Morgunblaðið - 11.10.2002, Page 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 19
NEMENDUR og starfsfólk fram-
haldsskólanna á Akureyri, MA og
VMA, þreyttu árlegt Brunnárhlaup
í vikunni. Þrátt fyrir blíðskap-
arveður voru þátttakendur heldur
færri nú en oft áður. Frá MA komu
um 120 þátttakendur en aðeins um
60 frá VMA, segir á heimasíðu MA.
Allmargir hlupu, aðrir skokkuðu
og enn aðrir gengu þennan spöl,
sem er 4,4 km. MA hlaut bikarinn
fyrir heildarfjölda þátttakenda.
Þrír fyrstu hlaupararnir karla-
flokki eru í MA og í hópi tíu fyrstu
manna voru fleiri úr MA. Nem-
endum VMA vegnaði hins vegar
betur í kvennaflokki. Hjá starfs-
fólki var árangur afar góður en þar
hafði VMA betur.
Morgunblaðið/Kristján
Margir hlupu
í Brunnár-
hlaupi
FÉLAG málmiðnaðarmanna Akur-
eyri stóð fyrir félagsfundi í vikunni
þar sem samþykkt var tillaga þess
efnis að hvetja alla Norðlendinga til
að taka höndum saman og beita sér
af alefli fyrir því að stóriðja rísi við
Eyjafjörð. Löngu sé orðið ljóst að
Eyjafjarðarsvæðið vanti fleiri sókn-
arfæri á sviði atvinnumála.
Ennfremur segir í tillögunni að
Eyjafjarðarsvæðið með Akureyri í
broddi fylkingar sé eini staðurinn á
landinu þar sem möguleiki sé að
mynda öflugt mótvægi við höfuð-
borgarsvæðið. Það er hagsmunamál
Norðlendinga og Austfirðinga að
Akureyri verði efld á öllum sviðum
og fagnar félagið því sérstaklega
þeirri umræðu sem komin er í gang
um byggingu stóriðju við Eyjafjörð.
Fundurinn leggur áherslu á verndun
lífríkisins við fjörðinn og skorar því á
alla sem að málinu koma að horfa á
sóknarfærin sem stóriðja í Eyjafirði
skapar og taka höndum saman um
framkvæmdina og leysa þau vanda-
mál sem upp kunna að koma.
Þá var samþykkt á fundinum að
færa Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra 300
þúsund krónur að gjöf – til eflingar
þjálfunarmiðstöðvar fyrir misþroska
og fötluð börn. Einnig samþykkti
fundurinn að færa Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri hálfa milljón
króna að gjöf til kaupa á hjartaóm-
tæki.
Hvetja til að stóriðja
rísi við Eyjafjörð
KARLAKÓRINN Fóstbræður
er í heimsókn á Norðurlandi
þessa dagana og heldur tónleika
á Dalvík, í Aðaldal og á Akur-
eyri. Fyrstu tónleikarnir eru í
Dalvíkurkirkju í kvöld kl. 20.30
og mun Karlakór Dalvíkur einn-
ig taka lagið á tónleiknum.
Á morgun, laugardag, eru
tónleikar í Ýdölum í Aðaldal kl.
16.00 og þar mun Karlakórinn
Hreimur einnig syngja fyrir við-
stadda. Á sunnudag halda Fóst-
bræður tónleika í Akureyrar-
kirkju kl. 16.00 en þar munu
einnig koma fram gamlir
Geysismenn í tilefni 80 ára af-
mælis Karlakórsins Geysis.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt með innlendum og er-
lendum kórverkum. Með kórn-
um koma fram Stefán Helgi
Stefánsson tenór, Smári S. Sig-
urðsson bassi og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir píanóleikari.
Söngstjóri Fóstbræðra er Árni
Harðarson.
Tónleika-
ferð um
Norðurland
Karlakórinn
Fóstbræður
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
80
9
1
0/
20
02
COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ Það hefur
aldrei verið hagkvæmara en nú að eignast nýjan Corolla, bíl ársins 2002.
Komdu strax og reynsluaktu vinsælasta bíl á Íslandi, fyrr og síðar, og þú finnur
hver ástæðan er. Verð frá 1.599.000. www.toyota.is.
„Þeir hafa aldrei bilað.“
Ég hef átt Corolla frá 1991 og var mjög
ánægð með eldri gerðina, en fann mikla
breytingu til batnaðar á nýja bílnum. Hann er
stöðugur, þéttur í akstri og mjög þægilegur innan
bæjar. Corolla bílarnir mínir hafa heldur aldrei
bilað né þurft að fara á verkstæði, sem er
óneitanlega mikill kostur.
Vegna starfsins er ég oft með mikinn farangur
sem kemst auðveldlega fyrir í bílnum og svo fer
liturinn líka einstaklega vel við „uniformið“ mitt!
Sólveig Níelsdóttir
Flugfreyja
…og þú finnur af hverju!
Bíll ársins 2002
REYNSLU
AKSTUR
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
SKYRTUR
MEÐ EXTRA
LÖNGUM ERMUM