Morgunblaðið - 10.08.2002, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2002 53
DAGBÓK
Nokkrir lausir veiðidagar í næstu
viku, mánudag til föstudags
Eingöngu fluguveiði
Langá á Mýrum
Upplýsingar
í síma 864 2879,
899 2878
eða 437 23777.
MÖGNUÐ
ÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
50-70%
AFSLÁTTUR
Kringlunni - sími 581 2300
Danirnir Andreas Mar-
quardsen og Martin Schaltz
hlutu verðlaunin fyrir bestu
sagnröðina á Evrópumóti
ungmenna. Það var þessi al-
slemma í laufi sem vakti
hrifningu dómnefndarinnar:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ 5
♥ ÁK98643
♦ --
♣ÁD863
Vestur Austur
♠ 83 ♠ KDG1094
♥ G5 ♥ D72
♦ KG9732 ♦ Á85
♣754 ♣G
Suður
♠ Á762
♥ 10
♦ D1064
♣K1092
Vestur Norður Austur Suður
Andreas Martin
– 1 hjarta 1 spaði Dobl *
Pass 4 lauf Pass 4 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 7 lauf Allir pass
Andreas opnar fyrst ró-
lega á einu hjarta og Martin
doblar innákomu austurs til
að sýna láglitina. Andreas
fastsetur þá tromplitinn
með fjórum laufum. Sögnin
er krafa og slemmuboð og
Martin meldar fyrirstöðu
sína í spaða. Það eru góð tíð-
indi fyrir norður sem spyr
nú um lykilspil með fjórum
gröndum. Martin sýnir tvö
slík og Andreas veit að þau
eru spaðaás og laufkóngur,
því suður hefur neitað tíg-
ulfyrirstöðu. Norður getur
þar með sagt sjö lauf af full-
komnu öryggi.
Fleiri pör náðu þessari al-
slemmu, en sería Dananna
er óneitanlega markviss og
stílhrein.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þrátt fyrir að þú lítir út
fyrir að vera glaðvær á
yfirborðinu ertu í raun
alvarlegur einstaklingur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarfnast þess að eiga
góðar stundir, ekki síst í
ljósi þess að sólin, Mars og
Júpiter hafa sterk áhrif á
stjörnumerki þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nýir hlutir geta orðið til
þess að fólki líður betur í
því umhverfi sem það
dvelur í. Finndu þér hlut
sem getur orðið til þess að
fegra heimili þitt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er enginn tími til þess
að slaka á því erilsamur
tími er framundan.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hafðu ekki áhyggjur af því
þó að þú eyðir meiri pen-
ingum en þú ætlaðir þér.
Þú getur átt von á því að
tekjur þínar muni aukast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er mikið lán fyrir þig
að Júpiter hafi áhrif á
stjörnumerki þitt. Í fyrsta
skipti í 12 ár leikur gæfan
við þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur mikla þörf fyrir
að tjá þig um ákveðna
hluti. Ekki halda aftur af
þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt eftir að fara í krefj-
andi ferð með góðum vin-
um. Þú átt eftir að koma
endurnærð/ur til vinnu að
lokinni ferðinni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu tilraun til þess að fá
ábendingar frá einhverj-
um sem býr yfir meiri
reynslu, til dæmis foreldr-
um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að spara pen-
ingana, því framundan eru
tækifæri til þess að ferðast
til staða sem þú hefur
aldrei áður komið til.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vertu á varðbergi gagn-
vart ókunnugum sem vilja
ráða þér heilt eða vilja
njóta krafta þinna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þessi dagur er kjörinn til
þess að kynnast nýju fólki
eða hefja samningavið-
ræður í starfi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Haltu áfram að starfa með
sama hætti og áður. Áður
en langt um líður mun
atorka þín skila sér í auk-
inni hæfni og vekja athygli
annarra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓN
80 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 12. ágúst
verður áttræður Sigurður
Gíslason, byggingameist-
ari, tæknifræðingur og
trillukarl á Hóli 2, Bolung-
arvík. Hann býður vinum og
vandamönnum til fagnaðar í
bátaskemmunnni á Hóli 2
laugardaginn 10. ágúst eftir
kl. 20.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 11. ágúst, er fimmtug
Anna María Eyjólfsdóttir,
Heiðarbrún 42, Hvera-
gerði. Af því tilefni munu
Anna María og eiginmaður
hennar, Ólafur Reynisson,
halda ættingjum og vinum
teiti í garðinum við heimili
sitt í kvöld, laugardag 10.
ágúst kl. 20–24. Gestir hafi
peysu meðferðis.
LJÓÐABROT
Æskuást
Hví leitar það hljómdjúpi hörpunnar frá,
sem helzt skyldi í þögninni grafið?
Ég kalla þó aldrei þá sól úr sjá,
sem sefur á bak við hafið!
- - -
Ég er eins og kirkja á öræfa tind,
svo auð sem við hinzta dauða,
þó brosir hin heilaga Maríumynd,
þín minning, frá vegginum auða.
Sakleysið hreint eins og helgilín
var hjúpur fegurðar þinnar,
sem reykelsisilmur var ástin þín
á altari sálar minnar.
Þú hvarfst mér, og burt ég í fjarska fór,
en fann þig þó, hvert sem ég sneri,
sem titrandi óm í auðum kór
og angan úr tómu keri.
Jónas Guðlaugsson.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. e3 O-O 5. Bd3 d5 6.
Rge2 dxc4 7. Bxc4 c5 8.
O-O b6 9. a3 Bxc3 10. Rxc3
Bb7 11. dxc5 Dc8 12. De2
Dxc5 13. e4 Rc6 14. Be3
Rd4 15. Bxd4 Dxd4 16.
Had1 De5 17. f4 Dc5+ 18.
Kh1 Had8 19. Bd3 e5 20.
fxe5 Dxe5 21. Hf5 De6 22.
Hdf1 Hd4 23. Rb5
Staðan kom upp í A-
flokki skákhátíðarinnar í
Pardubice í Tékklandi sem
lauk fyrir skömmu. Heims-
meistari 20 ára og yngri,
Ungverjinn Peter Acs
(2560), hafði svart gegn
Vincent Colin (2293). 23...
Hxd3! 24. Dxd3 Bxe4 25.
Dc3 Bxf5 26. Rd4 Hc8 27.
Db4 Dd5 og hvítur gafst
upp enda verður hann
manni undir eftir 28. Rxf5
Dxf5!. Lokastaða efstu
manna varð
þessi: 1.–7.
Vladislav
Borovikov
(2570), Pet-
er Acs
(2560),
Zbynek
Hracek
(2600), Di-
mitry Jako-
venko
(2552), Va-
lery Neve-
rov (2587),
Ernesto In-
arkiev
(2545) og
Vladimir
Burmakin
(2574) 7
vinninga af 9 mögulegum.
Málþing um Einvígi ald-
arinnar, heimsmeistaraein-
vígi Bobby Fischers og
Borisar Spassky 1972, fer
fram í dag, 10. ágúst í Þjóð-
menningarhúsinu. Það
hefst kl. 13.30 og er gert
ráð fyrir að því ljúki kl.
17.30.
Allir skákáhugamenn
eru hvattir til að mæta
enda eru fyrirlesararnir
ekki af verri endanum en
þeir eru: Boris Spassky,
Lothar Schmid, og Guð-
mundur G. Þórarinsson. Að
erindum þeirra loknum
verða pallborðsumræður
sem Friðrik Ólafsson mun
stýra.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik
Ég geng út frá því að
þetta sé EKKI fyrsta
stökkið þitt!!
Láttu sem þú takir
ekki eftir honum ...