Morgunblaðið - 06.12.2002, Side 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002 67
Hafið
Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess
vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomnum
tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvik-
myndalistarinnar. (H.J.) Háskólabíó.
Harry Potter og leyniklefinn
Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri
af frábærum karkaterum, ótrúlegum aðstæð-
um, spennu og hryllingi. Gaman, gaman!
(H.L.) ½
Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík, Keflavík
og Akureyri
Possession
Sannkallað konfekt fyrir auga og eyru, vönd-
uð gæðamynd; skynsamleg blanda af gamni
og alvöru, nútíð og fortíð. (S.V.) Háskólabíó
Changing Lanes
Vel leikin um afdrifaríkan dag í lífi tveggja
manna. Óvanaleg spennumynd því þar er velt
fyrir sér siðferði, fjölskylduböndum, heiðri og
skyldum, á vitrænan hátt. (S.V.) Laugarásbíó, Sambíóin.
Das Experiment
Kraftmikil og áhugaverð þýsk kvikmynd sem
gerist á hálfum mánuði í fangelsi. Fínir leik-
arar skapa trúverðugar persónur en hegðan
þeirra varpar fram krefjandi spurninga um
dýrseðlið í manninum. (H.L.) Háskólabíó
One Hour Photo
Áhugaverð kvikmynd með Robin Williams í
aðalhlutverki. Þar er fjallað um áhugaverð
efni, einsemd, mannúð og hið ómanneskju-
lega í nútímanum. (H.J.) Smárabíó
The Road to Perdition
Sláandi glæpasaga frá kreppuárunum, jafn-
framt einstætt augnakonfekt. Óskarsverð-
launatilnefningar á færibandi en útlitið inni-
haldinu yfirsterkara. (S.V.) Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Ak.
Blood Work
Eastwood er full roskinn sem harðsvíraður
löggunagli og kvennagull í eltingaleik við rað-
morðingja. (S.V.) ½
Háskólabíó
Die Another Day
Fulllöng Bond-mynd þar sem hasarinn ræður
ríkjum og húmorinn er komin í hring. Ágæt-
asta afþreying fyrir fólk í góðu skapi og með
smekk fyrir fallegu fólki. (H.L.) ½.
Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó,
Borgarbíó Ak.
The Importance of Being
Earnest
Djörf og lífleg aðlögun á hinu hárbeitta gam-
anleikriti Oscars Wildes. Orðaleikir og lúmsk
ádeila á gildi aðalsstéttar Viktoríutímans
njóta sín í lifandi leik og framsetningu, en
samþjöppun veldur því að ýmislegt úr leikrit-
inu tapast. (H.J.) 1/2
Regnboginn
Sweet Home Alabama
Witherspoon er yndisleg að vanda en það
dugar ekki til. Aðstæður ekki nógu fyndnar og
tilfinningafókusinn óskýr. Ágætis skemmtun
þó. (H.L.) ½
Sambíóin Rvk. og Kef.
Undercover Brother
Góðir grínarar hæða svarta poppmenningu
áttunda áratugarins. Mörgum aulabröndur-
um ofaukið en heilmikil hugsun í handritinu
ogmetnaður til að gera góða grínmynd. (H.L.)
½
Sambíóin
Enough
Kona fær ekki flúið geggjaðan bónda sinn.
Endurtekning á eldri (og betri) myndum af
sama sauðahúsi. (S.V.) Regnboginn, Smárabíó
The Tuxedo
Bardagasnillingurinn Jackie Chan ber vart sitt
barr í þessari mjög svohollywoodísku
spennumynd. Hún er þó á köflum fyndinn út-
úrsnúningur á bond-hefðinni. (H.J.) Laugarásbíó, Sambíóin
Simone
Synd að sjá svona lélega kvikmynd frá Andr-
ew Niccol, handritshöfundi snilldarverksins
The Truman Show. Í Simone er áfram fjallað
um fjölmiðlasamfélagið en á máttlausan
hátt. (H.J.) Regnboginn
Swimfan
Metnaðarlítil, vanmönnuð og glompótt eft-
iröpun af Fatal Attraction fyrir unglingamark-
aðinn. (S.V.) ½
Smárabíó
Halloween: Resurrection
Subbuhrollur með miklu tómatsósuflóði.
Skelfingarópin koma einungis úr hljóðrásinni.
(S.V.) ½
Regnboginn.
The Master of Disguise
Carvey hleypir illu blóði í aðdáendur sína í
ruslmynd. (S.V.) ½
Smárabíó
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Possession ku vera „sannkallað
konfekt fyrir auga og eyru“.
UMFANGSMIKIÐ Skáldakvöld var
haldið í Iðnó á miðvikudagskvöldið.
Þar lásu helstu ungskáld Íslendinga
upp úr bókum sínum sem út koma
fyrir jólin. Þeir sem lásu voru Stein-
ar Bragi úr bókinni Áhyggjudúkk-
ur, Sigurbjörg Þrastardóttir úr
bókinni Sólar saga, Andri Snær
Magnason úr bókinni LoveStar, Sig-
tryggur Magnason úr bókinni Herj-
ólfur er hættur að elska, Samúel úr
samnefndri bók Mikaels Torfason-
ar, Beta Rokk úr bókinni Vaknað í
Brussel, Gerður Kristný úr bókinni
Ég veit þú kemur og Stefán Máni úr
bókinni Ísrael. Hljómsveitin Ske lék
ennfremur órafmagnað og glamrað
var á sjórekið píanó til heiðurs Guð-
rúnu Evu Mínervudóttur.
Ungskáld í Iðnó
Sögur og sjó-
rekið píanó
Lovestar Andra Snæs hefur fengið
góða dóma að undanförnu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurbjörg Þrastardóttir les úr
fyrstu skáldsögu sinni, Sólar sögu.
SMEKKLEYSA hefur sent frá sér
tvöfaldan disk sem hefur að geyma
nýmeti og nostalgíu frá útgáfunni í til-
efni 16 ára afmælis og „þrotlauss
starfs“ í þágu al-
mennrar smekk-
leysu gegnum tíð-
ina. Til vitnisburðar
um það eru á diski 2
„Gömul svín“ –
eldri slagarar sem
gaman er að rifja
upp (suma hverja a.m.k.) – og á diski
1, „Nýir grísir“, sem hér er til umfjöll-
unar, eru hvorki meira né minna en 18
ný eða nýleg lög með hinum og þess-
um hljómsveitum sem útgáfan tengist
eða hefur á sínum snærum. Listinn er
töluvert tilkomumikill: Björk, Sigur
Rós, Mínus, Maus, o.fl.
Smekkleysa sinnir eðlilega meðlim-
um úr sínum innsta kjarna á disknum,
trompið er auðvitað Björk með „Ver-
andi“ en sérlega þekkilegt er líka
„Mysterynod“ frá Sigtryggi Baldurs-
syni, dreymandi nótur og taktar sem
renna ljúft niður. Einar Örn er hins-
vegar með furðulegri smíð, býður upp
á súrrealískt eintal yfir tölvuhljómum
sem er fáu líkt. Ef maður vill síðan
stuð og læti þá rífa Vínyll upp
stemmninguna með retrópönki sínu,
„Nobody’s Fool“ og fara hamförum í
stælum sem reyndar virka vel, og Dr.
Gunni svíkur ekki með Pat Benatar-
legu lagi sínu „Mikilvægasti maður í
heimi“, alveg ekta stuð. Ef sóst er eft-
ir rómantískari línum þá er besta val-
ið Stilluppsteypa, svo undarlega sem
það nú annars hljómar, lag þeirra
„Jetzt ist alles vorbei“ setur saman
svo værukærar nótur að hálfar væru
nóg og einnig má reyna „Try to stay
unhooked“ með Agli Sæbjörnssyni,
órafmagnað, undarlegt lag sem er
eitthvað svo klisjað og tilfinninga-
þrungið að það fer rakleiðis úr glatað-
flokknum yfir í gott. Ljóst að þessi
maður er snillingur. Sýnishorn af
listamannslegu poppi kemur frá Ske
(„Stuff“) og svona líður diskurinn
áfram, fullur af áhugaverðum og fín-
um lögum, t.d. nýtt lag með Maus sem
lofar góðu. Það sem stendur samt al-
gerlega upp úr er Mínus með „Rom-
antic Exorcism“, einstakur harð-
kjarnsýrusamruni á rokki og óvæntri
melódíu, allt að gerast og krafturinn
næstum áþreifanlegur – gríðarlega
gott lag.
Hér er boðið upp á þverskurð úr ís-
lensku tónlistarlífi í jaðargeiranum og
lögin státa flest af „góðum gæðum“
og hér fær maður mikið fyrir aurinn.
Rokkið er kannski mest áberandi en
hér má líka finna hipp-hopp, Keikó-
lög og dreymandi raftóna, rómantík
og tilraunastarf. Þetta bland í poka er
sérlega efnisríkt og hverrar krónu
virði og hver og einn ætti að fá mola
við sitt hæfi. Og svo er líka að finna
hérna mynd af hinu últra-smekklausa
póstkorti frá leiðtogafundinum ’86 –
getur maður beðið um meira?
Tónlist
Betra en grís
Ýmsir
Alltaf sama svínið
Smekkleysa
Tvöfaldur diskur frá Smekkleysu sm/ehf.
Á diski 1 eiga eftirfarandi flytjendur lög:
Mínus, Maus, Einar Örn, Kimono, Ske,
Björk, Kritikal Mazz, Lúna, Desidia, At-
ingere, Rúnk, Sigtryggur Baldursson, Eg-
ill Sæbjörnsson, Stilluppsteypa, Vinyl, Dr.
Gunni, Sigur Rós, Trabant. Alls 18 lög.
Þór Eldon hafði umsjón með útgáfu.
Steinunn Haraldsdóttir
ÁRSHÁTÍÐ Menntaskólans á Akur-
eyri fór fram á föstudagskvöldið í
íþróttahöllinni, en hún er jafnan hald-
in í tengslum við fullveldisdaginn, 1.
desember. Að þessu sinni voru sam-
ankomnir nær 800 gestir, að sögn
skólameistara, Tryggva Gíslasonar,
og sagði hann samkomuna fjölmenn-
ustu árshátíð nokkurs skóla á Íslandi.
Tryggvi sagði í ávarpi að með því
að tengja árshátíð skólans við full-
veldisdaginn vildi MA minna ræki-
lega á þann merka áfanga sem náðist
1. desember 1918 þegar Ísland varð
frjálst og fullvalda ríki. „Síðan er liðin
bráðum heil öld og margt hefur gerst,
meðal annars hafa menn gert sér nýj-
ar hugmyndir um fullveldi, frelsi og
lýðræði,“ sagði Tryggvi.
Hann sagði hið nýja fullveldi að sín-
um dómi fólgið í því að sérhver ein-
staklingur sýni umburðarlyndi og
skilning gagnvart öðrum og virði
mannréttindi og lýðræðislegar reglur
á öllum sviðum. „Í slíku fullveldi á
mannfyrirlitning og ofbeldi ekki
heima. Frelsi felst í umburðarlyndi og
verður að vera gagnkvæmt eins og
allar sannar tilfinningar og frelsi
verður að fylgja sterkur sjálfsagi. En
þjóðir heims eiga enn langt í land með
að ná markmiðum hins nýja fullveldis,
og í upphafi nýrrar aldar – aldar
menntunar og mannvirðingar, sem
eru einkunnarorð Menntaskólans á
Akureyri – ættum við að setja okkur
það markmið að sýna umburðarlyndi
og skilning gagnvart öðrum einstak-
lingum og þjóðum og virða mannrétt-
indi og lýðræðislegar reglur,“ sagði
skólameistari.
Dagskrá á hátíðinni var fjölbreytt.
Leikin var tónlist af ýmsu tagi, kór
MA söng t.a.m. nokkur lög og sjö
manna strengjasveit nærði gesti and-
lega meðan þeir röðuðu í sig krásum
sem boðið var upp á af hlaðborði, suð-
rænir dansar voru sýndir og nokkrar
hljómsveitir stigu á svið.
Heiðursgestur árshátíðarinnar var
Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra, fyrrverrandi frönskukennari
og aðstoðarskólameistari MA.
Fjölmenn árshátíð MA
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Jóhanna Himin-
björg Hauksdóttir, nemandi á fjórða ári, sem klæddist
faldbúningi, og Tryggvi Gíslason skólameistari.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hópur úr Leikfélagi MA kom skólameistara og Mar-
gréti Eggertsdóttur eiginkonu hans á óvart með atriði
úr Gesti til miðdegisfundar sem þau hjón léku í 1958.
KG
HAFNARSTRÆTI 4
162 ára
afmæli um helgina
Jörhundur segir:
Öll dýrin á barnum
eiga að vera vinir!
Húsið Hafnarstræti 4 er 155 ára um þessar mundir.
Dubliner, kátasta kráin í bænum sem er í þessu
sögufræga húsi er 7 ára um þessa helgi, við sláum
afmælunum saman og verðum með feikna fjör á
öllum hæðum alla helgina...jibbí.
Jörhundur verður heima og lifir á fornri frægð eins
og alltaf á landinu bláa.
Hin frábæra hljómsveit Frú a palli sér um að allir
og við meinum allir, skemmti sér sem aldrei fyrr.
Kátasta kráin
í bænum
Hundarlegt verð á vökva alla helgina