Morgunblaðið - 19.12.2002, Page 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
3.2 milljón virkir dílar.
Aðdráttarlinsa 38-114mm.
Ljósnæmi ISO 100-400.
Hreyfanlegur skjár.
Notar Compact Flash kort.
Notar AA eða Ni-MH rafhlöður.
Verð kr. 59.900,-
STAFRÆN PENTAX
frábær myndgæði og gott verð
SJÖ hópar arkitekta víða um heim hafa skilað inn tillögum um nýja bygg-
ingu í staðinn fyrir World Trade Center, sem hrundi í hryðjuverkaárás-
unum á Bandaríkin 11. september á síðasta ári. Hefur þeim strax verið vel
tekið og miklu betur en tillögunum sex, sem kynntar voru í júlí og þóttu í
senn drungalegar og ófrumlegar. Nýju tillögurnar eru mjög ólíkar en eru
sagðar vel til þess fallnar að setja svip á borgina auk þess sem hugmyndin
að baki þeim sumum er að nokkru sótt í harmleikinn í fyrrahaust. Gera
sumir arkitektahóparnir tillögu um, að byggingarnar verði þær hæstu í
heimi.
Mikil áhersla er lögð á öryggi og styrkleika bygginganna og ekki að
ástæðulausu og allar eru þær sérstaklega hannaðar eða teiknaðar með það
í huga, að fljótlegt verði að koma fólki burt ef nauðsyn krefur.
Hér fylgja með myndir af fimm tillagnanna en í hópi arkitektanna eru
nokkrir mjög kunnir menn, til dæmis þeir Norman Foster og Richard
Meier. Á Foster hugmyndina að byggingunni á stærstu myndinni en hún er
í raun tveir turnar, sem „kyssast, snertast og verða að einum“. Meier er
höfundur byggingarinnar fyrir ofan textann.
Tillögur um nýja
byggingu í stað WTC
AP
VERULEG hætta stafar enn af
hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda
sem eru talin hafa opnað nýjar þjálf-
unarbúðir í Austur-Afganistan, að
því er fram kemur í nýrri skýrslu
sérfræðinganefndar Sameinuðu
þjóðanna.
Nefndin segir að þótt flestir
bankareikningar al-Qaeda hafi verið
frystir njóti hryðjuverkasamtökin
enn mikils stuðnings og hafi „að-
gang að verulegum fjármunum
vegna fyrri fjárfestinga sinna“.
Bretinn Michael Chandler, sem
fer fyrir sérfræðinganefndinni,
sagði á blaðamannafundi í fyrradag
að liðsmenn al-Qaeda kynnu að vera
í alls 40 ríkjum. Nefndin varaði enn-
fremur við því að al-Qaeda gæti orð-
ið sér úti um efni í kjarnavopn og
búið til „einhvers konar geisla-
sprengju“.
Chandler sagði að talið væri að al-
Qaeda hefði opnað nýjar þjálfunar-
búðir nálægt bænum Asadabad í
Kunar-héraði í Austur-Afganistan.
Hann bætti þó við að þar sem fjöl-
þjóðlegu hersveitirnar í landinu
væru alltaf að leita að slíkum búðum
væru þær „litlar og færanlegar“ og
ekki lengi á sama stað. „Það er sér-
stakt áhyggjuefni að nýir sjálfboða-
liðar hafa komist í þessar búðir,
þannig að liðsmönnum al-Qaeda
fjölgar.“
Fregnir herma að al-Qaeda hafi
einnig komið upp búðum í Pakistan
þar sem stuðningsmenn samtak-
anna séu þjálfaðir til að gera sjálfs-
morðsárásir í Afganistan. Stjórn
Pakistans hefur neitað þessu.
Njóta „geysi-
mikils stuðnings“
Chandler sagði að margir ungir
menn flykktust enn í slíkar búðir.
„Samtökin njóta enn geysimikils
stuðnings í nokkrum löndum,“ sagði
Chandler en tilgreindi ekkert land.
Ekki er vitað hversu margir liðs-
menn al-Qaeda eru en að sögn
Chandlers getur nefndin sér þess til
að þeir séu um 10.000.
Chandler sagði að engar sannanir
væru fyrir því að al-Qaeda hefði orð-
ið sér úti um efni í kjarnavopn en
ýmislegt benti til þess að samtökin
hefðu reynt það. Í skýrslu nefnd-
arinnar er meðal annars skírskotað
til þess að lögreglan í Tansaníu lagði
nýlega hald á 104 kíló af úrani. Sér-
fræðingar sögðu þó síðar að líklega
væri ekki hægt að nota úranið í
kjarnorkusprengju.
Nefndin fann engar vísbendingar
um að al-Qaeda hefði reynt að verða
sér úti um gereyðingarvopn í Írak.
Nefndin hvatti ríki heims til að
auka samstarf sitt í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfsemi í heiminum
og miðla meiri upplýsingum um
hugsanlega hryðjuverkamenn. 92
hópar og 232 einstaklingar eru nú á
lista Sameinuðu þjóðanna yfir
meinta leiðtoga og liðsmenn al-
Qaeda.
Telja al-Qaeda hafa opnað
nýjar þjálfunarbúðir
Sérfræðingar SÞ
segja að veruleg
hætta stafi enn
af hryðjuverka-
samtökunum
Sameinuðu þjóðunum. AP.