Morgunblaðið - 10.08.2002, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 49
FARANDSÝNING Handverks og
hönnunar verður opin í Pakkhúsinu
í Ólafsvík í ágúst. Sýningin byggist
á fimm sýningum sem Handverk og
hönnun hélt í sýningarsal sínum í
Aðalstræti 12 á síðasta ári.Verk-
efnið hlaut Menningarverðlaun DV
2002 í listhönnun fyrir þessar sýn-
ingar.
Sýningarferðalagið hófst í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði í júlí en sýn-
ingin var opnuð miðvikudaginn 7.
ágúst í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Opið
verður alla daga kl. 9 til 19 og mun
sýningin standa til laugardagsins
31. ágúst.
Ferðalagið heldur síðan áfram
og sýningarstaðirnir í haust og vet-
ur verða m.a. Reykjanesbær, Akur-
eyri, Skriðuklaustur og Hvera-
gerði.
Á sýningunni er fjölbreytt hand-
verk og listiðnaður eftir 25 aðila.
Þeir sem sýna eru: Anna Þóra
Karlsdóttir, Arndís Jóhannsdóttir,
Ásta Guðmundsdóttir, Bjarni Þór
Kristjánsson, Dröfn Guðmunds-
dóttir, Elísabet Haraldsdóttir, Guð-
rún Gunnarsdóttir, Guðlaug Hall-
dórsdóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún
Indriðadóttir, Hildur Bolladóttir,
Hulda B. Ágústsdóttir, Ingiríður
Óðinsdóttir, Kristín Sigfríður Garð-
arsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Mar-
grét Guðnadóttir, Margrét Jóns-
dóttir, Margrét Þórarinsdóttir,
Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ragna
Fróðadóttir, Ragnheiður I. Ágústs-
dóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir,
Unnur Knudsen og Þórhildur Þor-
geirsdóttir.
Handverk
og hönnun í
Pakkhúsinu
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Gestur á sýningunni virðir fyrir sér handverk.
Ólafsvík. Morgunblaðið.
115 KEPPENDUR þreyttu Vatns-
mýrarhlaup á vegum maraþonsl-
iðs Sri Chinmoy á fimmtudag þar
sem hlaupinn var 5 km hringur í
miðbæ Reykjavíkur. Hlaupið var
þreytt í sjöunda skipti.
Margir æfa nú af kappi fyrir
Reykjavíkurmaraþon sem haldið
verður 17. ágúst og stefnir í þátt-
töku allt að 200 erlendra hlaup-
ara sem er álíka mikill fjöldi og
undanfarin ár. Skráning íslenskra
keppenda hefst mánudaginn 12.
ágúst og verða ýmsar vegalengd-
ir í boði, allt frá 3 km skemmti-
skokki upp í Maraþon.
Vatnsmýr-
arhlaup í
Reykjavík
Morgunblaðið/Þorkell
Í DAG, laugardag, frumsýnir
Brimborg nýjan bíl frá Citroën.
Bíllinn heitir Citroën C3 og kom á
markað í Evrópu fyrr í sumar. Hér
er um rúmgóðan og vel búinn smá-
bíl að ræða sem hefur fengið ein-
róma lof gagnrýnenda fyrir frá-
bæra hönnun og góða aksturs-
eiginleika, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Citroën C3 er fimm dyra, hann
kostar frá 1.389 þús. kr. og fæst
bæði beinskiptur og sjálfskiptur.
Nánari upplýsingar fást á
www.brimborg.is. Boðið verður
upp á reynsluakstur í dag, laug-
ardag, milli klukkan 13 og 17.
Í DAG, laugardaginn 10. ágúst kl.
14–16 eru allir krakkar boðnir vel-
komnir á krakkadag í Alviðru.
Guðjón Magnússon, náttúruunn-
andi og fræðslufulltrúi Landgræðslu
ríkisins, stýrir dagskrá.
Á dagskrá verða skemmtilegir
náttúruleikir og verkefni sem reyna
bæði á hug og hönd og allir eru með.
Boðið verður upp á kakó og kleinur.
Þátttökugjald er 500 kr. Allir eru
velkomnir.
Krakkadagur
í Alviðru
ALLAR helgar í ágústmánuði
verður ratleikur í boði fyrir gesti
þjóðgarðsins. Ratleikurinn verður
í gangi allar helgar, frá föstudegi
til sunnudags, og er hægt að hefja
hann hvenær sem er dagsins en öll
gögn og vísbendingablöð varðandi
leikinn eru afhent í þjónustumið-
stöðinni á Leirunum.
Í dag, laugardag, verður göngu-
ferð þar sem lífríki Þingvallavatns
verður meginviðfangsefni. Hugað
verður að margbrotnu lífríki
vatnsins og tengslum þess við
jarðfræði vatnasviðsins en safnast
verður saman við brúna yfir Öxará
við Hótel Valhöll klukkan 13.00.
Sunnudaginn 11. ágúst verður
guðsþjónusta í Þingvallakirkju og
að venju verður þinghelgarganga
þar sem farið verður um þingstað-
inn forna og saga þings og þjóðar
reifuð. Þinghelgargangan hefst
klukkan 15.00 við kirkju.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
er ókeypis og öllum opin en nánari
upplýsingar um dagskrána veita
landverðir í þjónustumiðstöð og á
heimasíðu þjóðgarðsins,
www.thingvellir.is,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Ratleikur á
Þingvöllum
SUNNUDAGINN 11. ágúst efnir
Ferðafélag Íslands til gönguferðar
um Drumbsdalaveg í samstarfi með
Umhverfis- og útivistarfélagi Hafn-
arfjarðar.
Drumbsdalavegur er forn og
fyrrum fjölfarin þjóðleið milli Vig-
dísarvalla og Krýsuvíkur. Drumbs-
dalavegur er syðri hluti þjóðleiðar
milli Krýsuvíkur og Vatnsleysu-
strandar en nyrðri hlutinn, frá Vig-
dísarvöllum að Vatnsleysuströnd,
heitir Þórustígur og dregur nafn af
Þórustöðum á Vatnsleysuströnd.
Drumbsdalavegur liggur frá Vigdís-
arvöllum, um Fremri-Velli, yfir
Drumbsdali í Sveifluhálsi og norðan
við Bæjarfell að Krýsuvíkurkirkju,
þar sem göngunni lýkur.
Þarna lá meginleiðin milli Krýsu-
víkur og Vatnsleysustrandar og því
fjölfarin því menn áttu mörg erind-
in þvert yfir skagann. Meðal annars
áttu bændur í Krýsuvík ítök á
Vatnsleysuströnd og síðan gagn-
kvæmt og menn stunduðu útræði
frá báðum stöðum eftir aðstæðum
hverju sinni. Fararstjóri verður
Jónatan Garðarsson, brottför í
þessa ferð er kl. 10.30 með viðkomu
í Mörkinni 6 og austan við kirkju-
garðinn í Hafnarfirði. Þátttökugjald
er 1.500 krónur fyrir félagsmenn en
1.800 fyrir aðra. Áætlað er að gang-
an taki 3–4 klst., þetta er fremur
þægileg leið, aðeins á fótinn upp á
Sveifluhálsinn og svo undan fæti
niður af honum aftur en annars að
mestu á sléttlendi, segir í frétta-
tilkynningu.
Drumbsdala-
vegur á Reykja-
nesskaga
Brimborg
frumsýnir nýjan
bíl frá Citroën
VIÐEY er náttúruparadís og
griðastaður fyrir þá sem vilja
komast í rólegt umhverfi fjarri
skarkala borgarinnar, segir í
fréttatilkynningu. Þar er að finna
kindur og lömb, hesta og folöld,
auk ýmissa tegunda fugla og unga
þeirra, sumir sjaldséðari en aðrir.
Að auki er stórbrotið útsýni frá
eynni til allra átta.
Hjól eru lánuð endurgjaldslaust
við bryggjusporðin í Viðey, háð því
skilyrði að þeim sé skilað á sama
stað eftir notkun. Einnig er hægt
að tjalda ókeypis í eynni að gefnu
samráði við ráðsmann. Að auki
verður opin kaffisala í Viðeyjar-
stofu alla helgina frá kl. 13:00–
17:00.
Í Viðeyjarferjuna kostar kr. 500
fyrir fullorðna og kr. 250 fyrir
börn og hefjast áætlunarferðir
hennar kl. 13:00 og lýkur 17:30.
Líflegt í
Viðey um
helgina
Í DAG, laugardaginn 10.
ágúst, mun fána tvíkyn-
hneigðra verða flaggað í
fyrsta sinn á Íslandi. Sam-
kvæmt heimildum frá hönn-
uði fánans, Michael Page,
verður Ísland sjöunda landið
þar sem fána tvíkynhneigðra
er flaggað í PRIDE/hinsegin
göngu.
Fána tvíkynhneigðra hefur
til þessa einungis verið flagg-
að í Kanada, Bandaríkjunum,
Svíþjóð, Bretlandi, Ítalíu og
Ástralíu.
Fáninn er í þrem litum,
bleikum, fjólubláum og dökk-
bláum. Bleiki liturinn vísar til
bleika þríhyrningsins sem
nasistar létu fólk, bendlað við
samkynhneigð, sauma á föt
sín. Dökkblái liturinn vísar til
gagnkynhneigðar, en það er
vísun í eldra tákn tvíkyn-
hneigðra sem bleikur og blár
þríhyrningur sem skerast og
mynda því saman fjólubláan
lit – en fjólublái liturinn tákn-
ar því tvíkynhneigð. Myndir
af fánanum er hægt að nálg-
ast á www.biflag.com, segir í
fréttatilkynningu.
Fáni
tvíkyn-
hneigðra
HEIMARAFSTÖÐIN í Skaftafelli
verður endurvígð í dag, laugardaginn
10. ágúst, klukkan 14. Af því tilefni
býður þjóðgarðurinn til móttöku við
þjónustumiðstöðina í Skaftafelli. At-
höfnin hefst á að því að afhjúpað
verður fræðsluskilti, síðan verður
gengið að heimarafstöðinni og hún
ræst.
„Í byrjun síðustu aldar vaknaði al-
mennur áhugi á rafmagni og nýtingu
vatnsafls til raforkuframleiðslu.
Nokkrir ungir hugvitsmenn í Skafta-
fellssýslum, s.s. Bjarni Runólfsson í
Hólmi, Eiríkur Björnsson frá Svína-
dal, Helgi Arason á Fagurhólsmýri
og Skarphéðinn Gíslason á Vagnstöð-
um, náðu á undra skömmum tíma að
tileinka sér næga kunnáttu til þess að
smíða túrbínur, setja upp vatnsafls-
virkjanir og ganga frá raflögnum.
Þeir hagnýttu sér margvíslegt smíða-
efni sem náðist í land af þeim fjöl-
mörgu skipum sem strönduðu á sand-
fjörunum út af sveitunum. Það sem
þeir ekki gátu smíðað sjálfir pöntuðu
þeir erlendis frá.
Í Öræfum var fyrsta rafstöðin
gangsett árið 1922 og á næstu 7 árum
risu 11 stöðvar til viðbótar. Í Skafta-
felli voru tvær heimarafstöðvar, ein
við Hæðabæinn og hin í Vestragil.
Heimarafstöðin í Vestragili var gang-
sett árið 1925 og framleiddi rafmagn
fyrir Bölta og Sel, stærð hennar var
3,45kW, en hún nýtir aðeins hluta
heildarrennsli Stóralækja. Virkjunin
fellur því mjög vel að landslaginu og
hún er ánægjulegt dæmi um nær-
gætnislega orkuöflun í fögru um-
hverfi. Rafstöðin var starfrækt fram
á árið 1973 og hafði þá gengið í tæp-
lega hálfa öld.
Árið 2001 var hafist handa við að
gera heimarafstöðina upp. Raforku-
fyrirtækin Landsvirkjun og Raf-
magnsveitur ríkisins lögðu fé til
framkvæmdanna og Þjóðminjasafn
Íslands kom með góðar ábendingar
um endursmíði á stöðvarhúsinu.
Endursmíðin var unnin af Skaftfell-
ingum.
Virkjunin er góður fulltrúi þeirra
fjölmörgu smávirkjana sem risu víða
um sveitir á fyrri hluta síðusu aldar,
en þær gjörbreyttu híbýlum manna
með reyklausri birtu og yl. Rafstöðin
er látin framleiða rafmagn yfir sum-
armánuðina og er almenningi til sýn-
is,“ segir í fréttatilkynningu frá þjóð-
garðsverði í Skaftafelli.
Í tilefni af 35 ára afmæli þjóðgarðs-
ins verður opnuð ljósmyndasýning í
Skaftafellsstofu, þar verða sýndar
myndir frá lífinu í Skaftafelli á sjötta
áratugnum. Ljósmyndirnar eru tekn-
ar af Laufeyju Lárusdóttur í Freys-
nesi. Athöfnin hefst klukkan 15.30.
Heimarafstöðin í
Skaftafelli endurvígð
ÁRLEG fjölskylduganga Félags
hjartasjúklinga á Vesturlandi verður í
dag kl. 14. Gengið verður á Eldborg í
Hnappadalssýslu. Gengið er frá og
mæting er við Snorrastaði í Kolbeins-
staðahreppi. Í leiðinni að Eldborg er
gengið í gegnum fallegt hraun og geta
allir notið landslagsins og gengið eins
langt og fólk vill og getur. Að lokinni
göngu verður grillað saman og eru
allir velkomnir að vera með.
Hjartaganga
á Eldborg