Morgunblaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 33
ÁLAFOSSKÓRINN í Mos-
fellsbæ sem stofnaður var 1980 sem
starfsmannakór við ullarverksmiðj-
una Álafoss h.f. hefur nýverið gefið
út geisladisk sem inniheldur 14 lög,
þar af 13 við texta úr Kvæðakveri
nóbelsskáldsins Halldórs Kiljan
Laxness. Auk þessa er eitt verk fyr-
ir þverflautu og píanó. Öll lögin
nema eitt eru eftir söngstjórann.
Tilurð sönglaganna er rakin til sam-
starfs kórsins við Leikfélag Mos-
fellssveitar s.l. vor vegna aldaraf-
mælis nóbelsskáldsins.
Við fyrstu heyrn virðast lögin
falla ákaflega vel að texta og vera
vel sönghæf með fallegum laglínum
og ótrúlega fjölbreytt og sum mjög
smellin og skemmtileg. Ekki er hér
um flóknar tónsmíðar að ræða sem
kanski er ekki heldur ástæða til. Til-
raun tónskáldsins til að líkja eftir
Íslandsklukkunni í laginu Stóð ég
við Öxará er vel heppnuð, en þar
endurtekur kórinn í sífellu hljóma
sem minna á klukknahljóm og á
meðan er kvæðið lesið af einum kór-
félaga. Gera verður ráð fyrir að tón-
skáldið hafi haft kórinn sinn í huga
við samningu og raddsetningu lag-
anna enda féllu þau vel að hljómgun
kórsins sem virtist njóta þess að
syngja þau. Tónhæðin virkaði þó
stundum of lág til að kvennaradd-
irnar fengju notið sín nógu vel, sem
varð til þess að karlaraddirnar stálu
senunni á stundum þar sem ekki var
tilefni til og verður hluti af því að
reiknast á raddsetninguna, en
kannski var þetta viljandi gert.
Helgi er greinilega hugmyndaríkur
lagasmiður og raddsetjari og nær að
gæða texta Halldórs lífi á sannfær-
andi hátt. Með kórnum léku dætur
Helga, þær Hrönn og Kristjana.
Flutningur þeirra var hnökralaus
og vandaður enda báðar vel mennt-
aðir atvinnuhljóðfæraleikarar. Á
milli laganna kynnti Böðvar Sveins-
son úr Leikfélagi Mosfellssveitar
tilurð kvæðanna og gerði því hlut-
verki mjög góð og fagmannleg skil.
Auk kórlaganna fluttu þær systur
Hrönn og Kristjana verk eftir
Helga sem nefnist Kveðja og er
samið til minningar um látinn ást-
vin. Hér er á ferðinni einföld, falleg
og melodisk tónsmíð sem var mjög
vel flutt. Laglínan liggur að mestu
hjá flautunni með sjálfstæðu milli-
spili á píanóið, en undirspilið er
frekar einhæft og ósjálfstætt og
saknaði undirritaður oft sjálfstæðr-
ar mótraddar í píanóinu á móti fal-
legri línu flautunnar sem gefur
möguleika á mjög sjálfstæðum með-
leik píanósins.
Auk laga Helga söng kórinn
kvæðið Helgum frá döggvum
himnabrunns í þýðingu skáldsins
frá 1942 með hinu hefðbundna lagi
Drink to me only.... Sem aukalag
söng kórinn eigin útfærslu á enska
laginu Bráðum koma blessuð jólin.
Hér var á ferðinni bráðsmellin út-
færsla með löngum inngangi sem
leiðir smám saman inn í lagið.
Álafosskórinn er vel syngjandi
áhugamannakór og ánægjulegt að
sjá að hann kann að taka tóninn
þegjandi í stað þess að leggjast á
hann við tóngjöf. Hljómurinn var
svolítið misjafn og oft dálítið flatur,
en samt nokkuð þéttur. Kórinn
syngur vel út þegar það á við en þarf
þá að passa tónstöðuna betur, sér-
staklega vildu karlarnir stundum
reika á tóninum í sterkum söng, en
annars söng kórinn yfirleitt hreint
með góðum samhljóm.
Efnisskrá sú er tónleikagestir
fengu í hönd var til fyrirmyndar.
Ég bið að
heilsa öllum
sem ég unni
TÓNLIST
Tónlistarhúsið Ýmir
Álafosskórinn í Mosfellsbæ, Hrönn
Helgadóttir, píanóleikari, Kristjana
Helgadóttir, þverflautuleikari. Kynnir var
Böðvar Sveinsson og stjórnandi var Helgi
R. Einarsson. Fimmtudagurinn 28. nóv-
ember.
KÓRSÖNGUR
Jón Ólafur Sigurðsson
Tíu listamenn opna vinnustofusýn-
ingu í Skipholti 33B (fyrir aftan
gamla Tónabíó) kl. 20.
Listamennirnir eru: Heiðar Þór
Rúnarsson, Þórunn Inga Gísladóttir,
Sigríður Dóra Jóhannsdóttir, Her-
mann Karlsson, Sandra María Sig-
urðardóttir, Karen Ósk Sigurð-
ardóttir, Ásta Guðmundsdóttir,
Hrund Jóhannesdóttir, Hrólfur Vil-
hjálmsson og Margrét M. Norðdahl.
Á sýningunni verða málverk, ljós-
myndir, skúlptúrar og fatahönnun.
Sýningin verður opin laugardag og
sunnudag, kl. 14-18.
Heima er best að Vatnsstíg 9
Guðlaugur Valgarðsson opnar sýn-
ingu kl. 17 í gluggagalleríinu. Þar
getur að líta 8 ljósmyndir frá þessu
ári. Guðlaugur útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2001 með
skúlptúr sem sérgrein og hefur síð-
an starfað að myndlist á ýmsum
vettvangi.
Hrásalur, Listaháskóli Íslands,
Sölvhólsgötu 13 Jólatónleikar tón-
listardeildar verða kl. 20. Á píanó
leika Petra Spielvogel, Hjördís Eva
Ólafsdóttir, Páll Ivan Pálsson, Ólaf-
ur Björn Ólafsson og Ása Briem.
Ingibjörg Eyþórsdóttir og Petra
Spielvogel syngja lög við undirleik
Richard Simm.
Gallerí Nema hvað Skólavörðu-
stíg Anna Rún Tryggvadóttir opnar
myndlistarsýningu kl. 20. Sýningin
verður síðan opin frá kl. 15-18 til 11.
desember.
Þjóðarbók-
hlaða, fyr-
irlestrasalur
Bókakynning
Kvennasögusafns
Íslands verður kl.
12-13. Eftirtaldir
höfundar lesa úr
nýjum verkum
sínum: Gerður
Kristný, Ég veit
þú kemur. Marjatta Ísberg: Ljóð-
elskur maður borinn til grafar. Sig-
urbjörg Þrastardóttir: Sólar Saga.
Vigdís Grímsdóttir: Hjarta, tungl og
bláir fuglar. Elísabet Ólafsdóttir:
Vaknað í Brüssel.
Brún, Bæjarsveit Síðasta sýning á
leikritinu Taktu lagið Lóa verður kl.
21. Það eru sex leikarar leikdeildar
Umf. Íslendings sem fara með hlut-
verkin í leikstjórn Guðmundar Inga
Þorvaldssonar.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Gerður Kristný
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg
Sýningu Haraldar (Harry) Bilson,
Lífsgleði, og ljósmyndasýningu á
verkum Guðmundar Hannessonar
lýkur á sunnudag.
Gallerí Fold er opið daglega frá
10–18, laugardaga til kl. 17 og sunnu-
daga frá 14–17.
Listasafn Reykjanesbæjar
Samsýningunni Gullpensillinn
lýkur á sunnudag.
Safnið er opið alla daga frá kl. 13–
17.
Sýningum lýkur
RÉTTINDASTOFA
Eddu – útgáfu hefur
gengið frá samningi
við kínverska forlagið
Lijiang um útgáfu á
Sölku Völku eftir Hall-
dór Laxness. Síðast
kom út bók eftir hann
þar í landi árið 1985
og var það einmitt
Salka Valka. Lijiang-
útgáfan hefur frá því
að hún var sett á lagg-
irnar árið 1981 gefið
út tæplega þrjú þús-
und titla, meðal ann-
ars verk Günters
Grass, Thomas Mann
og Marguerite Duras. „Um þessar
mundir á sér stað mikil vakning í
útgáfu á verkum Halldórs erlendis
– í Norður- og Suður-Ameríku, Evr-
ópu og nú allt til Asíu,“ segir Pétur
Már Ólafsson hjá Eddu.
„Réttindastofa Eddu - útgáfu hef-
ur á liðnum árum gengið frá fjölda
samninga um útgáfu á verkum
Halldórs Laxness erlendis. Lönd
sem hafa verið honum lokuð um
árabil hafa opnast og hann hefur
fest sig í sessi á „gömlum“ mörk-
uðum. Á þessu ári hafa
verið gerðir samn-
ingar um útgáfur á
bókum hans í Bret-
landi, Bandaríkjunum,
Brasilíu, Noregi, Dan-
mörku, Þýskalandi,
Hollandi, Frakklandi,
Ítalíu, Spáni og víðar,
auk Kína. Í Þýskalandi
kom út sérstök afmæl-
isútgáfa í 777 tölusett-
um eintökum ásamt
hátíðarútgáfu af Sög-
unni af brauðinu dýra
með myndlýsingum
Söruh Kirsch. Fyrr á
þessu ári var bókin
Brekkukotsannáll gefin út í ritröð
er nefnist Stefnumót meistara í
Norsku bókaklúbbunum, þar sem
nútímalistamenn mála árlega
myndir við eitthvert sígilt bók-
menntaverk. Í undirbúningi er út-
varpsleikgerð eftir Brekkukotsann-
ál sem flutt verður í BBC og
alþjóðleg stórmynd byggð á Sjálf-
stæðu fólki er í farvatninu. Það er
því óhætt að segja að verk Halldórs
Laxness lifi góðu lífi víða um lönd,“
segir Pétur Már.
Salka Valka
gefin út í Kína
Halldór Kiljan Laxness
Í SAL félagsins Íslensk grafík í
Hafnarhúsinu Tryggvagötu 17,
(hafnarmegin) stendur nú yfir
Skúffugallerí en það er oft starfrækt
í tengslum við grafíkverkstæði, graf-
íkfélög, skóla, söfn og gallerí. Með
skúffugalleríi gefst almenningi kost-
ur á að kynnast á einum stað graf-
íkverkum íslenskra listamanna. Úr-
val þeirra verka er nú til sýnis á
veggjum sýningarsalarins til 8. des-
ember.
Sýningin er opin frá fimmtudegi
til sunnudags frá kl. 14–18. Skúffu-
galleríið er opið allt árið um kring
þegar sýningar standa yfir og eftir
samkomulagi.
Einn grafíklistamanna í sal félagsins Íslensk grafík.
Grafíkverk
á Skúffu-
galleríi
E
kk
e
rt
e
ld
h
ú
s
á
n
E
L
B
A
..
.
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
INNBYGGINGAOFNAR
hvítir-svartir-spegil-stál
11-624: 4ra kerfa hvítur 29.900,-
21-623: 4ra kerfa stál 39.900,-
21-820: 7-kerfa stál 49.900,-
41-820: 8-kerfa, 3 litir 49.900,-
DC-70: 2ja hólfa stál 59.900,-
Breiðir ofnar, 70 og 90 cm:
700-80: 8-kerfa stál, nýr 69.900,-
101-80: 8-kerfa stál 89.900,-
HELLUBORÐ, RAF- OG GAS
4ra h. steypt, hv. eða stál Frá 16.900,-
4ra h. keramik, hv. eða stál - 29.900,-
4ra h. -m/snertirofum, stál - 49.900,-
2ja h. gas, hv. eða stál - 13.900,-
4ra h. gas, hv./sp./stál - 23.900,-
5 hellu gas, stál kr. 45.900,-
Raðeiningar í miklu úrvali, m.a.
„Barbecuegrill“ á aðeins 19.900,-
Veggvifta hvít eða svört 6.900,-
Veggháfur 60 cm stál kantaður 19.900,-
Veggháfur 90 cm stál kantaður 25.900,-
Veggháfur 60 cm stál rúnnaður 24.900,-
Veggháfur 90 cm stál rúnnaður 29.900,-
Eyjuháfur 65x90 cm stál 59.900,-
Ath. Kolsíur fylga (innifaldar í verðinu)
Gerð 66 W 955
Með keramikborði og
fjölvirkum ofni, hvít
48.900,-
Gerð PX61-390
Með keramikborði og
fjölvirkum ofni, stál
64.900,-
Lygilegt en dagsatt!
Falleg, fullkomin og vönduð ítölsk raftæki - nú á eldheitu ti lboðsverði með vænum jólaafslætti!
2ja ára ábyrgð. Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
PAKKATILBOÐ: Við kaup á 2 tækjum samtímis veitum við 3% aukaafslátt,
5% við kaup á 3 tækjum og 7% við kaup á fjórum eða fleiri.
ELDHEITT JÓLATILBOÐ
60x60x85 cm