Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJU og síðustu umræðu um frumvarp til fjáraukalaga þessa árs lauk á Alþingi í gær og er gert ráð fyrir því að greidd verði atkvæði um breytingartillögur við frumvarpið í dag. Ólafur Örn Haraldsson, formaður fjár- laganefndar þingsins, mælti fyrir breyting- artillögum meirihluta nefndarinnar við þriðju umræðuna, en í þeim gerir meirihlutinn til- lögur um samtals 1,3 milljarða kr. viðbót- arútgjöld ríkissjóðs á þessu ári. Í annarri um- ræðu lagði meirihlutinn til að útgjöldin myndu aukast um samtals 3,3 milljarða kr. á árinu, en í sjálfu fjáraukalagafrumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi í haust var miðað við að út- gjöldin á þessu ári myndu aukast um 7,3 millj- arða frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlaga- frumvarpi ársins. Samtals aukast því útgjöld ríkissjóðs um 11,9 milljarða á þessu ári verði breytingartillögur meirihlutans samþykktar á þingi í dag. Meðal þeirra útgjalda sem meirihlutinn lagði til við þriðju umræðu má nefna 220 millj- ónir til útboðs- og einkavæðingarverkefna. Þá lagði hann til að útgjöld til framhaldsskóla myndu aukast um 220 milljónir. Ennfremur lagði hann til að 50 milljónir færu til Fiskistofu og 455 milljónir bættust við framlag til Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga. Að lokum var lagt til að 300 milljónir bættust við framlag til fjár- lagaliðar sem nefnist launa- og verðlagsmál. Útgjöld ríkissjóðs aukast um 11,9 milljarða á árinu ALLSHERJARNEFND Alþingis mælist til þess að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni verið falið að kanna mat- vælaverð á Íslandi í samanburði við helstu ná- grannalönd. Jafnframt verði reynt að gera grein fyrir hugsanlegum ástæðum mismunandi matvælaverðs. Niðurstöðu athugunarinnar skuli skila til Alþingis innan sex mánaða frá samþykkt tillögunnar. Allsherjarnefnd skilaði nefndaráliti um mál- ið í vikunni og hefur því verið dreift á Alþingi. Forsaga þess er þingsályktunartillaga, sem Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður að. Rannveig lagði tillöguna fram á Alþingi í haust. Þar er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að leita orsaka fyrri mismunandi mat- vælaverði á Norðurlöndum og í ríkjum Evrópu- sambandsins. Í því skyni fari fram nákvæmur samanburður á matvöruframleiðslu og versl- unarháttum á framangreindum stöðum. Allsherjarnefnd fékk fjölda aðila til að fjalla um tillöguna og segir í nefndaráliti að þeir hafi velflestir stutt hana. Jafnframt hafi þeir bent á nauðsyn þess að allir fletir málsins verði kann- aðir með það að markmiði að ná fram lækkun matvælaverðs hér á landi. Allsherjarnefnd lagði til nokkrar breytingar á upphaflegri tillögu Rannveigar. Taldi nefnd- in m.a. að tillaga Rannveigar fæli í sér of kostnaðarsaman og umfangsmikinn sam- anburð. Ríkisstjórnin láti kanna matvælaverð JÓN Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga sem leggur nýjar skyldur á herðar framleið- endum og innflytjendum tóbaks. „Samkvæmt frumvarpinu geta heilbrigðisyfirvöld krafist þess að framleiðendur eða innflytjendur tób- aks gefi upplýsingar um innihald vörunnar og leggi fram sýnishorn af framleiðslunni eða geri rannsóknir sem nauðsynlegar eru til þess að meta áhrif vörunnar,“ segir í fylgi- skjali með frumvarpinu. Í athugasemdum með frumvarpinu kemur fram að það sé sam- ið í kjölfar gildistöku tilskipunar Evrópu- þingsins og ráðs Evrópusambandsins um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslu- fyrirmælum aðildarríkjanna varðandi fram- leiðslu, kynningu og sölu á tóbaksvörum. Segir ennfremur í athugasemdunum að lög- leiðing frumvarpsins sé ætlað að efla tóbaks- varnir hér á landi. Meðal annarra nýmæla í frumvarpinu má nefna að þar er lagt til að bannað verði frá og með 30. september 2003 að hafa á umbúð- um tóbaks heiti, vörumerki og annars konar texta eða tákn sem gefa í skyn að varan sé ekki eins skaðleg og annað tóbak. Þá er lagt til að merkja skuli sígarettupakka með upp- lýsingum um hve mikinn kolsýring hver síg- aretta gefi frá sér til viðbótar við slíkar upp- lýsingar um tjöru og nikótín. Frumvarp um nýjar reglur í tóbaksvörnum EINAR Már Sigurðarson, þing- maður Samfylkingarinnar, og Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gagnrýndu á Alþingi í gær tillögur meirihluta fjárlaga- nefndar Alþingis um 220 millj- óna kr. viðbótarframlag til út- boðs- og einkavæðingarverkefna á þessu ári, en meirihlutinn lagði til í þriðju umræðu um frumvarp til fjáraukalaga að það framlag komi inn í fjáraukalög þessa árs. Einar Már átaldi það m.a. að ekki hefðu fengist nægjanlegar skýringar á því í hvað þessar 220 milljónir ættu að fara. Hann samningar við innlenda og er- lenda ráðgjafa um aðstoð við framkvæmd sölunnar. Áætlaður kostnaður fellur að mestu leyti til eftirtalinna aðila: HSBC- bankinn í London, Landsbanki Íslands hf., PWC á Íslandi hf., Logos lögmannaþjónusta og Búnaðarbanki Íslands hf. auk kostnaðar vegna þýðinga, skjala- vinnslu o.fl.“ Einar Már skýrði frá þessu svari fjármálaráðuneytisins í gær og sagði að það gæfi ekki fullnægjandi skýringar við því hvað gera ætti við umræddar 220 milljónirnar. minnihluti fjárlaganefndar Al- þingis hefði farið fram á það við fjármálaráðuneytið að fá skýr- ingar á því í hvað þessar 220 milljónir ættu að fara. Í svari frá fjármálaráðuneytinu hefði eftir- farandi komið fram: „Á þessu ári hefur verið unnið að sölu hluta- bréfa ríkisins í Landsbanka Ís- lands hf. og Búnaðarbanka Ís- lands hf. í áföngum. Allur kostnaður við sölu hlutabréfanna færist á þennan fjárlagalið (þ.e. til þess liðs sem kallast útboðs- og einkavæðingarverkefni í frumvarpi til fjáraukalaga), þ.m.t. sölulaun. Gerðir hafa verið benti jafnframt á að 300 millj- ónir hefðu farið til þessara verk- efna í fjáraukalögum ársins 2001. Það fjármagn hefði þó ekki allt verið nýtt á síðasta ári og því fært yfir á fjárheimildir þessa árs, þ.e. alls um 169 millj- ónir króna. Það bættist síðan við 16,6 milljónir sem hefði verið veitt til þessara verkefna á fjár- lögum þessa árs. Samtals væri því gert ráð fyrir um 406 millj- ónum til umræddra verkefna á þessu ári, ef 220 milljónirnar eru teknar með. Einar Már sagði í umræðu um fjáraukalög þessa árs í gær að Litlar upplýsingar um framlag til einkavæðingar Morgunblaðið/Jim Smart Síðustu daga hafa verið miklar annir hjá þingmönnum sem sitja í fjárlaga- nefnd Alþingis. Ísólfur Gylfi Pálmason, þingmaður Framsóknarflokksins á Suðurlandi, situr í nefndinni, en hann var hinn rólegasti á þingfundi í gær. EINAR Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýndi Hafrannsóknastofnun í þriðju umræðu á Alþingi í gær um fjárlagafrumvarp næsta árs. Einar Oddur gagnrýndi einnig Hafrannsóknastofnun í ann- arri umræðu um fjárlögin og sagði hana vera mein- varp í íslensku efnahagslífi. Í gær gerði hann mat stofnunarinnar á veiðistofni þorsksins að umtalsefni og kallaði það barbabrellu. „Ég hef orðið þess var að Háskóli Íslands hefur á undanförnum mánuðum feng- ið vaxandi áhuga á þeim bókmenntum sem fjalla um Barbapabba,“ sagði Einar Oddur og rifjaði það upp að hann hefði lesið þær bækur fyrir börnin sín. Stærsta barbabrella lýðveldissögunnar „Ég jafnt og þau höfðum mikið gaman af ákveðnum hlut í þessum bókmenntum en það voru svokallaðar barbabrellur. Ákaflega athyglisvert. Ég fullyrði að í allri sögu lýðveldisins hefur aldrei átt sér stað önnur eins barbabrella og þegar þessari Hafrannsóknastofn- un datt í hug að segja að 600 þúsund tonn sem allir vissu að voru til hefðu aldrei verið til.“ Vísaði Einar Oddur þarna til þess þegar sérfræðingar Hafrann- sóknastofnunar sögðu árið 2001 að veiðistofn þorsks- ins væri um 600 þúsund tonn, en tveimur árum áðum höfðu þeir spáð því að stofninn yrði um 1.100 tonn ár- ið 2001. „Þetta er stærsta barbabrella lýðveldissög- unnar,“ ítrekaði Einar Oddur. Hann sagði að það væri lífsnauðsynlegt að auka veiðar við Íslandsstrendur. „Við verðum að gera það, eigum að gera það og getum gert það.“ Einar Oddur Kristjánsson Hafró geri barba- brellur ÞRIÐJU og síðustu umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs er nú lokið á Alþingi en stefnt er að því að gera frumvarpið að lögum í dag. Ólafur Örn Har- aldsson, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis, mælti fyrir tillögum meirihluta nefndarinn- ar við þriðju umræðu í gær, en í tillögum meirihlutans er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs hækki um 2,4 milljarða frá því sem gert var ráð fyrir í annarri umræðu um frumvarpið. Að samanlögðu hefur meirihluti nefndarinnar því gert tillögur um 6,8 milljarða kr. hækkun á útgjaldahlið fjárlagafrumvarps- græns framboðs gagnrýndu það m.a. við umræðuna að ekki væri nægilega tekið á fjárhags- vanda framhaldsskólanna og Háskóla Íslands í fjárlaga- frumvarpinu. Ennfremur gagn- rýndu þeir það að vandi heil- brigðisstofnana víða um land væri ekki leystur. Samfylkingin lagði fram til- lögur, við þriðju umræðu, sem miðuðust að því að bæta stöðu stofnana í menntakerfinu sem og stöðu stofnana í heil- brigðiskerfinu. Þingmenn VG vildu einnig bæta stöðu menntastofnana og heilbrigðis- stofnana. hann orðaði það. „Ég bendi líka á að það er ábyrg afstaða hjá ríkisstjórn- inni og fjárlaga- nefnd að auka nokkuð ríkisút- gjöldin þegar atvinnuleysið hefur aukist frá því sem búist var við – þótt eng- in vá sé þar fyrir dyrum,“ sagði hann. Vandi skóla ekki leystur Þingmenn Samfylkingarinn- ar og Vinstrihreyfingarinnar – ins í umfjöllun nefndarinnar um frumvarpið. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær er samkvæmt þess- um tillögum og spá um tekju- aukningu ríkis- sjóðs á næsta ári stefnt að um 11,5 milljarða tekjuafgangi á fjárlögum 2003. Ólafur Örn skýrði frá því að rík- isstjórnin og meirihluti fjár- laganefndar hefði sett sér það markmið að afgreiða fjárlögin „réttu megin við núllið“, eins og Útgjöld aukast um 2,4 milljarða milli umræðna ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Á dagskrá eru atkvæðagreiðslur um fjárlögin og fjáraukalögin sem og umræður um einstök þingmál.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.