Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í NÝJU riti, sem ætlað er að
kynna Norðurlönd sem valkost
fyrir Evrópumeistaramót karla í
knattspyrnu árið 2008, er farið
landavillt á Gullfossi í Hvítá og
hann sagður vera í Færeyjum.
Ritið er gefið út af nefnd sem
vinnur að því markmiði að Norð-
urlöndin haldi mótið árið 2008 og
í því er að finna ýmiss konar
kynningu, meðal annars á þeim
borgum sem væntanlega verður
keppt í á mótinu, auk þess sem
Ísland og Færeyjar eru kynnt
stuttlega. Tvær myndir fylgja
kynningarsíðu um Ísland og er
önnur af Geysi en hin sýnir rætur
Eyjafjallajökuls. Myndin af Gull-
fossi, sem sagður er vera í Fær-
eyjum, er sú eina sem fylgir
kynningu á Færeyjum.
Misskilningurinn
leiðréttur
Eggert Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
hefur verið varaformaður nefnd-
arinnar sem vinnur að því að
Norðurlönd haldi Evrópumótið
2008, en nefndin er á vegum
knattspyrnusambanda á Norð-
urlöndum.
Hann segir að ruglingur á borð
við þennan geti átt sér stað þegar
hlutirnir eru unnir hratt, en fyrir
löngu sé búið að benda á þetta og
hann eigi von á að búið sé að
leiðrétta misskilninginn í nýrri
útgáfu ritsins. Það sé unnið í
Finnlandi en efnisöflun í það sé
samstarfsverkefni meðal Norður-
landanna.
Eggert segir að þetta verkefni
skili miklu fyrir land og þjóð
varðandi landkynningu og það sé
ein ástæða fyrir því að Ísland
taki þátt í verkefninu.
Gullfoss
sagður
vera í
Færeyjum
Mynd af Gullfossi í Hvítá fylgir
kynningarsíðu um Færeyjar í
ritinu sem er ætlað að stuðla að
vali Norðurlandanna til að halda
Evrópumót í knattspyrnu 2008.
Kynningarrit vegna
Evrópumóts í knatt-
spyrnu árið 2008
TALIÐ er að mannleg mistök hafi
valdið strandi hvalaskoðunarbátsins
Eldingar II við Engeyjarboða seint í
fyrrakvöld. Björgun 22 breskra far-
þega gekk vel og sakaði engan en
báturinn er talsvert skemmdur.
Ekki er búist við að hann komist aft-
ur á flot fyrr en í næstu viku. Vignir
Sigursveinsson, rekstrarstjóri
hvalaskoðunarinnar Eldingar, segir
ljótar skemmdir vera á kili bátsins
auk þess sem skrúfa og olíutankur
séu skemmd.
Vignir segir líklegast að mannleg-
um mistökum sé um að kenna með
því að skipstjórinn fór út af áætlaðri
siglingaleið sinni til hafnar í Reykja-
vík. Hann segir bátinn ekki hafa átt
að vera á þessum slóðum. „Skipstjór-
inn ætlaði heldur ekki að vera þarna,
en hann fór út af leið og þetta var
smákrókur sem endaði illa,“ sagði
Vignir.
Hann sagði þetta óskemmtilega
reynslu fyrir ferðamennina í lok ann-
ars mjög ánægjulegrar ferðar þar
sem þeir sáu marga hvali á flóanum
s.s. hnúfubak, hrefnur og höfrunga.
„Ein kona eða tvær urðu nokkuð
skelkaðar við strandið en að öðru
leyti hrósuðu farþegar viðbrögðum
áhafnarinnar eftir að komið var með
þá í land og málin rædd í kaffistof-
unni. Það kom ekkert högg á skipið
við strandið, það skreið bara upp á
malarkambinn á um 14 mílna ferð,“
sagði Vignir.
Leyfi og skírteini frá
Siglingastofnun í lagi
Siglingastofnun staðfesti við
Morgunblaðið að haffærisskírteini
bátsins væri í lagi, en það gildir út
september. Farþegaleyfi er enn
fremur í lagi og allar skoðanir báts-
ins, þar með talin skoðun á örygg-
isbúnaði, bolskoðun, vélskoðun og
öxulskoðun. Rannsóknanefnd sjó-
slysa hefur tekið strandið til rann-
sóknar.
Björgunarsveitin Ársæll í Reykja-
vík var kölluð út vegna strandsins og
var björgunarskipið Ásgrímur S.
Björnsson og björgunarbáturinn Ás-
geir M. ásamt tveim slöngubátum
sendir tafarlaust á strandstað. Fljót-
lega kom í ljós að ekki var mikil
hætta á ferðum og ekki sjáanlegt að
leki hafi komið að bátnum. Farþegar
voru strax fluttir frá borði og því
næst selfluttir um borð í Ásgrím S.
Björnsson. Komið var með farþeg-
ana inn til hafnar í Reykjavík um
klukkan 1 eftir miðnætti.
Um tveimur klukkustundum síðar
tókst björgunarbátnum Ásgeiri M.
að draga Eldingu II af strandstað
eftir að byrjað var að flæða að. Þegar
björgunarbáturinn Ásgeir M. hafði
losað Eldingu II tók Elding I við
dráttartauginni og dró nöfnu sína til
hafnar í Reykjavík.
Rekstrarstjóri hvalaskoðunarinnar Eldingar um strand hvalaskoðunarbáts
Mannleg mistök talin
líklegasta skýringin
Elding II var hífð á land í gær og
komu þá í ljós skemmdir á kili
bátsins og skrúfu.
Morgunblaðið/Þorkell
Farþegar bátsins komu í land skömmu eftir miðnætti eftir að björg-
unarsveitamenn björguðu þeim af strandstað.
starfsemi sé lögleg sé henni stjórn-
að af yfirvöldum og þau geti haft
afskipti af henni. Hann óttast
fremur hvað geti gerst ef hún verði
bönnuð og færist yfir í undirheim-
ana. „Ég tel að það sé betra að
hafa þetta fyrir opnum tjöldum þar
sem yfirvöld geta haft stjórn á
þessu. Þetta er dans, ekki vændi,“
ítrekar hann. Hann bendir jafn-
framt á að einkadans hafi verið
bannaður í Kaupmannahöfn og nú
sé þar ekki þverfótað á kvöldin fyr-
ir vændiskonum á hverju götu-
horni.
Að sögn Gunnars er bæjarlög-
maður að kanna málið. Hann segir
að það liggi fyrir að klúbbar í
Reykjavík, Óðal og fleiri, hafi gefið
það út að þeir ætli sér í skaðabóta-
mál við borgina og telur hann því
brýnt að skoða málið frá öllum
hliðum. Hann bendir að auki á sið-
ferðilegar spurningar sem svara
þurfi, líkt og fyrir hvern sé verið að
banna þetta. „Er verið að banna
þetta til að okkur líði betur heima í
stofu eða hvað?“
Hann segir að næsti fundur
bæjarráðs sé eftir hálfan mánuð og
þá eigi umsögn bæjarlögmanns
væntanlega að liggja fyrir.
GUNNAR I. Birgisson, formaður
bæjarráðs Kópavogs og oddviti
sjálfstæðismanna, telur að með því
að banna einkadans á nektarstöð-
um sé verið að sópa vandamálunum
undir teppið. Hann segist lengi
hafa verið þeirrar skoðunar að
einkadans eigi að vera leyfilegur í
stað þess að banna þessa starfsemi
og þvinga í undirheimana, sem
stuðli að vændi og eiturlyfjaneyslu.
Sigrún Jónsdóttir, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar, lagði fram á fundi
bæjarráðs á fimmtudag tillögu um
að bæjarlögmanni yrði falið að
undirbúa tillögu að breytingu á
lögreglusamþykkt Kópavogs um
bann við einkadansi á nektarstöð-
um.
„Tillögunni var frestað og við
bíðum eftir umsögn bæjarlög-
manns. Ég tel að þessi starfsemi
geri engum mein, ef allir gera
þetta af frjálsum vilja. Ég veit ekki
hvort fólk vilji banna einkadans
svo það geti haft betri samvisku.
Ég er ekki fylgjandi því að banna
þetta,“ leggur Gunnar áherslu á.
Betra að yfirvöld hafi stjórn
á þessari starfsemi
Hann bendir á að þar sem þessi
Gunnar I. Birgisson um tillögu um
bann við einkadansi á nektarstöðum
Vandamálun-
um sópað
undir teppið
MAGNÚS Þór Gylfason viðskipta-
fræðinemi var kjörinn nýr formaður
Heimdallar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna, á aðalfundi félagsins sem
haldinn var í Valhöll í gær. Auk
Magnúsar Þórs bauð Þórlindur
Kjartansson sig fram til formanns
Heimdallar.
Fundurinn var mjög fjölmennur
og mættu alls 752 manns á fundinn.
722 atkvæði voru greidd í formann-
skosningunni og hlaut Magnús 411
atkvæði og Þórlindur 302, en 8 seðlar
voru auðir og 1 ógildur.
Nýja stjórn Heimdallar skipa auk
Magnúsar Þórs þau Ásgerður Ragn-
arsdóttir laganemi, Guðmundur
Björnsson verkfræðingur, Þorbjörn
Þórðarson Verslunarskólanemi, Ing-
ólfur Snorri Kristjánsson hagfræði-
nemi, Jón Hákon Halldórsson sál-
fræðinemi, Helga Lára Hauksdóttir
Verslunarskólanemi, Ragnar Jónas-
son lögfræðingur, Helga Árnadóttir
tölvunarfræðinemi, Þorvaldur Davíð
Kristjánsson Verslunarskólanemi,
Atli Rafn Björnsson viðskiptafræði-
nemi og Bjarney Sonja Ólafsdóttir
tölvunarfræðinemi.
Fráfarandi formaður félagsins,
Björgvin Guðmundsson, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, en Björgvin
hefur verið formaður Heimdallar
undanfarin tvö ár.
Morgunblaðið/Sverrir
Aðalfundur Heimdallar sem haldinn var í gær mun hafa verið einn sá
fjölmennasti í félaginu að því er fundarmenn sögðu í gærkvöldi.
Magnús Þór Gylfason
sigraði í kosningunni
Nýr formaður Heimdallar kjörinn
HARÐUR árekstur varð við
Síkárbrú í Húnaþingi í gær-
kvöldi milli jeppa og vörubíls og
er jeppinn talinn ónýtur eftir
áreksturinn. Engin slys urðu á
fólki.
Árekstur
við
Síkárbrú