Morgunblaðið - 10.08.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 29
ALLIR kvikmyndaáhugamenn
elska tilfinninguna þegar þeim
finnst svo yfirmáta gaman í bíó að
þeir geta ekki setið á sér en hnippa
iðandi í skinninu í sessunautinn og
segja sem svo:
„Sástu þetta!“
Þá er toppinum náð og þannig er
Minority Report sem óhætt er að
fullyrða að er a.m.k. ein besta
mynd þessa árs, og telst í hópi
þéttustu verka Stevens Spielberg
og þá erum við að tala um stórvirki
á borð við Jaws og E.T.
Líkt og Blade Runner og Total
Recall, tveir af minnisstæðustu
framtíðartryllum kvikmyndasög-
unnar, er M.R. byggð á smásögu
eftir Philip K. Dick. Ásamt skot-
heldum leikhóp skapar úrvals-
mannskapur á öllum póstum eina
snjöllustu og áhrifaríkustu afþrey-
ingu síðari ára, bæði vitræn og
spennandi og kemur með forvitni-
lega sýn inní framtíðina. Mest er
um vert að hún er frumleg og
óvænt. Því getur maður tæpast
setið kyrr þegar hún fangar mann
gjörsamlega og hrífur með sér um
ónumin lönd kvikmyndanna líkt og
Hringadróttinssaga: Föruneyti
hringsins, The Others og örfáar
aðrar.
Þrátt fyrir að myndin gerist eftir
52 ár er M.R. í eðli sínu einka-
spæjaramynd þar sem andi Chand-
lers svífur yfir vötnunum. Sögu-
sviðið er Washington D.C., sem
hefur á síðustu sex árum breyst úr
einni illræmdustu borg Bandaríkj-
anna í þá öruggustu þar sem alvar-
leg afbrot eru nánast úr sögunni.
Breytingin er að þakka nýjum for-
vörnum, Glæpavörnum (Pre-
crime), deild innan lögreglunnar
sem hefur það hlutverk að koma í
veg fyrir afbrot áður en þau eru
framin. Starfsemin byggist á tækni
sem veitir deildinni upplýsingar
um óunnin ódæðisverk. Þegar ein-
hver er í glæpahug fer búnaðurinn
af stað, ræsir út lögregluvaktina,
staðsetur vettvanginn og laganna
verðir mæta með vopn sín á lofti
rétt áður en ódæðið gerist.
Forvarnarstarfið hefur vakið
mikla athygli og eignast sína öf-
undarmenn. Yfirstjórn þess er í
höndum Lamars Burgess (Max von
Sydow), en nánasti samstarfsmað-
ur hans og vinur, John Anderton
(Tom Cruise), fer fyrir löggæslu-
sveitunum. Starfsemin hefur geng-
ið vel og markvisst uns Danny Wit-
wer (Colin Farrell), erindreki
Alríkislögreglunnar, mætir á svæð-
ið. Anderton og hans fólk er að búa
sig undir að afstýra morði í upp-
siglingu þegar Witwer tilkynnir
Anderton að það sé hann sjálfur
búninga- og sviðs-
myndahönnuðirnir
skapa nýja viðmiðun í
gerð slíkra mynda,
teygja sig margoft
langt fram úr samtíð-
armönnum sínum í
kvikmyndaborginni.
Hér eru atriði sem
taka öllu fram sem við
höfum áður séð í hlið-
stæðum myndum. Það
segir sitt um fyrr-
nefnda blöndu manna
og véla að mögnuðustu
atriðin eru annars veg-
ar þegar hinn hundelti
Anderton á í höggi við
ógnvekjandi einfaldan
leitarbúnað framtíðar-
innar og hinsvegar þar
sem hann nýtur full-
tingis sjáandans.
Sviðsmyndir og
-búnaður eru sláandi
en nytu sín ekki ef
mannlegi þátturinn
væri ekki til staðar í
handriti og öflugum
leik. Tom Cruise er
hinn ókrýndi konungur
kvikmyndanna eftir
kröftuga burðarvinnu í
stóru og krefjandi
hlutverki sem hann
leysir óaðfinnanlega. Hann er nán-
ast alltaf í mynd og slær aldrei feil-
nótu. Farrell hinn ungi er upp-
rennandi stjarna og gefur Cruise
lítið eftir, skapar grunsamlegan
náunga sem áhorfandinn er aldrei
fyllilega öruggur um hvaða hvatir
knýja áfram. Samantha Morton og
Max von Sydow eru tveir aðrir
öruggir burðarstólpar í frábærri
fléttu tilfinninga og tæknibúnaðar
og sigur fyrir alla viðkomandi.
Fullkomlega ómissandi, spennandi
og aðgengileg mynd, þótt við skjót-
umst inn í framtíðina.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó, Nýja bíó Keflavík,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Steven Spielberg. Handrit:
Scott Frank og Jon Cohen, byggt á smá-
sögu eftir Philip K. Dick. Kvikmyndatöku-
stjóri: Janusz Kaminski. Tónlist: John
Williams. Aðalleikendur: Tom Cruise,
Colin Farrell, Max von Sydow, Samantha
Morton, Peter Stormare, Louis Smith,
Tim Blake Nelson. Sýningartími 145 mín.
20th Century Fox/DreamWorks. Banda-
ríkin 2002.
MINORITY REPORT (MISFÆRSLUSKRÁR)
Magnaður
framtíðartryllir
Sæbjörn Valdimarsson
Ein besta mynd Spielbergs, segir í umsögn
gagnrýnanda um Minority Report.
sem búnaðurinn segir hinn verð-
andi morðingja.
Anderton veit að hér er eitthvað
gruggugt, hann hefur ekkert illt á
prjónunum. Upphefst æsispenn-
andi atburðarás þar sem Anderton
leitar uppi vandfundnar undan-
komuleiðir og leitar á náðir mann-
legs þáttar forvarnarbúnaðarins,
sjáandans Agötu (Samantha Mor-
ton), og Burgess vinar síns.
Þannig er M.R. í bland ógnvekj-
andi framtíðarsýn og gamalkunn-
uglegur glæpareyfari á rökkur-
nótunum. Hátækniundrin og
mannlegi þátturinn. Spielberg og
LAURA Brooks Rice heldur nám-
skeið fyrir söngvara og lengra
komna nemendur í Söngskólanum
í Reykjavík dagana 19.–26. ágúst.
Laura Brooks Rice er prófessor í
söng og óperutúlkun við West-
minster Choir College í Princeton
í Bandaríkjunum, sem er einn
virtasti tónlistarháskóli Banda-
ríkjanna. Hún er nú yfirmaður
söngdeildarinnar og hefur einnig
skipulagt og annast sumarnám-
skeið skólans fyrir unga upprenn-
andi söngvara. Hún hefur sjálf
sungið við helstu óperuhús
Bandaríkjanna, m.a. Metropolit-
an-óperuna.
Á námskeiðinu verður boðið
upp á einkatíma án áheyrnar og
einnig söngtíma og hóptíma
„Master-class“. Einnig er boðið
upp á áheyrnarþátttöku í hóptím-
unum og söngtímum síðari hluta
dags.
Námskeiðinu lýkur með tón-
leikum sunnudaginn 26. ágúst.
Tónleikar með Lauru Brooks
og Richard Simm píanóleikara
verða í Salnum miðvikudaginn
21. ágúst kl. 20.
Upplýsingar og skráning á
námskeiðið er hjá Margréti Bóas-
dóttur söngkonu.
Námskeið
fyrir
söngvara
DILBERT
mbl.is