Morgunblaðið - 19.12.2002, Page 1

Morgunblaðið - 19.12.2002, Page 1
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri tilkynnti í gær þá ákvörðun sína að hún hefði þegið boð um að taka 5. sæti á lista Samfylk- ingarinnar í öðru kjördæmanna í Reykjavík, norður eða suður, vegna komandi þingkosninga. Boðið kom frá formanni Samfylkingarinnar, Össuri Skarphéðinssyni, og for- manni uppstillingarnefndar flokks- ins í Reykjavík, Páli Halldórssyni. Ingibjörg tekur 5. sæti á öðrum listanum þar sem átta efstu sæti flokksins í nýlegu prófkjöri, sem var sameiginlegt fyrir bæði kjördæmin, voru bindandi. Ingibjörg segir m.a. í samtali við Morgunblaðið að með ákvörðun sinni sé hún ekki að söðla um, hún geti áfram gegnt starfi borgarstjóra ef hún nái kjöri til Al- þingis. Hún segir aðstæður hafa breyst frá því í haust er hún gaf út yfirlýsingu um að hún væri ekki á leið í þingframboð. „Ég hef áhuga á að sjá breytt stjórnarmynstur og vil leggja þeirri baráttu lið,“ segir hún og bætir við að það hafi einnig breyst frá í haust að bæði Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór Þórðarson úr borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis- flokksins verði á Alþingi næsta kjör- tímabil. Össur Skarphéðinsson segist hafa farið þess á leit við Ingibjörgu fyrir nokkrum dögum að hún tæki sæti á lista flokksins í Reykjavík. „Með þessu er Samfylkingunni að takast að leiða fram mjög harðsnúið stór- skotalið fyrir komandi alþingiskosn- ingar,“ segir Össur. Vill sjá breytt stjórnarmynstur Morgunblaðið/Sverrir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ræðir við fjölmiðla eftir fund með samherjum í Ráðhúsinu í gærkvöld. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri gefur kost á sér til Alþingis  Framboð Ingibjargar/10/12 UTANRÍKISRÁÐHERRA Bretlands, Jack Straw, segir að fullyrðingar Saddams Husseins, forseta Íraks, um að hann ráði ekki yfir ger- eyðingarvopnum, séu augljós ósannindi. Í yfirlýsingu Straws í gær var sagt að 12 þúsund síðna skýrsla Íraka sem send var til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna uppfylli ekki þær kröfur sem sam- tökin hafi gert. „Hún [skýrslan] blekkir engan. Ef Saddam heldur sig við þessi augljósu ósannindi verður ljóst að hann hafnar friðaráætluninni sem lögð er fram í ályktun (öryggisráðs SÞ) nr. 1441,“ sagði Straw. Bretar benda á að í skýrslu Íraka sé ekki gerð grein fyrir vopnum sem lýst var í loka- skýrslu vopnaeftirlitsmanna sem voru reknir frá Írak 1998. Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að Írakar virtust ekki enn hafa skilið hvað væri í húfi. „En við munum taka á málinu á vettvangi SÞ, for- setinn hefur tekið af öll tví- mæli um að hann vilji starfa með SÞ og alþjóðasamfélag- inu,“ sagði Powell. Ungverska stjórnin sam- þykkti í gær beiðni Banda- ríkjamanna um að fá að nota herstöðina Taszar í sunnan- verðu Ungverjalandi til að þjálfa allt að 3.000 landflótta Íraka er eiga að túlka fyrir bandaríska hermenn ef ráðist verður á Írak. Túlkarnir eru flestir ríkisborgarar í Evr- ópulöndum eða Bandaríkjun- um. „Ungverska stjórnin samþykkti ósk Banda- ríkjamanna til að leggja fram skerf í baráttunni gegn al- þjóðlegum hryðjuverka- mönnum,“ sagði talsmaður stjórnvalda í Búdapest, Zolt- an Gal. Saka Saddam Hussein um lygar London, Washington, Búdapest. AP, AFP.  Talið/13 STOFNAÐ 1913 297. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 mbl.is Hvörfin miklu Bragi Ásgeirsson fjallar um hersetna Reykjavík Listir 32 Ný sprellsveit gefur út plötuna Skemmtileg lög Fólk 68 Ímynd unglinga Hávær umræða á fundi Ung- mennaráðs Kringluhverfis 20 SÆNSKA lögreglan leitaði í gærkvöldi með sporhundum og þyrlum að fjórum mönnum sem rændu bíl með peninga- sendingu við Solentuna, norð- vestur af Stokkhólmi. Ekki er vitað nákvæmlega hve mikla peninga þjófarnir komust á brott með, en verið var að flytja peningana á milli banka, að sögn Dagens Nyheter. Lögreglan kom að ræningj- unum, en þeir skutu þá úr vél- byssum á bíl lögreglumanna sem urðu frá að hverfa. Engin slys urðu á fólki. Ræningjarnir stöðvuðu bíla sem eltu þá með því að strá nöglum á veginn, hótuðu öryggisvörðum með vopnum sínum og skildu eftir sprengju í bílnum. Síðan tóku þeir peningana og hurfu á brott í tveimur bílum, sem fundust yfirgefnir skammt frá. Rán í Svíþjóð EIN AF sjö tillögum um ný hús á lóðinni þar sem Tvíburaturn- arnir stóðu en tillögurnar voru kynntar í New York í gær. Meðal arkitekta sem sendu inn tillögur voru Norman Foster og Richard Meier.  Tillögur/16 AP Margar hugmyndir HALLDÓR Ás- grímsson, for- maður Fram- sóknarflokksins, segir að ákvörð- un Ingibjargar Sólrúnar muni ekki styrkja samstarf Reykjavíkurlistans. Hann segir að borgarfulltrúar Framsóknarflokksins í R-listanum hafi gengið út frá því sem vísu að borgarstjóri blandaði sér ekki með beinum hætti inn í lands- málapólitíkina. Þessi staða verði rædd innan flokksins í dag. Styrkir ekki samstarfið Hér er Ég, takið eftir Mér BJÖRN Bjarna- son, oddviti sjálfstæð- ismanna í borg- arstjórn, segir Ingibjörgu Sól- rúnu vera komna í öng- stræti í stjórn borgarinnar og framboð hennar til Alþingis sé fyrsta skref hennar út úr borg- armálunum. Fyrsta skref úr borgarmálum STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður vinstri- grænna, segir að boðun samráðs- fundar innan flokksins í dag sýni að litið sé á framboð Ingibjargar Sólrúnar al- varlegum augum. Framboðið kem- ur Árna Þór Sigurðssyni á óvart. Litið alvar- legum augum TYRKIR for- dæmdu í gær þá ákvörðun Evr- ópusambandsins (ESB) að veita Kýpur aðild að sambandinu og sögðu hana óvið- unandi. Stjórn Kýpur-Grikkja á eynni var boðin aðild í síðustu viku. Þrátt fyrir þetta er ljóst að Tyrkir leggja nú hart að Kýpur-Tyrkjum að sýna sveigjanleika í samningum við grannana. Mistakist það verður enn erfiðara en ella fyrir Tyrki að fá aðild að ESB. Leiðtogi stjórnarflokksins í Tyrklandi, Recep Erdogan, sagði í gær að flokkurinn myndi ekki sjálf- krafa styðja Rauf Denktash, leiðtoga Kýpur-Tyrkja, í einu og öllu. Fordæma aðild Kýp- ur-Grikkja Recep Erdogan Ankara. AFP. SVEITARSTJÓRNIN í Galway- sýslu á vestanverðu Írlandi vill að fólk, sem setjist að í sýslum á svæði, sem nefnast einu nafni Gael- tacht, verði að geta sannað að það tali reiprennandi gelísku, hina fornu tungu Íra. Verði fólkinu ella bannað að flytja í héraðið. Þótt enska sé tunga flestra Íra er gelíska enn öflug í vesturhéruð- unum og allir Írar verða að læra hana í grunnskóla. Pol O Foighil, sem fékk tillöguna samþykkta í sveitarstjórninni, segir að vaxandi fjöldi enskumælandi aðkomufólks í Gaeltacht ógni nú gelískunni. „Ef við spornum ekki við þessari þróun munu aðeins líða nokkur ár, ef til vill 20–30 ár, áður en írsk tunga deyr endanlega í Gaeltacht,“ sagði Foighil í útvarpsviðtali. Gelíska bú- setuskilyrði Dublin. AP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.