Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.12.2002, Qupperneq 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 24 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 300 FERMETRA tjald er ekki hversdagsleg sjón á Lækjartorgi, hvað þá þegar komið er fram í des- ember. Þeir sem eiga þar leið hjá á sunnudag munu engu að síður fá tækifæri til að virða eitt slíkt fyrir sér. Gestir og gangandi ættu þá ekki að hika við að líta inn því tjald- ið sjálft verður einungis umgjörð utan um sérstakan jólamarkað, sem verður starfræktur alla sunnudaga fram að jólum auk þess sem hann verður opinn á Þorláksmessu. Það er Höfuðborgarstofa, fram- kvæmdastjóri miðborgarinnar og Þróunarfélag miðborgarinnar sem standa að jólamarkaðnum í samein- ingu en að sögn Svanhildar Kon- ráðsdóttur, forstöðumanns Höf- uðborgarstofu, verða 30 aðilar með sölubása á markaðinum. „Það kom- ust færri að en vildu og kominn langur biðlisti eftir því að komast að. Þannig að það er greinilegt að þarna er gríðarlegur áhugi.“ Á markaðnum verður alls kyns handverk til sölu, kerti, jólaskreyt- ingar og „eitt og annað í þeim dúr,“ eins og Svanhildur orðar það. „Síð- an verður dagskrá þessa daga með upplestrum, tónlist og fleiru – t.d. koma prestar á hverjum sunnudegi og verða með stutta hugvekju til að minna fólk á um hvað þetta snýst nú allt saman.“ Níðþung jólatré til höfuðs haustlægðunum Svanhildur á því von á mikilli stemningu í tjaldinu stóra þessa daga. „Þetta er nokkuð sem menn hafa viljað gera hér í miðbænum í nokkur ár og er því svona vísirinn að því sem koma skal. Við viljum sjá það á næstu árum að þessi markaður vaxi og verði fastur liður í tilverunni eins og þekkist svo víða í borgunum í kring um okkur.“ Hún viðurkennir að haustlægð- irnar að undanförnu hafi orðið til þess að farið hafi um skipuleggj- endur, sérstaklega með það í huga að híbýli markaðarins verða af létt- ara taginu. „En við erum bjart- sýnisfólk þannig að við trúum því að þetta verði í góðu lagi. Garð- yrkjudeild Reykjavíkurborgar ætl- ar að útbúa fyrir okkur jólatré sem eru ansi þung í annan endann og þannig munum við festa niður tjald- ið. Það má því mikið ganga á svo það fjúki.“ Jólamarkaðurinn hefst sem fyrr segir á sunnudaginn klukkan 13 og verður opinn til klukkan 18. Næstu sunnudaga á eftir verður hann svo opinn eins og verslanir í miðbænum eða til klukkan 22 og líklega verður hann einnig opinn það lengi á Þor- láksmessu. Litlu jólin á Hressó Það verða þó fleiri nýmæli í Kvosinni fram að jólum því komið verður upp eins konar „vin í jólaös- inni“ í gamla Hressingarskálanum en það verkefni gengur undir nafn- inu Litlu jólin á Hressó. Það eru ýmsar stofnanir Reykjavík- urborgar sem standa að því verk- efni en verkefnisstjóri er Lilja Hilmarsdóttir. Að hennar sögn verður þar að finna ýmiss konar þjónustu á borð við barnahorn, pakkageymslu fyrir þá sem vilja losna við eitthvað af pinklum áður en jólainnkaupunum verður haldið áfram og veitingasölu á vegum Ömmukaffis sem KFUM og -K rek- ur en þar verður hægt að fá kakó eða kaffi og einfalt meðlæti. Hressó verður opið alla daga fram að jólum milli klukkan 14 og 18 en fyrsta daginn, sunnudag, verður þó opnað klukkan 13. Lilja segir að töluvert verði lagt upp úr fjölbreyttum skemmtiatriðum á Hressó þennan tíma. „Þar má nefna að sveit Tómasar R. Einarssonar, Kúbanska, mun spila á opn- unardaginn, síðan munu skemmti- kraftar eins og Bjarni Arason, Eyj- ólfur Kristjánsson og söngkonan Hera troða upp meðal annarra auk þess sem boðið verður upp á upp- lestur úr nýjum bókum, jólarímur verða kveðnar við undirleik Moniku Abendroth hörpuleikara og svo mætti lengi telja.“ Hún bendir á að skemmtikraftar verði á öllum aldri en þeir munu meðal annars koma úr röðum leikskólabarna, skóla- hljómsveita og allt til eldri borgara. Norskir silfurdrengir og jólasveinar einn og átta Það mun ekki vanta jólastemn- inguna í miðbæinn á sunnudag því þá verða einnig tendruð ljós á Osló- artrénu klukkan 16. „Þetta er há- punktur aðventunnar fyrir marga og í framhaldinu verður kannski óvenjulega fjölbreytt og skemmti- legt dagskrá,“ segir Svanhildur. „Dómkórinn mun syngja og sömu- leiðis Silfurdrengirnir, sem er norskur drengjakór, og jólasveinar einn og átta koma þarna og sprella fyrir börnin. Eftir það verða söng- atriði úr leikritinu Honk sem Borg- arleikhúsið sýnir og síðan tökum við forskot á jólafrumsýningu Þjóð- leikhússins, Með fullri reisn, því leikarar úr henni munu koma og syngja úr atriði á sýningunni. Þannig að menn hreinlega verða að vera hér í Kvosinni á sunnudaginn.“ Jólamarkaður í 300 fermetra tjaldi Morgunblaðið/Kristinn Hressó skreytt í hólf og gólf: Lilja Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri Litlu jólanna á Hressó, og Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri miðborgarinnar, en hún hefur átt ríkan þátt í að verkefnin tvö hafa orðið að veruleika. Kvosin BARBORÐ Þjóðleikhúskjallarans, sem talið er lengsta barborð á Ís- landi, er komið aftur á sinn stað í kjallara Þjóðleikhússins en fyrr á þessu ári bútaði fyrrverandi um- sjónarmaður Þjóðleikhúskjallarans barborðið í sundur og fjarlægði. Í fyrradag unnu iðnaðarmenn hörð- um höndum að því að pússa borðið upp og lakka það, en í dag verður Þjóðleikhúskjallarinn opnaður á ný eftir gagngerar breytingar. „Við erum mjög fegin að hér skuli vera að hefjast veitingarekstur á ný. Það var mjög bagalegt að leikhús- gestir skyldu ekki fá þessa þjónustu í haust vegna árekstra sem urðu þegar við riftum samningi við fyrr- verandi rekstraraðila vegna síend- urtekinna vanefnda á samningi,“ segir Stefán Baldursson þjóðleik- hússtjóri. Hann segir að samningn- um hafi verið rift samkvæmt öllum formsatriðum og samningsákvæð- um en umsjónarmenn kjallarans hafi ekki viljað una riftun samnings- ins og verið með alls konar upp- steyt. Þar vísar Stefán til þess að fyrrverandi rekstraraðili læsti sig inni í kjallaranum fyrir nokkru og skipti um læsingar. Með landsliðsmann í kokkalist Nýir umsjónarmenn kjallarans munu einnig sjá um mötuneyti starfsfólks. „Þeir eru búnir að gera það í mánuð með miklum sóma og við bindum miklar vonir við þessa aðila. Við erum þarna með yfirmat- reiðslumanninn á Holtinu sem er í kokkalandsliðinu. Við vonum að þetta verði vel sóttur matsölustaður fyrir utan þá þjónustu sem verður veitt leikhúsgestum,“ segir Stefán. Yfirmatreiðslumeistari nýja stað- arins, sem kemur af Hótel Holti, heitir Ragnar Ómarsson. Kristján Örn Sævarsson er framkvæmda- stjóri nýja staðarins og er Þormóð- ur Jónsson titlaður hugmyndasmið- ur. Leikhúsgestum munu standa veitingar til boða fyrir sýningar, í hléi og að þeim loknum. En hug- myndin er að á miðnætti breytist Þjóðleikhúskjallarinn úr veitinga- stað í skemmtistað. Fyrst um sinn munu plötusnúðarnir Gullfoss og Geysir halda uppi fjörinu í kjallar- anum. Einnig stendur til að nýtt kaffihús, Leikhúskaffi, í austurhluta Kjallarans verði opið gestum og gangandi. Iðnaðarmenn létu hendur standa fram úr ermum í Þjóðleikhúskjall- aranum, þegar blaðamaður og ljós- myndari Morgunblaðsins stungu þar inn nefi í gær. Allar innréttingar kjallarans verða gerðar upp og segja nýir umsjónarmenn að við endurreisn kjallarans hafi verið tek- ið mið af þeirri fágun sem einkenndi kjallarann áður. Morgunblaðið/Sverrir Nýir umsjónarmenn ásamt þjóðleikhússtjóra við barborðið fræga. Frá vinstri má sjá Ragnar Ómarsson yfirmatreiðslumann, Kristján Örn Sæv- arsson, framkvæmdastjóra Þjóðleikhúskjallarans, Þormóð Jónsson hug- myndasmið og Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóra. Þjóðleikhús- kjallarinn opnaður á ný Miðborg Barborðið komið á sinn stað BÖRNUM hjá dagforeldrum í Reykjavík hefur fækkað um 360 og hefur fjölgun leikskólaplássa í borginni haft þar mest áhrif. Meðalfjöldi barna hjá hverju dagforeldri er rúmlega fjórir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Leikskólum Reykjavíkur. Er hún send í tilefni af skýrslu félagsmálaráðuneytisins um könnun á aðstæðum barna hjá dagforeldrum á Íslandi, sem nýverið var gerð kunn. Bent er á það í til- kynningunni að ekki sé gerður greinarmunur á sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og því komi ekki fram staða mála í Reykjavík. Að auki sé ár liðið frá gerð könnunarinnar en verulegar breytingar hafi átt sér stað varðandi dagvistun hjá dagforeldrum í Reykjavík á þeim tíma sem síðan er liðinn. Fjölgun leikskólaplássa hefur áhrif Í dag eru 223 dagforeldrar starfandi í Reykjavík og hefur börnum hjá dagforeldrum fækkað um 360 á árinu, að því er fram kemur og hefur meðaltal barna lækkað sem nemur um það bil einu barni hjá hverju dagforeldri. Í dag sé það rúmlega fjögur börn á hvert dagforeldri. Segir að mikil fjölgun leikskólaplássa í borginni hafi haft þar veruleg áhrif á. Hvað varðar þær kröfur sem gerðar eru til dagforeldris segir að undantekningarlaust sé farið fram á að umsækjandi um dagforeldraleyfi leggi fram læknisvottorð, sakavottorð og um- sögn fyrri vinnuveitenda. Þá sé gerð úttekt á eldvörnum í húsinu sem daggæslan fer fram í auk þess sem haldin eru námskeið fyrir dagfor- eldra. Börnum hjá dagforeldrum fækkar Reykjavík NÝR upplýsingavefur Kópavogs- bæjar, www.kopavogur.is, var opn- aður á föstudag en unnið hefur verið að gerð hans síðan snemma á þessu ári. Að sögn markaðsstjóra bæjarins er meiningin að vefurinn verði ein- faldari í notkun en eldri vefur bæj- arins var. Að sögn Sigurðar Björnssonar, markaðsstjóra Kópavogsbæjar, var eldri vefurinn orðinn barn sín tíma. „Hann var kominn á fjórða ár og tækni við vefgerð hefur breyst mikið á þeim tíma. Þess vegna fengum við fyrirtækið Sjá–viðmótsprófanir ehf. til að gera þarfagreiningu og vinna hugmyndavinnuna á bak við vefinn og snemma á þessu ári var gerð hans boðin út. Við fengum sjö tilboð og fyrir valinu varð að semja við Hugvit ehf.“ En hvernig verða notendur vefj- arins varir við að honum hefur verið breytt? „Fyrst og fremst er hann smíðaður miklu grynnri en hinn var þannig að það á að vera auðveldara að rata um hann. Síðan er meiningin að hann verði gagnvirkur; það verð- ur þarna viðburðadagatal og á hon- um á að vera hægt að panta viðtals- tíma við bæjarfulltrúa, bæjarstjóra og starfsmenn o.s.frv.“ Hann undirstrikar að enn eigi eft- ir að bæta töluverðu af efni inn á vef- inn en það verði gert á næstu dögum og vikum. „T.d. vonum við að innan skamms verði þarna aðgangur að landupplýsingakerfi Kópavogsbæj- ar. Kerfið er í grunninn kort af bæn- um þar sem þú getur farið inn á ákveðin svæði og jafnvel fengið ákveðnar íbúaupplýsingar, teikning- ar af húsum o.s.frv.“ Nýr upp- lýsinga- vefur opnaður Kópavogur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.