Morgunblaðið - 11.10.2002, Síða 22
LANDIÐ
22 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR fé er rekið á fjall eftir sauð-
burð á vorin er gjarnan merkt eða
hornaskellt það fé sem skal fara í
sláturhús að hausti, svo sem geldar
ær. Ein slík fór á fjall á liðnu vori
frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði en
henni voru ekki ætlaðir lengri líf-
dagar en fram á haust.
Ærin hefur að líkindum ekki sætt
sig við þann þunga dóm, því þegar
smalað var síðastliðinn laugardag
fannst hún með um það bil dags-
gamalt lamb með sér því hún var
enn í blóðböndum. Þeim heilsast
báðum vel og með þessum lambhrút
hefur ærin keypt sér líf og unir sér
vel í kafgrasi í haustblíðunni á
Gunnarsstaðatúni.
Sigfús A. Jóhannsson á Gunn-
arsstöðum er hálfáttræður og segir
að aldrei áður hafi sauðburður ver-
ið í október; hins vegar hafi veð-
urfarið í haust verið mun hagstæð-
ara fyrir sauðburð en í maí
síðastliðnum, sem var bæði kaldur
og hráslagalegur.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Ærin í Gunnarsstaðatúni með lífgjafa sinn, lambhrútinn.
Vildi ekki
í slátur-
húsið
Þórshöfn
Á HÓTEL Höfðabrekku í Mýrdal er
hafin bygging á nýrri álmu með tutt-
ugu og fjórum tveggja manna her-
bergjum. Þessi bygging stendur að-
skilin frá hinum byggingunum sem
fyrir eru. Hjónin Jóhannes Krist-
jánsson og Sólveig Sigurðardóttir
eiga og reka hótelið. Þar eru fyrir 38
vel búin tveggja manna herbergi
með baði og tvö án baðs í fjórum að-
skildum húsum ásamt glæsilegum
matsal og fjórum heitum pottum
með búningsaðstöðu. Pottarnir voru
settir upp í sumar eftir að 40 gráða
heitt vatn fannst við borun skammt
frá hótelinu. Það er byggingarfélagið
Klakkur í Vík sem byggir grunninn
að nýja húsinu og er vinna þegar haf-
in, húsið sjálft er frá Límtré á Flúð-
um.
Hótel
Höfða-
brekka
stækkar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólveig Sigurðardóttir, Jóhannes Kristjánsson, Andrés Pálmason og Ingvar Jóhannesson fylgjast grannt með
þegar Merje Helena Monte og Gerd Wilvand taka fyrstu skóflustunguna að nýja húsinu.
Fagridalur
NÝLEGA var tekin skóflustunga
að tveimur nýjum stúdentagörðum
á Laugarvatni. Með byggingu
þeirra er stigið mikilvægt skref í
uppbyggingu Íþróttafræðaseturs
Kennaraháskólans þar.
Í þessum nýju stúdentagörðum
er gert ráð fyrir 18 tveggja og
þriggja herbergja íbúðum sem
ætlunin er að verði tilbúnar til
notkunar 10. ágúst næstkomandi.
Það er Byggingarfélag náms-
manna sem stendur fyrir fram-
kvæmdunum með stuðningi og vel-
vild sveitarstjórnar Bláskógar-
byggðar.
Bygging stúdentagarða
hafin á Laugarvatni
Laugarvatn
NÝ hársnyrtistofa, hár.is, hefur verið
opnuð í Fellabæ vestan Lagar-
fljótsbrúar. Áslaug Ragnarsdóttir
hársnyrtimeistari og Ásgerður Felix-
dóttir hársnyrtisveinn eru eigendur
og vinna jafnframt báðar á stofunni.
Þær hafa báðar starfað lengi í faginu
og Áslaug áður rekið eigin stofu, bæði
í Fellabæ og á Egilsstöðum. Hár.is
verður opin á virkum dögum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ásgerður Felixdóttir og Áslaug Ragnarsdóttir í nýju stofunni.
Nýtt fyrirtæki í Fellabæ
Egilsstaðir
HRAFN Jökulsson, formaður í
skákfélaginu Hróknum, kom fær-
andi hendi í heimsókn til nem-
enda í 3. bekk Grunnskólans í
Hveragerði. Tilefnið var að núna
er Hrókurinn, í samvinnu við
Eddu – miðlun og útgáfu, að gefa
öllum átta ára börnum á landinu
bókina Skák og mát þar sem
heimsmeistarinn Anatolij Karpov
kennir ungum skákmönnum nýjar
og spennandi aðferðir til að tefla
til sigurs, eins og greint er frá á
bókarkápu.
Helgi Ólafsson stórmeistari
þýðir bókina og staðfærir. Með
þessari gjöf vilja þeir sýna hug
sinn í verki til skákarinnar –
Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir
Hrafn Jökulsson afhendir nemendum í 3. bekk bókina Skák og mát.
þjóðaríþróttar Íslendinga. Skák-
listin hefur fylgt Íslendingum frá
upphafi og er merkilegur og lif-
andi hluti af menningararfinum.
Það er mikilvægt að svo verði
áfram og því er von okkar að
bókagjöfin stuðli að stórefldri
skákkennslu og skákiðkun í skól-
um landsins og þróttmiklu skák-
lífi um allt land, eins og segir í
skjali sem skólanum var afhent af
þessu tilefni.
Bókagjöf
til barna
í 3. bekk
Hveragerði