Morgunblaðið - 11.10.2002, Page 20

Morgunblaðið - 11.10.2002, Page 20
SUÐURNES 20 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Leikfélags Akureyrar verður haldinn í Samkomuhúsinu mánudaginn 21. október nk. kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn LA vill hvetja áhugafólk um leiklist til að ganga í félagið og taka þátt í starfsemi þess. Umsóknir um félagsaðild skulu sendar stjórn Leikfélags Akureyrar, Hafnarstræti 57, 600 Akureyri. Stjórnin. ÞORSTEINN Jónsson, sem kall- aður er Eldborgarjarl af sam- starfsmönnum sínum, hefur yf- irleitt í nógu að snúast í móttöku- og kynningarhúsi Hitaveitu Suð- urnesja í Svartsengi. Fyrirtækið býður öllum skólabörnum landsins að skoða jarðfræði- og jarðhitasýn- inguna í Gjánni, margir ferðamenn koma þar við og í Eldborg er hald- inn fjöldi ráðstefna og funda. Eldborgarjarlinn annast rekstur í samnefndu kynningarhúsi sem er í næsta nágrenni orkuversins í Svartsengi en í húsinu er einnig mötuneyti fyrir starfsfólk. Í Eld- borg er vel útbúin ráðstefnu- miðstöð með þremur sölum sem hægt er að opna á milli og færist það sífellt í vöxt að þar eru haldn- ar ráðstefnur og fundir. 230 manns voru á fjölmennustu ráð- stefnunni sem þar hefur verið haldin og fór vel um alla, að sögn Þorsteins. Hann telur að ástæðan fyrir auknum vinsældum Eldborgar sem ráðstefnumiðstöðvar sé, auk þeirr- ar góðu aðstöðu sem þar hefur verið komið upp, að hún sé hæfi- lega langt frá höfuðborgarsvæðinu þannig að ferðalag þangað vaxi ráðstefnugestum ekki í augum en fólkið haldist þó á staðnum. Þá sé umhverfið sérstakt og framandi. Stjórnendur Hitaveitu Suð- urnesja hafa átt í viðræðum við Bláa lónið hf. um samvinnu vegna reksturs Eldborgar. Segir Þor- steinn að þær hafi átt sér stað að frumkvæði Bláa lónsins en engar ákvarðanir enn verið teknar. Fyrir þremur árum var Gjáin í kjallara hússins opnuð. Þar er sýn- ing á jarðfærði, jarðhita og vinnslu orku úr iðrum jarðar, byggð upp á myndböndum, ljósmyndum, teikn- ingum og texta. Sýningin er opin ferðafólki og öðrum sem áhuga hafa á efninu og segir Þorsteinn að aðsókn ferðamanna hafi aukist töluvert. Nefnir hann að Kynn- isferðir séu með daglegar ferðir þangað. Segir Þorsteinn að allir erlendir ferðamenn ættu að koma við í Gjánni strax eftir lendingu í Keflavík til að fá þá sýn á mótun landsins og jarðfræði sem þar birt- ist. Þá njóti fólkið náttúru landsins enn betur í ferðalagi sínu um land- ið. Hitaveita Suðurnesja hefur boð- ið öllum skólabörnum landsins í heimsókn í Gjána til að nema þann fróðleik sem þar er settur fram. Eru því oft stórir hópar á ferðinni, allt frá börnum á forskólaaldri upp í útskriftarnema úr háskólum, enda segir Þorsteinn að sýningin sé þannig byggð upp að allir geti notið hennar. Þegar blaðamaður var þar á ferð var fimmti bekkur Varmárskóla í Mosfellsbæ að skoða sýninguna og voru börnin áhugasöm um málið. Sérstaklega vakti jarðskjálftinn athygli þeirra. Þorsteinn segir að skólar varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli séu áhugasamastir allra um þessa starfsemi. Bandaríkjamennirnir hafi mikinn áhuga á landi og þjóð og heillist af því hvernig Íslend- ingar virki þessa hreinu orku. Þaðan komi allir nemendur skól- anna einu sinni á ári. Þorsteinn leggur verkefni fyrir alla nemendur sem koma í Gjána, byggt á þeim upplýsingum sem fram koma á sýningunni, og segir að börnin séu dugleg að leysa þau. Nú er uppi hugmyndir innan Hitaveitunnar um að útvíkka starf- semina, að fara með fróðleikinn einnig út í skólana. „Æskan er orka framtíðarinnar. Við erum í því að virkja og viljum miðla reynslu okkar út í samfélagið. Og ef æskan er ekki þess virði að virkja hana, veit ég ekki hvað er þess virði,“ segir Þorsteinn. Sökkvir sér ofan í viðfangsefnin Þorsteinn Eldborgarjarl hefur unnið í Eldborg í þrjú og hálft ár. Áður hafði hann unnið við fram- reiðslu í fjölda ára, gert út smábát og unnið við smíðar og útskurð, svo nokkuð af fyrri störfum sé nefnt. Hann segist vera þeirrar gerðar að verða að reyna allt sjálf- ur. Og þurfa að sökkva sér vel of- an í það sem hann hafi tekið sér fyrir hendur hverju sinni. „Það er ekki reginmunur á framleiðslu og núverandi starfi. Það felst í samskiptum við fólk og að markaðssetja vöru og þjón- ustu,“ segir Þorsteinn um það stökk sem hann tók úr matnum yf- ir í jarðfræðina. Hann hefur reynt að setja sig sem allra best inn í jarðfræði, nýtingu orkunnar og starfsemi Hitaveitu Suðurnesja til þess að geta svarað spurningum skólafólks og ferðafólks sem heim- sækir hann í Gjána. „Maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi. Þeg- ar nýjar spurningar eru bornar fram þarf maður að kynna sér málið til þess að hafa svör á reiðum höndum næst þegar spurt er um efnið,“ segir Eldborgarjarl- inn og víkur sér síðan frá til þess að hjálpa börnum úr Mosfellsbæ að leysa verkefni sín. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Nokkrir nemendur úr Varmárskóla leita ráðgjafar hjá Þorsteini Jónssyni við verkefni sitt. Öllum skólabörnum landsins boðið í heimsókn Svartsengi Þorsteinn Jónsson Eldborgarjarl rekur móttöku- og kynningarhús Hitaveitunnar MARKAÐS-, atvinnu- og menningar- svið Reykjanesbæjar (MOA) óskar eftir að komast í samband við fyrir- tæki geta hugsað sér að láta verkefni í hendur háskólanema sem vilja vinna að raunverulegum verkefnum í námi sínu. Þegar er unnið að nokkrum verkefnum af því tagi. Síðastliðinn vetur sendi MOA öll- um háskólanemum á landinu, sem skráðir voru til heimilis á svæðinu, boð um aðstoð við að koma þeim í samband við fyrirtæki og stofnanir þegar þeir stæðu frammi fyrir vali á verkefnum. Þó nokkrir háskólanem- ar, frá Háskólanum í Reykjavík, Tækniskólanum og Viðskiptaháskól- anum á Bifröst höfðu samband þá strax og nokkrir hópar hafa unnið að sínum verkefnum á svæðinu. Slíkt er verulega styrkjandi fyrir atvinnulífið, segir í fréttatilkynningu frá MOA, enda um stór og viðamikil verkefni að ræða, sem nýtast fyrirtækjunum vel í framþróun sinni, úttektum og stöðu- mati. Verkefnin eru unnin, fyrirtækjum að kostnaðarlausu nema vegna út- lagðs kostnaðar, svo sem við ferðir, síma og skýrslugerð. Nú þegar liggja fyrir að minnsta kosti tvær beiðnir um verkefni, frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og Tækniskóla Íslands. MOA auglýsir eftir fyrirtækjum sem óska eftir því að vinna með háskólanemum sem leggja krafta sína í að vinna raunveru- leg verkefni inni í raunverulegum fyr- irtækjum, til að þau nýtist sem best. Gagnagrunnur verður settur upp á skrifstofunni, þar sem fyrirtæki geta lagt inn hugmyndir og nemendur leit- að eftir verkefnum við hæfi. Markaðsskrifstofan tekur upp samstarf við háskólanema „Lyftistöng fyrir atvinnulífið“ Reykjanesbær HÓLMAR Svansson, framkvæmda- stjóri Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar, AFE, sagði það dauðadóm yf- ir félaginu ef Akureyrarbær dregur sig út úr rekstrinum, eins og lagt er til í greinargerð um framtíðaráherslur í atvinnumálum bæjarins. „Það segir sig sjálft ef aðili sem greiðir um 70% af framlögum sveitarfélaganna dettur út.“ Hólmar sagði mjög gott að þessi umræða færi í gang. „Við erum búnir að vera með þetta yfir okkur í eitt og hálft ár að Akureyrarbær sé að íhuga það að draga sig út úr þessu sam- starfi. Því fyrr sem einhver niður- staða fæst í það mál því betra fyrir okkur.“ Hólmar sagði hægt að líkja ástandinu við að vera á skilorði. Það séu ákveðnir hlutir sem menn ekki taki afstöðu til eða fresti vegna þess. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er jafnframt lagt til í greinar- gerðinni, sem unnin var af Price- waterhouseCoopers, PwC, fyrir bæj- aryfirvöld, að atvinnumálanefnd verði starfrækt áfram en að nafni hennar verði breytt í „markaðs- og atvinnu- málanefnd“ og hlutverk hennar lagað að breyttu fyrirkomulagi. Þá var lagt til að starfsmaður, „markaðs- og kynningarstjóri verði ráðinn, sem sinni verkefnum á sviði atvinnu-, markaðs og kynningarmála á vegum bæjarins. Einnig er í greinargerðinni talað um að Akureyrarbær greiði um 25 milljónir króna til AFE á ári. Þá kem- ur fram að m.a. í ljósi árangurs und- angenginna ára bendi lítið til þess að fjölbreyttum störfum komi til með að fjölga í náinni framtíð með því að taka bæði þátt í rekstri AFE með öðrum sveitarfélögum í Eyjafirði og reka at- vinnumálanefnd á vegum bæjarins. Ekki sé réttlætanlegt að bærinn greiði niður aðgengi annarra sveitar- félaga að þessari þjónustu. Hólmar sagði að sveitarfélögin greiddu jafnan hlut til AFE og væri miðað við ákveðið gjald á hvern haus. Hins vegar greiði sveitarfélög með færri en 300 íbúa lægra gjald og gagnvart þeim væri hægt að tala um að Akureyrarbær væri að greiða eitt- hvað niður fyrir aðra. Hólmar sagði margar rangtúlkanir í greinargerð- inni, enda hefði ekki verið haft sam- band við AFE við gerð hennar. Stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands hefur einnig áhrif Varðandi framlög frá hinu opin- bera sagði Hólmar að í hverju kjör- dæmi væri eitt atvinnuþróunarfélag með samning við Byggðastofnun. Í Norðurlandskjördæmi væru félögin hins vegar tvö, í Eyjafirði og Þingeyj- arsýslum og væri framlagi Byggða- stofnunar skipt á milli félaganna. Hólmar sagði það nokkuð misjafnt hvernig menn vildu standa að þessum málum. „Það er hins vegar lykilatriði til að svona starfsemi gangi, að menn hafi öflugt bakland og þolinmæði. Þetta eru þannig mál að það er ekki hægt að flagga þeim en við erum að vinna að ýmsum jákvæðum baráttu- málum og menn mega ekki hengja sig of mikið í formið. En þetta er líka þannig grein að það er erfitt að meta árangurinn – það vitum við og það vita aðrir líka.“ Hólmar sagði að í greinargerðinni kæmi fram að Akureyrarbær hefði hvorki stjórnunarlegt né verkefna- legt aðgengi að félaginu. „Þetta er bara alls ekki rétt, Akureyrarbær er með þrjá fulltrúa í stjórn félagsins og hreinan meirihluta og þeir geta látið okkur gera í raun það sem þeir vilja.“ Hólmar sagði að stofnun Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands á Akureyri hefði einnig áhrif á starfsemi félags- ins þessa dagana. AFE komi til með að þurfa að stilla sína starfsemi af með tilliti til þess Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar Dauðadómur ef Akureyrarbær hættir þátttöku FÉLAG eldri borgara á Akur- eyri fagnar 20 ára afmæli sínu með hátíðardagskrá í Íþrótta- höllinni á morgun, laugardag, sem hefst með borðhaldi kl. 19.30. Björg Finnbogadóttir set- ur hátíðina en veislustjórnin verður í höndum Péturs Péturs- sonar heilsugæslulæknis. Boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði og dans, þar sem Afabandið leikur fyrir dansi. Miðaverð á afmælishátíðina er 3.600 krónur. Allir eru velkomn- ir og ekkert aldurstakmark. Fyrr um daginn, eða kl. 14 á morgun, syngja kórar eldri borgara víðs vegar að í Akur- eyrarkirkju. Aðgangur Félag eldri borgara Afmælishá- tíð í Íþrótta- höllinni AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.