Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 25
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 25
GAMLA húsnæði Bókasafns Kópa-
vogs að Fannborg 3 – 5 verður að
hluta til breytt í félagslegar íbúð-
ir en hluti þess verður seldur.
Þetta var samþykkt á fundi bæj-
arráðs í síðustu viku og hefur
tæknideild bæjarins verið falið að
undirbúa útboð vegna breyting-
anna.
Eftir að Bókasafnið flutti í nýtt
húsnæði að Hamraborg, við hlið
Salarins, hefur eldra húsnæðið að
Fannborg staðið að mestu ónotað
að undanskildum kjallaranum sem
hefur verið notaður að hluta sem
geymsluhúsnæði fyrir bókasafnið
og listasafnið.
Í bréfi bæjarverkfræðings og
félagsmálastjóra til bæjarráðs
segir að embættismenn hafi að
undanförnu kannað möguleika á
nýtingu húsnæðisins. Kjallarinn
verði áfram notaður sem
geymsluhúsnæði en hægt væri að
nýta fyrstu hæð hússins í þágu
starfsemi bæjarins eða selja það.
Kemur fram að mikil þörf sé
fyrir félagslegar leiguíbúðir í
bænum og staðsetning leiguíbúða
að Fannborg 3 – 5 væri heppileg
með tilliti til allrar þjónustu. Slík-
ar íbúðir myndu gagnast bæði
fyrir eldri hjón og barna-
fjölskyldur.
Tvær íbúðirnar of stórar
Þá segir að hægt væri að
breyta fyrstu hæðinni í fjórar
íbúðir en tvær þeirra myndu ekki
henta þar sem þær yrðu of stórar
eða í kring um 130 fermetrar.
Hinar tvær, sem yrðu um 104 fer-
metrar að stærð, yrðu hins vegar
heppilegar.
Er því lagt til að hafinn verði
undirbúningur fyrir útboð á gerð
tveggja 104 fermetra íbúða sam-
hliða því sem boðin yrðu út kaup
á hinu rýminu til frjálsrar ráð-
stöfunar. Kemur fram að þar geti
verið hvort sem er íbúðir eða
skrifstofur og hafa verið gerðar
frumhugmyndir að báðum kost-
unum.
Sem fyrr segir samþykkti bæj-
arráð þessa tillögu og fól tækni-
deild bæjarins að undirbúa útboð
á breytingum húsnæðisins.
Félagslegar
íbúðir komi
í gamla
bókasafnið
Morgunblaðið/Jim Smart
Tvær félagslegar íbúðir verða innréttaðar í gamla húsnæði Bókasafns Kópavogs en hluti þess verður seldur.
Kópavogur
alltaf á föstudögum
Þú sparar
kr. 6.590
Kynntu þér tilboðin!
Spennandi
bökunar-
tilboð!