Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 16
SUÐURNES
16 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Sparisjóðsins í Keflavík
telur að viðræður við Landsbanka
Íslands um yfirtöku bankans á
rekstri sjóðsins séu óraunhæfar.
Viðræður um annars konar sam-
starf geti heldur ekki orðið á döf-
inni fyrr en óvissu um laga- og
starfsumhverfi sparisjóðanna í
landinu hafi verið eytt af Alþingi
eða dómstólum.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í bréfi sparisjóðsstjóra
Sparisjóðsins í Keflavík, Geir-
munds Kristinssonar, til Halldórs
J. Kristjánssonar, bankastjóra
Landsbankans. Bankinn sendi sem
kunnugt er bréf til allra sparisjóða
í landinu í lok júlí sl. þar sem farið
var fram á viðræður um mögulegt
samstarf varðandi rekstur og eign-
araðild. Stjórn sparisjóðsins fól
Geirmundi að svara bréfinu eftir
stjórnarfund sl. miðvikudag.
Í svarbréfi sparisjóðsins, sem
Morgunblaðið fékk afrit af, er bent
á að ákveðið hafi verið á aðalfundi
Sparisjóðsins í Keflavík í mars sl.
að undirbúa hugsanlega breytingu
á félagsformi sjóðsins í hlutafélag.
Taldi stjórn sjóðsins þessa leið
ákjósanlega, fyrst og fremst vegna
þess að öflun nýs eigin fjár væri
vandkvæðum bundin í núverandi
félagsformi, að því er fram kemur
í bréfinu. Þar segir einnig að eng-
ar hugmyndir hafi verið reifaðar
um sameiningu við aðra banka eða
yfirtöku á rekstri í tengslum við
þessi áform.
Síðan segir í bréfinu til Lands-
bankans: „Eins og kunnugt er
ríkir nú óvissa um heimildir til
þess að eiga viðskipti með
stofnfjárhluti og á hvaða forsend-
um slík viðskipti geti orðið. Grein-
argerð Fjármálaeftirlitsins [FME]
frá 19. júlí sl. eyddi þeirri óvissu
ekki að öllu leyti, en afstaða FME
virðist hins vegar setja verulegar
skorður við því að unnt sé að eiga
viðskipti á borð við þau sem
Búnaðarbanki Íslands hf. bauð
stofnfjáraðilum í SPRON. Stjórn
Sparisjóðsins í Keflavík hefur
þegar ákveðið að neita að sam-
þykkja framsal stofnfjárhluta sem
væri þáttur í viðskiptum af þeim
toga.“
Sparisjóðsstjórinn skilur bréf
Landsbankans svo að viðræður um
samstarf muni snúast um
hugsanlegan samruna sparisjóðs-
ins og bankans sem merki þá yfir-
töku hins síðarnefnda. Engin önn-
ur stefna er sögð hafa verið
mörkuð hjá sparisjóðnum en að
reka hann áfram „sem öfluga fjár-
málastofnun og máttarstólpa í
heimabyggð. Markaðshlutdeild
sjóðsins á starfssvæðinu og fjár-
hagslegur styrkur gerir honum
fyllilega kleift að standa á eigin
fótum,“ segir í bréfi sparisjóðs-
stjórans.
Undir lok bréfsins kemur fram
að stjórn sparisjóðsins kunni að
meta það viðhorf Landsbankans að
meiriháttar breytingar á rekstri
sparisjóða verði ekki gerðar nema
í góðu samstarfi við stjórn og
starfsfólk viðkomandi sjóða. Þar til
nýverið hafi raunar ekki þurft að
tiltaka slíkar staðreyndir sérstak-
lega.
Viðræður um yfirtöku Landsbankans á Sparisjóðnum taldar óraunhæfar
Sparisjóðurinn
segist geta stað-
ið á eigin fótum
Keflavík
STJÓRN Heilbrigðisstofnunar Suð-
urnesja harmar ótímabært brott-
hvarf Jóhanns Einvarðssonar fram-
kvæmdastjóra frá stofnuninni. Var
bókun þess efnis lögð fram á fundi
stjórnarinnar 31. júlí síðastliðinn.
Fundinn sátu, auk Jóhanns, Stella
Olsen, Hallgrímur Bogason, Erna
Björnsdóttir, Böðvar Jónsson, Krist-
mundur Ásmundsson, Sigurður
Jónsson, Björk Guðjónsdóttir, Sól-
veig Þórðardóttir og Konráð Lúð-
víksson. Flutti stjórnin Jóhanni alúð-
arþakkir fyrir tíu ára farsæl störf og
kraft í því uppbyggingarstarfi sem
einkenna þann tíma að mati stjórn-
arinnar.
Guðlaug Björnsdóttir hefur verið
ráðin tímabundið til að gegna stöðu
forstjóra HSS. Starfið verður auglýst
laust til umsóknar á næstu dögum.
Harmar
brotthvarf
Jóhanns
Suðurnes
52 LÖG bárust í sönglagakeppn-
ina Ljósalagið 2002. Dómnefnd
hefur valið tíu lög sem keppa til
úrslita næstkomandi föstudag, 16.
ágúst, í Stapa í Reykjanesbæ.
Keppnin, sem haldin er í tilefni af
menningarhátíðinni Ljósanótt,
verður sýnd í beinni útsendingu á
Skjá einum.
Þetta er í fyrsta sinn sem
keppnin um Ljósalagið er haldin
en áætlað er að halda hana ár-
lega héðan í frá að sögn Halldórs
Jóhannssonar, framkvæmdastjóra
keppninnar. Höfundar laganna
sendu þau inn í keppnina undir
dulnefni og að sögn Halldórs
verður nöfnum þeirra sem kom-
ust í úrslit haldið leyndum allt
þar til á keppniskvöldinu. Hann
segir þó óhætt að fullyrða að þar
sé á ferðinni landslið íslenskra
lagahöfunda.
Valinkunnir flytjendur
Höfundar munu á næstu dögum
vinna að útsetningum laganna í
samstarfi við Jón Ólafsson, sem
situr í dómnefnd. Í henni sitja
auk hans Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri og formaður nefndarinnar,
Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri keppninnar, Val-
gerður Guðmundsdóttir, menn-
ingarfulltrúi Reykjanesbæjar,
Steinþór Jónsson, formaður
Ljósanæturnefndar, Stefán Hjör-
leifsson tónlistarmaður, Helgi
Björnsson tónlistarmaður og Árni
Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri
Skjás eins. Flytjendur laganna
eru valinkunnir tónlistarmenn,
þau Páll Rósinkranz, Andrea
Gylfadóttir, Margrét Eir og Einar
Ágúst. Halldór segir að áhorf-
endur komi til með að hafa 50%
vægi á móti dómnefndinni um
hvert laganna kemur til með að
bera sigur úr býtum.
Stífar æfingar framundan
Að sögn Halldórs taka nú við
stífar æfingar á úrslitalögunum
fram að keppni, en vika er til
stefnu. Lögin verða síðar gefin út
á geisladisk.
Viðgerðir og töluverðar breyt-
ingar hafa verið gerðar á Stap-
anum undanfarið. Þar hefur
flokkur iðnaðarmanna verið við
störf, en þeim framkvæmdum er
nú að mestu lokið.
Valgerður Guðmundsdóttir
menningarfulltrúi segir áhugann
á keppninni hafa komið aðstand-
endum hennar ánægjulega á
óvart. Keppnin er nú haldin í
fyrsta sinn en til stendur að
halda hana árlega og vonast er
eftir góðri þátttöku í framtíðinni.
Halldór segir keppnina fyrsta
skref Reykjanesbæjar í að end-
urheimta titilinn Bítlabærinn „og
gera bæinn að vöggu tónlistarlífs
á Íslandi að nýju.“
Góð
þátttaka
í Ljósa-
laginu
Morgunblaðið/Sævar Sævarsson
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Stapanum. Barinn hefur til
dæmis tekið stakkaskiptum. Framkvæmdum lýkur á næstu dögum.
Reykjanesbær
JAÐRAR Reykjanesbæjar eru nú
óðum að verða snyrtilegri en sér-
stöku umhverfisátaki var formlega
hrint í framkvæmd í bænum á
fimmtudag. Af því tilefni söfnuðust
aðstandendur átaksins saman á
Fitjabakka í Njarðvík.
Markmið átaksins er að hreinsa
jaðra Reykjanesbæjar af öllum
málmum og öðru rusli sem safnast
hefur upp. Sérstök áhersla er lögð á
þrjú hreinsunarsvæði; í Helguvík að
Njarðvíkurhöfn auk iðnaðarsvæða,
Njarðvíkurhöfn að Stekkjarkoti auk
iðnaðarsvæða og svæðið frá
Stekkjarkoti að Vogastapa og Hafnir
auk iðnaðarsvæða.
Átakið er samvinnuverkefni bæj-
aryfirvalda, Hringrásar hf., Njarð-
taks hf., Sorpeyðingarstöðvar Suð-
urnesja og Bláa hersins auk
fyrirtækja og íbúa Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði í
samtali við Morgunblaðið að allir
sem að átakinu kæmu, bæði einstak-
lingar og fyrirtæki, gæfu vinnu sína,
svo átakið er sjálfboðaliðastarf frá
upphafi. Hann vildi ennfremur
hvetja alla íbúa og aðstandendur fyr-
irtækja bæjarins til að skrá sig til
þátttöku í átakinu hjá Þjónustumið-
stöð Reykjanesbæjar.
Vænta má að unnið verði að kappi
við hreinsun bæjarins næstu vikur
en vonast er til þess að átakinu ljúki
fyrir 1. september næstkomandi.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Bæjarfulltrúar og aðstandendur átaksins komu saman á fimmtudag og hleyptu því formlega af stokkunum.
Jaðrar bæjarins
hreinsaðir af járni
Reykjanesbær
ÞAÐ MUN ríkja fjölskyldustemning
í Vogum á Vatnsleysuströnd um
helgina. Á laugardag verður haldinn
árlegur fjölskyldudagur Vogabúa.
Dagskráin er með svipuðu sniði og
undanfarin ár en þó með nokkrum
áherslubreytingum. Þetta árið verð-
ur dagurinn haldinn í Aragerði og
hefst á dorgveiðikeppni á smábáta-
bryggjunni um hádegið. Aðaldag-
skráin hefst svo um kl. 14 í Aragerði.
Þar verður bryddað upp á ýmsu
skemmtilegu, svo sem spákonu, and-
litsmálun, kaffisölu Kvenfélagsins og
fleiru. Á staðnum verður risarenni-
braut og talíubraut. Á tjörninni verð-
ur hægt að sigla á kanó og rafmagns-
bílar fyrir krakkana verða við
íþróttahúsið. Að lokinni sundkeppni
og grillveislu í Aragerði verður
sundlaugapartí. Dagskránni lýkur
með balli í Glaðheimum.
Fjölskyldudagur Vogabúa
Dorg, grill og
dúndurball
Vogar
Á fjölskyldudeginum í fyrra var margt til gamans gert í Vogunum.