Morgunblaðið - 06.12.2002, Side 64

Morgunblaðið - 06.12.2002, Side 64
DAGBÓK 64 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Mingo kemur í dag. Árni Friðriksson og Mána- foss fara í dag. Fréttir Bókatíðindi 2002. Núm- er föstudagsins 6. sept- ember er 57338 Mannamót Aflagrandi 40. Jólahlað- borð föstudaginn 6. des- ember, húsið opnað kl. 17. Árskógar 4. Kl. 13-16.30 opin smíða- og handa- vinnustofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8- 16 hárgreiðsla, kl. 8.30- 12.30 böðun, kl. 9-16 handavinna, kl. 9-17 fótaaðgerð, kl. 13-16 frjálst að spila í sal. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: Kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15-16 bókaspjall, kl. 17-19 æfing kórs eldri borgara í Damos. Laug- ard: Kl. 10-12 bókband. Félagsstarfið, Dalbraut 18-20. Kl. 9-12 aðstoð við böðun, kl. 9-16.45 opin handavinnustofan, hár- greiðslustofan opin kl. 9- 16.45 alla daga nema mánudaga. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8-16 opin handa- vinnustofan, kl. 9-12 applikering, kl. 10-13 op- in verslunin. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9-12 böð- un, kl. 9-16.30 opin vinnustofa, myndlist, kl. 9.30 gönguhópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi eftir göngu, allir velkomnir, kl. 14 brids og spilamennska, hárgreiðslustofan opin 9-14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10-12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13. „Opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Bingó spilað í Gullsmára 13, í dag föstud kl. 14. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Tréútskurður kl 13, brids og pútt í Hraunseli kl. 13.30, námskeið í leir- mótun fyrir byrjendur kl 13, vantar fleiri þátttak- endur . Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin kl. 10-13. Morg- unkaffi, blöðin og matur í hádegi. Skrifstofa fé- lagsins er í Faxafeni 12 sími 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf, kl. 9-16.30 vinnustofur opnar m.a. bókband, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14 kóræfing. Allar upplýsingar um starfs- semina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm og silfur- smíði, kl. 9.15 ramma- vefnaður, kl. 13 bók- band. Laufabrauðbakstur verður í Gjábakka laug- ardaginn 7. desember kl. 13. Ungir sem aldnir eru hvattir til þátttöku og beðnir um að taka með sér áhöld til laufa- brauðsgerðar. Skóla- hljómsveit Kópavogs kemur í heimsókn. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlistahópur, kl. 14 bingó. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, fótaaðgerð og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 böðun, kl. 10 mæðra- morgunn. Kl. 14-16 jóla- bingó. Allir velkomnir. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Norðurbrún 1. Kl. 9-13 tréskurður, kl. 9-17, hár- greiðsla kl. 10-11 boccia. Jólamatur og skemmtun kl. 18 í kvöld. Guðrún Þórisdóttir djákni flytur jólahugvekju, kór Vest- urgötu syngur, María Jónsdóttir syngur. Hús- ið opnað kl. 17.30. Allir velkomnir. Upplýsingar í s. 568 6960. Vesturgata 7. Kl. 9-16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15-14.30 alm. handavinna, kl. 10- 11 kántrý dans, kl. 11-12 stepp, kl. 13.30-14.30 sungið við flygilinn, kl. 14-15 félagsráðgjafi á staðnum, kl. 14.30-16 dansað í aðalsal. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir- mótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum með börnin sín á fimmtudag kl.13-15 á Loftinu í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5. Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Vinabandið. Laug- ardaginn 7. desember kl. 13 leikur Vinabandið tónlist fyrir gesti Kola- portsins. Vinabandið hefur gefið út geisladisk og er hann til sölu á staðnum auk þess að meðlimirnir árita á staðnum. Hana-nú, Kópavogi. Sunnudaginn 8. desem- ber verður farið með rútu í skóginn við Fossá í Kjós í landi Skógrækt- arfélags Kópavogs, lagt af stað frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.10. Jólatré valin og aðstoðað við að höggva þau. Ferð fyrir alla fjölskylduna. Fólk er beðið að mæta með jólasveinahúfur og nesti. Frestur til að panta miða á Vínartón- leika Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Há- skólabíói rennur út föstudaginn 13. janúar. Upplýsingar í Gjábakka s. 554 3400 og Gullsmára s. 564 5261. Félag kennara á eftir- launum. Jólafundurinn verður laugardaginn 7. desember klukkan 13.30 í Húnabúð, Skeifunni 11. Á dagská verður: Fé- lagsvist, veislukaffi, skemmti- og fræðsluefni sem Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður annast og söngur Ekkókórsins sem Jón Hjörleifur Jónsson stjórnar. Undir- leikari kórsins er Sól- veig Jónsdóttir. Minningarkort Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofu- tíma. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu félagsins í Suðurgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552- 2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16-18 en utan skrifstofu- tíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586- 1088. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. Minningarkort MS fé- lags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán. til fim. kl.10-15. Sími 568-8620. Bréfs. 568- 8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eftirtöldum stöðum: Í síma 588- 9220 (gíró) Holtsapóteki, Vesturbæjarapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Ísafirði. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd á skrifstofutíma í síma 552-4440 frá kl 11-15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http://www.parkinson.is/ sam_minningarkort.asp Í dag er föstudagur 6. desember 340. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.) Víkverji skrifar... ALLIR vita að ræður á AlþingiÍslendinga eru lengri en á nokkru þjóðþingi öðru, enda heyrir það líklega til undantekninga að ræðutími sé ótakmarkaður eins og í almennum umræðum á Alþingi. Fróðir menn halda því fram að sennilega sé jafnmikið vit í ræðum á Alþingi og á öðrum lýðræðislegum fulltrúaþingum, það sé bara miklu minna af því á hverja mínútu, af því að ræðurnar séu svo langar og þing- menn hafi lítinn hvata til að þjappa því, sem þeir ætla að segja, í nokkr- ar hnitmiðaðar setningar. x x x ER SKÖRIN samt ekki farin aðfærast upp í bekkinn þegar þingmenn kvarta undan því í tví- gang á skömmum tíma að formaður fjárlaganefndar þingsins sé ekki nógu langorður? Ólafur Örn Har- aldsson var skammaður af stjórn- arandstöðunni bæði við aðra og þriðju umræðu um fjárlagafrum- varpið af því að framsöguræður hans fyrir áliti meirihluta fjárlaga- nefndar voru svo stuttar! Benti nefndarformaðurinn þó samþing- mönnum sínum á það – eins og rétt er – að öll gögn lægju fyrir og hefðu verið rædd ýtarlega í nefndinni. Vík- verji verður að segja fyrir sitt leyti að honum hefur alltaf fundizt furðu- legur tvíverknaður í því, þegar nefndarálitum er fyrst dreift prent- uðum á þinginu (væntanlega til þess að þingmenn geti lesið þau) og svo fer framsögumaður í pontu og les álitið meira og minna orðrétt. Vík- verja sýnist því að nýbreytni Ólafs Arnar sé til fyrirmyndar, enda eru þingmenn fljótari að kynna sér texta með því að lesa hann en að heyra hann lesinn upp. x x x MEIRA um orðgnótt þingmanna.Lengsta umræða þingsögunn- ar var líklega um EES-samninginn á sínum tíma. Þá varði Alþingi heilum 102 klukkustundum (tveimur og hálfri vinnuviku) í umræður um kosti og galla samningsins. Í hinum EFTA-ríkjunum datt þingmönnum ekki svona margt í hug til að tala um og samningurinn var afgreiddur eft- ir átta klukkustunda umræðu á aust- urríska þinginu og fjórtán og hálfan klukkutíma á því sænska. Norskir þingmenn létu sér duga tvo daga til umræðna og finnskir þrjá. Sennilega var meira vit á mínútu í þeim um- ræðum en málæðinu á Íslandi. x x x ÞINGMENN gera fleira gagn-legt í ræðustóli Alþingis en að tala; þannig þagði Hreggviður Jóns- son, þá þingmaður Borgaraflokks- ins, í hálftíma í pontu milli jóla og nýárs árið 1987. Vildi hann ekki tala fyrr en fjármálaráðherra væri mættur í salinn, enda var söluskatt- ur til umræðu. Sighvatur Björgvins- son, sem þá sat í forsetastóli, bað þingmenn vinsamlegast að hafa hljóð í þingsalnum á meðan þing- maðurinn væri í pontu. Ekki hlýddu þó allir því. Víkverji var viðstaddur þessa merku umræðu og rekur minni til að þingmenn hafi kallað fram í fyrir Hreggviði (ef hægt er að kalla fram í fyrir þegjandi manni) að þetta væri líklega bezta ræða, sem hann hefði haldið. Muni Víkverji rétt komst Hreggviður í heimsmetabók Guinness fyrir þessa löngu og áhrifaríku þögn í þingræðu. Gott starfsfólk VEGNA skrifa í Velvak- anda nýlega verð ég að verja starfsfólk Body Shop í Kringlunni. Ég hef mjög oft verslað í þessari verslun og alltaf gengið út úr henni með bros á vör. Stúlkurnar sem vinna þarna eru mjög kurt- eisar, almennilegar og hafa góða þekkingu á vörunum sem þær eru að selja. Það er nú ekki langt síð- an að ég var 14 ára, eins og stúlkurnar sem skrifuðu í laugardagsblaðið, og lenti í því að mér fannst starfsfólk fylgjast meira með mér heldur en fullorðna fólkinu og fór það mikið í taugarn- ar á mér. Auðvitað geta orðið mistök og saklaust fólk sakað um þjófnað og alltaf er það leiðinlegt. En þegar það gerist tvisvar sinnum hjá sömu stelpun- um verð ég nú að segja eins og er, að eitthvað hlýtur að vera grunsamlegt við hegð- un þeirra inni í versluninni. Þær ættu kannski að líta í eigin barm áður en þær rjúka í blöðin. Ánægður viðskiptavinur. Góð hársnyrtistofa ÉG ER búinn að prófa ýmsar hársnyrtistofur og er frekar vandlátur því mér er ekki sama um hárið mitt. Ég komst á eina stofu sem er sú besta sem ég hef próf- að en það er Hárný við Ný- býlaveg í Kópavogi. Þar er vel tekið á móti kúnnanum og skiptir útlit og annað ekki máli. Einnig er þar mjög gott aðgengi fyrir fatlaða. Ég veitti því at- hygli að þar er mjög gott starfsfólk og það er komið fram við alla með bros á vör og allir svo jákvæðir. Hafliði Helgason. Sammála ELLEN hafði samband við Velvakanda og vildi hún taka undir orð konu sem skrifar um óviðeigandi orðalag á söfnunarbaukum Hjálparstofnunar kirkj- unnar. Dýrahald Lady er týnd LADY er 9 mánaða læða, svört og hvít. Hún er ómerkt og týndist frá Þver- holti 24 í Reykjavík. Ná- grannar eru beðnir að svip- ast um eftir henni í skúrum og geymslum. Þeir sem hafa orðið varir við Lady hafi samband við Ólafíu í síma 562 4766. Doppa er týnd DOPPA er hvít með svart- ar skellur og týndist frá Sunnubraut í Kópavogi í nóvember. Hún er ólarlaus. Þeir sem hafa séð hana hringi í sími 564-1018 eða 847-6868. Tapað/fundið Perlufesti týndist LÖNG perlufesti týndist norðanmegin við Hótel Sögu og á leiðinni inn í Skrúð sl. mánudag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 0701. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 andspænis, 4 svara, 7 góð lykt, 8 skilja eftir, 9 lengdareining, 11 hermir eftir, 13 langar til, 14 sjúkdómur, 15 jarðaði, 17 autt, 20 ósoðin, 22 gufa, 23 lítils skips, 24 hluta, 25 hafa upp á LÓÐRÉTT: 1 missa marks, 2 gam- alær, 3 tyrfinn texti, 4 karldýr, 5 hluti hringflat- ar, 6 stétt, 10 svardagi, 12 dýr, 13 skynsemi, 15 þreif, 16 trylltar, 18 bylg- jukvikið, 19 rýja, 20 lof, 21 kappsöm. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 geðvondur, 8 gyllt, 9 lydda, 10 uml, 11 tærir, 13 senna, 15 seinn, 18 óninn, 21 átt, 22 launi, 23 trauð, 24 sannindin. Lóðrétt: 2 eflir, 3 votur, 4 núlls, 5 undin, 6 ógát, 7 gata, 12 iðn, 14 enn, 15 sæla, 16 iðuna, 17 náinn, 18 óttan, 19 iðaði, 20 næði. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 FYRIR nokkrum dögum fékk ég póst frá Trygg- ingastofnun ríkisins og voru það nokkur blöð sem ég átti að útfylla. Ég áttaði mig ekki á hvað þarna væri um að vera og hringdi í Trygginga- stofnun til að fá upplýs- ingar um þessa sendingu. Kurteis kona svaraði mér og sagði að allir sem komnir væru á ellilífeyri fengju svona blöð til útfyll- ingar því eftir áramótin byrjar ný tilhögun á ellilíf- eyrisgreiðslum. Mér flaug þá í hug að verið væri að leita að nokkrum krónum sem ekki væru uppgefnar hjá ellilífeyrisþega. Ég sagði þessari ágætu konu að óþarfi hefði verið að senda mér þessi blöð því að svör- in við spurningunum væru öll á greiðsluseðlinum sem ég fæ við hver mánaða- mót, ár eftir ár, nema hvað vísitalan hefur verið að kroppa í ellilífeyrinn öðru hvoru. Ég er nú 88 ára gamall og hef borgað skatt í 70 ár og sá skattur hefur ekki verið af háum tekjum því ég hef allt mitt líf verið verkamaður með lágar tekjur. Í dag eru dregnar af mér 12.117 kr. í skatt, á ári gerir það 106.595 krónur. Hvar ætlar Geir Haarde að taka þessar krónur þegar ég er allur? Jóhanna Sigurðardóttir, sú indæla kona, sem alltaf er að berjast fyrir lág- launafólkið sagði nýlega í blaðaviðtali að það væri fjöldinn allur af fyrir- tækjum sem borguðu enga skatta ár eftir ár. Væri ekki ráð að láta þau borga skatta sem svöruðu þeim sköttum sem við gamla fólkið greiðum og láta okkur hætta að greiða skatta við 67 ára aldur? Það erum við lægst laun- aða gamla fólkið sem átt- um stóran þátt í að byggja upp þetta þjóðfélag, þótt núverandi stjórnendur séu að fara með það til glöt- unar. Sofus Berthelsen. Leitað að nokkrum krónum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.