Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vaðlaheiðargöng Eyþing - samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum boðar til undirbúnings- og kynningarfundar vegna stofnunar félags sem vinni að undirbúningi að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði. Fundurinn verður mánudaginn 12. ágúst á Hótel KEA Akureyri og hefst kl. 13,30. Fundurinn er öllum opinn. FRAM að tuttugustu öld er ís- lensk tónlistarsaga nær einvörð- ungu saga söngs sem var nátengd- ur orðsins list, enda voru lengst af nær engin hljóðfæri til í landinu. Á söngvökum í Minjasafnskirkjunni á Akureyri eru flutt sýnishorn ís- lenskrar tónlistarsögu svo sem dróttkvæði, veraldleg þjóðlög og danskvæði, trúarlegir söngvar, tví- söngur, rímnalög og stemmur og söngvar frá nítjándu og tuttugustu öld. Mánudagskvöldið 12. ágúst kl. 20.30 fara þau Þuríður Vilhjálms- dóttir og Þórarinn Hjartarson með tónleikagesti í söngferðalag um söguna. 19. ágúst og 2. september syngja þau Íris Ólöf Sigurjóns- dóttir og Hjörleifur Hjartarson á tveimur síðustu söngvökum sum- arsins Minjasafnskirkjunni. Söngvaka í Minjasafnskirkju ALDARAFMÆLIS Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum verður minnst með ráðstefnu í Mennta- skólanum á Akureyri mánudaginn 12. ágúst. Ráðstefnan hefst kl. 9 með ávarpi Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra en síðan hefst vísindaráðstefna um grasa- fræði þar sem fjórir vísindamenn fjalla um efni sem tengjast grasa- fræðirannsóknum Steindórs. Þá munu sex kunningjar Steindórs og vinir fjalla um aðra þætti í starfi hans og lífi. Ráðstefnan er öllum opin. Náttúrufræðingurinn Steindór Steindórsson frá Hlöðum hefði orðið 100 ára 12. ágúst nk. Hann fæddist á Möðruvöllum í Hörg- árdal 12. ágúst 1902 og lést á Ak- ureyri 26. apríl 1997. Steindór var einn afkastamesti fræðimaður 20. aldar, bæði á sviði grasafræði og bókaþýðinga, auk þess sem hann tók virkan þátt í stjórnmálum og þjóðmálum, sat í bæjarstjórn Ak- ureyrar og á Alþingi. Hann kenndi við Menntaskólann á Ak- ureyri í yfir fjóra áratugi og var síðast skólameistari MA til ársins 1972. Sýning opnuð í Amtsbókasafninu Kl. 17 á mánudag verður sýn- ingin Sól ég sá – aldarafmæli Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum opnuð í lestrarsal Amts- bókasafnsins. Sýningin er sam- starfsverkefni Héraðsskjalasafns- ins og Amtsbókasafnsins á Akureyri. Þar verða til sýnis bæk- ur, handrit og munir sem tengjast lífi og starfi Steindórs. Sýningin stendur út ágústmánuð og er öll- um opin. Þá hefur af þessu tilefni verið gefinn út bókin Steindór Stein- dórsson frá Hlöðum – Carlsberg- sjóður og Ísland. Steindór lét eftir sig merka grein í handriti sem nefnist Carlsbergsjóður og Ísland. Nú á aldaraafmæli Steindórs kem- ur hún fyrir almenningssjónir í bókinni, ásamt nokkrum greinum um Steindór og þýðingu styrkja Carlsbergsjóðsins fyrir íslensk vísindi, eins og segir á bókarkápu. Aldarminning Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum Vísindaráðstefna og sýning um líf hans og starf KÆRUNEFND útboðsmála hefur lagt fyrir Ríkiskaup að hafna tilboði Íslenskra aðalverktaka hf., ISS á Ís- landi og Landsafls hf. í byggingu rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskólann á Akureyri sem ógildu. Jafnframt er mat nefndar um bygg- inguna á lausnum í tilboðum bjóð- enda fellt úr gildi. Tvö tilboð bárust í framkvæmdina að undangengnu lok- uðu útboði í forvali, annars vegar frá Ístaki hf. og Nýsi og hins vegar Ís- lenskum aðalverktökum, ISS á Ís- landi og Landsafli. Ístak og Nýsir kærðu útboðið og kröfðust þess m.a. að ákvörðun Rík- iskaupa um að hafna tilboði þeirra yrði felld úr gildi. Jafnframt að sú ákvörðun Ríkiskaupa að verða ekki við kröfu þeirra um að hafna tilboði ÍAV, ISS á Íslandi og Landsafls yrði felld úr gildi. Niðurstaðan kemur mjög á óvart Gísli Magnússon, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu og formað- ur nefndarinnar sem sér um útboðið, sagði að niðurstaða kærunefndar út- boðsmála kæmi sér mjög á óvart en hann hafði þó ekki séð úrskurðinn er Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Hann sagði að niðurstaðan gæti breytt myndinni töluvert og tafið framkvæmdina. Gísli sagði að nefnd- in hefði valið tilboð ÍAV, ISS og Landsafls á grundvelli útboðsgagna og álita sem leitað var eftir en nú hefði það verið dæmt ógilt. Gísli sagði að nefndin myndi fara yfir mál- ið í ljósi niðurstöðurnar. „Við brugð- umst í upphafi við þeim kæruatrið- um sem lögð voru fyrir og töldum okkur færa ágætis rök í því máli. Ef hins vegar er verið að fella þennan úrskurð á grundvelli einhverra ann- arra atriða, þurfum við að fara yfir málið upp á nýtt.“ Sigfús Jónsson, framkvæmda- stjóri Nýsis, sagðist mjög sáttur við niðurstöðu kærunefndar og telur að um fullkominn sigur hafi verið að ræða af þeirra hálfu. „Í útboðinu var auglýst eftir því að meginbyggingar hússins væru 5–7 hæðir og í niður- stöðu kærunefndar er tekið undir okkar sjónarmið, að hinir aðilarnir hafi ekki boðið samkvæmt útboðs- gögnum. Einnig var það kært að arkitektinn, sem var aðalráðgjafi verkefnisstjórnar, hefði verið van- hæfur, þar sem hann hefði unnið svo mikið fyrir ÍAV og undir það var tek- ið.“ Aðeins tveir kostir í stöðunni Sigfús sagði að ríkið hefði aðeins um tvo kosti að ræða í stöðunni, að semja við Ístak og Nýsi eða hætta við framkvæmdina. „Það er búið að bíða lengi eftir þessari byggingu og hér er um mjög mikilvægt mál að ræða fyrir Háskólann og Akureyri og ég trúi ekki öðru en að ríkið gangi til samninga við okkur. Það á ekki að þurfa að verða mikil töf á fram- kvæmdinni, því við getum hafið framkvæmdir strax. Við bíðum því eftir viðbrögðum frá Ríkiskaupum,“ sagði Sigfús. Jón H. Ásbjörnsson, deildarstjóri útboðsdeildar Ríkiskaupa, vildi ekki tjá sig um málið í gær, enda í sumar- fríi, en sagði að málið yrði tekið til skoðunar eftir helgi. Stefán Friðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Íslenskra aðalverk- taka, hafði ekki séð úrskurðinn í gær en áréttaði að hann teldi tilboð þeirra fyllilega lögmætt og gilt. „Úr- skurðurinn snertir okkur en við höf- um ekki komið að þessum mála- rekstri. Framhald málsins er í höndum Ríkiskaupa,“ sagði Stefán. Hér er um svonefnda einkafram- kvæmd að ræða upp á vel á annan milljarð króna, þar sem gert er ráð fyrir að sá sem byggir eigi húsið en ríkið komi þar inn sem leigjandi. Til stóð að hefja framkvæmdir við bygg- ingu hússins nú í sumar og afhenda það fullbúið næsta haust. Niðurstaða kærunefndar útboðsmála vegna byggingar rannsókna- og nýsköpunarhúss við HA Ríkiskaup hafni tilboðinu sem varð fyrir valinu TÖLUVERÐAR skemmdir voru unnar á tveimur bifreiðum, í eigu Helga Vilbergs skólastjóra Myndlist- arskólans á Akureyri og Ýrar dóttur hans, í fyrrinótt. Tveir ungir menn höfðu farið upp á þak á heimili Helga við Kaupvangsstræti, þar sem þeir rifu járnrör með sjónvarpsloftneti af þakskegginu og hentu fram af þakinu. Járnrörið fór í gegnum toppinn á ný- legum bíl Ýrar, auk þess sem hann rispaðist á hliðinni. Rannveig, önnur dóttir Helga, vaknaði við hávaða í mönnum og sá til þeirra, þar sem þeir hlupu af þakinu og yfir á Gilsbakkaveg. Helgi veitti mönnunum fljótlega eftirför á bíl sín- um og hugðist eiga við þá orð. Þegar hann kom upp Þingvallastrætið, á móts við Sundlaug Akureyrar, sá hann tvo unga menn. Annar mannanna réðst tvívegis á bíl Helga Hann stöðvaði bíl sinn og skipti þá engum togum að annar mannanna réðst að bíl Helga með spörkum og barsmíðum. Helga brá að vonum í brún við ósköpin, ók í burtu og fór heim eftir farsíma sínum. Hann fór síðan aftur upp Þingvallastrætið og stöðvaði bifreið sína á rauðu ljósi á gatnamótunum við Þórunnarstræti. Þar voru mennirnir enn og réðst hinn sami þá aftur að bifreiðinni með látum og olli enn frekari skemmdum. Helgi hringdi þá á lögregluna, sem kom fljótlega á staðinn en þá voru menn- irnir á bak og burt. Lögreglan og Helgi leituðu mannanna í um klukku- stund en án árangurs. Helgi sagði að mennirnir hefðu ver- ið í annarlegu ástandi og að sá sem tvívegis réðst að bíl hans hafi verið mjög æstur. Sagðist hann hafa orðið verulega skelkaður þar sem hann sat í bílnum á meðan ósköpin dundu yfir. Helgi sagði að hann og dóttir hans hefðu séð þessa ungu menn nokkuð vel og myndu þekkja þá aftur. Hann óskaði jafnframt eftir því að hugsan- leg vitni að atburðunum hefðu sam- band við lögregluna á Akureyri. Sem fyrr segir eru báðir bílarnir töluvert skemmdir en alls er óvíst að trygging- arnar greiði tjón sem þessi. Verulegar skemmdir unnar á tveimur fólksbílum á Akureyri Morgunblaðið/Kristján Helgi Vilberg sýnir hvar járnrörið sem hann heldur á fór í gegnum þakið á bíl dóttur sinnar en við hlið hans stendur Ýr með sjónvarpsgreiðuna sem fest var á rörið á þakskegginu. Járnröri hent í gegnum topp ann- ars bílsins ÓPERUSÖNGKONURNAR Hulda Björk Garðarsdóttir og Sigríður Að- alsteinsdóttir halda tónleika í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit á morgun, sunnudag, kl. 17. Með þeim í för er Daníel Þorsteinsson píanó- leikari. Hulda Björk og Sigríður syngja hvor í sínu lagi og einnig sam- an, en þeim til fulltingis er Daníel Þorsteinsson píanóleikari. Á efnisskránni verða Söngvar förusveinsins eftir Gustav Mahler, Þrjú ljóð Ófelíu og fleiri lög eftir Richard Strauss og dúettar eftir Jo- hannes Brahms. Þríeykið Hulda Björk Garðars- dóttir, Daníel Þorsteinsson og Sigríður Aðalsteinsdóttir. Óperusöngur á Laugaborg ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.