Morgunblaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2002 57
ÞAÐ GLADDI gamlan suðring (suð-
ureying) að sjá að verið væri að
vinna að stofnun vinabæjar milli Ak-
ureyrar og Vágs á Suðurey. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akur-
eyri og Jógvan Krosslá bæjarstjóri
Vágs í Færeyjum, hafa undirritað
samkomulag um tengsl, sem síðar
geta leitt til vinabæjarsambands
milli þessara bæja.
Ef vinasambandi verður komið á
milli Akureyrar og Vágs, legg ég til,
að færeyska bæjarnafnið Vág verði
notað, allavega í opinberum skjölum
milli staðanna. Íbúar í Vági hafa val-
ið að nefna bæjarstjóra sinn borg-
arstjóra, e.t.v. tökum við þetta upp
hér á Akureyri eftir að sambandið er
komið á og nefnum Kristján Þór
borgarstjóra.
Vona að þetta samstarf leiði til
nánari kynna milli fólks með svo líka
menningu og uppruna.
NIELS J. ERLINGSSON
frá Hvalba, Suðuroy.
Samstarf milli
Akureyrar og
Vágs í Færeyjum
Frá Niels J. Erlingssyni:
ÞESSI grein mín er til forystu allra
stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram
til Alþingis í vor (2003).
Málaflokkur fatlaðra og öryrkja hef-
ur því miður verið látinn sitja á hak-
anum og vístölubinding örorkubóta við
laun var afnumin 1993 í ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
sem kallaði sig félagshyggjuflokk. Nú í
vor er gott tækifæri fyrir flokkana að
bjóða fötluðum og öryrkjum sæti á sín-
um framboðslistum, þá á ég ekki við
neðarlega heldur það ofarlega að rödd
þessa fólks heyrist á Alþingi, því þar er
þörf á.
Það er mjög mikilvægt fyrir þjóðfé-
lagið að ekki heyrist aðeins raddir
þeirra stóru og valdamiklu, heldur
rödd frá þjóðfélagsþegnum sem eru í
miklum þrengingum. Sumir hafa
minnst á það að öryrkjar bjóði fram
sjálfir, það er sjónarmið útaf fyrir sig.
En ég tel að það sé nóg pláss fyrir
okkur á framboðslistum þeirra flokka
sem nú bjóða fram til Alþingis. Það er
einfaldlega staðreynd að rödd okkar
þarf að heyrast víðar, – og þá ekki síst
á hinu háa Alþingi. Þessi grein mín er
áskorun til allra flokkanna.
Það er því miður staðreynd að kjör
okkar hafa setið eftir, það sýna allar
kannanir. Því eftir að vísitölubinding
launa við örorkubætur var afnumin,
höfum við dregist aftur úr um á bilinu
15–20 %. Þetta er staðreynd sem er
óhrekjanleg, hvað sem hver segir. Við
öryrkjar ætlum að láta rödd okkar
heyrast nú fyrir þessar kosningar,
ekki síst, því árið 2003 er ár fatlaðra í
Evrópu, sem því miður stjórnvöld
hafa sinnt lítið hingað til. Ég var á
fundi í Finnlandi í lok september sl.
þar sem öll systrasamtök Sjálfsbjarg-
ar á Norðurlöndunum voru og tjáðu
þeir okkur það að þar væri allt komið
á fullt. Þetta verða íslensk stjórnvöld
að bæta og það sem fyrst.
Ég held að allir vitrænir stjórn-
málamenn geri sér grein fyrir því að
kjör okkar hafa dregist afturúr, eins
og ég nefndi hér fyrr. Til dæmis það
sem ég hef lesið af fjárlagafrumvarp-
inu, þar er ekki gert ráð fyrir því að
bætur eða skattleysismörk muni
hækka á næsta ári. Þessu verður að
breyta. Því er hægt að breyta með því
að sjónarmið fatlaðra og öryrkja fái
að heyrast á Alþingi. Það er krafa
númer eitt.
Ég vil enn og aftur skora á forystu
þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða
fram til Alþingis að sýna nú manndóm
sinn í því að setja fatlaða og öryrkja í
örugg sæti á framboðslistum sínum til
komandi Alþingiskosninga. Þetta er
áskorun um það líka að þeir þori að
láta okkar sjónarmið heyrast á Al-
þingi.
ÞÓRIR KARL JÓNASSON,
formaður Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu.
Opið bréf til forystu
stjórnmálaflokkanna!
Frá Þóri Karli Jónassyni:
ILLT er að eggja óbilgjarnan, gæti
átt við þá tegund fólks sem beinir of-
stæki sínu að þeim sem eru því ekki
sammála. Til
dæmis eiga þeir
sem opna á inn-
flytjenda- eða trú-
mál á hættu að
verða úthrópaðir
kynþáttahatarar.
Skynsamleg um-
ræða um kosti og
galla á innflutn-
ingi fólks er for-
dæmd af slíkum
ofsa að menn veigra sér við að blanda
sér í málin. Þeir sem þannig láta hafa
veikan grunn að byggja á og nota því
aðferðir ofstækismanna, það er að
hræða og koma óorði á þá sem þora.
Þannig kemst þetta fólk hjá rökræð-
um um viðkvæm mál sem alla varða.
Hinar Norðurlandaþjóðirnar eru
komnar í vandræði vegna gífurlegs
fjölda fólks sem smyglað er af skipu-
lögðum glæpahópum. Eftir stjórnar-
skiptin í hinni frjálslyndu Danmörku
er nú tekið á móti helmingi færri inn-
flytjendum og hælisleitendum en á Ís-
landi, sé miðað við fólksfjölda. Nokk-
ur góðgerðarfélög hafa lagt kapp á að
greiða leið hælisleitenda til landsins
og gera dvöl þeirra notalega. Nú er
svo komið að þeir fá mun meiri fjár-
ráð en Íslendingar á örorkubótum.
Fréttir af þessum toga berast fljótt og
eru glæpamenn fljótir að átta sig á
gróðanum af að smygla hingað fólki.
Meðan aldraðir og örykjar eru á fá-
tæktarmörkum og fólk í þjónustu-
störfum nær ekki endum saman, ætt-
um við að sleppa sýndarmennskunni.
Stjórnvöld fjasa mikið um velmegun
og góðæri þótt stór hluti þjóðarinnar
verði þess ekki var. Síðan á kreppuár-
unum hefur slík fátækt ekki fundist
sem nú varir víða og sérstaklega í
borginni. Ofan á lág laun eru matvæli
69% dýrari en í nálægum löndum og
með húsaleiguokrinu sligar slíkt mest
þá sem minnst hafa.
Stjórnvöld eiga að sjá sóma sinn í
að taka til í eigin ranni áður en farið er
að reisa sér hurðarás um öxl á erlend-
um vettvangi. Sá fjöldi sem býr við
bág kjör og mundi vilja koma hingað
skiptir hundruðum milljóna. Straum-
ur bágstaddra til landsins gæti orðið
óviðráðanlegur og valdið illdeilum.
Baráttan um störfin mundi harðna og
atvinnuleysi aukast. Það er ljótur
leikur gagnvart öllum að bjóða fólki
hingað til að sýnast. Ljóst er að fólkið
á ekkert og það verður að hjálpa því
að læra málið svo það geti samlagast
þjóðinni og komist af. En það verður
að setja innflytjendum þau skilyrði að
farið sé að landslögum og hefðir, trú
og siðir okkar séu virt. Á móti verður
að kenna þeim mál okkar þeim að
kostnaðarlausu en gæta um leið hófs í
kostnaði á framfærslu og gera því
ekki hærra undir höfði en þeim lönd-
um okkar sem háðir eru samfélags-
legri hjálp.
Mörgum óar við sýndarmennsku
núverandi valdhafa, enda einskorðast
hún ekki við straum innflytjenda, sem
virðist farinn úr böndunum. Meðan
launamisréttið jaðrar við kúgun og
öryrkjar og aldraðir hafa varla í sig og
á, eiga stjórnvöld ekki að leika mis-
kunnsama Samverjann gagnvart illa
settum útlendingum. Sem mest af því
er við getum miðlað bágstöddum, á að
miðast við að hjálpa viðkomandi þjóð-
um og þegnum í eigin landi.
ALBERT JENSEN,
Sléttuveg 3, Reykjavík.
Ný tegund rasista
Frá Alberti Jensen:
Albert Jensen
FRÉTTIR
BÍLHEIMAR frumsýna
nýjan og gjörbreyttan
Opel Vectra helgina
12.–13. október. Opel
Vectra hefur lengi ver-
ið einn vinsælasti bíll-
inn í sínum stærð-
arflokki, bæði hér á
landi sem og í Evrópu
allri, segir í frétt frá
Bílheimum.
Nýjungar í bílnum
eru m.a. 8 öryggis-
loftpúðar, loftkæld
miðstöð, 16" felgur og IDS-kerfi
sem tryggir örugga rásfestu bíls-
ins með því að samhæfa ABS-
hemlavörn, hemlunarátaksdreif-
ingu, tölvustýrða gripstýringu,
vökvastýri, undirvagn og fjöðr-
unarkerfi. Verð á nýjum Opel
Vectra með 1,8 lítra, 122 hestafla
vél er frá kr. 2.190.000.
Frumsýningin á Opel Vectra fer
einnig fram hjá umboðsaðila Bíl-
heima á Akureyri, Bifreiðaverk-
stæði Sigurðar Valdimarssonar.
Opið verður báða dagana frá kl.
12–16. Boðið verður upp á
reynsluakstur.
Frumsýna nýjan
Opel Vectra
Ný miðstöð
heilunar
LJÓSHEIMAR, miðstöðvar heilun-
ar og jafnvægis, verður formleg opn-
uð sunnudaginn 13. október kl. 14–
18, í Brautarholti 8, 2. hæð til vinstri.
Allir velkomnir.
Þar er boðið upp á einkatíma
heilara á ýmsum sviðum, ráðgjöf,
fræðslukvöld, hópastarf, jóga og ým-
is námskeið hérlendra jafnt sem er-
lendra kennara. Einnig er bókasafn
sem öllum er frjálst að gerast með-
limir í. Fréttabréf kemur út mánað-
arlega. Í Ljósheimum starfa hómó-
patar, nuddarar, reikimeistari og
heilarar. Sólbjört Guðmundsdóttir
og Martha Ernstsdóttir sjá um og
reka Ljósheima, segir í fréttatil-
kynningu.
Bandalag
kvenna í Hafn-
arfirði 30 ára
BANDALAG kvenna í Hafnarfirði
verður 30 ára í dag, föstudaginn 11.
október. Í tilefni afmælisins er opið
hús að Hraunseli, Flatahrauni 3
laugardaginn 12. og sunnudaginn 13.
október, frá kl. 14 báða dagana, með
afmælisdagskrá og sýningu á hand-
verki kvenna.
Bandalagið samanstendur af átta
aðildarfélögum: Kvenfélagi Hafnar-
fjarðarkirkju, Kvenfélagi Víðistaða-
kirkju, Kvenfélagi Fríkirkjunnar,
Kvenfélaginu Hringnum, Kvenfélagi
framsóknarkvenna Hörpu, Kven-
félagi Alþýðuflokksins, Kvenfélag-
inu Hrund og Kvenfélagi sjálfstæð-
iskvenna Vorboðanum. Merki
félagsins er líkneski heilagrar Barb-
öru.
Bandalagskonur hafa hist sameig-
inlega 4–5 sinnum á ári. Innan
Bandalagsins er starfandi mæðra-
styrksnefnd, orlofsnefnd og ræktun-
arnefnd, segir í fréttatilkynningu.
Geðhlaup
Geðhjálpar á
laugardag
GEÐHJÁLP stendur fyrir almenn-
ingshlaupi laugardaginn 12. október
kl. 13 við Nauthólsvík.
Hlaupið verður við allra hæfi og
verður hægt að hlaupa 2 km
skemmtiskokk eða 10 km hlaup með
tímatöku. Ráðlegt er að þátttakendur
séu mættir 30 mínútum fyrir upphaf
hlaups. Þátttakendur fá afhenta við-
urkenningu. Þátttökugjald í
skemmtiskokki er kr. 500 og í 10 km
hlaupinu kr. 1.000.
Allir velkomnir, hvort sem er
hlaupandi, gangandi eða hjólandi.
Upplýsingar og skráning er á skrif-
stofu Geðhjálpar, Túngötu 7, í síma
eða á netfangi: gedhjalp@gedhjalp.is
Taka þátt í
HM fullorð-
inna í dansi
HEIMSMEISTARAMÓT fullorð-
inna í sígildum samkvæmisdönsum
fer fram laugardaginn 12. október
í Liege í Belgíu.
Íslenskir þátttakendur eru
Björn Sveinsson og Bergþóra
María Bergþórsdóttir, Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar, og Jón
Eiríksson og Ragnhildur Sandholt,
Gulltoppi.
Laugardaginn 19. október fer
fram heimsmeistaramót fullorð-
inna í suður-amerískum samkvæm-
isdönsum í Foligno á Ítalíu. Frá
Íslandi taka þátt Björn og Berg-
þóra María og Eggert Claessen og
Sigrún Kjartansdóttir, Dansdeild
ÍR, segir í fréttatilkynningu.
Lestrardagur
í Skólavöru-
búðinni
SKÓLAVÖRUBÚÐIN mun ásamt
nokkrum brautryðjendum í hönnun
náms- og lesefnis fyrir börn, ung-
linga og fullorðna með lestrarörðug-
leika kynna reynslu sína og lausnir
laugardaginn 12. október kl. 12–14.
Ýmsar nýjungar verða kynntar
sem tengjast almennu lestrarnámi
ásamt lausnum fyrir börn, unglinga
og fullorðna með lesörðugleika. Þeir
sem kynna reynslu sína og lausnir
eru; Sylvía Guðmundsdóttir, ritstjóri
sérkennslu hjá Námsgagnastofnun,
Bergljót Arnalds rithöfundur, Gyða
Stefánsdóttir sérkennari, sem kynn-
ir nýjan kennsludisk í stærðfræði
með aðferðum fyrir lesblinda, Helga
Sigurjónsdóttir, íslenskufræðingur
og rithöfundur, Elín Vilhelmsdóttir
og Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir,
kennarar við Fjölbrautaskólann við
Ármúla.
Buxnadagar
í Vinnufata-
búðinni
ÁRLEGIR buxnadagar eru hafnir
hjá Vinnufatabúðinni. Fram kemur í
tilkynningu frá versluninni að gefinn
sé afsláttur af því nýjasta frá „five“-
línunni, þar sem gallabuxur kosta
5.900 krónur í stað 7.900. Þá eru Lee
gallabuxur á 4.900 krónur í stað 5.900,
segir ennfremur.
Einnig kosta danskar „stretch“
flauelsbuxur 5.900 krónur í stað 7.900.
„Rúsínan í pylsuendanum er síðan að
flestallar buxur til viðbótar við þessar
eru með afslætti líka,“ segir loks í til-
kynningu frá versluninni.
AÐALFUNDUR Læknafélags Ís-
lands verður haldinn dagana 11.–12.
október í húsakynnum félagsins í
Hlíðasmára 8, Kópavogi. Setning
fundarins verður föstudaginn 11.
október kl. 13:00 og mun Jón Krist-
jánsson heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra ávarpa fundinn. Auk
hefðbundinna aðalfundarstarfa
verður haldið læknaþing laugardag-
inn 12. október kl. 9:00–11:00. M.a
mun Sigurður Guðmundsson land-
læknir fjalla um skyldur skráðra
lækna í Bretlandi. Fyrir fundinum
liggja tillögur til ályktana m.a. um
að lögum um réttindi sjúklinga
verði framfylgt, um stefnu- og
markmiðaleysi í tengslum við sam-
einingu stóru sjúkrahúsanna og
stefnu stjórnvalda í málefnum
heilsugæslunnar.
Aðalfundur
Læknafélagsins