enn
betur í einkalífinu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú skalt gera plön um að
bjóða vinum eða fjölskyldu í
heimsókn síðar í vikunni.
Reyndu að skemmta þér með
fjölskyldunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Kynning og ráðgjöf verður á eftirtöldum stöðum:
miðvikudag: fimmtudag: föstudag:
Snyrtiv.deild Snyrtiv.deild Libia
Hagkaup Spöng Hagkaup Skeifu Göngugötu Mjódd
Við kynnum GOSH snyrtivörur
og gefum glæsilega svarta hliðartösku
þegar keypt er fyrir kr. 2.500,-
VESTURBÆJAR
YOGASTÖÐ
YOGA
þriðjudaga og fimmtudaga
þriðjudaga og fimmtudaga
þriðjudaga
YOGATÍMAR:
Karlar og konur
verið velkomin í yoga í júní!
10.30-11.30
17.25-18.25
18.35-20.05
Seljavegi 2, 101 Reykjavík
sími: 511-2777 anna@yogawest.is
Með morgunkaffinu
Batteríin í vasareikninum mínum kláruðust, svo ég
neyddist til að reikna í huganum í prófinu.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Alheimstvímenning-
urinn um næstu helgi
Hinn geysivinsæli alheimství-
menningur Heimssambandsins
(WBF) verður haldinn föstudags-
kvöldið 7. júní kl. 19:00 og laugar-
daginn 8. júni kl. 14:00. Um er að
ræða tvær sjálfstæðar keppnir,
þannig að þátttakendur geta valið að
spila annan daginn eða báða. Spilað
verður í húsnæði BSÍ, Síðumúla 37.
Útreikningurinn fer fram á Netinu
og verður fróðlegt að sjá hvar efstu
Íslendingarnir lenda að þessu sinni.
Skráning fer fram á staðnum eða í
síma 860-1003 (Matthías) og er hægt
að sjá meira um þetta mót á eftirfar-
andi netslóð: http://www.world-
bridge.org/.
Sumarbrids
Sl. fimmtudagskvöld var spilaður
eins kvölds Howell-tvímenningur
undir stjórn Sigurbjörns Haralds-
sonar, og urðu þessi pör efst:
Guðrún Jóhannesd. - Kristj. Steingr. 197
Erla Sigurjónsd. - Sigfús Þórðars. 186
Soffía Daníelsd. - Óli Björn Gunnarss. 176
Þorsteinn Joens. - Þorvaldur Pálmas. 172
Föstudagskvöldinu 31. maí stýrði
Hrafnhildur Ýr Matthíasdóttir.
Mæting var góð, 20 pör, og var
spilaður Mitchell-tvímenningur,
meðalskor 216. Efstu pör:
NS
Guðlaugur Sveinss. - Magnús Sverriss. 268
Alfreð Kristjánss. - Ragnar Örn Jónss. 233
Guðlaugur Bessas. - Hafþór Kristjánss. 228
Ómar Olgeirss. - Stefán Jónss. 227
AV
Vilhjálmur Sig. jr. - Hermann Láruss. 253
Gísli Steingrímss. - Sig. Steingrímss. 250
Árni Hanness. - Bragi Bjarnas. 227
Sig. Björgvinss. - Magnús Magnúss. 224
Að loknum tvímenningi var spiluð
Monrad-sveitakeppni. Metþátttaka
varð, átta sveitir skráðu sig til leiks
og varð skipan efstu sveita þessi:
Lokastaðan:
1. Villi jr. (Hermann Lárusson, Ómar Ol-
geirsson, Stefán Jónsson) 55
2. Baldur Bjartmarsson (Arnar Arngríms-
son, Friðrik Jónsson, Eyþór Hauksson) 54
3. Hermann Friðriksson (Ingólfur Þór
Hlynsson, Hafþór Kristjánsson, Guðlaugur
Bessason) 48
4. Árni Hannesson (Oddur Hannesson,
Bragi Bjarnason, Magnús Magnússon) 44
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Eldri borgarar í Hafnarfirði spila
brids, tvímenning, í Hraunseli,
Flatahrauni 3, tvisvar í viku á þriðju-
dögum og föstudögum. Mæting kl.
13.30.
Spilað var 28. maí. Þá urðu úrslit
þessi:
Þórarinn Árnas. - Sigtryggur Ellertss. 114
Kristján Jónss. - Sverrir Gunnarss. 96
Árni Bjarnas. - Þorvarður Guðmundss. 93
Ásgeir Sölvas. - Einar Sveinss. 84
31. maí
Guðm. Guðmundss. - Stefán Pálss. 142
Jón Sævaldss. - Hermann Valsteinss. 132
Sævar Magnús. - Jón Pálmas. 123
Sveinn Jenss. - Jóna Kristinsd. 120
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.