Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 25
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 25
Suðurlandsbraut
Til leigu
í þessu glæsilega húsi tvær til þrjár
hæðir, samtals allt að 3000 fm. Mjög
góð staðsetning. Glæsilegar, mjög
vand aðar og góðar skrifstofur á 3.
og 4. hæð. Húsnæðið uppfyllir allar
kröfur til nútíma skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu traustra aðila. Sann-
gjörn leiga fyrir rétta aðila.
www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
s. 588 4477 eða 899 9271
Í TILEFNI útsöluloka standa kaup-
menn Kringlunnar og Smáralindar fyr-
ir götumörkuðum um helgina þar sem
efalítið er unnt að gera góð kaup.
Líf og fjör var á báðum stöðum í
gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
var á ferðinni, en markaðirnir hafa
staðið frá því á fimmtudag.
Ýmislegt er á boðstólum, m.a. hand-
verksmarkaður í Smáralind þar sem
um 20 konur selja verkin sín, en auk
þess eru flestar verslanir með tilboð á
vörum sínum.
Flestar verslanir Kringlunnar bjóða
einnig betri kjör en oft áður enda
segja aðstandendur að fullt hafi verið
út úr dyrum allt frá því á fimmtudag.
Líf og fjör
á götu-
mörk-
uðum
Morgunblaðið/Jim Smart
Í nógu var að snúast í útsölunni í Smáralind.
Morgunblaðið/Arnaldur
Götumarkaður í Kringlunni.
HOLLENSKIR tómatar og agúrk-
ur eru á tilboði í Sparverslun við
Bæjarlind í Kópavogi á 98 krónur
kílóið, sem er að sögn verslunar-
stjórans, Ingva Guðmundssonar,
mun betra verð en víðast í versl-
unum þar sem eingöngu er selt ís-
lenskt grænmeti.
„Salan hefur gengið vel en við
erum með þessu að leggja áherslu
á að fólk hafi val. Lítið hefur verið
um það undanfarið. Nánast ein-
göngu hefur verið á boðstólum ís-
lenskt grænmeti og í auglýsingum
íslenskra framleiðenda undanfarið
er gefið í skyn að það sé betra en
annað. Við viljum leyfa neytendum
að dæma sjálfir.“
Innkaupsverð á hollenska græn-
metinu er mun lægra en það ís-
lenska að sögn Ingva. „Við seljum
samt allt á sama verði, hvort sem
það er íslenskt eða hollenskt.
Flestar matvöruverslanir selja
annaðhvort erlenda tómata og ág-
úrkur eða íslenska en við seljum
oft hvort tveggja.“
Ómerktir tómatar
í grænmetisborði
Ekki stendur á umbúðum hvort
um er að ræða erlenda eða íslenska
tómata, og þeir eru seldir úr sama
grænmetisborði, ómerktir hjá
Sparversluninni. Ekki er þó bland-
að saman hollenskum og íslenskum
tómötum.
Ingvi segir slíkt yfirleitt við-
gangast í matvöruverslunum.
„Umbúðir á ágúrkum eru merktar
framleiðendum en oft þurfa kaup-
endur einfaldlega að spyrja til þess
að fá upplýsingar um framleiðslu-
land.“
Sparverslun við Bæjarlind er
eina verslunin sem selur erlenda
tómata og agúrkur sem dreift er af
Mötu ehf. en leikskólar og fleiri
stofnanir hafa keypt hollensku
framleiðsluna þar sem hún er á
betra verði, að sögn Eggerts Á.
Gíslasonar, framkvæmdastjóra
Mötu.
Erlendir tómatar
og agúrkur á tilboði
Morgunblaðið/Þorkell
Erlendir tómatar og agúrkur eru á tilboði.