Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 33 Allt í gildi! ekkert brudl- afsláttur við kassann Úrbeinaðar ferskar kjúklingabringur Verð nú Merkt verð 2025 1316kr.kg kr. Ferskir kjúklingaleggir Verð nú Merkt verð 519kr.kg kr.799 T ilb oð in gi ld a í da g, fö st ud ag eð a á m eð an bi rg ði r en da st L a n d lis t Kjúklingar á góðu verði! Opnum klukkan tíu! Opið til hálf átta í kvöld SKÖMMU eftir heimsstyrjöldina síðari komu fram þrjár hreyfingar afstrakt listamanna sem höfnuðu geómetríu og leituðu í tjáningu und- irmeðvitundar líkt og súrrealistar höfðu gert, en með öðrum hætti. Þessar stefnur höfðu talsverð áhrif á þróun myndlistar. Fremstir í flokki voru bandarísku afstrakt-expressj- ónistarnir, en Bandaríkjamenn höfðu sýnt yfirburði sína í stríðinu og var tími þeirra kominn til að sýna einnig yfirburði í myndlistarsköpun. Tachisminn var hreyfing franskra afstrakt-málara sem var áþekk þeirri bandarísku og CoBrA (Co= Kaupmannahöfn, Br= Brussel og A= Amsterdam) var hópur lista- manna aðallega frá Danmörku, Belgíu og Hollandi. Þótt CoBrA hóp- urinn teljist til afstrakt-listhóps unnu margir þeirra verk með barns- legum fígúrum og voru villtir í efn- istökum líkt og þeir vildu fanga hinn saklausa sköpunarkraft barna. Formlega var CoBrA hópurinn til frá árinu 1948–1951 og var íslenski listmálarinn Svavar Guðnason þeirra á meðal. Hefur CoBrA mál- verkinu verið viðhaldið æ síðan í Nið- urlöndum og Norðurlöndum af yngri málurum sem hafa leitað í samskon- ar form og efnistök. Einn þeirra er Óli G. Jóhannsson, en hann sýnir um þessar mundir í Galleríi Sævars Karls. Sýninguna nefnir hann „Að heiman og heim“ og segist hann sækja innblástur sinn í næsta um- hverfi við Eyjafjörðinn, til sjávar, landsins og veðurfarsins. Óli varð á sínum tíma fyrir áhrif- um af CoBrA málverkinu í Dan- mörku, en þar er hefðin rík. Einnig er hún sterk í Færeyjum og á Óli all- nokkra kollega þar sem leita á sömu mið. Þrátt fyrir tengsl Óla við Dan- mörku og Færeyjar minna efnistök hans helst á verk Belgans Pierre Alechinsky af upprunalegum CoBrA málurum og grófgerðar línuteikn- ingar sem hann notar í sum verkin til að forma af liti eru ekki ólík aðferð og Corneille notaði í eldri verkum sínum, en hann er einnig fæddur í Belgíu og hefur lengst af dvalið í Amsterdam. Óli lætur gjarnan einn lit, eða tilbrigði við lit, ráða í hverju málverki. Hann opnar þó ekki mynd- flötinn með litaflæmi heldur þjappar hann fletinum saman með línum og smáum þéttum formum. Inn á milli formanna glittir svo í aðra liti sem virðast vera að reyna að brjótast í gegn líkt og gróður í grjóthrúgu. Alls sýnir Óli 9 málverk, öll unnin með akríl á striga. Málverkin nefnir hann ljóðrænum titlum eins og „Haustið á slóð mína reið“, Vor- skúrum vakir“ og „Undir vindanna náð“. Þykir mér titlarnir heldur til- gerðarlegir í tengslum við þesshátt- ar form og efnistök. Hið sama er þó ekki að segja um sjálf málverkin. Þau eru mjög sannfærandi og hefur Óli náð góðum tökum á þeirri mál- arahefð sem hann tileinkar sér. Morgunblaðið/Árni Sæberg Myndverkið Haustið á slóð mína reið sem Óli G. Jóhannsson sýnir í Galleríi Sævars Karls. Skipulagður glundroði MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Sýningin er opin á verslunartíma. Henni lýkur 17. október. MÁLVERK ÓLI G. JÓHANNSSON Jón B.K. Ransu ÁÐUR en tónleikar kvintetts Sunnu Gunnlaugsdóttur hófust á Kaffi Reykjavík lék tríóið B3 sem þeir skipa Ásgeir Ásgeirsson gítar- leikari, Agnar Már Magnússon org- anisti og Erik Qvick trommari. Efn- isskráin var á svipuðum nótum og í Múlanum í vetur, en nú lék Agnar Már á splunkunýtt Hammond-orgel Tónlistarskóla FÍH og var hljómur- inn allbetri en í þeim litlu orgelum sem hann hefur verið að leika á til þessa. Aftur á móti skiptir það ekki höfuðmáli því Agnar notar ekki fót- bassann heldur leikur bassann með vinstri hendi og orgelleikur hans er annarrar gerðar en hinna klassísku Hammond-organista djassins með Jimmy Smith í broddi fylkingar. Það vantaði herslumuninn til að tónlist tríósins lifnaði við; þeir voru miklu betri í Múlanum í vetur. Sunna Gunnlaugsdóttir er aðdá- unarverð í dugnaði sínum við að koma tónlist sinni á framfæri. Tvo diska hefur hún gefið út og er sá þriðji á leiðinni og var efni af honum á dagskrá kvintettsins á seinni mið- vikudagstónleikum Jazzhátíðar Reykjavíkur á Kaffi Reykjavík. Besta hljómsveit sem Sunna hefur komið með til Íslands var kvart- ettinn þar sem Gress og McLemore léku með henni og Tony Malaby blés í saxófóninn. Hann er frábær saxó- fónleikari einsog heyra má á hinum stórgóða diski Sunnu: Mindful. Það var skarð fyrir skildi er Sunna kom hér í fyrra án hans. En nú var Sunna ekkert að flytja inn meðaljón á saxó- fóninn heldur kvaddi Sigurð Flosa- son til liðs við sig og var það réttur leikur. Hann blés hvern sólóinn öðr- um betri og var fremstur meðal jafn- ingja í kvintettinum. Fyrsta lagið á efnisskránni var eftir Sunnu einsog öll lögin sem kvintettinn flutti: A Sleep In The Grass nefndist það í hefðbundnum njújork nýboppstíl. Þetta var ágætis upphitun fyrir sönglög Sunnu er Kristjana Stefáns- dóttir söng. Fyrsta lagið var við ljóð eftir Stein Steinarr: Sumar við sjó. Lagið féll ekki vel að ljóðinu og teygt um of og togað á orðum. Kristjana beitti söngskólatækninni í söng sín- um þetta kvöld, enda eru laglínur Sunnu ekki djassvænar söngvara þó sólistunum gengi vel spuninn. Það kom best fram í dúett Kristjönu og Sunnu, Heim nú reikar hugurinn, lag eftir Sunnu og textann samdi hún í samvinnu við móður sína og var hann mun betri en hnoð Sunnu við þrjú ágætislög hennar. Maður er þó van- ur mun verri textum úr poppinu, en nóg er af frábærum ljóðum íslensk- um sem jafn ljóðelskt tónskáld og Sunna getur notað þótt hún forðist ádeilukvæði og dauðaljóð. Sunnu tókst frábærlega að tónsetja Tómas Guðmundsson. Fagra veröld er fín ballaða þarsem ljóð og lag haldast í hendur og voru sólóar Sigurðar Flosasonar og Sunnu hreinir gim- steinar í tærleika sínum. Lestin mikla var dramatískast laga Sunnu eins og ljóðið gaf tilefni til og sóló Sigurðar enn ein perlan. Lokalagið var við heimabæjarljóð Sigurbjargar Þrastardóttur um Skagann þarsem strompurinn getur ekki hætt að reykja. Scott McLemore er traustur trommari og Doug Gress toppbassa- leikari, en tóninn hjá honum var heldur loðinn á þessum tónleikum hverju sem um var að kenna. Ein- staklega vel tókst með píanóhljóm- inn í gamla Steinway flygli Múlans þarsem Sigurður Kristinsson píanó- stillari og Jón Skuggi hljóðmaður höfðu vélað um og ljóðrænn spuni Sunnu naut sín til fulls ekki síður en svalur tónn Sigurðar á altóinn í há- tölurum hljóðmannsins. Sunna glímir við ljóðadjass DJASS Kaffi Reykjavík Kristjana Stefánsdóttir, söngur, Sunna Gunnlaugsdóttir, píanó, Sigurður Flosa- son, altósaxófónn, Drew Gress, bassi, og Scott McLemoer, trommur. Miðvikudags- kvöldið 3. október 2002 kl. 22. KVINTETT SUNNU GUNNLAUGSDÓTTUR Vernharður Linnet ÞÁ hefur árviss haust- sýning listhússins á Kambi opnað dyr sínar og að þessu sinni prýða rýmið verk í eigu staðarhaldarans, Gunnars Arnar Gunnars- sonar. Um blandað val 16 listamanna er að ræða, stór- frægra, vel þekktra, minna þekktra og eins konar huldumanna í íslenzkri list eins og það heitir. Gunnar Örn hefur lengi safnað verkum annarra lista- manna, innlendra sem er- lendra, og í mörgum tilvik- um fengið þau í skiptum fyrir eigin verk en á stund- um fest sér þegar vel hefur staðið á. Rúmt veggrými er á sveitabýlinu á Kambi svo hér hefur hann nokkuð frjálsar hendur, en hins vegar er sýningarrýmið í litla fallega húsinu á flöt- inni neðan af því mjög af skornum skammti. Verður listamaðurinn að huga vel að upphengingu tilfallandi myndverka, tekst allajafna vel enda þrautþjálfaður á sviðinu, flínkur til verks og allt mun hægt ef viljinn er nógur. Rétt að vekja sérstaka at- hygli á framkvæmdinni en hins veg- ar allt annar handleggur að rýna í hlutina. Að vísu er hér um gilt úrval myndverka að ræða, en einungis eitt verk eftir hvern listamann, áður ver- ið rýnt í sum þeirra auk þess að eitt verkið er eftir rýninn sjálfan, hann því fullnálægur. En þetta er vísast alveg nýr og sérstakur heimur fyrir fólk í dreifbýlinu á Suðurlandi, sem mætti að ósekju gefa starfseminni meiri gaum. Og alltaf upplifun fyrir borgarbúa að koma á þessar slóðir, landið fallegt í öllum veðrabrigðum svo fremi sem glittir í það og hvað þá er skyggni er gott svo sér til allra átta. BLANDA MYNDLIST Kambur, Rangárvallasýslu Bjarni Ragnar, Bragi Ásgeirsson, Elías Halldórsson, Eyjólfur Einarsson, Erró, Guðmundur Ingólfsson, Gunnar Guð- steinn Gunnarsson, Magnús Kjart- ansson, Ólafur Elíasson, Samúel Jóhannsson, Sigurður Örlygsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Svavar Guðnason, Sverrir Ólafsson, Tryggvi Ólafsson, Örn Þorsteinsson. Opið alla daga, nema miðvikudaga, frá 12–18. Til 13. október. MYNDVERK SEXTÁN LISTAMENN Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson Málverk eftir Svavar Guðnason. Bragi Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.