Morgunblaðið - 10.08.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.brimborg.is– Njóttu lífsins
A
B
X
/
S
ÍA
Sjáðu mig
Það er erfitt að skilgreina stíl en þú þekkir hann þegar þú sérð hann.
Yfir Citroën er einhver óútskýranlegur sjarmi. Heillandi útgeislun
sem fyllir eigendur Citroën lotningu og stolti. Brimborg kynnir
nýjan og svalan Citroën C3. Sjáðu!
Verð frá 1.389.000 kr. Citroën C3
Opið í dag kl. 13–17.
Það er nú búið að kippa þessu í liðinn Lúlli minn, ég fæ ekki 3 millur í biðlaun, heldur sem
ráðgjafi bæjarstjórans í sex mánuði, góði.
Velgengni íslenskra ræðumanna erlendis
Að öðlast trú
á sjálfan sig
JUNIOR Chamber Ís-land hefur sex sinn-um unnið Evrópu-
meistaratitil í ræðu-
mennsku á undanförnum
sjö árum. Sigurgangan er
einstök, og af því tilefni
ræddi Morgunblaðið við
nýjasta sigurvegarann,
Sigurrós Friðriksdóttur,
sem vann titilinn í Istanbúl
í ár.
– Hvernig kynntist þú
Junior Chamber?
„Mér var boðið á kynn-
ingarfund hjá Junior
Chamber Vík árið 1996, og
eftir að hafa farið á nokkra
fundi ákvað ég að ganga í
félagið. Það eru þrjú félög í
Reykjavík, Junior Cham-
ber Reykjavík, Vík og
Borg, og auk þess nær
starfssvæði JC Ness til Vestur-
bæjarins. JC Vík er eingöngu fyr-
ir konur, og JC Borg eingöngu
fyrir karla, en JC Reykjavík og JC
Nes fyrir bæði kynin.“
– Hvað gerir Junior Chamber?
„Meginmarkmið félagsins eru
að gefa fólki tækifæri til að efla
leiðtogahæfileika sína, öðlast
meira sjálfstraust og verða örugg-
ara í framkomu. Ræðumennskan
er aðeins hluti af starfi félagsins,
þrátt fyrir að hún sé sá þáttur sem
almenningur þekkir hvað best.
Hreyfingin býður upp á fjölda
námskeiða og verkefna, þar sem
reynir á þekkingu og færni við-
komandi. Það eru líka mánaðar-
legir fundir, og þú velur hvað þú
vilt gera innan hreyfingarinnar.“
– Eru margir í hreyfingunni?
„Um þessar mundir eru um 120
manns starfandi í hreyfingunni
hér á Íslandi, en fjöldi virkra fé-
laga hefur sveiflast undanfarin ár.
JC er þannig félagsskapur að fólk
leitar þar stuðnings þegar það
þarf á að halda, en eftir að það hef-
ur öðlast nýtt sjálfstraust og séð
nýjar leiðir á lífsbrautinni hverfur
það oft til frekara náms eða nýrra
starfa og minnkar um leið afskipti
sín af hreyfingunni. Það er eðli-
legt, og sýnir að hreyfingin þjónar
tilgangi sínum.“
– Hverju mega Íslendingar
þakka velgengni sína?
„Þegar ég var í keppninni í Ist-
anbúl á dögunum fékk ég tækifæri
til að spjalla við hina keppend-
urna. Þegar við ræddum undir-
búninginn fyrir keppnina fékk ég
á tilfinninguna að hann væri betri
hér á Íslandi en víða annars stað-
ar. Bæði virtumst við byggja mik-
ið á reynslu fyrri sigurvegara,
enda er ég sú sjötta í röðinni á sjö
árum sem vinnur Evrópumeist-
aratitilinn, og einnig virtist und-
irbúningur allur vera markvissari
en hjá öðrum þátttakendum. Vel-
gengni okkar tel ég að megi meðal
annars þakka þessum ígrundaða
undirbúningi.“
– Ræðuefni þitt var slagorð
heimshreyfingar JC.
„Já, allir keppendurnir fengu
sama umræðuefnið, sem var slag-
orð heimshreyfingarinnar, „frum-
kvöðlar í verki“. Ég
lagði áherslu á það í
minni ræðu að allir
gætu orðið frumkvöðl-
ar, aðalatriðið væri við-
horf hvers og eins. Ef viðkomandi
hefði hugsjón og takmark í lífinu,
og stefndi markvisst að þeim,
væru honum allir vegir færir.
Markmiðið þarf ekki að vera að
verða frægur eða ríkur, heldur
stuðla að jákvæðum breytingum á
eigin lífi. Ræðan varð að vera 5 til
7 mínútur að lengd, annars hefði
ég dottið úr keppni. Í þessari
keppni voru eingöngu framsögu-
ræður, en ekki rökræður.“
– Ræðan var á ensku, ekki satt?
„Jú, það er alltaf viss áskorun
að flytja ræðu á öðru máli en sínu
eigin. Hins vegar nýt ég þess að
hafa verið við nám í Kanada í tvö
og hálft ár, og náði þar ágætis tök-
um á enskunni. Margir gætu hald-
ið að þar sem keppnin fer fram á
ensku myndu Englendingar eiga
sigurinn vísan, en þeir hafa brennt
sig á því að nota of skreytt og tor-
skilið málfar, sem skilar sér ekki
alltaf nógu vel til hlustenda. Við
hér heima höfum lagt áherslu á að
nota gagnsæ og skýr orð í okkar
málflutningi, og það hefur greini-
lega komið að gagni.“
– Það hlýtur að hafa verið upp-
lifun að fara til Istanbúl.
„Já, það var einstakt. Borgin er
hvort tveggja í Evrópu og Asíu, og
upplifunin var nokkurs konar
samhristingur af menningu
beggja heimsálfa. Þátttakendur
voru frá nær öllum löndum Evr-
ópu og það var mjög gefandi að
hitta aðra meðlimi hreyfingarinn-
ar. Við fórum fimm frá Íslandi.“
– Kepptu fleiri en þú?
„Nei, ég var sigurvegari í und-
ankeppni hér heima, og var ég eini
keppandinn fyrir Íslands hönd.“
– Svo er það heimsþingið sem
bíður þín, ekki satt?
„Jú, ég keppi fyrir hönd Evrópu
á heimsþinginu í Las Vegas í nóv-
ember. Það er afskaplega spenn-
andi. Tvímælalaust er
hér um að ræða enn
meiri áskorun en í Evr-
ópukeppninni, en okkur
tókst að vinna heims-
meistaratitilinn í fyrra, og hver
veit nema það takist líka í ár?“
– Er margt á döfinni hjá JC?
„Dagana 9.–11. ágúst heldur
JC-hreyfingin norræna akademíu
í Skálholti, þar sem virtur leið-
beinandi, Fernando Sánchez-Ari-
as, heimsækir Ísland. Námskeiðið
er fyrir framtíðarleiðtoga innan
JC. Fernando mun einnig leið-
beina á námskeiði fyrir starfs-
menn fyrirtækja.“
Sigurrós Friðriksdóttir
Sigurrós Friðriksdóttir fædd-
ist í Reykjavík 1967. Hún lauk
stúdentsprófi frá MR árið 1987,
B.Sc.-prófi í jarðfræði frá Há-
skóla Íslands 1992 og M.Sc.-
prófi í jarðfræði frá McMaster-
háskóla í Kanada árið 1995.
Hún hóf störf hjá Náttúruvernd-
arráði sumarið 1995 og hefur
starfað hjá Náttúruvernd rík-
isins frá árinu 1997, sem sviðs-
stjóri mannvirkja- og skipulags-
sviðs frá 1998. Sigurrós hefur
verið félagi í Junior Chamber
Vík frá ágúst 1996 og var for-
seti félagsins starfsárið 1999–
2000. Hún gegnir í ár embætti
umsjónarmanns með þjálfun
fyrir JC Ísland.
Allir geta
orðið
frumkvöðlar