Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
armanna og borgarstarfsmönn-
um. Þeim hefur tekist að negla
allt niður með plönkum og fergja
þannig að þakið á að halda.
Hér hafa orðið verulegar
skemmdir, töluvert tjón. Það
verður metið strax í fyrramálið [í
dag] en það er ljóst að skipta
verður um allt járn á þakinu og
pappa einnig.“
Íbúar í húsum vestan og norðan
við laugina voru beðnir að halda
sig frá gluggum áveðurs svo þá
sakaði ekki ef plötur hefðu fokið
af laugarhúsinu. Lögreglan stóð
vörð við Hofsvallagötu í versta
veðrinu og beindi umferð frá
lauginni.
Margir foreldrar kusu að sækja
börnin sín í skólann í gær enda
rokið einna mest um hádegisbilið.
Í Rimaskóla var öllum börnum
sem ekki voru sótt ekið heim í
skólabíl, að sögn Helga Árnason-
HÁVAÐAROK og rigning var um
vestanvert landið í gærdag og
voru björgunarsveitir af höf-
uðborgarsvæðinu, Akranesi,
Borgarnesi og Snæfellsnesi að
störfum eða í viðbragðsstöðu
fram eftir degi vegna veðursins.
Þá voru starfsmenn á vegum
sveitarfélaga og lögreglan einnig
í viðbragðsstöðu vegna veðursins.
Á höfuðborgarsvæðinu unnu 33
björgunarsveitarmenn í 6 hópum
að ýmsum verkefnum þar til veðri
tók að slota síðdegis. Þurftu þeir
m.a. að fergja þakplötur, festa
þakkanta, gera við glugga þar
sem rúður brotnuðu, hefta fok á
vinnuskúrum, reyna að hemja
grásleppuskúra niðri við Ægisíðu
og koma böndum á nokkra rusla-
gáma.
Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út nokkrum sinn-
um vegna vatnselgs. Á nokkrum
stöðum hafði vatn flætt inn í íbúð-
ir en síðdegis hafði ekki frést af
stórtjónum af þeim sökum.
Á hádegi í gær var vindhraðinn
suðaustan 20–25 metrar á sek-
úndu og talsverð rigning víða suð-
vestan- og vestanlands, en hægari
vindur í öðrum landshlutum.
Lægja tók seinni partinn. Lög-
reglan í Reykjavík sagði síðdegis í
gær að veðrið hefði sem betur fer
ekki valdið jafnmiklu tjóni og bú-
ast hefði mátt við.
Vegi undir Akrafjalli lokað
Bundið slitlag flettist af Snæ-
fellsnesvegi milli Grundarfjarðar
og Ólafsvíkur annars vegar og
Grundarfjarðar og Stykkishólms
hins vegar í rokinu í gærdag.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
voru aðrar skemmdir af völdum
veðursins minniháttar en fólk var
beðið um að vera sem minnst á
ferli þar til veðrinu slotaði.
Mikill vindur var undir Hafn-
arfjalli og um hádegi fauk flutn-
ingavagn á hliðina á veginum og
skemmdist talsvert. Vesturlands-
vegur lokaðist um stundarsakir
þar til vagninn var dreginn til
hliðar.
Lögreglan á Akranesi þurfti að
loka veginum norðan við Akra-
fjall tímabundið um kl. 14 í gær
þar sem járnplötur voru að fjúka
úr sorphaugum rétt fyrir innan
Æðarodda. Björgunarsveit var
lögreglu til aðstoðar við að hemja
plöturnar sem fuku af gömlum
húsum sem þarna eru. Engin slys
urðu á fólki eða alvarlegar
skemmdir vegna þessa.
Miklar skemmdir á þaki laug-
arhúss Vesturbæjarlaugar
Vesturbæjarlaug var lokað í
gærdag sökum þess að klæðning á
þaki laugarhússins losnaði. Björg-
unarsveitarmenn og borgarstarfs-
menn brugðust skjótt við og var
sandpokum staflað á þakið til að
hemja plöturnar að sögn Ólafs
Gunnarssonar, forstöðumanns
Vesturbæjarlaugar við Morg-
unblaðið í gær. „Hér hefur orðið
mikið tjón, það þarf meðal annars
að skipta um allt járn á þakinu.
Þetta leit allt mjög illa út um tíma
en fór betur en á horfðist. Það
ber að þakka það skjótum við-
brögðum röskra björgunarsveit-
ar skólastjóra. Rokið stóð upp á
aðalinngang skólans og því var
gripið til þess ráðs að koma skóla-
bílnum þannig fyrir að hann
skýldi börnunum fyrir mesta rok-
inu.
Innanlandsflug lá niðri og
millilandaflug raskaðist
Herjólfi seinkaði um eina og
hálfa klukkustund í gær vegna
veðursins. Innanlandsflug féll að
mestu niður í gærdag.
Flugleiðavél með yfir 100 far-
þega á leið frá Glasgow gat ekki
lent á Keflavíkurflugvelli á áætl-
uðum tíma um kl. 13 í gær vegna
veðurs og var snúið aftur til Glas-
gow. Sömuleiðis var vél sem var
að koma frá Frankfurt snúið til
Glasgow. Þær lentu síðan báðar á
Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi.
Að öðru leyti gekk millilandaflug
vel fyrir sig.
Stormur á vestanverðu landinu olli truflun á flugsamgöngum og nokkru tjóni á húsum
Þakplötur
losnuðu og
malbik flettist
af vegum
Morgunblaðið/Kristinn
Margir foreldrar sóttu börnin sín í skóla og leikskóla enda var rokið mest eftir hádegi þegar skólum var að ljúka.
ATVINNUÞÁTTTAKA eldra
fólks er mest hérlendis af öllum
ríkjum OECD. Fjallað er um
þetta í fréttabréfi Samtaka at-
vinnulífsins (SA) og kemur fram
að í gögnum OECD sé fólki yfir 55
ára aldur á vinnumarkaði skipt í
þrjá aldurshópa og er Ísland í
efsta sæti í þeim öllum.
53% atvinnuþátttaka
í aldurshópnum 65–69 ára
Í aldurshópnum 55–59 ára er
atvinnuþátttakan 89% hérlendis,
en næst koma Nýja-Sjáland með
87%, Svíþjóð með 82%, Noregur
með 78% og Danmörk með 77%.
Lægst er talan í Tyrklandi, 36%,
og í Lúxemborg, Belgíu og á Ítalíu
er hún 39%. Vegið meðaltal
OECD ríkjanna er 63%.
Í aldurshópnum 60-64 ára er at-
vinnuþátttakan langsamlega hæst
hérlendis, eða 85%. Næst á eftir
koma Svíþjóð, Japan og Kórea
með 55%. Lægst er talan í Lúx-
emborg, eða 9%. Vegið meðaltal
OECD ríkjanna er 39%.
Um aldurshópinn 65-69 ára
skortir upplýsingar frá fleiri ríkj-
um en um hina, en sem fyrr er at-
vinnuþátttakan mest á Íslandi,
eða 53%. Næst koma Kórea með
43% og Mexíkó með 42%. Lægst
er talan í Frakklandi, 3%, og á
Spáni, 4%. Vegið meðaltal þeirra
OECD ríkja sem gögnin ná yfir er
19%.
Lækkandi eftirlaunaaldur
víða áhyggjuefni
Í umfjöllun SA um þennan sam-
anburð segir að í mörgum aðild-
arríkjum OECD sé lækkandi eft-
irlaunaaldur mikið áhyggjuefni,
ekki síst í ljósi þeirrar þróunar
sem eigi sér stað á aldurssamsetn-
ingu þjóðanna. Í Danmörku hafi
t.d. átt sér stað mikil umræða um
eftirlaunakerfið að undanförnu og
hafi ýmsir lagt til kerfisbreyting-
ar.
„Hér á landi er víða mikil eft-
irspurn eftir eldra starfsfólki á
vinnumarkaði. Gjarnan er haft á
orði að eldra starfsfólkið sé áreið-
anlegt, samviskusamt og hafi ríka
ábyrgðartilfinningu, auk þess að
búa að mikilli þekkingu og
reynslu. Hérlendis a.m.k. er fólk
því í flestum tilfellum vel gjald-
gengt á vinnumarkaði mjög langt
fram eftir aldri,“ segir í frétta-
bréfinu.
Atvinnuþátttaka
eldra fólks hvergi
meiri en hér
TVÆR hálfþrítugar konur hafa ver-
ið úrskurðaðar í vikulangt gæslu-
varðhald vegna rannsóknar á fíkni-
efnamáli. Tollgæslan á Kefla-
víkurflugvelli handtók aðra konuna
við komuna til landsins frá París á
mánudag en við leit á henni innan-
klæða fannst rúmlega eitt kíló af
hassi.
Lögreglan í Reykjavík tók við
rannsókn málsins og að sögn Harðar
Jóhannessonar yfirlögregluþjóns
var gerð húsleit í íbúð í vesturbæ
Reykjavíkur sem konan hafði að-
gang að. Þar var önnur kona fyrir og
var hún einnig handtekin enda
fannst á staðnum talsvert af fíkniefn-
um, hálft kíló af hassi, 140 grömm af
amfetamíni og nokkrar e-töflur.
Konurnar eru grunaður um að hafa
staðið fyrir fíkniefnasölu en þær
hafa ekki áður verið viðriðnar fíkni-
efnamál.
Tvær í gæslu-
varðhald vegna
fíkniefnamáls
SAMKOMULAG hefur náðst í
kjaradeilu lausráðinna hljómlistar-
manna hjá Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og ríkisins. Hefur boðuðu
verkfalli, sem hefjast átti í dag,
verið aflýst. Samkomulagið verður
borið undir félagsfund, sem vænt-
anlega verður haldinn í dag, að
sögn Björns Th. Árnasonar, for-
manns Félags íslenskra hljómlist-
armanna.
Hljóðfæraleikararnir kröfðust
þess að Sinfóníuhljómsveitin færi
að dómsniðurstöðu Félagsdóms
sem kveðinn var upp í júní, og
hækki laun þeirra miðað við kjara-
samning sem gerður var við fast-
ráðna starfsmenn hljómsveitarinn-
ar árið 2001. Að sögn Björns felur
samkomulagið sem náðist í gær í
sér að ríkið fellst á niðurstöðu Fé-
lagsdóms eins og hljóðfæraleikar-
arnir gerðu kröfu um. „Verkfallinu
er aflýst og vonandi eru allir tón-
leikagestir kátir með það,“ sagði
hann.
Verkfalli
aflýst
Lausráðnir hljóðfæra-
leikarar við Sinfóníuna
♦ ♦ ♦