Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 27 TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að leysa heimastjórnina á Norður- Írlandi upp nk. mánudag, að því er fullyrt var á fréttasíðu BBC í gær. Þetta yrði í fjórða sinn sem stjórnin er leyst upp frá því að gert var friðarsamkomulag á N- Írlandi árið 1998 en tilefnið að þessu sinni eru ásakanir um að embættismenn Sinn Féin, stjórnmálaarms Írska lýðveld- ishersins (IRA) hafi sankað að sér viðkvæmum gögnum á skrifstofum heimastjórnarinn- ar. Fyrr í gær hafði Blair fundað með Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin. Sagði hann eftir fundinn að ofbeldisverk, sem lýðveldissinnar stæðu fyrir, væru enn of algeng. Adams tjáði Blair hins vegar að það yrði ekki til bóta fyrir friðarferl- ið á N-Írlandi ef Blair tæki aft- ur við beinni stjórn héraðsins; og enn síður ef orðið yrði við kröfum sambandssinna að vísa ráðherrum Sinn Féin úr stjórn- inni. Útiloka ekki hryðjuverk HÁTTSETTUR embættismað- ur í Jemen sagði í gær, að ekki væri hægt að útiloka, að um hryðjuverk hefði verið að ræða þegar sprenging varð í frönsku olíuskipi. Þá voru óstaðfestar fréttir um, að franskir sérfræð- ingar teldu, að ráðist hefði verið á skipið. Embættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði, að vissulega væri hugs- anlegt, að hryðjuverkamenn hefðu verið að verki og væri verið að skoða það ásamt öðru. Þykja þessi ummæli athyglis- verð vegna þess, að yfirvöld í Jemen hafa hingað til þvertekið fyrir hugsanlegt hryðjuverk. Handtaka í Hamborg LÖGREGLAN í Hamborg í Þýskalandi handtók í gær mar- okkóskan mann, Abdelghani Mzoudi, vegna gruns um að hann hafi aðstoðað ýmsa hryðjuverkamannanna, sem stóðu fyrir árásunum á Banda- ríkin 11. september í fyrra. Leiðtogi þeirra, Mohamed Atta, bjó einmitt um tíma í Hamborg. Átti Mzoudi að sögn í samskipt- um við marga liðsmenn Ham- borgar-sellunnar og dvaldist í æfingabúðum al-Qaeda í Afgan- istan sumarið 2000. STUTT Heima- stjórnin leyst upp? ÍSRAELSKUR rútubílstjóri og sjúkraliði sneru í gærmorgun pal- estínskan sjálfsmorðssprengju- mann í jörðina er það uppgötvaðist að hann bæri sprengju innanklæða og komu sér og farþegum stræt- isvagnsins – sem flestir voru ísr- aelskir hermenn – undan áður en maðurinn sprengdi sig í loft upp. Árásarmaðurinn og öldruð kona létu lífið og fjórir særðust. Sprengjumaðurinn reyndi fyrst að stíga um borð í vagninn á stoppistöð við Bnei Brak, sem er eitt úthverfa Tel Aviv, þar sem margt var um manninn. Maðurinn missté sig og datt á stéttina við hliðina á vagninum, hugsanlega undan þunga sprengjubeltisins sem hann bar um sig miðjan. Bíl- stjórinn og sjúkraliðinn ætluðu að fara að hjálpa manninum þegar þeir sáu glitta í sprengjubeltið. Hamas hótaði hefndum Á Gazasvæðinu voru tveir pal- estínskir drengir, 12 og 17 ára, drepnir er ísraelskir hermenn og palestínskir byssumenn skiptust á skotum í gær. Alls hafa 20 Palest- ínumenn látið lífið í átökum á Gaza í þessari viku. Enginn hafði lýst ábyrgð á sjálfsmorðssprengjutilræðinu í gær. Hamas-hreyfing róttækra Palestínumanna hafa lýst því yfir að þau muni hefna árásar Ísr- aelshers á bæinn Khan Younis á Gazasvæðinu í vikunni, sem kost- aði 16 Palestínumenn lífið. Ismail Abu Shanab, einn tals- maður Hamas, sagðist ekki vita hver staðið hefði að baki tilræðinu í gær, en áréttaði að „andspyrna mun halda áfram með öllum leið- um unz við höfum okkar rétt fram.“ Tilræði í Tel Aviv Tel Aviv. AP. Tveir drengir drepnir á Gaza KOSNINGAR fóru fram í Pak- istan í gær, og er þeim ætlað að binda enda á þriggja ára stjórn- artíð hersins og koma aftur á borgaralegri stjórn. Hefur Pervez Musharraf forsætisráð- herra heitið því að hann muni fela stjórnartaumana þeim sem hlýtur kosningu. Útlit var fyrir að þátttaka í kosningunum væri dræm, en um 72 milljónir eru á kjörskrá og um 100 flokk- ar bjóða fram. Að minnsta kosti fjórir létust í átökum er brutust út á nokkrum stöðum í landinu. Kosið í Pakistan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.