Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 43

Morgunblaðið - 06.12.2002, Page 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 43 höfðum gaman af glímunni við úr- lausnarefnin og gaman af að skrafa um lífið og tilveruna yfirleitt. Ekki fékk deildin þó að njóta starfa hans nema hálft árið því að yfirvöld heimiluðu aðeins þrjár stöður veð- urfræðinga samtals í Veðurfars- deild og þeirri deild, sem þá hét áhaldadeild. Þórir hélt áfram að bæta við þekkingu sína í forritun og þar nutu hæfileikar hans sín vel. Tölvu- öldin var runnin upp og Rafmagns- veita Reykjavíkur fékk augastað á þessum starfsmanni Veðurstofunn- ar1971, en veðurfræðingurinn kom aftur heim 1976 og varð starfs- maður Veðurfarsdeildar. Þetta var mikið lán fyrir deildina og mig. Ég gat ekki verið í fullu starfi á Veð- urstofunni og þurfti stundum að fá frí frá störfum. Í tvö ár var hann settur deildarstjóri, þegar svo stóð á. Það kom auðvitað að því að veð- urfarsdeild gat ekki lengur einokað Þóri og þekkingu hans. Verkefnin kölluðu að í allri starfsemi Veð- urstofunnar og á honum hvíldi höf- uðábyrgðin á allsherjar tölvuvæð- ingu stofnunarinnar. Tölvudeild var stofnuð 1984, en áratuga góðu samstarfi okkar Þóris var þó ekki lokið. Ég átti enn nokk- ur ár eftir til starfsloka og áfram gat ég leitað til hans með vanda- mál, sem þvældust óþægilega fyrir okkur hinum. Blessuð sé minning Þóris. Ég kveð hann með virðingu og þökk, og votta syni hans og fjölskyldunni allri innilega samúð. Adda Bára Sigfúsdóttir. Það er með söknuð í huga að ég sest niður til að skrifa fáeinar línur til að kveðja starfsbróður minn, Þóri Sigurðsson. Það er örstutt síð- an við hittumst í matsalnum á Veð- urstofunni, það er líka örstutt þótt ár sé liðið síðan við í „Extended uts“ fórum með Þóri út að borða í tilefni sjötugsafmælis hans. Það er heldur ekki langt síðan við kvödd- um Þóri þegar hann lét af störfum á Veðurstofunni. Ég kynntist Þóri fyrir átta árum þegar ég hóf störf á Veðurstofunni. Hann var þá deildarstjóri upplýs- ingatæknideildar, en fljótlega skipt- um við um hlutverk. Þannig gat Þórir einbeitt sér að forritun á und- irstöðukerfi stofnunarinnar sem hann á heiðurinn af. Kerfið er enn í fullum gangi og hefur reynst með afbrigðum vel. Það gengur undir nafninu „Doddar“ í höfuðið á Þóri og höfum við oft skemmt okkur við ýmsa orðaleiki í tengslum við það. Það var gaman að vinna með Þóri. Hann lá ekki á skoðunum sín- um og þegar honum fannst þessi krakki sem nú var orðin yfirmaður hans ganga of langt eða fá einum of frumlegar hugmyndir þá fékk krakkinn svo sannarlega að heyra það og oft með réttu. En alltaf var það gert á svo indælan máta að auðvelt var að taka málin upp aftur og stundum gerði hann frumlegu hugmyndirnar að veruleika. Þórir hafði einstaka kímnigáfu og hennar gætir enn hjá okkur í deildinni. Þegar ég fletti í gegnum tölvupóstinn minn finn ég skeyti frá honum um háalvarleg tölvumál krydduð með hverju gullkorninu á fætur öðru. Alveg fram á síðasta dag hugsaði hann til okkar og sendi okkur létt skeyti sem lífguðu upp á tilveruna. Ég held ég geti talað fyrir munn nánustu samstarfsmanna Þóris. Við söknum hans og erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með honum. Kæru Siggi og Katrín og aðrir aðstandendur! Ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Halla Björg Baldursdóttir. Vinur minn og starfsbróðir, Þórir Sigurðsson, veðurfræðingur, er lát- inn. Hann kenndi sér ekki meins fram á kvöld á laugardegi en var látinn síðdegis á þriðjudegi. Veður skipast stundum skjótt og óvænt í lofti. Kynni okkar hófust þegar Þórir, að loknu stúdentsprófi við Mennta- skólann í Reykjavík, kom til náms í veðurfræði við Háskólann í Osló. Hann var skarpur námsmaður og hafði hlotið 4-ára-styrk mennta- málaráðs til námsins. Hann lauk fyrst cand. mag. prófi í undirstöðu- greinum, en síðan cand. real. prófi með veðurfræði sem aðalgrein í desember 1958. Á háskólaárunum 1951-1958 hafði Þórir oft stundað sumarvinnu á Veðurstofunni. Hann var því kunnugur stofnuninni þegar hann hóf þar störf sem veðurfræðingur í ársbyrjun 1959. Fyrstu 12 árin starfaði hann að hálfu í áhaldadeild, sem nú kallast tækni- og athug- anasvið Veðurstofunnar, en að hálfu í veðurfarsdeild. Vorum við þá mjög nánir samstarfsmenn. Beindust störf hans annars vegar að ýmsum tæknimálum og eftirliti og kennslu á veðurstöðvum, en hinsvegar að úrvinnslu veðurathug- ana og forritun í því sambandi. Þá þegar en þó einkum eftir 1976 gerðist Þórir brautryðjandi í for- ritun og tölvumálum á Veðurstof- unni. Hann var því sjálfsagður deildarstjóri tölvudeildar þegar hún var stofnuð 1984. Á öðrum vettvangi varð Þórir þjóðkunnur sem margfaldur Ís- landsmeistari og landsliðsmaður í bridge. Þórir var um áratugi heimilisvin- ur okkar hjóna og barna okkar. Um leið og við nú með söknuði kveðjum tryggan vin sendum við Sigurði syni hans, Ástu fyrrverandi eig- inkonu hans, systrum hans og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Þóris Sig- urðssonar. Flosi Hrafn Sigurðsson. Veðurfræðingar er ein fámenn- asta stétt landsins, aðeins liðlega tveir tugir. Það er því með töl- fræðilegum ólíkindum að tveir úr hópnum skuli falla frá með fárra daga millibili. Hinn 22. nóvember var Þórir Sigurðsson veðurfræðing- ur í hópi þeirra sem fylgdu Borg- þóri H. Jónssyni starfsbróður sín- um og samstarfsmanni á Veðurstofunni til margra áratuga til grafar. Daginn eftir fárveikist Þórir og þrem dögum síðar er hann allur. Rúmlega hálf öld er liðin síðan Þórir kom fyrst til starfa á Veð- urstofunni og þá sem námsmaður í sumarvinnu. Að loknu veðurfræði- námi 1958 hóf hann störf á stofn- uninni. Til 1971 vann hann bæði á áhaldadeild og veðurfarsdeild en þá hvarf hann tímabundið til starfa á öðrum vettvangi. Frá 1976 til starfsloka árið 2000 starfaði Þórir svo fyrst og fremst í hinni töl- fræðilegu og veðurfarslegu úr- vinnslu gagna stofnunarinnar þar sem hann lagði ásamt öðrum grunninn að þeim nútímalegu vinnsluaðferðum sem þar eru við hafðar. Var hann einn af frum- kvöðlum í notkun tölva á landinu bæði í fyrrnefndri úrvinnslu svo og fjarskiptum Veðurstofunnar. Af- burða greind hans, stærðfræði- þekking og næmleiki í tölfræði nýttist vel í þessum verkefnum. Ár- ið 1984 var stofnuð sérstök tölvu- deild á Veðurstofunni og varð Þórir deildarstjóri hennar. Ég kynntist Þóri fyrst sem veð- urfræðinemi sumarið 1978 þegar hann var á veðurfarsdeildinni hjá Öddu Báru. Í fyrstu fannst mér hann fremur fáskiptinn og seintek- inn. Þetta breyttist þó þegar kynn- in jukust og maður fann að á bak við þetta yfirborð var afar vand- virkur og skipulegur fagmaður sem oft gat gert að gamni sínu. Þó fann ég stundum, að hið mikla álag og áreiti sem fylgir því að sjá um að tölvur, forrit og alls konar flókinn gagna- og fjarskiptabúnað á stórri vöktunarstofnun eins og Veðurstof- an er, setti nokkurt mark á hann. Kímnigáfa hans og léttleiki kom hins vegar skýrar fram eftir að hann ákvað að láta af starfi deild- arstjóra upplýsingatæknideildar síðla árs 1994. Síðustu fimm starfs- árin naut Þórir sín betur en nokkru sinni frá því að ég kynntist honum. Áttum við oft áhugaverður sam- ræður um allt milli himins og jarð- ar bæði á Veðurstofunni og í Graf- arvoginum þar sem við vorum grannar. Sinnaðist honum aðeins einu sinni við mig en það var þegar hann, sjálfur fyrrum landsliðsmað- urinn í bridge, hætti sér eitt sinn út í bridgekeppni með mig sem makk- er. Ég átti þá umvöndun fyllilega skilið. Fyrir hönd Veðurstofu Íslands vil ég þakka Þóri langt og giftu- drjúgt starf í þágu stofnunarinnar. Persónulega þakka ég honum kynnin og samskiptin um leið og ég votta Sigurði einkasyni hans, Katr- ínu systur hans og öðrum aðstand- endum samúð mína. Magnús Jónsson. Eins og klukka stóð hann á dyra- palli æskuheimilis míns við Drápu- hlíð vel flesta sunnudagsmorgna öll mín uppvaxtarár. Dyrabjallan hringdi og Doddi var kominn. Við systkinin vorum yfirleitt enn á náttfötunum, nýbúin að belgja okk- ur út af eggjum og beikoni. Þegar við opnuðum dyrnar stóð hann á tröppupallinum hávaxinn og ögn toginleitur undir grárri og hárri loðhúfunni. Hann settist yfirleitt í sama stólinn og kveikti í pípu. Spjallaði svo um heima og geima, út og suður. Talaði bæði hátt og lágt, hristi höfuð, kinkaði kolli – og svo var hann farinn. Stundum kvaddi hann, en stundum hvarf hann bara án þess að kveðja. Ekki svo að skilja að kastast hafi í kekki með honum og heimilismönnum, öðru nær. Þetta var bara hans hátt- ur. Inn á milli umræðuefna á borð við málefni Veðurstofunnar, lands- og heimsmál, hafði Þórir Sigurðs- son alltaf tíma til að tala við börnin. Þessi sérkennilegi maður sem stöku sinnum kann að hafa virst óárennilegur fyrir fullorðna var nefnilega allt annað í augum barna. Frá okkar bæjardyrum séð var hann opin bók; léttur og kátur, skemmtilegur og fræðandi. Hann las erlend dagblöð og tímarit, hlut- saði á margvíslega tónlist, spilaði á spil og hafði gaman af að fara í bíó. Margsinnis fór hann með Ágústu, eldri systur minni, að sjá allskyns undarlegar myndir, en sjálfur minnist ég ógleymanlegrar ferðar í Tónabíó 11 eða 12 ára gamall að sjá njósnara hennar hátignar sem örugglega var ætlaður talsvert eldra fólki. Hversu margir heim- ilisvinir fara með börn vina sinna í bíó sér og þeim til gamans? Þeir eru ekki margir, en Þórir Sigurðs- son var heldur ekki venjulegur maður. Í eðli sínu var Þórir heimsmaður, ekki síður en James Bond. Hann var vel gefinn og vel að sér. Hann var líka á margan hátt menning- arlega sinnaður og hafði yndi af listum og leikjum, eins og bridge- snillin og tónlistaráhuginn sýna. Það er engin tilviljun að þegar for- eldrar mínir keyptu sér fyrst al- vöruhljómflutningstæki snemma á áttunda áratuginum kom Þórir og lánaði þeim sínar bestu plötur. Í því góða safni kenndi margra grasa, en efst í mínum huga eru Louis Arm- strong, Nat King Cole, Harry Bela- fonte og fleiri meistarar djass- og dægurlagatónlistar, í góðu blandi – hrært en ekki hrist – við Brand- enburgarkonserta Bachs; „Dia- monds are forever“, svo enn sé vitnað í 007. Skömmu eftir lát Þóris átti ég símasamtal við Ágústu systur mína, en hún er búsett í Bandaríkjunum. Við höfðum ekki lengi talað þegar ljóst var að við höfðum bæði fengið sömu hugmyndina. Okkar persónu- lega minningarathöfn um Dodda hlyti að vera ferð á nýjustu mynd- ina um njósnarann hugumstóra, James Bond, og skála svo í þurrum martini á eftir, hvort í sinni heims- álfunni. Fyrir hönd okkar beggja þakka ég Þóri Sigurðssyni fyrir að hafa auðgað tilveru okkar og fyrir að hafa verið sá sem hann var. Nú er hann farinn og eins og stundum áð- ur, án þess að kveðja. Syni hans og öðrum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Sigurður Flosason. ✝ Arthur VincentÓBrien fæddist í Streator í Illinois í Bandaríkjunum 1. nóvember 1920. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 25. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Mary T. O’Brien, f. 26. októ- ber 1875, d. 26. júní 1962, og Daniel J. O’Brien, f. 30. ágúst 1875, d. 2. maí 1944. Systkini Arthurs voru Edman O’Brien, Willard O’Brien, Zita Walsh, Mild- red Cassidy, systir M. Amadeus O’Brien og eftirlifandi bróðir Don- ald O’Brien. Hinn 29. nóvember 1946 kvænt- ist Arthur eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Svövu Jósafatsdóttur O’Brien, f. 9. desember 1913. Hún er dóttir Sigríðar Jónsdóttur, f. 18. nóvember 1880, d. 25. janúar 1936, og Jósafats Sigurðssonar, f. 6. maí 1876, d. 31. desember 1967. Börn Sigríðar og Arthurs eru 1) Richard J. O’Brien, f. 29. desember 1948, giftur Guðrúnu Ottósdóttur O’Brien, f. 17. september 1951. Þau eiga fjögur börn. Þau eru: Sig- ríður Svava, f. 12. júlí 1980, Mari- anna Rós, f. 18. júlí 1983, Richard Ottó, f. 20. ágúst 1986, og Karen Lilja, f. 12. nóvember 1992. Sonur Rich- ards frá fyrra hjóna- bandi er Arthur Daniel, f. 27. nóvem- ber 1971. 2) Theresa Anne O’Brien, f. 9. júní 1957. Eiginmað- ur hennar er Sigfús Jóhannesson, f. 14. febrúar 1956. Þau eiga þrjú börn. Þau eru: Þorbjörg, f. 31. mars 1986, Hrund, f. 24. janúar 1990, og Birkir Snær, f. 7. júlí 1992. Arthur ólst upp hjá foreldrum sínum á búgarði í Streator í Illin- ois. Hann fór í bandaríska herinn 1942 og var sendur til Íslands í mars 1944 þar sem hann gegndi herþjónustu fram til ársins 1951. Hann hóf þá störf hjá verktakafyr- irtækinu Hamilton sem vann að uppbyggingu á Keflavíkurflug- velli. Hann gegndi síðan ýmsum fjármálastörfum á vegum hersins á Keflavíkurflugvelli fram til árs- ins 1978. Þá réðst hann til starfa hjá skólakerfi bandaríska hersins í Karslruhe í Þýskalandi, og síðar í London. Árið 1982 fór hann á eft- irlaun og fluttist aftur til Íslands. Útför Arthurs fer fram frá Landakotskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku afi OB. Okkur langar að skrifa nokkrar línur og þakka þér fyr- ir allar góðu samverustundirnar sem við áttum með þér. Allar góðu mat- arveislurnar þínar og hennar ömmu eru ógleymanlegar og gamlárs- kvöldin verða aldrei þau sömu án þín, sérstaklega fundum við fyrir því eftir að við fluttum út til Þýskalands þegar við komum bara einu sinni á ári í heimsókn. Við þekktum aldrei neinn annan afa en þig. Okkur fannst svo flott að þú skyldir koma frá Ameríku og myndin af þér í fína offisera-bún- ingnum sem er inni í stofu hjá mömmu og pabba verður alltaf til að minna okkur á hversu glæsilegur þú varst. Það var ekki skrýtið, amma mín, að þú skyldir falla fyrir honum afa. Elsku pabbi, Theresa frænka og elsku amma, missir ykkar er mikill og við vottum ykkur okkar innilegustu samúð og biðjum guð að geyma þig, elsku afi. Svava, Marianna Rós, Richard Ottó og Karen Lilja O’Brien. Afi O’B. var besti afi í heiminum. Hann var alltaf í góðu skapi. Hann hefur alltaf verið með okkur á jólun- um og það var alltaf jafnskemmtilegt að hafa hann. Á hverjum sunnudegi komum við heim til afa og ömmu og fengum mjög góðar kökur sem hann og amma höfðu búið til. Amma og afi hjálpuðust alltaf að og afi var alltaf mjög góður við ömmu. Við höfum aldrei séð afa öðruvísi en brosandi. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Hrund og Birkir Snær. Arthur ÓBrien hét hann. Fæddur og uppalinn í miðríkjum Ameríku. Hann var 81 árs þegar hann lést. Hann ólst upp í stórum systkinahópi á búgarði í sveitinni. Hann átti sex systkin, aðeins einn bróðir er eftirlif- andi. O.Bí var hann alltaf kallaður hér á Íslandi. Hann gekk í herinn 1942 og var sendur til Íslands í mars 1944. Herdeildin var send með skipi sem þýskur kafbátur sökkti. O.Bí sem aldrei hafði lært að synda, bjargaðist aðeins vegna þess að hann náði í björgunarhring. Ósyndur maðurinn enda ekki séð meira vatn en í bað- kerinu heima hjá sér. Eins og fleiri Ameríkanar fór hann á Borgina að dansa, þegar hann átti frí. Þar kynnt- ist hann konu sinni, Sigríði, sem í fyrsta skipti kom þangað með vin- konu sinni. Fær hún enn glampa í augun þegar hún minnist þess er hann bauð henni upp. Þessi gjörvilegi kurteisi og mikli herramaður sem hann var. Hann bar af öðrum mönnum, svo glæsilegur í einkennisbúningnum að stúlkurnar sneru sér við þegar þær sáu hann. Þau felldu hugi saman og giftu sig 29. nóv. 1946. Ég spurði Siggu einu sinni hvort hún hefði orðið fyrir aðkasti þegar þau voru að slá sér upp. Aldrei, sagði hún. Sjálf var hún úr stórri fjölskyldu sem alla tíð hélt sérstaklega vel sam- an og studdu þau hvert annað með ráðum og dáð. O.Bí var hamingjusamur maður með sína stóru íslensku fjölskyldu. Hann bar konu sína á höndum sér alla tíð og uppfyllti hverja þá ósk sem hún bar í brjósti. Sjaldgæft er að sjá svo mikla ást og virðingu hjóna hvort fyr- ir öðru. Þau eignuðust soninn Richard 1948. Er hann búsettur í Þýskalandi, kvæntur Guðrúnu Ottósdóttur og á fjögur börn. Dóttirin Theresa fæddist 1957, gift Sigfúsi Jóhannssyni og á hún þrjú börn. Hún er búsett hér heima. Þau lifðu fyrir börn sín og barna- börn enda samheldin fjölskylda. O.Bí og Sigga bjuggu mestallan sinn búskap á Íslandi. Hann langaði ekkert að flytja aftur til Bandaríkj- anna. O.Bí var í hernum til 1951. Eftir það vann hann fyrir herinn og gegndi fjölmörgum störfum á hans vegum. Þau fluttu til Karlsruhe í Þýskalandi og London í Englandi í nokkur ár eða frá 1978–1982. O.Bí var tvisvar sinnum heiðraður af Bandaríkjaher fyrir vel unnin störf. Hann talaði góða íslensku með mjög sterkum hreim, svo unun var á að hlýða. Alltaf var gaman að koma í fjöl- skylduboð hjá Jósafatsfjölskyldunni. Þessi stóra fjölskylda var vinafólk for- eldra minna, en Stefanía systir Siggu var mikil vinkona móður minnar frá barnæsku. Viljum við móðir mín og bræður þakka alla þá elsku sem okk- ar fjölskylda naut meðal þeirra. Móðir mín í hárri elli kveður hér kæran vin sem alltaf hélt tryggð við hana með Siggu sinni. Vil ég þakka þeim og allri fjölskyldunni vináttu og tryggð í öll þessi ár. Biðjum við þeim Guðs blessunar og þeim gefist styrkur í þeirra miklu sorg. Sigurbjörg Axelsdóttir. ARTHUR V. O’BRIEN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.