Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
"# $% !
Íslands eina von
Eyjólfur Kristjáns
Vesturgötu 2 sími 551 8900
2 DAGA „COUNTRY &
WESTERN FESTIVAL“
********************
Laugard. 10. ágúst kl. 19.30 - 03
Kántrýstjarnan
GÍSLI JÓHANNSSON
& BIG CITY
LÍNUDANS
LEYNIGESTIR
DANSLEIKUR
Miðaverð kr. 2.000
Sætaferðir frá BSÍ kl. 19.00
Verð báðar leiðir kr. 1.500
Nánari upplýsingar í símum
421 2526 og 895 1103
Óvæntur glaðningur fyrir hatthöfða
og hestamenn bæði kvöldin!
***************************
Sunnudagskv. 11. ágúst 22 - 01
KVEÐJUTÓNLIEKAR!
GÍSLI JÓHANNSSON
& BIG CITY
í síðasta sinn á Íslandi
Miðaverð kr. 1.000
Sætaferðir frá BSÍ kl. 21.00
Verð báðar leiðir kr. 1.500
Stapinn býður gesti velkomna
eftir gagngerar breytingar!
&
' $
(# #-
83 %
$ 83 #
9:
NÝ HLJÓMPLATA bandaríska
tónlistarmannsins Bruce
Springsteens, The Rising, fór
beint í efsta sætið á bandaríska
vinsældalistanum, en um 526 þús-
und eintök seldust af plötunni
fyrstu vikuna eftir að hún kom út.
Platan hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda en sjö ár eru frá því
Springsteen gaf síðast út breið-
skífu.
Flest lögin á plötunni tengjast
hryðjuverkaárásunum sem gerðar
voru á Bandaríkin 11. september sl.
Springsteen hefur verið óþreytandi
að kynna plötuna að undanförnu,
var m.a. í forsíðuviðtölum hjá tíma-
ritunum Time og Rolling Stone,
hefur komið fram í fjölda sjón-
varpsþátta og hefur í kvöld tón-
leikaferð um Bandaríkin.
Þetta er þriðja plata Spring-
steens sem fer beint í efsta sæti
bandaríska vinsældalistans. Þær
fyrri voru plöturnar Greatest Hits
og Live 1975–1985.
Brúsi er ekki af baki dottinn.
Ný plata
Spring-
steens beint
í efsta sætið
JIMMY: „Er einhvers staðar svona
risaskúffa með svona 300 diktafón-
um?“
[...]
Orlando: „Munið þið eftir Water-
gate ...(þögn) ... (allir hlæja hátt) ...
Hvernig var umslagið aftur, það var
einhvers konar ... æi lagið þarna
„When he hits me I know he cares“.
Hann var að spila lög með fárán-
legum nöfnum.“
[...]
Jimmy: „Við keyptum þær í Belg-
íu, í hundraðkallabúð. Við dvöldumst
þar á menningarsetri sem er 60 kíló-
metra fyrir utan Brussel. Þar feng-
um við þessar ágætis húfur og þær
hafa fylgt okkur alla tíð síðan.“
[...]
Jimmy: „Ég smakkaði ost sem
vinur minn bjó til um daginn. Það
var helv... góður ostur! Hann tók
lítra af mjólk og setti út í pott. Þegar
hún var kominn upp að suðumarki
og var búinn að sjóða í tvær til þrjár
sekúndur tók hann hálfan lítra af
súrmjólk og setti út í og hrærði. Eft-
ir smá tíma skilst þetta svo að þann-
ig að til verða kögglar annars vegar
og einhvers konar grænt jukk hins
vegar. Síðan sigtarðu þetta, tekur
kögglana og þjappar þeim saman.
Þá ertu kominn með þennan fínasta
ost. Þetta var ekki ólíkt Feta-osti.“
[...]
Orlando: „Kýprusviðurinn drúpir
í skugga sínum.“
[...]
Orlando: „Það er bara eitt svar
við þessari spurningu. Já eða nei.“
[...]
Suawey: „Það mega allir koma
bara og ... steikja.“
[...]
Bobby: „Einu sinni var Suawey að
spila sólósett úti í Bretlandi og var
vel við skál. Jimmy öslaði þá upp að
honum og sagði honum bara hvað
honum fannst og sagði: „Djö...
varstu lélegur, hvað varstu að pæla!“
Svo endaði þetta með því að þeir
voru að þrasa eins og einhverjir litlir
krakkar: „Þú ert víst lélegur“ –
„Nei,“ – „Jú“ – „Nei“ og svo frv.
Þetta endaði svo með því að Suawey
kom með gítarinn sinn og buffaði
Jimmy með honum.“
[...]
Suawey: „Svo er það sagan af
Bobby. Einu sinni var hann að
glamra á gítarinn á Laugaveginum
og allt í einu stillir fólk sér upp fram-
an við Bobby og byrja að kalla:
„Brjótt’ann!, brjótt’ann!“ Bobby
varð svolítið skelfdur en það endaði
með því að það var kominn rosahóp-
ur í kringum hann sem öskraði
„Brjótt’ann!, brjót’ann!“ Það endaði
með því að Bobby gafst bara upp og
braut gítarinn í spón!“
[...]
Pamela: „Ég fór einhvern tíma á
Diablo og það eina sem ég heyrði var
140 takta „gabba“.“
Rúnk vill ekki skilgreina tónlistina sína. Arnar
Eggert Thoroddsen settist því niður með
meðlimum og skráði niður hvað þeir höfðu að
segja, eftir bestu getu. Lesendum er svo látið
eftir að ráða í útkomuna.
arnart@mbl.is
Uppskrift að osti – því ekki?
Rúnk gefur út hljómplötuna Ghengi Dahls
LEIKSÝNINGIN Light
Nights hefur verið sýnd
hér á landi sem erlendis
um áratuga skeið. Það er
Kristín G. Magnús sem
hefur veg og vanda af
sýningunni.
Á dögunum kom hingað
til lands hópur frá Hawaii
til að berja leiksýninguna
augum, en hún fer fram í
Kaffileikhúsinu í Hlað-
varpanum.
„Tildrög þess að þessi
29 manna hópur kom
hingað til lands til að sjá
sýninguna má rekja aftur
til ársins 1978,“ segir
Kristín. „Þá var ég á ferð
með Light Nights í Bandaríkjun-
um og kom kona á sýningu hjá
mér í Iowa sem heitir Jutta Dold.“
Jutta var svo hrifin af sýning-
unni að nú, rúmum 20 árum síðar,
ákvað hún að koma með hóp af
fólki hingað til lands.
„Hún rekur núna stórt fyrirtæki
í Hawaii sem heitir European
World Travel. Hópurinn sem hing-
að kom er sem sé á hennar vegum
og samanstendur af fólki frá
Hawaii og íbúum Utah,“ segir
Kristín.
Hópurinn lét vel af sýningunni
og hugnaðist dvölin hér á landi vel.
„Það var afskaplega gaman að fá
fólkið á sýninguna. Það var mjög
lifandi og skemmtilegt,“ sagði
Kristín og bætti við að lokum að
sýningin hefði heppnast framúr-
skarandi vel.
Leiksýningin Light Nights í Kaffileikhúsinu
Hópur frá Hawaii
Hópurinn lét vel af sýningunni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Hljómsveitin Spútnik verður
með dansleik í Bíósalnum á
Siglufirði í kvöld.
ALÞJÓÐAHÚSIÐ, Hverfisgötu 18:
Taílenskir dagar. Skemmtiatriði og
diskó fram á nótt.
AUSTURSTRÆTI 16, Gamla Reykja-
víkurapótekið: Samsýning í turninum
á fimmtu hæð. Gengið inn frá Póst-
hússtræti. Meðal þeirra sem sýna
eru Bibbi, Birta Guðjónsdóttir, Guð-
finna Mjöll Magnúsdóttir, Hugleikur
Dagsson, Kristín Björk Kristjáns-
dóttir og Orri Jónsson. Kl. 15 til 18.
BÍÓSALURINN, Siglufirði: Hljóm-
sveitin Spútnik.Fyrr um kvöldið
verður sveitin með útitónleika fyrir
stelpurnar á pæjumótinu sem haldið
verður á Siglufirði um helgina.
BROADWAY: 10 ára afmælis-
dansleikur Milljónamæringanna kl.
22:00.
BÆJARBARINN ÓLAFSVÍK: Hljóm-
sveitin Feðurnir.
BÖGGVER, Dalvík: Hljómsveitin
Sixties spilar og kynnir nýja plötu.
CAFÉ AMSTERDAM: Hljómsveitin
Sólon.
CAFÉ CATALÍNA: Sváfnir Sigurð-
arsson trúbador.
CAFÉ ROMANCE: Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila fyrir gesti
til kl. 3.
GAUKUR Á STÖNG: Sálin hans Jóns
míns.
GRAND ROKK: Botnleðja spilar nýtt
efni á „Rokk á Grandrokk“ Tónleik-
arnir hefjast eftir kl. 23:59.
GULLÖLDIN: Svensen og Hallfunkel
skemmta.
INGHÓLL, Selfossi: Jet Black Joe
með tónleika laugardagskvöld. Með í
för er hljómsveitin Vínyll.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu: Tríó
Björns Thoroddsen kl. 16:00 til 17:00.
KAUPFÉLAGIÐ: Tríó Margeirs með
brjálað stuð.
KAFFI REYKJAVÍK: Íslands eina von
og Eyjólfur Kristjánsson.
LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Hafrót.
N1-BAR, Reykjanesbæ: Á móti sól.
O’BRIENS, Laugavegi 73: James
Hickman.
ODD-VITINN, Akureyri: Dansleikur
með Heiðursmönnum.
RÁIN, Reykjanesbæ: Hjómsveitin
SÍN spilar.
SIRKUS, Klapparstíg 30: Tónleikar
með Kimono, Sofandi og Hudson
Wayne klukkan 17. Frítt inn.
SJALLINN, Ísafirði: Írafár ásamt
diskóbandinu Boogie Knights.
SPOTLIGHT: Hátíðardansleikur á
Spotlight kl. 23. Upphitun fyrir
kvöldið hefst eftir hátíðarhöldin á
Ingólfstorgi. Spotlight opnað kl. 17 .
STAPINN, Reykjanesbæ: Gísli Jó-
hannsson & Big City, laugardags-
kvöld. Country & Western Festival .
VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Einn & sjötíu.
VÍKIN, Höfn: Diskórokktekið og far-
andskífuþeytirinn Dj SkuggaBaldur.
VÍKURRÖST, Dalvík: Hljómsveitin
17 vélar og Björgvin Halldórsson
laugardagskvöld. Þeir koma einnig
fram á Fiskideginum mikla á Dalvík
fyrr um daginn.
Reuters
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is