Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
PALESTÍNSKUR embættismaður
sagði í gær að Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, hefði gengið
það eitt til að spilla viðræðum Palest-
ínumanna og Bandaríkjamanna þeg-
ar hann kallaði yfirmenn palestínsku
heimastjórnarinnar „gengi spilltra
morðingja og hryðjuverkamanna“.
Sharon lét þessi orð falla við út-
skriftarathöfn í herforingjaskóla
Ísraels á fimmtudag.
„Hann vildi vara Bandaríkjamenn
við því að ná samkomulagi við palest-
ínsku sendinefndina með því að
segja palestínska embættismenn
andvíga friði,“ segir Abdel Raman,
ráðherra í heimastjórninni. „Ef
þetta er raunsönn lýsing á okkur,
hvað erum við þá að gera í Banda-
ríkjunum núna annað en að gera
okkar ýtrasta til að finna leið út úr
vandanum?“
Í ræðunni sagðist Sharon ekki
myndu semja við leiðtoga Palestínu-
manna og sagði þá þurfa að víkja áð-
ur en hægt yrði að binda enda á átök-
in. „Þetta gengi vill ekki frið við
Ísrael,“ sagði hann í ræðunni. „Eina
leiðin til að ná friði er að velta morð-
ingjahópnum af valdastóli.“
Áttu fund með
forstjóra CIA
Þrír ráðherrar í palestínsku
heimastjórninni fóru í vikunni til
Washington til að ræða við banda-
ríska embættismenn. Nýskipaður
innanríkisráðherra Palestínumanna,
Abdel Razek Yehiyeh, mun hitta for-
stjóra bandarísku leyniþjónustunnar
(CIA), George Tenet, á laugardaginn
til að ræða umbætur á öryggissveit-
um Palestínumanna. Bandarískir
embættismenn staðfestu í gær að
hópur manna á vegum CIA hitti full-
trúa palestínsku heimastjórnarinnar
á laun og settu þeir í sameiningu
fram ítarlega áætlun um umbætur í
öryggismálum í Palestínu. Áætlunin
var afhent George W. Bush Banda-
ríkjaforseta í síðustu viku.
Lögmaður nokkurra palestínskra
kvenfanga, sem haldið er í Neve
Tirtza-fangelsinu nærri Tel Aviv,
sagði í gær að hungurverkfall stæði
nú yfir meðal fanganna. Segir hann
konurnar vilja með þessum hætti
mótmæla harðræði sem þær segja að
þær séu beittar. Að sögn lögmanns-
ins var táragasi beitt gegn þeim þeg-
ar þær mótmæltu lélegum aðbúnaði í
fangelsinu í lok júlí. Embættismaður
fangelsismálastofnunar Ísraels stað-
festi í gær að 33 fangar tækju þátt í
verkfallinu, sem staðið hefur yfir í
níu daga, og að konurnar nærðust
aðeins á sykurvatni. Hún neitaði hins
vegar ásökunum um lélegan aðbún-
að og sagði að fangarnir hefðu fram-
ið skemmdarverk á klefum sínum í
lok júlí og að fangaverðir hefðu
neyðst til að grípa til „viðeigandi að-
gerða“.
Shlomo Ben Ami, fyrrverandi ut-
anríkisráðherra Ísraels og áhrifa-
maður innan Verkamannaflokksins,
sagði á fimmtudag af sér þing-
mennsku til að mótmæla áframhald-
andi setu flokksins í ríkisstjórn
landsins með hægriflokknum Likud.
„Ég sagði í maí að ég myndi segja af
mér innan þriggja mánaða hætti
flokkurinn ekki þátttöku í stjórnar-
samstarfinu og ég hef staðið við
það,“ sagði Ben Ami. Hann segir
stefnu Ariels Sharons í málefnum
Palestínumanna hafa haft hörmuleg-
ar afleiðingar fyrir Ísrael og að
flokkurinn ætti fyrir höndum stór-
slys í næstu kosningum.
Telja að
Sharon spilli
viðræðum
Kallaði stjórn Yassers Arafats
„gengi spilltra morðingja“
Jerúsalem. AP, AFP.
KÍNVERSKIR neytendur voru fyrir nokkrum
áratugum þvingaðir til að klæðast allir stöðl-
uðum Mao-jökkum og áhersla á úrkynjaða, vest-
ræna tísku og útlitsdýrkun var bönnuð. Nú er
öldin önnur eins og glöggt má sjá á árlegri fegr-
unartækjasýningu sem stendur yfir í höfuð-
borginni Peking. Þar er meðal annars hægt að
kaupa rafknúnar sogskálar sem framleiðandinn
fullyrðir að auki brjóstastærð kvenna og lítið
nuddtæki sem sagt er geta fjarlægt fitu eða flutt
hana af einum stað á líkamanum á annan.
Tískublöð og Hollywood-kvikmyndir móta nú í
vaxandi mæli vitund kínverskra neytenda í borg-
unum og einkafyrirtæki gera sum kröfur um
æskublóma og glæsilegt útlit, ekki síst hjá kon-
um, sem grípa því stundum til örþrifaráða til að
reyna að hreppa eftirsótt starf. Þeir sem eru há-
ir vexti hafa oft forgang. Dæmi eru um að fólk
láti lengja á sér fætur með skurðaðgerð þrátt
fyrir viðvaranir lækna sem benda á að afleiðing-
arnar geti verið afar slæmar. Fjölmiðlar hafa
skýrt frá mörgum misheppnuðum lýtaaðgerðum
og hófu stjórnvöld herferð á árinu gegn starf-
semi fyrirtækja sem notast við óþjálfaða starfs-
krafta á þessu sviði.
Kröfur hinna nýju neytenda í alþýðulýðveld-
inu eru af margvíslegu tagi en hljóma kunnug-
lega; konurnar vilja stór brjóst, grannt mitti,
mjóar mjaðmir og stinnan afturenda. Sumir
gestirnir vilja fá hærra nef eða láta breyta augn-
lokunum svo að yfirbragðið verði vestrænna,
aðrir vilja fá varanlegan lit á augnhárin. Ókost-
urinn við augnhárameðferðina sem boðin er
mun vera sá að geri fegrunarsnillingurinn mis-
tök er ekki hægt að afmá þau nema með leysi-
geislaaðgerð og liturinn er fimm ár að hverfa
með náttúrulegum hætti.
Sölumaðurinn Hu Bin, sem selur fitulosarann,
bendir á að óæskileg fita geti til dæmis farið af
mjöðmunum á brjóstin þar sem hún eigi fremur
heima. Hún segir að fólk geti losnað við of bústn-
ar kinnar, undirhökur og fitukeppi á kálfum og
lærum og tækið fjarlægi jafnvel hrukkur.
Sýningin er að þessu sinni svo umfangsmikil
að hún hefur verið flutt úr litlum sal í úthverfi
borgarinnar í nýja og risastóra alþjóðlega vöru-
sýningarhöll. C. T. Huang sýnir gestum annað
tól, hina vinsælu brjóstapumpu sem kostar 722
dollara, um 60 þúsund krónur. Tvær skálar úr
gegnsæju efni eru tengdar með slöngum við raf-
knúnar dælur og á tækið að geta stækkað brjóst
kvenna allt frá unglingsaldri fram á áttræðisald-
urinn. „Brjóst eru eins og aðrir vöðvar – þjálfun
gerir þau stærri,“ segir C. T. Huang, sem er frá
Taívan en hefur selt tæki sín í Kína undanfarin
tíu ár. „Ef þeim er ekki sýnd ástúð og umhyggja
munu brjóstin verða eldri og eldri,“ segir í aug-
lýsingabæklingi hans.
Hann segir að lítið sé um eftirlit og neytenda-
vernd enn sem komið er og þess vegna hægt að
selja hvað sem er en yfirvöld séu að byrja að
huga að slíkum málum. „Margt af því sem selt er
hér hvarf af markaði á Taívan og annars staðar
fyrir áratug,“ segir hann. Nær 30 kínversk fyrir-
tæki framleiði eftirlíkingar af pumpunum en
hann hafi getað stöðvað sjö þeirra með máls-
höfðunum.
Rafknúnar brjóstapumpur
og hækkuð nef í Kína
Peking. AFP.
Reuters
Kínversk hárgreiðslukona á fegrunarsýning-
unni í Peking. Lítill gaumur var áður gefinn
að tískustraumum í hárgreiðslu en nú geta
viðskiptavinir beðið um ýmsar tegundir þjón-
ustu, þar á meðal hárlitun.
BJÖRGUNARMENN fundu í gær
lík 19 manna, sem fórust er mikið
vatnsflóð skall á tveimur tjaldstæð-
um á Svartahafsströnd Rússlands og
nú talið víst að minnst 35 manns hafi
farist. Hefur gífurlegt úrhelli verið á
þessum slóðum eins og víðar í Evr-
ópu. Í gær höfðu flóðin kostað allt að
50 menn lífið.
Marina Ryklina, talsmaður al-
mannavarnaráðuneytisins í Moskvu,
sagði, að 16 lík hefðu fundist í Shiro-
kaja Balka, rétt við borgina Novo-
rossísk, og fimm í bænum Abrau-
Djúrso. Vitað er um fjögur önnur
dauðsföll og margra er saknað, hugs-
anlega nokkurra tuga manna.
Haft er eftir vitnum í Shirokaja
Balka, að þar hafi vatnsflóðið hrifið
með sér tvo strætisvagna og fært út í
sjó. Talið er, að í þeim hafi verið allt
að 40 manns.
Flóðin hafa eyðilagt eða skemmt
hús í mörgum þorpum og bæjum og í
gær var verið að flytja fólk í burtu
þar sem þá var spáð áframhaldandi
úrkomu. Eru vegir og brýr víða illa
fariní þessum mestu rigningum í
manna minnum.
Fólki bjargað
af húsþökum
Veðurfræðingar í Austurríki
spáðu í gær meiri rigningu um
helgina en þar eru stór landsvæði
undir vatni. Þar og í Tékklandi hafa
björgunarmenn verið önnum kafnir
við að bjarga fólki af húsþökum. Eru
flóðin í Austurríki þau mestu frá því
mælingar hófust árið 1896 og til
marks um það er haft, að hið kunna
Zwettler-brugghús, sem fór illa í
miklum flóðum 1959, var alveg á kafi
í gær.
Í Tékklandi er vitað um eitt dauðs-
fall en nokkurra er saknað. Í Rúm-
eníu hafa tveir menn farist og einnig
í Búlgaríu og gífurlegt tjón hefur
orðið á Norður-Ítalíu. Mikill vatns-
elgur var einnig í neðanjarðarlesta-
kerfinu í London í gær.
Flóðin í Evrópu víða þau mestu í manna minnum
Reuters
Frá þorpinu Wegscheid, sem er um hundrað kílómetra fyrir norðan Vín, höfuðborg Austurríkis. Þótt enn sé
spáð rigningu í Austurríki um helgina er vatnið þó víða farið að sjatna nokkuð, meðal annars í Dóná.
Tugir manna hafa far-
ist og margra saknað
Gelendzhik. AP.
TVEIR frambjóðendur af
vinstri vængnum í væntanleg-
um forsetakosningum í Bras-
ilíu í október, Luiz Inacio Lula
da Silva og Jose Alencar, lýstu
að sögn BBC stuðningi í gær
við samning núverandi stjórn-
valda við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn, IMF, sem ætlar að
veita Brasilíu 30 milljarða doll-
ara aðstoð. Sjóðurinn setur
ströng skilyrði um ábyrga
efnahags- og fjármálastjórn
fyrir láninu en opinberar
skuldir Brasilíu eru meiri en í
flestum öðrum ríkjum heims.
Alþjóðabankinn ákvað einn-
ig í gær að veita Brasilíumönn-
um fjárhagsaðstoð en miklar
sveiflur hafa verið í efnahags-
lífi landsins síðustu mánuði,
ekki síst vegna ótta margra við
að kreppan í Argentínu breið-
ist út til fleiri landa í Suður-
Ameríku.
Samþykkja
lán frá IMF