Morgunblaðið - 06.12.2002, Síða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 35
ÞAÐ er enginn hversdagssvipur á tón-leikum þeirra Kristínar R. Sigurð-ardóttur og Huldu Guðrúnar Geirs-
dóttur sópransöngkvenna og Antoniu Hevesi
píanóleikara í Grensáskirkju í kvöld kl. 20. Í
fyrsta lagi er óvenjulegt að heyra tvo sóprana
syngja dúetta á tónleikum og í öðru lagi er efn-
isskráin sérstök: bel canto tónlist allt frá
barokktímanum til Rossinis.
Kristín segir að tónlistin sem þær syngja sé
öll í bel canto-stílnum sem þróaðist úr ítölsku
óperunni allt frá árdögum hennar á sautjándu
öld en verkin spanna tímabilið frá um 1650 til
1850. „Þetta er rosalega skemmtileg tónlist og
lífleg. Hún passar líka vel þegar jólin nálgast.
Við syngjum meðal annars bæði aríur og dúetta
úr Stabat mater eftir Rossini en það er mjög há-
tíðleg tónlist og falleg. Maður fær að leika sér í
þessari tónlist. Hún var samin fyrir geldinga og
þeir voru að trilla og gera alls konar kúnstir og
flúr með röddinni og fyrir sópran er gaman að
takast á við það.“
Þær Kristín og Hulda Guðrún kynntust í
Pólýfónkórnum hjá Ingólfi Guðbrandssyni þeg-
ar þær voru báðar kornungar. „Ég var fimmtán
ára og Hulda Guðrún aðeins eldri. Við vorum
álfameyjarnar hans Ingólfs. Fyrsta árið mitt í
kórnum var einmitt verið að æfa Stabat mater
og það var ógleymanleg upplifun. Við urðum
báðar svo ástfangnar af verkinu að þegar við
byrjuðum að æfa fyrir þessa tónleika ákváðum
við strax að hafa með atriði úr þessu verki.
Þetta er draumamúsík.“
Hulda Guðrún tekur undir orð Kristínar að
þessi tónlist sé sérstaklega söngvæn. „Nú eru
aðventutónleikar úti um allt og fólk að syngja
hefðbundna jólatónlist. Þetta prógramm er hins
vegar eitthvað ferskt og nýtt – eitthvað sem
okkur fannst vanta í tónleikaflóruna hér. Dúett-
arnir eru dásamlegir og við erum vissar um að
þetta sé frumflutningur á flestum þeirra hér á
landi.“
Hulda Guðrún segir ástæðuna fyrir því hve
þessi tónlist heyrist sjaldan á tónleikum sé hve
erfið hún er fyrir söngvarann og geri miklar
kröfur til hans, þótt hún hljómi létt og skemmti-
leg í eyrum hlustandans. „Maður þarf að ráða
yfir mikilli raddtækni og fyrir okkur var það
talsverð ögrun.“ Í Pólýfónkórnum söng Hulda
Guðrún í öðrum sópran en Kristín í fyrsta, og
þannig syngja þær enn í dag – Hulda Guðrún er
í neðri rödd en Kristín á toppnum. „Ég er vön
að syngja fyrsta sópran alls staðar annars stað-
ar,“ segir Hulda Guðrún, „og þetta er því svolít-
ið erfitt fyrir mig, en ofboðslega gaman.“
Eftir tónleikana taka jólaannir við hjá söng-
konunum og báðar syngja þær talsvert við
messur og á tónleikum á aðventunni. Eftir ára-
mót ætla þær hins vegar út á land með þetta
prógramm, og eru ákveðnar í að koma alla vega
við á Siglufirði en þar starfaði píanóleikarinn
þeirra, Antonia Hevesi, um árabil. Það er ekki
mikið til af tónlist fyrir tvo sóprana og Hulda
Guðrún segir að þær hafi allar klær úti til að
verða sér úti um nótur af því sem til er. „Við
notum líka tækifærið þegar við förum til út-
landa. Meðan aðrir fara í fatabúðir förum við í
nótnabúðir og grömsum alveg gegndarlaust.“
Morgunblaðið/Þorkell
Antonia Hevesi, Kristín R. Sigurðardóttir og Hulda Guðrún Geirsdóttir.
„Þetta er
draumamúsík“
Í GALLERÍI Sævars Karls verður
opnuð sýning kl. 17 í dag en það er
hópur lista- og fræðimanna úr
ýmsum áttum sem sýnir afrakstur
tveggja ára samvinnuverkefnis um
eldfjallið Heklu. Þetta er vikulöng
sýning sem hefur yfirskriftina
Samruni – Sköpun heildar. Sýn-
ingin er tileinkuð ári fjallsins.
Blandaður hópur listamanna,
fræðimanna og arkitekta hefur í
tvö ár unnið saman að verki sem
tileinkað er eldfjallinu Heklu og er
sýningin smá innsýn í þá vinnu
sem átt hefur sér stað á þessum
tíma.
Hlédís Sveinsdóttir arkitekt, sem
er í forsvari fyrir sýninguna, segir
að verkið sé safn og sýning þar
sem fræðsla, myndlist, arkítektúr,
kvikmyndagerðarlist, ljósmyndun
og tónlist renni saman í eina heild.
Á morgun kl. 14.30 verður frum-
sýnd heimildarmynd um Heklu eft-
ir Valdemar Leifsson kvikmynda-
gerðarmann. Vignir Jóhannsson
myndlistarmaður mun flytja sam-
runaverk myndlistar og tónlistar
tileinkað Heklugosi. Hekluhof
verður sýnt af EON arkítektum,
Hlédísi Sveinsdóttur og Gunnari
Bergmann. Þau munu einnig halda
fyrirlestur í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi, 12. desember.
„Vinnsla allra þátta verksins er
mjög samofin upplifun af Heklu og
eldfjallastöðvum,“ segir Hlédís.
„Þannig verður upplifunin „focal
point“ listamannsins, sem túlkar
náttúruna í myndlist og skúlptúr-
um, tónlistarmaðurinn túlkar hljóð
náttúrunnar og skáldið semur óð
til eldgossins. Allir þessir þættir
koma saman við sköpun og arkí-
tektúr byggingarinnar.“ „Sýningin
er einstök að því leyti að þar sýna
aðilar úr ólíkum list- og fræði-
greinum saman verk, sem mótast
af þessu einstaka náttúruundri
sem Hekla er.
Ekki er einungis um að ræða
samrunaverkefni list- og fræði-
greina heldur einnig samruna hins
manngerða og náttúrunnar. Einnig
er þetta eina sýningin á ári fjalls-
ins, sem tileinkað er þessu þema, í
landi okkar, landi fjallana.“
Við opnun í dag mun Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari flytja
tónverk og Ari Trausti Guðmunds-
son jarðeðlisfræðingur og rithöf-
undur flytur eigið efni sem hann
tileinkar Heklu.
Morgunblaðið/Golli
Hér má sjá nýtt hraun renna niður hlíðar hinnar mikilúðlegu Heklu en sýning henni tileinkuð verður opnuð í dag.
Til heiðurs Heklu
VIOLA da gamba félagið er ný-
stofnað félag og er ætlað þeim sem
hafa áhuga á hljóðfærinu og tónlist
fyrir gömbur, jafnt leikmönnum
sem lærðum. Viola da gamba félag-
ið heldur sína fyrstu tónleika í lista-
safni Ásmundar Sveinssonar í Sig-
túni í hádeginu á morgun, laugar-
dag, kl. 12:30. Á tónleikunum leikur
Sigurður Halldórsson á sópran-
gömbu, Hildigunnur Halldórsdóttir
á tenorgömbu, Ólöf Sesselja Ósk-
ardóttir á bassagömbu og Snorri
Örn Snorrason á lútu tónlist frá
endurreisnartímanum auk verks
eftir núlifandi tónskáld, Arvo Pärt.
Íslenska Viola da gamba félagið
er aðili að norrænum félagsskap
gömbuleikara og eru samsvarandi
félög starfandi í mörgum löndum.
Viola da gamba er strengjahljóð-
færi (með fimm, sex eða sjö
strengjum), strokið með boga og
var mjög vinsælt á endurreisnar-
og barokktímanum í Evrópu. Á
endurreisnartímanum þróaðist sú
list að semja tónlist fyrir litla hópa
af gömbum eða öðrum hljóðfærum,
svokallaða consort-músík þar sem
allar raddir voru jafn þýðingarmikl-
ar og blómstraði hvað mest í Eng-
landi. Leikið var á mismunandi
stærðir af viola da gamba, þ. e.
sóprangömbur (discant, treble),
tenórgömbur og bassagömbur, al-
veg frá tveggja manna samspili upp
í sex-átta manna hópa. Ríkulegur
sjóður af þessari tónlist fyrirfinnst
og er aðgengilegur fyrir okkur í
dag.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þau leika á fyrstu tónleikum Viola de gamba-félagsins í Ásmundarsafni í
hádeginu á morgun: Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Hildigunnur Halldórs-
dóttir, Snorri Örn Snorrason og Sigurður Halldórsson.
Nýtt gömbufélag á
hádegistónleikum
í Ásmundarsafni
Eitt litið ævintýr
lystugt af þremur
riddurum – Klám-
saga og fjögur
önnur misjafnlega
siðlát ævintýri frá
sautjándu öld.
Hér birtast í
fyrsta skipti á
prenti fimm æv-
intýri sem voru skrifuð og líklega þýdd
af Jóni Eggertssyni (um 1643–1689)
frá Ökrum á meðan hann sat í skulda-
fangelsi í Kaupmannahöfn veturinn
1686–87. Tvö þeirra teljast til eró-
tískra bókmennta en þar segir af
kvensemi þriggja riddara og ævintýr-
um smíðasveina. Tvær sagnanna eru
hefðbundin ævintýri og fjalla um unga
menn sem eignast konungsríki og
kóngsdóttur með hugviti sínu. Loks
segir frá forboðnum ástum munks og
abbadísar. Ævintýrin eru í handriti í
Konunglega bókasafninu í Stokk-
hólmi og hafa ekki áður komist á
prent.
Einar G. Pétursson handritafræð-
ingur við Stofnun Árna Magnússonar
á Íslandi bjó til prentunar og ritar inn-
gang.
Útgefandi er Einar G. Pétursson og
Söguspekingastifti. Háskólaútgáfan
dreifir. Bókin er 66 bls. Verð: 2.190
kr.
Forn ævintýri
Hinn frægi drengjakór Norska ríkisútvarpsins,
Sølvguttene – Silfurdrengirnir,
heldur tónleika í Hallgrímskirkju kl. 20.00
sunnudaginn 8. desember
Á efnisskránni eru m.a. Kyrie – Sanctus (G.P. Palestrina), Liten
kormesse (Kjell Mørk Karlsen), Cry out (Knut Nystedt), Die Himmel
erzählen (H. Schütz), Halelújakórinn (G. F. Händel) og norsk jólalög
(úts. Per Steenberg).
Stjórnendur: Torstein Grythe og Tore Erik Mohn.
Organisti: Tore Erik Moen
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um kórinn og sögu hans er að finna á heimasíðu
Norska sendiráðsins.