Morgunblaðið - 22.12.2002, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 B 23
bíó
ÞESSI hversdagslegu fyrstu um-mæli Christophers Lee í mín eyruvoru til marks um það sem
koma skyldi þessa viku sem við átt-
um saman hér í Reykjavík. Það var
miður vetur fyrir einum átta árum,
alvöruvetur, með fannfergi, myrkri
og kulda. Í borginni var haldin nor-
ræn kvikmyndahátíð með alþjóðlegri
dómnefnd, þar sem þessi sögufrægi
leikari var skrautfjöðurin og ég, af
einhverjum undarlegum ástæðum,
var formaður.
Lengi hafði mig langað til að hitta
Christopher Lee. Hafði dáðst að honum
frá því ég byrjaði að fara í bíó og sá
hvernig hann lagði sál sína í að gera
makt myrkranna næstum því
mennska í Hammer-hrollvekjunum á
6. og 7. áratugnum. Dracula greifi í
túlkun Lees er snilldarverk í umhverfi
sem oftar en ekki var langt frá því að
vera snilldarverk. Fyrsta myndin um
Dracula (1958) var reyndar flott og
þær næstu stundum prýðilegar en
þegar kom fram á 8. áratuginn hall-
aði undan fæti. „Þá hætti ég að leika
Dracula,“ sagði hann, „vegna þess að
framsetningu persónunnar hafði
hnignað svo mjög, ekki síst við að
flytja hana inn í nútímann, að hún
hafði enga merkingu lengur.“ Hann
átti þessar sjarmerandi en gölluðu
myndir; þegar hann birtist á tjaldinu
í svörtu skikkjunni urðu ekki aðeins
dauðir menn lifandi heldur dauðar
myndir líka. Með blóðhlaupnum
stingandi augum og dáleiðandi bassa-
rödd og lostafullum dráttum andlits-
ins gerði hann greifann að fulltrúa
hins eilífa lífsþorsta. Um leið var
Christopher Lee holdgerving illskunnar
á hvíta tjaldinu.
En í veruleikanum og viðkynning-
unni var hann góðmennskan upp-
máluð. Engir voru stælarnir eða
prímadonnuvesenið, heldur varð
hann fljótt einn af hópnum og fengi
hann danskt ákavíti varð hann hrók-
ur alls fagnaðar. Glöggt kom fram
hversu vel og víðlesinn hann er; hann
hafði lesið Íslendingasögurnar og
kunni nöfn á persónum og skil á efni
þeirra betur en nokkurt okkar hinna
sem vorum með honum þessa viku. Á
dómnefndarfundunum hélt hann sig
yfirleitt frekar til hlés; athugasemdir
hans og álit á einstökum myndum
sett fram á knappan hátt en yfirveg-
aðan.
Við ræddum mikið saman þessa
daga og ég fann að hann iðraðist svo
margra þeirra verkefna sem hann
hefur tekið að sér. Christopher Lee hef-
ur leikið í ákaflega mörgum rusl-
myndum og er skráður í heims-
metabók Guinness sem sú alþjóðleg
stjarna sem flest hlutverk hefur leik-
ið í bíómyndum, alls um og yfir 300.
Reyndar held ég að John Carradine slái
það met en hann flokkast líklega ekki
undir alþjóðlega stjörnu. Lee sagðist
hafa reynt að vanda valið og það hafi
þá mistekist, en ekki síður stafaði
fjöldi verkefna af efnahagslegum
ástæðum; hann hafði fyrir konu og
dóttur að sjá. Hann lék Dracula
meira en tíu sinnum, Sherlock Hol-
mes þrisvar, kínverska stórkrim-
mann Fu Manchu fimm sinnum, svo
dæmi séu tekin. Yfirleitt var hann
eftirminnilegri en myndirnar; t.d. var
hann það besta við Bond-myndina
The Man With the Golden Gun í hlut-
verki bófans Scaramanga – er reynd-
ar fjarskyldur ættingi Ians Fleming og
lék oft með honum golf – og vafinn í
sárabindi tókst honum að gera mú-
míuna mannlega í The Mummy.
Hann tók hryllingsmyndir sem list-
grein alvarlega, kaus að kalla þær
frekar „fantasíur“ og stofnaði
skammlíft fyrirtæki á 8. áratugnum
sem ætlað var að framleiða greind-
arlegar hrollvekjur.
Þótt hann væri ofurlítið við-
kvæmur fyrir þeirri stefnu sem ferill
hans hafði tekið gat hann einnig gert
grín að honum og sjálfum sér í leið-
inni. Hann er lúmskur húmoristi og
tók að sér nokkur grínhlutverk og
söng meira að segja í einni grínmynd,
enda hefur hann skínandi, djúpa
söngrödd og er klassískt menntaður
söngvari.
Christopher Lee er nú skriðinn á ní-
ræðisaldurinn. Fullu nafni heitir
hann Christopher Frank Carandini Lee og
er af ítölskum konungaættum í móð-
urlegg. Leiklistin er víða í ættum
hans og sjálfur fór hann að leika sem
skólastrákur. Hann er fjölmenntaður
og talar mörg tungumál, þar af þýsku
og frönsku reiprennandi. Í síðari
heimsstyrjöldinni var hann í breska
flughernum og leyniþjónustunni og
hafði áður barist sem sjálfboðaliði í
Vetrarstríðinu svokallaða í Finnlandi
1939–1940. Eftir stríðið fór hann að
leika og kom fram í aukahlutverkum í
fjölda bíómynda áður en Dracula
gerði hann að heimsstjörnu á of-
anverðum 6. áratugnum.
Þegar formaður dómnefndar á
norrænu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík beitti sér fyrir því að ís-
lenska myndin Börn náttúrunnar
yrði verðlaunuð sem besta myndin
naut hann til þess drjúgs fulltingis
Christophers Lee. Hann var gjör-
samlega heillaður af þessari einföldu
og tæru sögu um ellina og upprun-
ann, lífið og dauðann. Og þegar nið-
urstaðan var fengin sagði hann við
mig um leið og hann þakkaði ánægju-
legt samstarf: „Mikið hefði ég viljað
leika hlutverk eins og gamla bóndann
á mínum ferli.“
Eftir að við kvöddumst hefur ferill
þessa hæfileikaríka en mistæka leik-
ara flogið uppávið. Fyrir fjórum ár-
um lék hann hlutverk sem reyndi svo
um munaði á þessa hæfileika hans,
titilhlutverkið í Jinnah sem fjallaði
um stofnanda Pakistansríkis. Ég sá
sýnt úr þessari mynd í bresku sjón-
varpi og ljóst var að hér var Christ-
opher Lee með stórbrotnustu leik-
ktúlkun ferils síns. En myndin er
pakistönsk og hefur lítt verið sýnd á
Vesturlöndum, því miður. Engu að
síður er hann aftur kominn í fremstu
virðingarlínu með þátttöku sinni í
Stjörnustríðsmyndunum nýju og í
stórvirkinu Hringadróttinssögu og
Elísabet drottning sæmdi hann í fyrra
CBE-heiðursorðunni.
Oft er það svo þegar menn hitta
fólk, sem þeir hafa dáð, að viðkom-
andi fellur í viðkynningu. Svo var
ekki raunin með Christopher Lee. Í hon-
um var meiri þyngd og meiri dýpt en
mig hafði órað fyrir. Núna má öllum
ljóst vera að það er heilmikið stoff í
honum Stoffa Lee.
Stoffið í Stoffa
„Ef ég hefði vitað að hér mætti reykja
hefði ég tekið með mér pípuna mína,“ var
það fyrsta sem Christopher Lee sagði við
mig, þar sem ég púaði vindil á veitinga-
húsinu Við Tjörnina. Teinréttur, hár og
tignarlegur stóð hann þar á barnum,
klæddur dökkum jakkafötum og dumb-
rauðu vesti, og við hlið hans falleg dönsk
eiginkona í meira en fjóra áratugi, Birgit
Kroencke, kölluð Gitte, fyrrum fyrirsæta.
Djúp röddin fyllti herbergið og þjón-
ustufólkið tiplaði á tánum og gaut á hann
augunum ef vera kynni að vígtennurnar
sem hann ber í hlutverki konungs vamp-
íranna skyldu birtast. Það gerðu þær ekki.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
Christopher Leeræddi á
meðan hann dvaldist hér í Reykjavík
mikið um tengsl Hringadróttinssögu
og íslenskra fornbókmennta og hafði
kynnt sér bækurnar vel. Nú leikur
hann enn einn fulltrúa illskunnar í
stórfenglegri kvikmyndun Peters
Jackson á verki J.R.R. Tolkien,
Saruman, galdramann allra galdra-
manna. Hann er sá eini úr leikhóp og
starfsliði myndarinnar sem hitt hefur
Tolkien sjálfan.
Reuters
LIFANDI
JÓLATRÉ!
við verslanir
EUROPRIS
HVERGI
BETRA VERÐ!
1.flokks Normannsþinur
og grenibúnt
LYNGHÁLSI 4 OG SKÚTUVOGI 2 Ódýrt fyrir alla!
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Ódýrt fyrir alla! Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla!
Nýtt svínakjöt í úrvali!
Svínalundir
Nautalundir
Kalkúnn
Hátíðakjúklingur
119-
ÁVEXTIR
1/1 dós
Jólaá
vextir
nir
safar
íku!
Norðlenskt hangikjöt!
895-pr.kg.
HANGIFRAMPARTUR
úrbeinaður
pr.kg.1395-
HANGILÆRI
úrbeinað
6900-
OLÍUMÁLVERK
Stór handmáluð
Mörg mótív
Í gylltum ramma 70 x 80 cm.
OPIÐ
Í dag sunnudag 10-22
Þorláksmessu 10-23
Aðfangadag 10-14
26990-
GÓLFKLUKKA 193 CM.
úr tré, m.pendúl
79-
JÓLAKAFFI
250gr.
pr.kg.699-
HAMBORGARHRYGGIR
nýreyktir 1. fl. gæði
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla!
Þökkum viðskiptin
Eitthvað fyrir alla
í jólapakkann!
HOLDAKALKÚNN
Í JÓLAMATINN!
299-pr.kg.
SVÍNABÓGAR
1.fl. nýir og ófrosnir
790-pr.kg.
HOLDAKALKÚNN